Dagblaðið - 12.01.1979, Qupperneq 12
12
i
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1979.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. JANUAR 1979.
17
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
I
Island missti þrjá menn út af
lokakaf lann og Pólland vann
— „Grátlegt að tapa leiknum en ég vil ekki kenna dómurunum um það þó þeir haf i verið okkur óhagstæðir lokakaf lann.
Bezti sóknarleikur íslands,” sagði Jóhann Ingi landsliðseinvaldur. ísland komst Í6-2 og hafði forustu mestallan leikinn
„Þetta var bezti sóknarleikur Islands
i Baltikkeppninni. Yfir 50% nýting í
öllum leiknum og 60% í fyrri hálf-
lciknum. Það var grátlegt að tapa
leiknum eftir að hafa verið yfir nær allan
ieikinn. Mest fjórum mörkum, 6—2, en
lokakaflann voru dönsku dómararnir
Christensen og Wöhik okkur ákaflega
óhagstæðir. Á stuttum tíma, þegar
staöan var 17—16 fyrir Ísland, misstum
við þrjá leikmenn út af í tvær minútur
hvern — og þegar staðan var 21—20
fyrir Pólland slepptu þeir augljósu víti á
Pólverja. Það sáu allir i húsinu nema
þeir — og dönsku blaðamennirnir, sem
fjölmenntu til okkar eftir leikinn, voru á
Ólympíumeistarinn fyrstur
Ölympíumeistarinn Haseley
Crawford, Trindidad, sigraði skozka
spretthlauparann Alan Wells í hörku-
keppni í 100 m hlaupi á móti í
Mclbournc.f Ástraliu í gær. Báðir fengu
sama tíma 10.4 sek. en Crawford var
sjónarmun á undan. Don Quarrie,
hlauparinn frægi, margfaldur
ólympíumeistari, varð þriðji á 10.5 sek. í
200 m hlaupinu sigraði Wells hins vegar
örugglega. Hljóp á 20.8 sek. Quarrie
varð annar á 21,0 sek. og Paul Darracot,
Ástraliu þriðji á 21.6 sek.
i 2ja milna hlaupi setti Steve Austin,
Ástralíu, nýtt Ástraliumet — hljóp á
8:23.4 min. Bætti 13 ára gamalt met
John Coyle um 1.8 sek. Annar i
hlaupinu varð Markus Ryffel, Sviss, sem
varð annar í 5000 m hlaupinu á Evrópu-
meistaramótinu i Prag í sumar. Hann
hljóp á 8:27.3 mín. David Fritzsimmons.
Ástralíu. varð þriðji á 8:28.0 mín.
Gary Honey, Ástralíu, sigraði i 400 m
hlaupi á 46.9 sek. John Higham.
Ástralíu, i 800 m hlaupi á 1:46.4 min.
Dennis Morris, Nýja-Sjálandi, varð
annar á 1:47.7 min. og heimsmethafinn i
miluhlaupi Johnny Walker, Nýja
Sjálandi, varð þriðji á 1:48.8 mín.
1 1500 m hlaupinu sigraði David
Moorcroft, Bretlandi, á 3:44.6 min.
John Robson, Bretlandi, varð annar á
3:45.3 mín. og Ken Hall, Ástraliu. þriðji
á 3:45.6 min. Ray Boyd, Ástralíu. stökk
5.10 m í stangarstökki. Bob Pullard.
USA. varð annar með 4.90 metra.
Danise Boyd, Ástralíu, sigraði i 200 m
hlaupi kvenna á 23.0 sek. og 400 m á
51.9 sek. Carline Rendine, Ástralíu, i
800 m á 2:04.7 mín. Mary Decker, USA.
önnur á 2.07.7 mín. Norska hlaupa-
konan fræga. Grete Waitz, sigraði i
1500 m á 4:07.6 min, sem er nýtt
Ástralíumet. Alison Wright, Nýja-
Sjálandi, varðönnur á 4:17.7 min. Geel
Mulhall, Ástraliu, setti nýtt samveldis-
met í kringlukasti kvenna. Kastaði 63.00
metra.
einu máli um það. Hins vegar vil ég alls
ekki kenna dómurunum um það að við
töpuðum leiknum — síður en svo,” sagði
Jóhann Ingi Gunnarsson, þcgar DB
ræddi við hann i nótt. í gærkvöld sigruðu
Pólverjar íslendinga með 22—20 í B-
riðli og ísland leikur því á laugardag um
fimmta sætið i Baltic-cup við Svía.
