Dagblaðið - 13.03.1979, Síða 8
8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1979.
Þarf að ganga f
skrokk á selnum?
— „Etur 100 þúsund tonn af fiski í ár”
— segir Gunnlaugur Finnsson(F)
Etur selurinn svo mikinn þorsk, að
ákveðinna aðgerða sé þörf? „Að áliti
fiskifræðinga er gróft áætlað, að sela-
stofninn neyti um 100 þúsund tonna af
sjávarfangi á ári, þar af um 30 þúsund
tonn þorskafla,” segir Gunnlaugur
Finnsson (F), sem nú sigur á þingi í
fjarveru Steingríms Hermannssonar.
„Þar við bætist, að hér er yfirleitt
um ungfisk að ræða og því í reynd mun
meira magn, þó ekki nema hluti hans
næði fullum þroska,” segir Gunn-
laugur.
Gunnlaugur Finnsson lagði í gær
fram þingsályktunartillögu um könnun
á stærð íslenzka selastofnsins og
áhrifum hans á fiskveiðar og vinnslu
sjávarafla. Sem kunnugt er hefur sel-
veiði farið minnkandi hér við land í
kjölfar verðhruns á selskinnamarkaði.
Þetta á einkum við um veiði útsels-
kópa, sem hefur lagzt niður að kalla.
Auk veiða á fiski má nefna, að útselur
er mun meiri sýkingarvaldur nytjafiska
en landselur, segir þingmaðurinn. í öll-
um tilvikum hafa fundizt kynþroska
Gunnlaugur Finnsson.
Hvað mundi Brigitte Bardot segja?
þorskormar í maga útsela og í meira
mæli en landsel, þar sem ormar fund-
ust í 75% tilvika, segir hann.
„Þurfi að takmarka selastofna með
veiði, þyrfti að skipuleggja hana og ef
til vill leita til þeirra, sem mesta reynslu
hafa í slíkum aðgerðum, það er Norð-
manna. Þá þyrfti að athuga, hvort og
hvernig hægt er að nýta kjöt og spik af
selnum, til dæmis til minkafóðurs.
Hugsanlega yrði arðbært að verka
skinnin og framleiða innanlands ýmsar
vörur, svo sem minjagripi,” segir
Gunnlaugur Finnsson.
-HH.
Ólöf var
Nedda
f flýtinum á sunnudag varð
undirrituðum á að rugla með
nöfn þeirra ágætu söngkvenna
sem skiptast á um hlutverk Neddu
í Pagliacci, líkast til vegna til-
færslu á frumsýningardegi. Á
frumsýningunni á sunnudag var
það að sjálfsögðu Ólöf K. Harð-
ardóttir sem stóð sig með svo
miklum ágætum i hlutverkinu, en
Elín Sigurvinsdóttir tekur við á
næstu sýningu. Biður undirrit-
aður söngkonurnar forláts og
heitir því að láta þetta ekki koma
fyrir aftur . . . Hér fylgir svo
mynd af Ólöfu.
A.I.
Fermingar-
úr blaðber-
ans hvarf í
Vals-
heimilinu
Það fór illa fyrir einum blað-
bera DB sl. föstudagskvöld.
Hann var þáá körfuboltaæfingu í
Valsheimilinu um sexleytið og
vildi koma nýja fermingarúrinu
sínu og veski í geymslu hjá hús-
verðinum.
Húsvörðurinn var hins vegar
ekki viðlátinn þá stundina, svo
pilturinn stakk úrinu og veskinu
inn í klefa hans. Þegar hann kom
svo aftur að æfingu lokinni, var
úrið horfið. Grunur leikur á, að
pörupiltar, sem taldir eru hafa
verið í húsinu á þessum tíma, hafi
tekiðúriðmeðsér.
Um er að ræða tölvuúr af gerð-
inni Century, gulllitað með gylltri
festi. Þeir sem hafa úrið undir
höndum, eru vinsamlegast beðnir
að skila því aftur á sama stað.
-ÓV.
„Vélaherdeildarmenn” í Bláfjöllum segja:
„Skíöaiðkendur fara allt of
stressaðir í fjöllin”
— 30 útaf keyrslur um fyrri helgi og óhöpp eru tíð vegna óskiljanlegs hraðakapphlaups fólks
,,Ef fólk sem fer á skíði í Bláfjöllin
væri ekki svo „stressað” sem raun er á,
gengi ferðin þangað og þaðan miklu
betur,” sögðu snjóruðningstækja-
mennirnir Ólafur Hauksson og ísak
Möller sem við hittum á Bláfjallavegi á
mánudag.
„Þegar um 30 bílar fara útaf um eina
og sömu helgina er eitthvað meira en
lítið að í sambandi við aksturinn og
aksturshæfileikana. Það er eins og allir
vilji ryðjast áfram, hver sem betur
getur og svo lýkur alltof mörgum öku-
sprettum með útafakstri eða óhöpp-
um,” sagði Ólafur sem þarna er vanur
maður, hefur rutt veginn í 3 ár.
„Ef fólk vildi sýna okkur svolitla
biðlund gengi allt betur. Til þess að
ryðja veginn með oddplógnum þurfum
við að fara veginn á nokkurri ferð ef
koma á snjónum út fyrir veginn sinn
hvorum megin. Við getum illa mætt
bílum á þessari ferð, en svo mikið
liggur sumu fólki á, að það gefur okkur
ekki tíma til verskins, en treðst móti
okkur, ætlast til að við stoppum og
bíðum. Skynsamlegra væri að leyfa
okkur að opna veginn vel og þá gengi
umferðin greiðlega.”
Ólafur nefndi okkur sem dæmi að
hann hefði verið tvo tíma að komast
um kílómetra leið um fyrri helgi, vegna
þess að umferðin uppeftir tróðst svo
áfram, að ruðningsbíllinn fékk ekki
frið til starfa.
Ólafur skoraði á skíðaiðkendur að
haga ferðum sínum eftir upplýsingum I
Btllinn með oddplóginn er eins og hraðbátur i sjó er hann þeytir snjónum af veginum á báða bóga. Hann ekur með 40—
50 km hraða — EF HANN FÆR FRIÐ og er þá ekki lengi að ryðja allan veginn.
Litla innsetta myndin er af Ólafi Haukssyni (t.v.) og ísak Möller. DB-myndir Bjarnleifur.
Jarðýtan er ekki lengi að ryðja hlössunum af Bláfjallaveginum. Hón tekur nokkur
tonnin i senn.
símsvara og hlýða skilti niður við
Suðurlandsveg um hvort opið væri eða
lokaö I Bláfjöll. Upplýsingum á þessum
tveimur stöðum mætti trúa og væri
opið en ekki greiðfært væri betra að
bíða svolítið og lofa tækjunum að
ryðja veginn. Margir myndu þá sleppa
við óhöpp og færri beyglur á bretti og
hurðir. „Byrjið skíðaferðina ekki með
kappakstri upp Bláfjallaveg og ljúkið
henni ekki með blindakstri þar sem
ekki sést til vegar,” sagði Ólafur.
„Vélahersveitin” I Bláfjöllum er vel
búin tækjum og það er betra að hún fái
að fara fyrst um veginn en þurfi ekki að
grafa upp bíla fasta í sköflum á vegi
eða utan vegar.
-ASt.
Þessu skilti við Suðurlandsveg — og simsvara Bláfjalla eru skiðaiðkendur beðnir
að hlýða.