Dagblaðið - 12.01.1979, Page 9

Dagblaðið - 12.01.1979, Page 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1979. Viðhaldsdeild Flugleiða á Vellinum á hrakningum undan hernum: Önnur Boeing 727 þota Flugleiða heldur utan til Portúgals strax eftir helgina i meiri háttar skoðun hjá við- haldsdeild flugfélagsins TAP. Þessi skoðun hefði að mestu leyti getað farið fram hérlendis sem fyrr ef varnarliðið hefði ekki í fyrra þrengt svo skýlispláss Flugleiða á Keflavikurflugvelli að nú er aðeins hægt að taka inn eina þotu I einu I stað tveggja áður. Það þýðir að ókleift er að teppa það pláss vegna meiri háttar skoðana þar sem taka verður þoturnar inn til minni háttar viðgerða, a.m.k. á veturna. B-727 þotur Flugleiða eru ávallt báðar á Keflavíkurflugvelli á næturna. þannig að nú verður önnur að sianda úti, hvernig sem viðrar. Hin B-727 þotan fer einnig til Portúgals í stóra skoðun um næstu mánaðamót og hefði einnig verið hægt að framkvæma þá skoðun að verulegu leyti hér ef húsakostur hefði verið fyrir hendi. Þá verða báðar B-707 þotur Arnar- flugs meira óg minna í áætlanaflugi hér um í sumar og þurfa væntanlega á viðgerðum að halda og að sjálfsögðu skoðunum sem ekki verður unnt að framkvæma hér. Önnur er nú í leigu- flugi í S-Ameríku og haldið við þar, en búið var að semja um viðhald á hinni i Englandi fram í júni í sumar áður en til samstarfs Flugleiða og Arnarflugs kom. Þrátt fyrir að meiri háttar skoðanir B-727 þotanna hafi nú'Verið fluttar úr landi, ef svo má að orði komast, þýðir það ekki að flugvirkjum Flugleiða verði fækkað, a.m.k. ekki á þessu ári, að sögn Halldórs Guðmundssonar yfirmanns viðgerða- og verkfræði- deildar Flugleiða, í viðtali við DB. Hins vegar er Ijóst að ekki er áætlað að fjölga flugvirkjum. Ástæður þess að ekki þarf að koma til uppsagna eru þær að á næstunni verða Fokker vélar félagsins teknar í meiri háttar skoðanir ein af annarri Gólfpláss Flugleiða I stærsta flugskýlinu á Keflavikurflugvelli rúmar aðeins eina þotu. örvarnar sitt hvoru megin á myndinni sýna hvernig athafnapláss „snattvél- ar” varnarliðsins annars vegar og athafnapláss björgunarþyrlanna hins vegar af- marka Flugleiðaplássið. Byggingin i miðjunni er verkstæðisbygging frá hernum. I hinum helmingi hússins er aðstaða radarflugvéla hersins. DB-mynd 11V Stórverkefni að Eftir að enn var prengt ao aostoou Hugieiða I stóra skýlinu varð félagið að gripa til þess ráðs að reisa litla verkstæðisbyggingu úti á hlaði og er liún til hægri á myndinni. nR.mvml HV fram í maí og þá hefst sumarleyfistím- inn. Fækkar þá flugvirkjum eitthvað um tima en þar sem minni skoðanir Arharflugsþotnanna bætist þá við minni skoðanir B-727 þotnanna verður næg vinna. 1 haust liggja einnig fyrir skoðanir sem unnt er að fram- kvæma hér og búast má við að standi fram undir jól. Eftir það hefst nokkur óvissutími, a.m.k. miðað við stöðuna nú. Við- haldspláss Flugleiða á Vellinum er i skýli í eigu hersins, en islenzka ríkið á a.m.k. flugskýli þar, sem herinn notar eingöngu. Um afnot af þeim sagði Halldór að til þess þyrfti að breyta þeim verulega og auk þess þyrfti herinn samfara því að breyta tilhögun sinni á vellinum umtalsvert. Sér sýndist eina lausnin vera bygg- ing nýs flugskýlis og það á réttum stað, eða á fyrirhuguðu almennu svæði, eftir að skörp skil hafa verið dregin á milli hernaðarsvæðis og al- menns svæðis (fyrir „civil” umferð). En til bráðabirgða taldi hann brýna nauðsyn þess að hægt sé að hýsa tvær þotur í senn svo viðhaldið verði ekki ennfrekaraðflytjastúrlandi. ,GS swillK* DB-mynd HV Tvö flugskýlanna, sem talin eru i eigu íslendinga og herinn notar undir viðhald Phanton þotanna. Þau henta ekki Flugleiðum og eru auk þess innan þess svæðis, sem áætlað er að verði afmarkað hernaðarsvæði. 2>igríður Ella Magnúsdóttir Elín Sigurvinsdóttir Elisabet Erlingsdóttir Svala Nielsen Már Magnússon Sigurður Björnsson SimonVaughan ásamt Sigrúnu K. Magnúsdóttur Berglindi Bjarnadóttur Signýju Sæmundsdóttur Gestur Guðrún Á. Símonar Kynnir María Markan Undirleik annast Carl Billich og Ólafur Vignir Albertsson Aðgöngumiðar fást hjá Bókaverzlun Lárusar Blöndal, Skólavörðustig og Vesturveri.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.