Dagblaðið - 12.01.1979, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 12.01.1979, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1979. Orgelskóli Yamaha Skráning nýrra nemenda og upplýsingar um kennslufyrirkomulag er hafið í hljóðfæraverzl- un Paul Bernburg, Rauðarárstíg 16, sími 20111. Kennsla í byrjunarflokki og fyrir þá sem lengra eru komnir. Nýr skólastjóri: Guð- mundur Haukur Jónsson. Orgelskóli Yamaha. Starfsmannafélagið Sókn tilkynnir Af marggefnu tilefni lýsir félagið yfir að Skúli Halldórsson, fyrrum starfsmanna- stjóri ríkisspítalanna hefur ekkert talað við félagið um þær breytingar sem verið er að læða inn á einstaka deildir ríkis- spítalanna, enda um tilraun til kjara- skerðingar að ræða. Stjórnin Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs Tilboð óskast í að fullgera síðari áfanga ný- byggingar við sjúkrahús Keflavíkurlæknishér- aðs, útboðsverk II. Verkinu skal að fullu lokið 28. febrúar 1981. Áætlað er að 2. hæð hússins verði tilbúin til notkunar 15. febrúar 1980. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofuvorri, Borgartúni 7 Reykjavík, gegn 40.000.- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudag- inn 6. febrúar 1979 kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTQFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 ^ ili \ 2 B|! w Alþjóðleg ráðstefnuaðstaða í nýja Borgarleikhúsinu? „hugmyndin fellur ekki að starfsemi Leikfélagsins/’ segir Vigdís Finnbogadóttir „Mér finnst þetta sýna að það er þó ein rödd í borginni sem áttar sig á þvi að verið er að bruðla með fé, nema betri nýting fáist á Borgarleikhúsinu,” sagði Lúðvik Hjálmtýsson, formaður ferða- ntálaráðs, þegar fréttamaður bar undir hann tillögu sem Albert Guðmundsson flutti á borgarráðsfundi sl. þriðjudag. Rætt var um framlag borgarinnar til Borgarleikhússins á fjárhagsáætlun Reykjavíkur á þessu ári. Tillaga Alberts gekk i þá átt, að þegar i stað yrðu gerðar þær breytingar á fyrirhugaðri notkun væntanlegs Borgarleikhúss, að mann- virkið yrði byggt þannig að það gæti þjónað sem alþjóðlegt ráðstefnuhús i höfuðborginni jafnframt þvi að vera leikhús. ,.Ég tel að hér sé tækifæri til þess að gera hér góða ráðstefnuaðstöðu," sagði Albert i viðtali við DB. „Þessa aðstöðu vantar hér auk þess sem með hugmynd minni gæti borgin sjálf fengið mann- sæmandi aðstöðu jafnframt þvi sem fyrst og fremst yrði bætt aðstaða Leik- félags Reykjavikur, sem er alls góðs maklegt.” „Ég kann vel að meta menningarstarf Leikfélags Reykjavikur i 70 ár," sagði Lúðvik Hjálmtýsson, „en ég held að flestir geti verið sammála um það, að svona bygging er ckki skynsamleg nema hún verði nýtt betur en undir leikhúsið eitt,” bætti hann við. Lúðvik minnti á nýlegt mannvirki i Helsinki. Hótel President. Þar er, að sögn Lúðvíks, leikhús, bíó, hótel og ráð- stefnuaðstaða. Albert kvað meðal annars bæði Flug- leiðir og Ferðamálaráð auglýsa island sem gott ráðstefnuland á alþjóðlegan mælikvarða vegna legu sinnar. „Hér vantar þrátt fyrir allt boðlega aðstöðu," sagði hann. „Mér finnst þessi hugmynd alveg út í hött,” sagði Vigdis Finnbogadóttir. framkvæmdastjóri Leikfélagsins, i við tali við DB. „Það er óhugsandi að aðrir geti haft þau not af leikhúsinu sem Al bert talar um, þann hluta ársins, sem Leikfélagiðstarfar. Allar hugmyndir um að breyta nú hönnun hússins yrðu til þess að seinka byggingunni, auk þess scm það yrði ekki aðeinsdýrt heldur vafasamt hvort þaðer i rauninni hægt,"sagði Vigdís. Á fjárhagsáætlun borgarinnar er nú gert ráð fyrir þvi að veita um I30 milljón króna til að styrkja rckstur Leikfélags Reykjavikur, en aðeins 50 milljónir til byggingar Borgarleikhúss. „Við hefðum þurft að minnsta kosti 150 milljónir nú til byggingarinnar til þess að hefja næsta þriggja ára áfanga í byggingu Borgarleikhússins.” sagði Vig- dis, „en okkur er sagt að ekki séu til pen- ingar og við þvi er vist ekkerl að gera.” i borgarráði var frestáð umræðum um tillögu AlbertsGiuðniuiulssonar. . BS Prestafélag Suðurlands: Nýtt Arnarfell komið til landsins Þeir voru hressir og kátir, Bergur Pálsson skipstjóri og Axel Gislason framkvæmdastjóri skipadeildar SÍS, þegar þeir stigu um borð i Arnarfellið, hið nýja skip SÍS, sem kom til landsins i fyrrinótt. Arnarfell er fyrra skipið af tveimur, sem Sambandið hefur fest kaup á, 3050 lestir og ætlað til almennra flutninga. Skipið kom til landsins mcð fullfermi af kornvörum og stykkjavöru frá Svend- borg I Danmörku. Farmurinn verður losaður í Reykjavik og sex öðrum höfnum hérlendis. Siðan mun Arnar- fellið taka upp fastar áætlunarsiglingar milli Íslands og Rotterdam, Antwerpen og Hull. Skipið var smíðað 1974 og 75 hjá Frederikshavn Værft & Tördok A/S i Frederikshavn. Skipið kostaði rúmar 500 milljónir kr. isl. GAJ/DB-mynd Bjarnleifur. Sérstæðar messuferðir austan heiðar Nk. sunnudag munu prestar í um- dæmi Prestafélags Suðurlands efna til sérstæðrar messuferðar í kirkjur austan heiðar. Prestar úr Reykjavikur og Kjalarnesprófastsdæmi ætla að fjöl- menna austur i sveitir og skipta sér á hinar ýmsu kirkjur i Árnes- og Rangár- vallaprófastsdæmi og annast guðsþjón- ustugjörðásamt heimapresti. Með þessu er verið að endurgjalda heimsókn austanmanna sl. vetur, en þá fjölmenntu prestar austan að og mess- uðu í flestum kirkjum i Rvik og ná- grenni. Tilgangurinn er m.a. sá að efla kynni milli presta og skapa þeim tæki- færi til að kynnast ólíkum söfnuðum og starfsaðstæðum. Aðkomuprestar munu ásamt eiginkonum sinum njóta gestrisni kollega sinna eystra. en um kvöldið verður komið saman í hótelinu á Selfossi til kvöldverðarogskemmtunar. -GAJ Sr. Halldór S. Gröndal verður meðal þeirra presta sem fjölmenna austur fyrir fjall um helgina.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.