Dagblaðið - 20.03.1979, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 20.03.1979, Blaðsíða 1
5. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979 — 67. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVFRHOLTI 11.—ADALSÍMI 27022. Niðurstaða fundar Alþýðu- banda- lagsins: ff Guðmundur J. má reyna kóngsbragð —Jón Sigurðsson forstöðumaður Þjóðhagsstof nunar upphaf smaður þreif inga ff „Guðmundur J. Guðmundsson má reyna kóngsbragð til að bjarga ríkisstjóminni.” Sú var niðurstaða fundar í þingflokki, framkvæmda- stjórn og verkalýðsmálaráði Alþýðubandalagsins í gær. „Sólóspil” var þó nokkuð gagnrýnt Steingrímur Hermannsson: „Furðulegt ef upp úr slitnar nú” „Ég tel það i meira lagi furðulegt, ef upp úr þessu stjórnarsamstarfi slitnar nú og þá myndi það gerast fyrir einhverjar aðrar ástæður en efnahagsfrumvarpið,” sagði Stein- grímur Hermannsson dómsmálaráð- herra i viðtali við Dagblaðið i morgun. „Við vitum, að það eru mikil átök innan Alþýðubandalags- ins, en við vitum líka, að það að slíta stjórnarsamstarfi nú mynd; kosta mörg verðbólgustig og valda miklu tjóni. Ég held, að enginn stjórnmála- flokkur vilji láta kenna sér um slíkt," sagði Steingrimurennfremur. „Persónulega hef ég mestan áhuga á þeim tillögum, sem komnar eru frá Verkamannasambandinu,” sagði Steingrímur ennfremur. „Þaö er hins vegar ákveðin stefna okkar fram- sóknarmanna að breyta engu í frum- varpinu, sem orðiö gæti til þess að draga úr áhrifum þess í baráttunni gegn verðbólgunni. Ef menn geta bent á einhverjar aðrar aðferðir sem ná sama tilgangi, erum við til við- tals.” -HP. Jón L með 2 vinninga — eftlr4umferðir á skákmótinu íKaupmannahöfn „Þetta hefur ekki gengið nógu vel — ég er í miðjum hóp með tvo vinn- inga eftir fjórar umferðir,” sagði Jón L. Árnason, þegar DB ræddi við hann í morgun. Jón teflir nú á skák- móti i Kaupmannahöfn. í fyrstu umferðinni tapaði Jón fyrir Dananum Jens Kristiensen. Fékk siöan þrjá Svía í röð. Gerði jafntefli við Schneider, vann Wed- berg og gerði jafntefli við Niklasson í 4. umferð. í dag teflir Jón við Dan- ann Fuglsang. Danirnir Jens öve Fris NieLsen og Jens Kristiensen eru efstir eftir fjórar umferðir með 3 vinninga og eina bið- skák hvor. Hins vegar er staðan nokkuð óljós að ööru leyti, þar sem ekki var öllum biðskákum lokið, þegar DB ræddi við Jón í morgun. hsim. og ætlast til, að flokkamenn í Verka- mannasambandinu hefðu framvegis gott samband við stofnanir flokksins. Alþýðubandalagsmenn voru ánægðir með kröfur verkalýðsfélaga um land allt, að stjómin skyldi sitja og flokkarnir semja. Þeir ræddu ýmsar leiðir og þreifingar. Bezt væri, að málamiðlunartillögur, sem gætu bjargað stjórnarsamstarfinu, kæmu ekki frá Alþýðubandalaginu eða Alþýðuflokknum heldur öðrum aðilum. Fram kom á fundinum, að Jón Sigurðsson, forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar, hefði verið upphafsmaður þreifinga um helgina, sem DB rakti í gær. Jón hefði haft samband við Snorra Jónsson vara- forseta ASÍ, og Snorri síðan við ýmsa alþýðubandalagsmenn i verkalýðs- hreyfingunni. Þeir gerðu Ásmund Stefánsson út af örkinni, og hafði hann samband við Karl Steinar Guðnason, Sighvat Björgvinsson og Kjartan Jóhannsson með tilslökun, einsogskýrthefurveriðfrá. -HH. Það skiðlogaði I þakhæðinni um tíma en eins og sést á innfelldu myndinni varð tjón minna en xtla hefði mátt. DB-myndir Sveinn Þorm. LÝSISVERKSMIÐJA í BÁU —lögreglumenn á eftirlitsferð sáu eldinn í tíma Lögreglumenn á eftirlitsferð urðu varir við eld í rishæð Grandavegs 42, þar sem Lýsi hf. er til húsa kl. 5 í nótt. Er slökkvilið kom á vettvang var orðinn mikill eldur í rishæðinni og í skyndingu var kallað út varalið. Slökkviliðið var að störfum á staðnum til klukkan 7. Á loftinu, er eldurinn kom upp á, var geymsluloft og mátti það heita alelda er slökkviliðsmenn komu á staðinn. Milli loftsins og vélarsals niðri er steinsteypt loft og þangað niður komst eldur ekki og heldur ekki vatn að ráði svo talið er að tiltölulega litlar skemmdir hafi þar orðið. Á geymsluloftinu var ýmislegt dót, en ekki verðmæti að ráði að því er talið var í morgun. Þar voru þó til að mynda bíldekk sem loguðu glatt og skópu mikinn reyk. Þakið yfír geymsluloftinu brann og það sem var á loftinu ónýttist. Talið er þó að tjón af þessum bruna hafi orðið minna en ætla mætti af umfangi eldsins á tímabili. -ASt. GOTUNAUÐGANIR 0G AÐRAR NAUÐGANIR —Sjá kjallaragrein Hildigunnar Ólafsdóttur á bls. 10-11 i

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.