Dagblaðið - 09.03.1979, Síða 1
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1979.
15
Hvaðeráseyðiumhelgina?
Sjónvarp næstuvika •••
Sjónvarp
Dagskrárliðir eru i litum nerria
annað sé tekið fram.
Laugardagur
10. mars
16.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.35 Töfratappinn. Sænsk leikbrúðumynd,
byggð á sögu eftir önnu Wahlenberg. Þýðandi
Hallveig Thorlacius. (Nordvision—Sænska
sjónvarpið).
18.55 Enska knattspyrnan.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Allt er fertugum fært (Life Begins at
Forty). Nýr, breskur gamanmyndaflokkur i
sjö þáttum. Aðalhlutverk Rosemary Leach og
Derek Nimmo. Fyrsti þáttur. Þýðandi Ragna
Ragnars.
20.55 Hár 19. Samband hárgreiðslu- og hár-
skerameistara sýnir hártísku. Kynnir Magnús
Axelsson. Stjórn upptöku Egill Eðvarðsson.
22.00 ó, þetta er indælt stríö (oh, What a
Lovely War). Brezk bíómynd frá árinu 1969,
gerð eftir samnefndum söngleik Charles
Chiltons og Joan Littlewoods, en hann var
frumsýndur i Þjóðleikhúsinu vorið 1966.
Kvikmyndahandrit Len Deighton. Leikstjóri
Richard Attenborough. Leikendur Laurence
Oliver, John Gielgud, John Mills, Ralph
Richardson, Dirk Bogarde, Michael Redgrave
o. m. fl. Hér er deilt á kaldhæðinn hátt á
striðsrekstur og herverk, þar sem saklausir eru
reknir á vígvellina eins og fé til slátrunar,
hershöfðingjum og stjórnmálaleiðtogum til
dýrðar. Þýöandi Ingi Karl Jóhannesson.
Ljóðaþýðingar Indriði G. Þorsteinsson.
00.10 Dagskrárlok.
Sunnudagur
11. mars
16.00 Húsið á sléttunni. Fimmtándi þáttur.
Skólaverðlaun. Efni fjórtánda þáttar.
Presturinn segir Láru að þvi nær sem hún sé
Guði þvi líklegra sé að hann bænheyri hana.
Morguninn eftir strýkur hún að heiman og
klifrar upp á hátt fjall, sem er dagleið 1 burtu.
Á fjallinu hittir hún undarlegan mann,
Jónatan, og segir honum, að hún ætli aö bjóða
Guði sjálfa sig i skiptum fyrir litla bróður sinn,
svo að faðir hennar verði ánægður. Jónatan
smíðar kross handa Láru, og hann kemur
föður hennar og Edwards á sporið, þegar þeir
hafa næstum gefið upp alla von. Þýðandi
Óskar Ingimarsson.
17.00 Á óvissum timum. Þrettándi þáttur.
Skoðanaskipti um helgi. Galbraith ræðir enn
við gesti sína, en þeir eru: Dr. Gyorgy Ar-
batov, ráðunautur Brezhnefs um bandarísk
málefni, Ralf Dahrendord, rektor Hagfræðihá-
skólans í London, Katharine Graham, útgef-
andi Wshington Post, Edward Heath, fyrrver-
andi forsætisráðherra Bretlands, Jack Jones
breskur verkalýðsleiðtogi, dr. Henry Kissing-
er, utanrikisráðherra Bandaríkjanna, Kukrit
Pramoj, fyrrverandi forsætisráðherra
Tailands, Arthur Schlesinger, bandariskur
sagnfræðingur,, dr. Hans Selye, kanadísku
raunvísindamaður, Shirley Williams, breskur
ráðuherra, og Thomas Winship, ritstjóri
Boston Globe. Annar hluti. Þýðandi Gylfi Þ.
Gislason.
18.00 Stundin okkar. Umsjónarmaður Svava
Sigurjónsdóttir. Stjórn upptöku Þráinn
Bertelsson.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
%
20.30 Simon H. ívarsson. Simon leikur á gitar
lög eftir Bach, Villa Lobos og Lauro. Stjórn
upptöku Tage Ammendrup.
