Dagblaðið - 13.03.1979, Síða 10

Dagblaðið - 13.03.1979, Síða 10
10 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1979. mmiAÐw fijálst'áháð dagblað Útgefandi: DagblaöM hf. f Framkvnmdastjóri: Svalnn R. EyJÓHsson. Rhstjórí: Jónas Kristjénsson. Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson. Ritstjómarfultrúi: Haukur Halgason. Skrifstofustjóri rttstjómar Jóhannas ReykdaL Iþróttir Hallur Sfmonarson. Aöstoöarfréttastjórar Atll Stalnarsson og ómar Valdi- marsson. Mannlngannél: Aðabtainnlngólfsson. Handrit Asgrimur Pélsson. Blaðamann: Anna BJamason, Ásgair Tómasson “ragl Sigurösson, Dóru Stafénsdóttir, Gbsur Sigurös- son, Gunniaugur A. Jónsson, HaMur Halsr^i, Haigi Pétursson, Jónas Haraidsson, Óiafur Gairsson, ólafur Jónsson. Hönnun: GuÖJÓn H. Pélsson. yósmyndlr Aml PéU Jóhannsson, BJamlaifur BJamleHsson, Höröur Vlhjélmsson, Ragnar Th. Sigurös- son, Svelnn Pomtóösson. Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjótfsson. GJakJkeri: Þrélnn Þorialfsson. Sölusljóri: Ingvar Svainsson. Draiflng- arstjóri Mér E.M. HaHdórsson. Rltstjóm SiöumCila 12. Afgraiösla, éskriftadaUd, auglýsingar og skrifstofur ÞvarhoM 11. Aðalsbni blaösins ar 27022 (10|nuri. Askrift 3000 kr. é ménuði Innanlands. i lausasölu 150 kr. eintaklð. Satning og umbrot Dagblaöiö hf. Siöumúla 12. Mynda- og plötugarö: Hlmlr hf. Stöumúla 12. Prantun: Arvakur hf. Sketfunnl 10. Aðgræðaísvefni hálfan Vil- Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið fremur máttlítill fyrsta hálfa árið í stjórnarandstöðu. Fátt eitt hefur heyrzt frá honum, enda loft jafnan þrungið vopnagný frá bræðravígum stjórnar- flokkanna. Menn sögðu, að Sjálf- stæðisflokkurinn allur væri aðeins á við mund. En svo sýndi skoðanakönnun Dagblaðsins ísíðustu viku, að kjósendur voru alls ekki búnir að gleyma Sjálfstæðisflokknum. Hún sýndi ekki 25 þingmanna styrk eins og var fyrir síðustu kosningar og enn síður 20 þingmanna styrk eins og verið hefur síðan. Hún sýndi 30 þingmanna styrkleika. Þetta er hvorki meira né minna en helmingur sæta á alþingi. Ef könnunin gefur rétta mynd, ætti Sjálf- stæðisflokkinn aðeins að skorta tvo þingmenn í starf- hæfan meirihluta í báðum deildum, ef kosið yrði nú til alþingis. Þetta er gífurlega og ótrúlega mikið fylgi. Þess ber að gæta, að áður hafa skoðanakannanir Dagblaðsins ofmetið fylgi Sjálfstæðisflokksins lítillega og gæti svo einnig verið nú. Samt er engin ástæða til að efast um, að könnunin endurspegli í stórum dráttum sterkan straum kjósenda frá Framsóknarflokki og einkum Alþýðuflokki til flokksins. Efast má um, að Sjálfstæðisflokkurinn eigi skilið þessa miklu velgengni. Það er aðeins í borgarstjórn Reykjavíkur, að broddur hefur verið í andstöðu flokksins. Fítonsandinn hljóp ekki í þingmenn flokks- ins fyrr en síðari hluta síðustu viku, þegar niðurstaða skoðanakönnunarinnar varð kunn. Til skamms tíma er eins og neista hafi skort í Sjálfstæðisflokkinn. Nýjar stefnuskrár í efnahags- málum og landbúnaðarmálum breyta þar litlu. Þær eru í verulegum atriðum gamlar og þreytulegar, ekki líkleg- ar til að vekja mikinn eldmóð. Þar á ofan hefur Sjálfstæðisflokkurinn enga tilraun gert til að leysa forustuvanda sinn. Og