Dagblaðið - 12.01.1979, Side 24
Sundlaugin fyrir Kópavogs-
hælið er enn í pakkhúsinu
— og tillöguteikningar liggja í skúff u á skrifstof um ríkisspítalanna
Nú er um það bil ár siðan hafizt var
handa um almenna fjársöfnun til
sundlaugarbyggingar við Kópavogs-
hæli. — Almenningur brást vel við
söfnuninni sem upphaflega var
stjórnað af brezkum diskótekara I
Óðali. John Lewis, í samráði við DB
og fl. í vor voru fest kaup á sundlaug
og vilyrði fékkst fyrir einfaldri
byggingu hjá ráðherra. En þegar til
átti að taka var ekki hægt að hefja
framkvæmdir ýmissa hluta vegna.
Stjórn rikisspitalanna lét gera
tillöguteikningar að einfaldri byggingu
yfir sundlaugina, því hún taldi ekki að
sundlaugin kæmi að fullum notum,
nema hún væri yfirbvggð.
í dag standa málin þannig að
tillöguteikningamar liggja enn á
borðinu á skrifstofu likisspitalanna,
sundlaugin cr enn í pakkhúsinu hjá
Gunnari Ásgeirss; n og vistmenn á
Kópavogsliæii liala eski getað notfært
sér sundlaugina, sem með réttu er
þeirra eign.
-ABj.
Svona lltur sundlaugin út, þegar búið er að koma henni fyrir i „sumarlandinu”.
Laugin er 6 metrar á breidd, 12 metrar á lengd og 1,2 m á dýpt.
Brandugla
á f lækingi
— köld og
svöng
„Mér þykir langscnnilegast að hér sé
um branduglu að ræða án þess að geta
fullyrt um það þar sem ég hef ekki séð
ugluna." sagði Ævar Petersen á
Náttúrugripasafni íslands er DB hafði
samband við hann i morgun út af uglu,
sem starfsfólk gróðrastöðvarinnar
Alaska fann í gærkvöldi heldur illa á sig
komna í polli fyrir utan stöðina. og
færði hana inn í stöðina og setti hana
þar i búr. Ævar sagði að branduglan
verpti hér um allt land en þó aðeins á
láglendinu. Hún æti fyrst og fremst
mýs og á veturna væri hún að fiækjast
viðsjávarsíðuna. Starfsfólk Alaska hafði
ekki enn ákveðið. hvað gert yrði við
ugluna en fyrst i stað ætlaði það að setja
hana i stórt og gott búr og gefa henni
aðéta.
Hún horfir rannsakandi augum á Ijósmyndarann, þar sem hún situr i búri hjá starfsfólki Alaska við Miklatorg. Uppáhalds-
matur hennar er mýs. -DB-mynd: Ragnar Th.
DB-mynd Bjarnleifur.
Bandarískir þingmenn í Reykjavík:
Á HEIMLEH)
FRÁ MOSKVU
Sex öldungadeildarþingmenn frá
Bandarikjunum komu við i Reykjavik i
á leið sinni frá Moskvu i gær. Áttu
þeir stuttan fund með Benedikt Gröndal
utanríkisráðherra og Ólafi Jóhannessyni
forsætisráðherra i Ráðherrabústaðnum.
Fundurinn i Ráðherrabústaðnum stóð i
tæpa klukkustund.
A myndinni sjást Björn Bjarnason.
skrifstofustjóri i forsætisráðuneytinu og
Hörður Helgason skrifstofustjóri i utan
rikisráðuneytinu taka á móti þingmönn-
unum á Reykjavikurfiugvelli en þangað
komu þingmennirnir með þyrlu varnar-
liðsins. Á myndinni sjást m.a. Samuel
lchiye Hayakawa frá Kaliforniu og
Howard H. Baker Jr„ en hann er
leiðtogi minnihluta repúblikana í öld-
ungadeildinni og hafði hann forystu
fyrir hópnum sem hingaðkom. GAJ
Utvarpsráð hættir við
reykingavarnadagskrá
— sem átti að vera að kvöldi „reyklausa dagsins” og fyrra útvarpsráð var búið að samþykkja
Ekkert verður af skemmtiþætti. sem
samstarfsnelnu uui reykiugavarim
hafði fengið sa'n jiykki fyrir i sjónvarp
inu- þann 23. janúar hjá gamla út-
varpsráðinu. Er ráðið, sem skipað var
um siðustu áramót. tók þáttinn fyrir á
fundi sínum, var samþykkt að hætta
við hann.