20.50 Rætur. Tíundi þáttur. Efni niunda þáttar.
Negrar gera uppreisn og Tom Moore hættir
að ala bardagahana. Englendingur kemur i
sveitina með bardagahana sina og vill kaupa
George til að annast þá. Moore vill ckki selja
hann og snýr sér aftur að hanaati. George vill
drepa Moore, en Kissý segir honum þá
sannleikann um faðernið. Moore leggur meira
en aleigu sina undir í hanaati, tapar og greiðir
skuld sina með þvi aö lána Englendingnum
George i nokkur ár. Þýðandi Jón O. Edwald.
21.40 Alþýðutónlistin. Þriðji þáttur Rugtimc. 1
þættinum koma fram Rudi Blesh Terry
Waldo, Eubie Blake, Christy Minstrels o. fl.
Þýðandi Þorkell Sigurbjörnsson.
22.30 Aö kvöldi dags. Séra Árni Pálsson,
sóknarprestur i Kársnesprestakalli, flytur hug-
vekju.
22.40 Dagskrárlok.
Mánudagur
12. mars
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjami Felixson.
21.00 í einskis manns landi. Leikrit eftir Harold
Pinter. Leikstjóri Julian Amyes. Leikendur
John Gielgud, Ralph Richardson, Terence
Rigby og Michael Kitchen. Leikurinn hefst á
því, að mikilsmetinn rithöfundur býður heim
til sin ókunnugum manni, sem hann hefur hitt
á kránni. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir.
22.30 Dagskrárlok.
Þriðjudagur
13. mars
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Liknarsystir í Ladeira. Bresk mynd um
portúgalska konu, sem margir telja að geti
læknað dauðvona sjúklinga og rekið út illa
anda. Þýðandi og þulur óskar Ingimarsson.
20.55 Umheimurinn. Viðræðuþáttur um erlenda
viðburði og málefni. Umsjónarmaður Gunnar
Eyþórsson fréttamaður.
21.45 Hulduherinn (The Secret Army) Nýr,
breskur myndaflokkur gerður af Gerard
Glaister. Aðalhlutverk Bernard Hepton, Jan
Francis og Christoph'er Neame. Fyrsti þáttur.
öðru nafni Yvette. Á striðsárunum vom fjöl-
margar flugvélar bandamanna skotnar niður
yfír umráðasvæði Þjóðverja. Flestir flugmann-
anna, sem komust lífs af, urðu striðsfangar, en
allmörgum tókst að komast aftur til Bretlands
með hjálp fólks, sem starfaði i neðanjarðar-
hreyfingum í hemámslöndunum. Þættir þessir
eru um starfsemi slíkrar neðanjarðarhreyfíng-
ar. Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson.
22.35 Dagskrárlok.
Miðvikudagur
14. mars
18.00 Börnin teikna. Kynnir Sigriður Ragna Sig-
urðardóttir.
18.10 Gullgrafararnir. Lokaþáttur. Þýöandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.35 Heimur dýranna. Fræðslumyndaflokkur
um dýralíf víða um heim. Þýðandi og þulur
Gylfí Pálsson.
19.00 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Vaka. Greint verður frá leiksýningum,
leikdansi og óperuflutningi. Dagskrárgerð
Andrés Indriðason.
2I.20 Will Shakespeare. Sjötti og síðasti þáttur.
Efni fímmta þáttar: Jarlinn af Essex og jarlinn
af Southampton gera misheppnaða tilraun til
uppreisnar gegn Elisabetu drottningu. Baráttu
sinni til stuðnings fá þeir Will til að setja á sviö
leikritið Rikarð annan, og þannig flækist leik-
flokkurinn óviljandi í málið. í „refsiskyni”
fyrirskipar drottning, að hún fái að sjá leikrit
Shakespeares, Hinrik fjórða, annan hluta. Jarl-
arnir hljóta dauðadóm. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
22.10 Áfengismál á Norðurlöndum. Hinn fyrsti
þriggja norskra fræðsluþátta um áfengismál á
Norðurlöndum. Meðal annars er fjallað um
vaxandi neyslu áfengis og varnir gegn henni.