„í heild er ég mjög ánægður með
leikinn. Leikurinn varoft frábærlega vel
leikinn af báðum liðum. Stórkostlegt að
horfa á sóknarloturnar og falleg mörk
voru skoruð. Þeir Axel Axelsson, Þor-
björn Jensson og Stefán Gunnarsson
léku sinn fyrsta leik i keppninni. Stóðu
sig mjög vel allir þrír. Axel skoraði átta
mörk í leiknum en hann þreyttist
skiljanlega því hann hefur ekkert getað
æft nokkuð lengi. Hann varð því að
hvila og það hefði ekki átt að koma að
sök ef allt hefði gengið samkvæmt
áætlun. Hins vegar fundu þeir Jón Pétur
Jónsson og Viggó Sigurðsson sig aldrei i
leiknum og það varð því afdrifaríkt að
Axel þreyttist.
Þorbjörn Jensson stóð sig mjög vel
bæði i sókn og vörn og það var áfall.
þegar hann meiddist á 43. min. og gat
ekki leikið meir. Þessir þrir komu í stað
Ólafs Einarssonar, Steindórs Gunnars-
sonar og Þorbjörns Guðmundssonar. Ég
ætlaði líka að nota Brynjar Kvaran í
markið — hvila Óla Ben — en það var
svo mikill hugur i strákunum að ná sem
beztum árangri að þeir vildu endilega að
Óli léki.
Valsmenn mördu
sigur gegn ÍS!
—stórieikur Dwyers tryggði tvö stig að Hlíðarenda
Góður kafli Tim Dwyer, þegar fimm
minútur voru liðnar af siðari hálfleik var
nóg til að tryggja Valsmönnum sigur
gegn ÍS i úrvalsdeildinni i körfuboltanum
i gærkvöldi. Lokatölurnar 94 stig gegn
90 og munurinn varð aldrei meiri en niu
stig, þegar staðan var 63 gegn 54 fyrir
Val. í hálfleik var staðan 42 gegn 40.
Stúdentar sýndu nú og sönnuðu að
þeir hafa ekki algjörlega lagt upp laup-
ana, þó á móti hafi blásið um hrið. Meiri
kraftur var i liðinu í gærkvöldi en nú um
nokkurt skeið. Gisli Gíslason, sem ný-
lega er genginn yfir í raðir þeirra hefur
hresst upp á spilið og „gamlir menn"
eins og Bjarni Gunnar blómstruðu í gær-
kvöldi. Hinn siðarnefndi átti líklega sinn
bezta leik i vetur. Dirk Dunbar kom inn
á í síðari hálfleik og var drjúgur við að
skora en komst síðan í örugga gæzlu
Tim Dwyers, sem lauk ekki fyrr en rúm-
ein mínúta var til leiksloka. Þá fékk
Dwyer fimmtu villuna. Sá ágæti leik
maður er haldinn þeim leiða vana að
mótmæla nær öllum dómum og hlýtur
hann að tapa verulega á þvi. Skiptir þá
Þar verður hægt að taka
1410 upp á klukkustund!
— Fyrri áfanga skíðalyftu Ármanns íBláf jöllum lokið
Fyrri áfangi afkastamestu skiðalyftu á
landinu var tekinn í notkun á vegum Skíða-
deildar Ármanns við Kóngsgil i Bláfjöllum 9.
janúar sl. Skiðalyfta þessi flytur nú með
hálfum afköstum rúmlega 700 manns á
klukkustund og fer i um 1400 þegar síðari
áfanga er lokið. Lyftan er sunnan Kóngsgils
og liggur upp á hæsta tind Bláfjalla, sem er
702 m á hæð.
Lyftan er innlend smíði að svo miklu leyti
sem því var við komið. Möstur, sem eru tvi-
stæður, voru smíðuð hjá Vélsmiðjunni
Norma hf. i Garðabæ og galvanhúðun var
gerð hjá Sandblæstri og málmhúðun sf„
Akureyri og tókst smiði þessi mjög vel og er
innlendum iðnaðarmönnum til mikils hróss.
Annar búnaður svo sem drifstöð, enda-
hjól og upphengi eru frá Doppelmayr i Aust-
urríki og eru af nokkru veigameiri gerð en
notuð eru t.d. í toglyftum Bláfjallanefndar
sem eru á svipuðum slóðum.
