Dagblaðið - 13.03.1979, Page 6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1979.
■rayttur opnunartlmi
OPlD
KL. 9
i Allar skreytingar unnar af fag-
, mönnum.
'BIÓMÍWIXIIH
HAFNARSTRÆTI Slmi 12717
Starf
við innheimtu og sendiferðir hjá Hafnarskrif-
stofunni er laust til umsóknar.
Umsækjandi sé minnst 16 ára og æskilegt
að hann hafi vélhjól til afnota.
Umsóknir sendist skrifstofu minni fyrir
laugardaginn 24. marz nk.
Hafnarstjórinn f Reykjavik.
BÍLAPARTASALAN
Höfum úrval notaðra varahluta íýmsar
tegundir bifreiöa, til dæmis:
1 Plymouth Belvedere '67
Peugeot 404 '67 Moskwitch '72
Hillman Hunter '70 BMW 1600 67
----1---------------------
Ejnnighöfum við úrval af kerruefni,
til dæmis undir vélsleöa.
Sendum um allt land.
BÍLAPARTASALAN
Höföatúni 10 - Sími 11397
um styrki Evrópuráðsins á sviði læknisfræði og heil-
brigðisþjónustu fyrir árið 1980.
Evrópuráðið mun á árinu 1980 veita starfsfólki 1
heilbrigðisþjónustu styrki til kynnis- og námsferða í
þeim tilgangi að styrkþegar kynni sér nýja tækni í starfs-
grein sinni í löndum Evrópuráðsins.
Styrktímabilið hefst 1. janúar 1980 og því lýkur 31.
desember 1980.
Umsóknareyðublöð fást í skrifstofu landlæknis og í
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og eru þar
veittar nánari upplýsingar um styrkina.
Umsóknir skulu sendar ráðuneytinu fyrir 25. april
nk.
Heilbrígðis- og tryggingamálaréfluneytM)
12. mars 1979.
Laus staðaí Keflavík
Staða skrifstofumanns t hjá Pósti og síma í
Keflavík er laus til umsóknar nú þegar.
Allar uppl.'um stöðu þessa verða veittar hjá
stöðvarstjóra Póst og síma í Keflavík.
Póst- og simamálastofnunin.
FR f élagar —
ÁRSHÁTÍÐ
FR félagar
félagsins verður haldin 17. marz í Festi,
Grindavík. Aðgöngumiðar eru seldir á skrif-
stofu félagsins, Síðumúla 22, sími 34100.
Rútuferðir frá Rvk., Kópavogi, Garðabæ og
Hafnarfirði.
FR félagar fjölmennið á árshátíðina og takið
með ykkur gesti.
KÍNVERJAR FAGNA
HERMÖNNUM SÍNUM
SEM SIGURVEGURUM
—er hersveitirnar snúa aftur f rá Víetnam
Kínverskar hersveitir, sem hertóku
víetnömsku borgina Lang Son hafa
nú snúið heim og er þeim fagnað sem
miklum sigurvegurum. Er hersveit-
irnar fóru í gegn um svonefnt
vináttuskarð á landamærum Kína og
Víetnams fagnaði mannfjöldinn her-
mönnunum ákaft.
Sendimenn í Kína telja að mark-
mið innrásar Kínverja í Víet'nam hafi
verið að hertaka Lang Son , sem er
130 km norður af Hanoi og kenna
Vietnömum þannig lexíu.
Stuttu eftir að Kínverjar höfðu
náð borginni á sitt vald tilkynntu
yfirvöld í Peking að kínverska liðið
yrði kallað aftur heim. Innrásin hófst
17. febrúar, en nú eru átta dagar
liðnir frá því að Kínverjar tilkynntu
að þeir drægju lið sitt til baka.
Hanoistjórnin hefur lýst því yfir að
brottför kinverska liðsins verði ekki
tafin ef Kinverjar yfirgefi landið með
friði.
Ekki var tekið fram í fréttum frá
Kína, hve margir hermenn hefðu
farið gegnum vináttuskarðið í gær.