sá vandi hefur hingað til verið talinn svo geigvænlegur, að flokkurinn mundi ekki treysta sér til næstu kosninga fyrr en að honum leystum. Nú virðist hins vegar svo, sem þessi vandi skipti litlu. Kjarni.málsins er auðvitað sá, að stjórnarandstaða þarf engin eigin vandamál að leysa, þegar hún hefur annan eins andstæðing og ríkisstjórnina. Það er ein- mitt ríkisstjórnin, sem hefur bjargað málum Sjálf- stæðisflokksins — að sinni. Flokkurinn getur setið með hendur í skauti og grætt fylgi í svefni. Hinar óheyrilegu andstæður í ríkisstjórninni fara ekki framhjá kjósendum. Ríkisstjórnin lifír frá einum úrslitakosti til annars, einum harmleik til annars, einu öngþveiti til annars. Hún er eins og flak, sem steytir á hverju skerinu á fætur öðru. Fyrst tókst ríkisstjórninni þetta sæmilega. Mönnum fannst ofur eðlilegt og lýðræðislegt, að til væri ágrein- ingur, sem leysa þyrfti með prútti og þjarki, hótunum og málamiðlunum. En þar kom, að kjósendum fór að ofbjóða. Þá hugarfarsbreytingu endurspegla niður- stöður könnunarinnar. Það er ekki á eigin verðleikum, heldur óvinsældum ríkisstjórnarinnar, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið að raka að sér fylgi að undanförnu. Enda segjast sumir sjálfstæðismenn vilja, að ríkisstjórnin sitji sem lengst, svo að fylgisaukningin fjari ekki út. Ummæli margra hinna spurðu í könnun Dagblaðsins sýna, að hinir nýju stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks- ins stjórnast af óbeit og ótrú á ríkisstjórninni fremur en af dálæti á flokknum. Daglegt líf um borð í geimstöð: Diskamir boiðaðir i lok máltíðarinnar Sovézkir geimfarar dvelja nú um borð í geimstöðinni Salyut-6 en þeim var skotið á loft nýlega með geim- farinu Soyus 32, eins og DB hefur greint frá. Margar áhafnir geimfara hafa dvalið um borð í Salyut-6 og sl. haust settu sovézkir geimfarar dvalarmet úti í geimnum er þeir dvöldu þar í I40sólarhringa. Langtímaþol manna í geimnum kannað Sovézkir vísindamenn eru með þessum rannsóknum sinum að kanna þol manna í langdvölum úti í geimn- um og er talið að geimfararnir tveir, sem nú dvelja um borð í Salyut-6, reyni að setja enn eitt dvalarmetið. Sovétmenn hafa undanfarið sent birgðaflaugar til þeirra geimfara er dvelja í geimstöðinni. Komið er með nýjar birgðar og úrgangsefni tekin úr geimstöðinni. Líklegt verður að teljast að svo verði einnig nú. Að jafnaði dveljast tveir geimfarar í geimstöðinni, en þeir eru fjórir þá daga sem birgðaflaugarnar standa við. En skyldi ekki vera heldur einmanalegt að dveljast um borð í geimstöð á braut umhverfis jörðu í langvarandi einangrun? Við skulum kynnast daglegu Iífi geimfaranna tveggja, sem nú dvelja i Salyut-6 örlitið nánar. Langur vinnutími Þegar allar áhyggjur vegna tengingar geimfarsins við Salyut-6 geimstöðina og fiutningur geimfar- anna, Vladimir Lyakov og Valery Ryumin, um borð í hana eru að baki, er lífið þar um borð farið að ganga sinn vanagang. Geimfararnir vinna að verkefnum sínum frá kl. 8 f.h. til kl. II að kveldi. Auðvitað taka þeir sér frí til að borða og hvílast og gera líkamsæfingar. Þeir hafa fimm daga vinnuviku og tveggja daga hvíld. Geimfararnir hafa þegar lokið hinum þýðingarmestu