Félagar skíðadeildar Armanns hafa ann-
ast alla uppsetningu, grafið fyrir undir-
stöðum og steypt þær, reist möstur og sett
upp allan vélbúnað. Lyfta þessi kostar sem
næst 40 milljónum króna og er þá sjálfboða-
vinna verðlögð að fullu.
Leyfi snjóalög verður toglyfta þessi vænt-
anlega komin í rekstur um' næstu helgi og er
skíðafólk með nokkra þjálfun boðið v?l-
komið.
Þvi miður urðu þau mistök á forsiðu
blaðsins í gær að þar sló saman tveimur
fréttum um skíðalyftur í Bláfjöllum — þar
var borgarstjórinn i Reykjavik, Egill Skúli
ingibergsson, i stólalyítu Bláfjallanefndar.
sem vígð var 10. janúar. Að henni standa
sveitarfélögin i nágrenninu — Reykjavik,
Kópavogur, Hafnarfjörður, Seltjamames,
Garðabær, Keflavik og Selvogshreppur.
Lyftan fullbúin mun kosta um 140 milljónir
króna — og liggur upp i 685 metra hæð. DB
mun síðar birta ítarlegri frétt um þá lyftu.
Ármanns-lyftan er eins og áður segir tog-
lyfta upp í 702 metra hæð og jiegar síðari
áfanganum verður lokið er hægt að flytja i
henni 1410 manns á klukkustund.
litlu máli hvort rétt er dæmt eða ekki.
Dómararnir ráða meðan á leik stendur.
Ailir skilja að visu að mjög svekkjandi
hlýtur að vera að verða fyrir þvi að nán
ast sé gerð tilraun til þess af andstæðingi
að rifa annan handlegginn af leikmanni
eins og Dwyer mátti búa við í gærkvöldi
án þess að dómararnir gerðu neina at
hugasemd.
Ekki skal dregið úr þvi að i körfubolt-
anum rikir hið margumtalaða dómara-
vandamál en sterkur leikmaður eins og
Tim Dwyer hlýtur að gera bæði sjálfum
sér og liði sinu Val mun meira gagn með
því að sleppa sifelldum athugasemdum
viðdóm.
Nóg um það — fyrir utan Tim Dwyer
virtist Valsiiðið frekar dauft i gærkvöidi.
Þórir Magnússon gerði nokkrar góðar
körfur i fyrri hálfleik en var daufari er
iiða tók á ieikinn.
Staðan þegar ein minúta var til leiks-
loka var 90—88 fyrir Val. Þá fór Tim
Dwyer út af eins og áður sagði. Stú
dentar höfðu boltann en misstu hann
tvisvar og lokatölurnar urðu 94 stig gegn
90 fyrir Val.
Dwyer gerði 36 stig fyrir Val, Torfi
16, Kristján 11, Þórir 10, Lárus 7, Sig
urður 5 og Hafsteinn 2. Bjarni Gunnar
ÍS var með 22 stig, Dunbar 18, Steinn og
Jón Héðinsson 14, Gisli 10, Jón Odds-
son 4 , Ingi og Albert 2 hvor. ÓG.
Staðan I úrvalsdeildinni:
KR
Valur
UMFN
ÍR
ÍS
Þ6r
II
10
11
10
10
10
8 3
7 3
7 4
5 5
2 8
2 8
16
14
1008—868
1040—870
1083—1016 14
866—850 10
838—970 4
789—932 4
Ég ákvað á elleftu stundu að Óli
yrði með, Jens Einarsson lék allan fyrri
hálfleikinn og fyrstu tiu mínúturnar af
þeim siðari. Stóð sig mjög vel en framan
af síðari hálfleiknum fór Klempel að
skora og ég setti Óla Ben. í markið.
Hann byrjaði á því að verja víti frá
Klempel og varði vel — en hins vegar
var markvarzlan i heild ekki eins góð og
i leikjunum við Dani og Vestur
Þjóðverja,” sagði Jóhann Ingi enn
fremur.
„Dönsku blaðamennirnir skrifuðu
mjög lofsamlega um leik Islands við
Vestur-Þjóðverja — og eftir leikinn við
Pólverja áttu þeir varla nógu sterk orð
til að lýsa sóknarleik okkar — (vegar þeir
ræddu við okkur eftir leikinn. Sögðu að
það hefði ekki verið nein tilviljun að
Ísland vann Danmörku — ísland væri
einfaldlega með betra lið. Annars náðu
Danir sínum bezta leik í gær og gerðu
jafntefli við heimsmeistara V-Þjóðverja.