(Nordvision — Norska sjónvarpið). Þýðandi
Jón O. Edwald.
22.55 Dagskrárlok.
■
4 I
HULDUHERINN - sjónvarp þriðjudag 13. marz kl. 21.45:
FLUGMONNUM
HJÁLPAÐ AÐ FLÝJA
Á þriðjudagskvöldið hefur nýr
myndaflokkur göngu sína í sjónvarp-
inu og nefnist hann Hulduherinn (The
Secret Army).
Þættirnir fjalla um starfsemi neðan-
jarðarhreyfinga í hernámslöndum
Þjóðverja í síðari heimsstyrjöldinni. Á
stríðsárunum voru fjölmargar flugvélar
bandamanna skotnar niður yfir
umráðasvæði Þjóðverja. Flestir flug-
mannanna, sem komust lífs af, urðu
stríðsfangar, en allmörgum tókst að
komast aftur til Bretlands með hjálp
fólks, sem starfaði i neðanjarðar-
hreyfingunni í hernámslöndunum.
Talið er, að um 3500 flugmönnum hafi
tekizt að komast undan til Bretlands á
þennan hátt.
Sögusvið þessara þátta er því sögu-
legt en atburðarás hinna einstöku þátta
algjör skáldskapur. Þættirnir eru alls
16 en ekki er vist að þeir verði allir
sýndir. Það fer allt eftir viðtökunum,'
sagði Björn Baldursson hjá dagskrár-
deild Sjónvarpsins. Hann sagði að hver
þáttur væri algjörlega sjálfstæð heild
og því þyrfti ekki að sýna þá alla ef þeir
yrðu ekki vinsælir.
Myndaflokkur þessi er gerður af
Gerard Glaister, þeim hinum sama og
gerði hina vinsælu sjónvarpsþætti um
Coleditz-fangelsið, sem sýndir voru hér
í sjónvarpinu. Eru leikendurnir i
þessum þáttum margir þeir sömu og í
Coleditz. -GAJ-
Clifford Rose sem Kesler geslapóforingi í kvikmyndinni llulduherinn.
f
GLERHÚSIÐ — sjónvarp laugardaginn 17. marz kl. 22.10:
Hrottaleg refsivist
Þessi mynd er tekin i rikisfangelsinu í
Utah-fylki og þannig að nokkru leyti
heimildarmynd. Metsöluhöfundurinn
Truman Capote samdi handritið, en
um líkt leyti vann hann að bókinni ,,!n
cold blood.” Hún er byggð á viðtölum
við tvo afbrotameun, sem dæmdir voru
til dauða fyrir að hafa myrt bónda
nokkurn og fjölskyldu hans.
Myndin er vel gerð, en hrikaleg og
ekki hægt að mæla með henni fyrir
börn. Eftir að hafa séð hana fýsir
mann ekki að leggja út á glæpabraut-
ina, og jafnframt er hún hörð ádeila á
refsikerfið, sem beitt er gegn
föngunum.
Aðalpersónurnar eru nýr fangelsis-
vörður, háskólaprófessor dæmdur
fyrir manndráp og piltúr, sem lent
hefur í eiturlyfjamáli. Það er dregin
upp mynd af því, hvernig harðsvíraður
fangi heldur völdum yfir hinum með
ógnarstjórn.
Þeir, sem þrjózkast gegn honum,
eiga á hættu að verða kálað umbúða-
laust.
Og fangaverðimir loka augunum og
þykjast ekkert taka eftir hrotta-
skapnum. -IHH.
Vic Morrow og Alan Alda túlka með sterkum og áhrifamiklum leik tilfinninga-
hreim þeirra, sem í fangelsinu dvelja.
•f