Þar sem hermennirnir fóru var alls
staðar fólk meðfram veginum og
veifaði blómum og dansaði og lék á
hljóðfæri, auk þess sem flugeldum
var skotið upp.
Hermenn voru sýnilega hrærðir er
þeir sáu hinar hlýlegu móttökur og
blóm voru sett um háls þeirra.
Leiðtogar Kommúnistaflokksins
voru og viðstaddir og tóku á móti
herliðinu.
Kinverskir skriðdrekar. Hermenn Kinverja hafa fengið afar góðar móttökur er þeir hafa snúið aftur frá Víetnam eftir
innrásina í landið.
HERLIÐ AMINS UMKRINGT
— árásum nú beint að höf uðborginni Kampala
Útlægir Úgandamenn halda því
fram að innrásarliðið frá Tanzaníu hafi
nú umkringt það herlið Amins Uganda-
forseta, sem reyndi gagnárás nú um
helgina.
Heimildirnar greina að herliðið hafi
verið einangrað frá höfuðborginni
Kampala. Á meðan hafi innrásarliðið
skotið á höfuðborgina og skotmörk í
grennd við hana.
í innrásarliðinu eru hermenn frá
Tanzaníu og útlægir Úgandamenn, auk
málaliða. Þá var einnig greint frá því
að Líbýumenn héldu áfram að senda
hergögn til Amins forseta.
Margt bendir nú til þess að Idi Amin Ugandaforseti eigi nú fátt eftir annað en að rétta hendur sínar upp i uppgjöf.
Innrásarliðið frá Tanzaniu, sem stutt er útlægum Úgandamönnum, hefur sótt stöðugt nær forsetanum í höfuðborginni
Kampala og skv. síðustu fréttum virðist höfuðborgin nær einangruð.
Þó kann það að breyta nokkru að Líbýumenn senda nú stærri vopnaskammta til herliðs Amins og vera má að hann nái
einhverri gagnsókn.
Einingarsamtök Afríkuríkja og Nígeriustjóm hafa reynt sættir milli Uganda og Tanzaníu en þær tilraunir hafa enn ekki
borið árangur.
Bandaríkin:
OLÍUNOTKUN ALDREIMEIRI
— þrátt fyrir sparnaöaráróður—stóru olíuf élögin
stórgræða á kreppunni
Mikil herferð er nú í gangi í Banda-
ríkjunum, þar sem menn eru hvattir
til þess að spara bensín og olíu.
Herferðin er aðallega rekin í sjón-
varpi. Hún hefur þó hingað til ekki
borið mikinn árangur. Síðustu fjórar
vikur hefur olíunotkunin i Banda-
ríkjunum numið um 21 milljón tunna
á dag og hefur hún aldrei verið meiri.
James Schlesinger orkuráðherra
Bandaríkjanna hefur lýst þvi yfir að
þessi sparnaðarherferð hafi mis-
tekizt. Ráðherrann sagði að nokkuð
hefði gengið á olíubirgðir Bandaríkj-
anna vegna þessarar miklu notkunar,
og haldi fram sem hingað til stefni í
skort á þessum mikilvæga vökva.
í morgun greindi bandaríska stór-
blaðið 'The New York Times hins
vegar frá því að bandarísku olíu-
félögin hefðu sýnt metgróða ásíðasta
ársfjórðungi 1978 og spáin fyrir
fyrsta ársfjórðung þessa árs væri
einnig stórgróði olíufélaganna. Gróð-
inn er jafnvel svo mikill að félögin
eiga í erfiöleikum með að réttlæta
hann á sama tíma og barlómurinn er
hvað mestur vegna olíuskorts.
Reynslan er raunar sú að stóru
olíufélögin blómstra hvað mest er
kreppan i olíumálum er hvað mest.
Er olíukreppan skall yfir 1973 sýndu
olíufélögin mikinn gróða, þar sem
þau fá í sinn hlut vænan skammt af
hækkunum olíuverðs.
-ÓG New York/-JH