Það var að sögn skemmtilegur leikur —
en ég hef iitlar fréttir af honum,” sagði
Jóhann Ingi.
Pólland skoraði fyrsta markið
leiknum í gær i Hammel en Páll Björg-
vinsson jafnaði úr hraðaupphlaupi. Pól-
land komst aftur yfir en Stefán
Gunnarsson jafnaði í 2—2 með lang
skoti. Axel Axelsson skoraði þriðja mark
íslands — Þorbjörn Jensson það fjórða.
Axel svo tvivegis úr vítaköstum og eftir
15. mín. var staðan 6—2 fyrir island.
Fjögurra markaforusta.
Pólverjar skoruðu tvö næstu mörk en
Axei kom íslandi í 7—4 úr vítakasti.
Pólverjar skoruðu en Þorbjörn kom
Íslandi i 8—5 og Axel siðan i 9—6. Þá
skoruðu Pólverjar en Páll tiunda mark
íslands 10—7. Pólverjar skoruðu sitt
áttunda mark og enn var Axel á ferðinni
— kom islandi í 11—8.
„Rétt á eftir brauzt Páll snilldarlega i
gegn og átti skot á markið. Með ein-
hverri furðanlegri heppni varði pólski
markvörðurinn — grísamarkvarzla —
og Pólverjar brunuðu upp og skoruðu,”
sagði Jóhann Ingi. Staðan þá 11—9 fyrir
ísland. Bjarni Guðmundsson kom
íslandi í 12—9 en Pólverjar áttu síðasta
orðið í hálfleiknum. Staðan 12—10 i
hálfleik fyrir ísland.
„Jerzy Klempel skoraði ekki nema
eitt mark úr langskoti í fyrri hálfleikn-
Talbot til
Arsenal
Arsenal keypti I gær enska landsliðs-
framvörðinn Brian Talbot frá Ipswich
fyrir 450 þúsund sterlingspund. Það er
fjórða hæsta sala milli enskra liða.
Talbot mun leika sinn fyrsta leik með
Arsenal gegn Nottingham Forest á laug-
ardag. Hann er 24 ára. Hefur leikiö
fimm landsleiki fyrir England — og um
200 deildaleiki fyrir Ipswich. Hann er
fæddur í Ipswich. Hann lék ekki i bikar-
leiknum gcgn Carlisle nú I vikunni og má
því leika I fjórðu umferð fyrir Arsenal ef
liðið sigra Sheff. Wed. í þriðju umferð.
Arnarmót í
borðtennis
Borðtennisklúbburinn Örninn, heldur
hið árlega Arnarmót laugardaginn 13.
janúar kl. 15.30 í Laugardalshöllinni.
Mótið er punktamót og verður keppt i
1., 2., og 3. flokki. Þátttaka tilkynnist til
Aðalsteins Eirikssonar, s. 32559. Dregið
verður á töflu kl. 11 á laugardaginn 13.
jan.
Þetta er i 8. skipti sem keppt er um
hinn veglega Arnarbikar.
um en í byrjun síðari hálfleiksins skoraði
hann þrjú mörk úr langskotum. Ég lét
þá Óla Ben fara í markið. Klempel
skoraði átta mörk í leiknum — þrjú úr
vítaköstum. Hann misnotaði tvö viti.
Axel skoraði einnig átta mörk og hann,
nýtti öll þrjú vítin, sem ísland fékk í
leiknum,”sagði Jóhann Ingi.
Pólverjar byrjuðu mjög vel í s.h. og
skoruðu þrjú fyrstu mörkin. Komust i
13—12 í fyrsta skipti, sem þeir komust
yfir í leiknum. Þorbjörn jafnaði í 13—13
og síðan fylgdu þrjú mörk frá Ólafi H.
Jónssyni, Bjarna og Páli og ísland hafði
aftur náð góðri forustu, 16—13.
Pólverjar skoruðu næstu tvö mörk en
A-xel kom íslandi i 17—15. Pólverjar
jöfnuðu í 17—17. Páll kom Íslandi í
18—17 en þá fóru dönsku dómararnir
aðsýna íslendingum rauða spjaldið. Pól-
land komst i 20—18. Ólafur Jónsson
Vikingur skoraði 19. mark íslands en
Pólverjar komust í 21 —19. Þá skoraði
Axel og síðan slepptu dómararnir
augljósu víti á Pólverja. Þeir skoruðu
hins vegar í staðinn 22—20 og það urðu
lokatölur leiksins. ísland var með knött-
inn þegar flautað var. Pólskur sigur.