verkefnum, að yfirfara tækjabúnað geimstöðvar- innar. Sérfræðingar hjá geimferða- eftirlitinu sögðu að þeir hefðu á sér- stakan hátt rannsakað allan tækja- búnað þess, til að fullvissa sig um beztu hugsanlegar aðstæður fyrir dvöl manna um borð. Ekkert má út af bera Geimfararnir sneru sér fyrst að þvi' að endurnýja andrúmsloftið. Tæki geimfarsins gefa frá sér 25 lítra af súrefni á klukkutima. Endurnýjunin felst í því, að koma fyrir geymum sem drekka í sig súrefni og kolsýru. Byggist þetta á sambandi milli þeirra efna sem framleiða súrefni og kolsýru og uppgufunar vatnsefna. Ef eitthvað ber út af getur það haft örlagaríkar afleiðingar. Til að stjórna andrúmsloftinu i geimfarinu eru Veldur hver á heldur Hvað er orðið af öllum fyrirheitum núverandi borgarstjórnarmeirihluta frá því á sl. vori? Var þá ekki fullyrt í einu og öllu, að næði núverandi meirihluti borgar- stjórnar völdum yrði öllu borgið, kjör borgaranna mundu stórum batna, framkvæmdir stóraukast, félagsleg aðstaða batna að mun, félagsleg þjónusta aukast o.s.frv., o.s.frv.? Loforðin voru mörg og stór og öll skyldu þau efnd. Talsmenn núver- andi meirihluta prísuðu samstöðu þessara þriggja sundurleitu hópa i bak og fyrir, þótt hún hefði verið allsendis óþekkt fyrirbæri, er þeir voru í minnihluta. Fólk var blekkt á allan handa máta. Nú hefur fjárhagsáætlun Reykja- víkurborgar fyrir árið 1979 loksins .verið samþykkt og við lauslega athugun á henni kemur í ljós, að nú- verandi borgarstjórnarmeirihluti getur ekki lengur beitt Reykvíkinga sjónhverfingum. Gífurleg hækkun fjárhagsáæd- unar á milli ára, sem er meiri en verð- bólgan, aukin skattheimta, mikill niðurskurður á þjónustu og fram- kvæmdum, nefndafjölgun í borgar- kerfinu o.s.frv. sýnir hvert stefnir. Vandamálin hrannast upp hjá þessum „stjórnsnillingum”, sem töldu og reyndu að sanna með úttekt á fjármálum borgarinnar s.l. sumar, að óráðsia sjálfstæðismanna og óstjórn á borginni hefði verið slík að sýna þyrfti svart á hvítu. En mikil urðu vonbrigðin, þegar í ljós kom, að úttektin sannaði einvörðungu trausta og ábyrga stjórn í hvívetna. Nú má glöggt heyra og sjá, hversu harkalega þessi þríoddvitameirihluti hefur brugðist umbjóðendum sinum. Sparnaður í rekstri grunnskóla Reykjavíkur frá sept.-des. á þessu ári hefur ekki verið ræddur i fræðsluráði og virðist einsýnt að þríeykið ætlar sér að göslast einhvern veginn áfram í þeirri forar- eðju, sem það er búið að koma sér út í. Hlutverk skólans og aðstaðan Hlutverk grunnskólans er markað Kjallarinn Sigurjón Fjeldsted deildum allra grunnskóla Reykjavík- ur verði 28, annars verði borgar- sjóður að greiða þann kostnað sem af lægra meðaltali hlýst. Ekki ætla ég að fara mörgum orðum um það að sinni a.m.k., hversu alvarlegar afleiðingar þessi aðgerð kann að hafa í för með sér, en rétt væri, að foreldrar og aðrir veltu þessu atriði gaumgæfilega fyrir sér. Ég tel að skólamenn hafi svo lengi þraukað við erfiða aðstöðu í starfi og jafnvel orðið að sitja undir ásökunum, sem fyrst og fremst má rekja til margs konar aðstöðuleysis, að ekki verði unað við skerðingu sem þessa, né þá 40 milljón króna skerðingu í rekstri grunnskóla á þessu ári, sem fyrst og fremst hlýtur að falla á mánuðina sept.