„Það urðu talsverðar umræður um
þennan þátt á útvarpsráðsfundi."
sagði Árni Gunnarsson alþingis-
maður, einn útvarpsráðsmanna, i sam-
tali við DB í morgun. „Ef ég man rétt.
bauðst samstarfsnefnd um reykinga-
varnir til að kosta gerð þessa skemmti-
þáttar, sem átti að verða i beinni út-
sendingu.
Ég man ekki svo gjörla, hvernig
umræður um þáttinn snerust,” sagði
Árni, „en niðurstaða þeirra varð sú að
útvarpið skyldi halda sig við þá
meginreglu að liafa frumkvæði að
þeim þáttum, sem það tekur til
flutnings og kosta gerð þeirra sjálft.
Þar að auki verður i sjónvarpi þetta
kvöld mikið af efni um reykinga-
varnir.”
Árni Gunnarsson sagði, að helzt
hefði verið á tilboði samstarfsnefndar
um reykingavarnir að skilja, að
nefndin hefði svo rúm auraráð, að hún
vissi ekki til hvers hún ætti að verja
fénu. „Það atriði út af fyrir sig er vert
athugunar.” sagði Árni.
-ÁT-
fijálsl, nháð dagblað
FÖSTUDAGUR 12. JAN. 1979.
Skákmótið íHamar:
Margeir í
1.—2. sæti
Margeir Pétursson er nú i 1.-2. sæti á
skákmótinu i Hamar í Noregi ásamt Sví-
anum Niklasson. Hafa þeir hlotið 3
vinninga eftir 4 umferðir. Jón L. Árna-
son hefur hlotið 2 vinninga. 1 gær-
morgun voru tefidar biðskákir. Margeir
gerði þá jafnéfii við Goodman frá
Englandi og vann Berkell frá Sviþjóð.
Jón L. náði jafntefii í biðskák gegn
Goodman, en skákin hafði verið talin
töpuð fyrir Jón. 1 4. umferð, sem einnig
var tefid i gær, vann Margeir Jensen frá
Noregi og Jón L. vann Guddahl 5.
umferð verður tefid í dag.
-GAJ-
Cargolux:
Munaði litlu að
illa færi
Á föstudaginn var hlekktist DC-8 vél
frá Cargolux á í aðfiugi að fiugvellinum i
Lagos í Nigeríu. Þarna mun hafa verið
þoka og iágskýjað og vélin var komin of
neðarlega og sleit annar hreyfill á hægri
væng vélarinnar háspennulinu. Flug
stjóranum á vélinni tókst siðan að
hækka flugið á ný og lenda áfallalaust.
Tók ekki nema um 2 klst. að gera við
skemmdirnar á vélinni. Áhöfnin á vél-
inni var bandarisk.
Að sögn Grétars Óskarssonar hjá
Flugleiðum er ekki hægt að segja neitt
frekar um orsakir slyssins fyrr en svarti
kassinn svonefndi hefur verið kannaður
hjá framleiðanda. GAJ
Reykjavík
eignast
fullkomnasta
frystihús
íheimi
Reykvikingar hafa nú eignazt
fullkomnasta frystihús i veröldinni. í
byrjun þessarar viku var landað fyrsta
farminum í hið nýja frystihús ís
bjarnarins hf. á Norðurgarði í Örfirisey.
A siðustu árum hefur Reykjavik
dregizl aftur úr í frystihúsaframförum,
þegar litið er til landsins alls. Óhætt er
að fullyrða að nú hefur verið bætt um
betur hvað snertir tækni til framleiöslu
og möguleika til skammtimageymslu á
fiski.
Bæjarútgerð Reykjavikur hefur nú til
alvarlegrar athugunar að kaupa annan
þeirra togara, sem samið var um smíði á
í Portúgal, og einnig togarann, sem
Stálvik er nú að ljúka smiði á.
Á undanförnum árum hefur stærsta
togaraverstöð landsins verið að dragast
aftur úr að þvi er tekur til veiðiskipa-
fjölda. Þetta virðist nú vera að snúast
við og sem fyrr segir hefur Bæjarút-
gerðin nú til athugunar að kaupa ekki
aðeins einn nýjan togara heldur tvo.
-BS.