Mörk íslands skoruðu Axel 8/3, Páll
4, Þorbjörn 3, Bjarni 2, Stefán 1, Ólafur
H. I og Ólafur Jónsson 1. Árni. Jón
Pétur og Viggó léku einnig.
Klempel skoraði 8/3 fyrir Pólland,
Garpiel 4. íslendingum var vikið af velli
í 12 mín. Ólafi Jónssyni, Árna, Jóni
Pétri og Páli í tvær mín. hverjum. Ólafi
H. í fjórar mínútur, tvívegis. Pólverjum
vareinnig vikiðaf velli í 12 mín. Tveim-
ur tvívegis í fjórar mínútur — Jedlinski
og Kaluzinski.
Siðustu 15. min. leiksins skoruðu
Pólverjar 9 mörk en tvö fyrstu 15
mínúturnar. -hsím
Sveitakeppni Júdósambands ísiands
verður háð nk. sunnudag 14. janúar i
íþróttahúsi Kennaraháskólans og hefst
kl. 14. Tekin hefur verið upp deilda-
skipting í sveitakeppninni, og keppa
aðeins 3 svcitir í A-deild. Rétt til þátt-
töku hafa sveitir Judofélags Reykja-
vikur, Ármanns og Ungmennafélags
Keflavikur.
Keflvíkingar munu ekki ætla að senda
sveit til keppni að þessu sinni. og kemur
þá önnur sveit i hennar stað i deildina.
Keppnin á sunnudaginn er meistara-
mót. Sigurvegararnir öðlast rétt til þátt-
töku í Evrópubikarkeppni meistara-
sveita. Judofélag Reykjavíkur hefur
sigrað í sveitakeppninni frá upphafi, þ.e.
fimm sinnum í röð, en Ármenningar
munu hafa fullan hug á að binda enda á
þá sigurgöngu núna.
Axel Axelsson skoraði átta mörk gegn Pólverjum og skoraði úr öllum vltaköstum Ís-
lands — þremur að tölu.
Erfitt að ákveða hverjir verða
ekki með gegn Svíum
—sagði Jóhann Ingi landsliðseinvaldur. íslenzka liðið valið íkvöld
„Það verður ákaflega erfitt fyrir mig
að ákeða hverjir verða ekki með gegn
Svíum I keppninni um fimmta og sjötta
sætið I Kalundborg á morgun, laugar-
dag. Þeir Axel Axelsson, Þorbjörn Jens-
son og Stefán Gunnarsson léku sinn
fyrsta leik gegn Pólverjum i keppninni
— og stóðu sig mjög vel. Skoruðu 12 af
20 mörkum íslenzka liðsins og munar
þar auðvitað mestu átta mörkin, sem
Axel skoraði,” sagði Jóhann Ingi lands-
liðseinvaldur, þegar DB ræddi við hann I
gærkvöld.
„Allir strákarnir hafa hug á þvi að
standa sig vel og það verður því erfitt
að velja eða hafna. Við höldum til
Kaupmannahafnar eldsnemma í fyrra-
málið. Förum með rútu svo ferðin tekur
langan tíma — meðal annars ferðazt
með ferju. Það verður létt æfing, þegar
við komum til Hafnar og ég mun ákveða
liðið gegn Svíum eftir þá æfingu. Þá
kemur væntanlega í ljós hve slæm
meiðsli Þorbjörns Jenssonar eru — og
hvort hann getur leikið gegn Svíum.
Allir aðrir eru heilir — engin meiðsli
nema hjá Þorbirni þó hins vegar Axel sé
ekki orðinn alveg góður í bakinu.
Ég er að vinna að þvi að leikurmn við
Svía verði tekinn uppá myndsegulband
— það verður gott að kynna séi þann
leik vel fyrir átökin á Spáni. Þar gætum
við komið til með að þurfa að leika við
Svia.” sagði Jóhann Ingi að lokum.
Úrslit í leikjunum í gær urðu þessi.
Danmörk V-Þýzkaland 13—13, A-
Þýzkaland-Sovétríkin 20—19 og
Sviþjóð-Danmörk B 25 16. Lokastaðan i
riðlunum.