—des. og nú- verandi meirihluti borgarstjórnar hefur boðað. Áðurnefnd grein grunnskólalaga virðist mér vera markmiðsgrein þeirra, er með völd fara nú, enda þeim best trúandi til þess að meta börn okkar, velferð þeirra og þroska i krónum og aurum. Fækkun og fjölgun nemenda Útþensla borgarinnar hefur haft það í för með sér, að flutningar milli borgarhverfa hafa orðið miklir, og börnum fækkað i gömlu skóla- ,,Þeir, sem lofa gulli og grænum skógum en svíkja síðan allt og alla, eiga ekkert skilið annað en rækilega áminningu.........Reykvíkingar hafa lítinn áhuga á sjón- hverfingum... ” Hinn styrki þrífótur Greinilegt er, að þremenningarnir Björgvin, Kristján og Sigurjón P. telja sig lítt þurfa á nefndum og ráðum borgarinnar að halda, þó að þeir hafi bætt svo sem einu 7 manna ráðinu við. Þær umræður og blaðaskrif, sem urðu fyrir skemmstu um að fella niður rekstur Mæðraheimilisins, starfsemi Útideildar, rekstur með- ferðarheimilis á Kleifarvegi og skera niður fjárveitingu til reksturs grunn- skóla í Reykjavík um 40 millj. o.s.frv. sönnuðu, að ekki hafði sam- starfið né samvinna milli oddvitanna annars vegar og hinna ýmsu nefndar- manna hins vegar verið ýkja mikil. Fræðsluráð Reykjavikur hafði t.d. ekki verið beðið um að gefa umsögn um - Kleifarvegsheimilið, en með bókun meirihluta Fræðsluráðs frá I2. febr. sl. má fullyrða að þessari starfsemi hafi verið bjargað að sinni a.m.k. og skýrt í grunnskólalögunum frá 1974. Má því ætla, að nemendum sé tryggður jafn réttur til náms, for- eldrar barnanna séu þar með vissir um skyldur skólans gagnvart nemendum og kennurum og öðru starfsfólki skólans séu tryggð viðun- andi starfsskilyrði, svo settum mark- miðum verði náð. Einhverra hluta vegna virðist skólamönnum þær kröfur sem gerðar eru til skólans vera oft í afar litlu samræmi við þá aðstöðu, sem skólunum er búin. Svo virðist sem sumar greinar grunnskólalaganna séu öðrum æðri og má þar t.d. nefna 46. gr., þar sem stendur:....skal við það miðað að jafnaði, að meðaltal nemenda i bekkjardeildum hvers grunnskóla fari'ekki yfir 28 né nemendafjöldi í einstakri bekkjardeild yfir 30”. Um þessa grein er mikið rætt þessa dagana, því heyrst hefur að fjármála- ráðuneytið vilji túlka hana á þann hátt, að meðaltal nemenda í öllum hverfunum en þörf aukins skóla- húsnæðis vaxið í nýjum hverfum. Er nú svo komið, að skólar sem áður. höfðu 1000 nem. eða fleiri eru með í kringum 4—500 börn. Flestir, ef ekki allir þessir skólar, hafa verið ofsetnir og mikil þröng á þingi árum saman og hafa nemendur og starfsfólk þurft að búa við erfiða aðstöðu svó hægt hafi verið að koma nemendum í hús. Flestir eru því sammála, að ekki verði hjá þvi komist að búa við þröngan kost, þau ár, sem nemenda- fjöldinn er hvað mestur, þvi ekki verða steinhús byggð a.m.k. til þess að taka á móti mesta kúfnum, sem siðar minnkar eftir 5—7 ár. Til þess að brúa þetta bil, hafði fyrri borgar- stjórnarmeirihluti látið byggja færanlegar kennslustofur, sem hafa gefið góða raun, og hafa þær jafn- framt verið notaðar við starfsvelli á sumrin. Margt bendir nú til þess, að ekki

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.