A-riðill
A-Þýzkaland 3 3 0 0 72—53 6
Sovétrikin 3 2 0 1 68—56 4
Svíþjóð 3 10 2 64—70 2
Danmörk B 3 0 0 3 47-72 0
B-riðill
V-Þýzkaland 3 2 10 49—45 5
Pólland 3 2 0 1 62—56 4
ísland 3 10 2 52-55 2
Danmörk A 3 0 12 43—53 I
Leikur A Þjóðverja og Sovétmanna i
gær var ákaflega spennandi. Í hálfleik
höfðu Sovétrikin fjögur mörk yfir 12—
8, en Þjóðverjum tókst að snúa leikn-
um sér í hag i siðari hálfleik. Þeir leika
því um efsta sætið í Baltic-cup við heims-
meistara V-Þjóðverja en Sovétmenn
leika við Pólverja um þriðja sætið.
ísland og Sviþjóð um fimmta sætið og
dönsku liðin um neðsta sætið.
Allir útileikmenn Íslands skoruðu
niörk í B riðlinum. Markatala þeirra er
þannig og rétt er að geta þess að Axel,
Þorbjörn Jensson, og Stefán léku ekki
nema einn leik.
Páll Björgvinsson 9, Axel Axelsson 8,
Bjarni Guðmundsson 7. Jón Pétur og
Viggó Sigurðsson 5, Ólafur Einarsson 4,
Ólafur Jónsson, Ólafur H. Jónsson og
Þorbjörn Jensson 3. Steindór Gunnars
son 2, Stefán Gunnarsson, Árni Indriða-
son og Þorbjörn Guðmundsson eitt
hver.
Óvenjulegt tilboð frá V-Þýzkalandi:
BJÓÐA15 ÍSLENDINGUM í
ÆFINGABÚÐIR í 2 MÁNUÐI
- setja sem skilyrði að tveir þýzkir þjálfarar verði með ólympíuliði Islands f Moskvu
ASV Köln, frjálsíþróttafélagið, sem
Jón Driðriksson æfir og keppir með i
Vestur-Þýzkalandi, hefur sent Frjálsí-
þróttasambandi tslands og ólympiunefnd
tilboð, sem Jón afhenti þessum aðilum,
þcgar hann var hér hcima i jólafríi.
Þýzka félagið býðst til að taka að sér
þjálfun og uppihald fimmtán íslenzkra
frjálsíþróttamanna frítt — einn mánuð
að vetri til og annan mánuð að sumri til
fyrir Ólympíuleikana í Moskvu 1980 —
en setur sem skilyrði að í hópi lslands á
leikunum í Moskvu verði tveir þjálfarar
frá þýzka félaginu. Ólympiunefnd og
FRl hafa ekki tekið afstöðu til þessa til-
boð þýzka félagsins — en eftir þvi sem
DB hefur frétt er mikill áhugi hjá
islenzku frjálsíþróttafólki að því verði
tekið.
Ef af verður þurfa islenzku þátt-
takendurnir að borga ferðir sínar til
Kölnar.
Tveir íslenzkir þjálfarar, Ágúst Ás-
geirsson, hlauparinn kunni úr ÍR, og
Stefán Jóhannsson, Ármanni, eru
nýkomnir heim af frjálsiþróttanámskeiði
í Edinborg á Skotlandi þar sem aðalá-
herzla var lögð á 3000 m hindrunar-
hlaup, sleggjukast og 400 m grindahlaup
kvenna.
Talsvert hefur verið um félagaskipti
frjálsíþróttafólks að undanförnu. Elías
Sveinsson, KR, mun keppa fyrir FH
næsta keppnistimabil og athygli hefur
vakið hve margir kunnir iþróttamenn
hafa gerzt félagar í KA á Akureyri. Má
þar nefna Óskar Reykdalsson, Ingunni
Einarsdóttir, Jón Sævar Þórðarson,
Véstein Hafsteinsson og Stcindór
Tryggvason.
Nýlega var háð frjálsiþróttainót í
Baldurshaga. Þráinn Hafsteinsson, ÍR,
stökk 6.19 m í langstökki. Hinn 15 ára
Stefán Þór Stefánsson, ÍR, 6.03 m og
Vésteinn Hafsteinsson, KA, 5.63 m.
Þráinn og Stefán hlupu 50 m grinda-
hlaup á 7.4 sek. Vésteinn á 7.9 sek.