Dagblaðið - 20.03.1979, Side 13
12
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979.
Iþróttir
— náði jafntef li í 6. umf erð
bikarsins í Southampton f gær
Leiltmenn Lundúnalirtsins kunna, Arsenal,
böfðu heppnína með sér i leiknum i Southampton í
6. umferð bikarkeppninnar I gær. Tókst að ná jafn-
tefli á The Dell, 1—1, þó svo Dýrlingar Southampt-
ons hefðu umtalsverða yfirburði I leiknum. Liðin
reyna með sér á ný á miðvikudag á Highbury, leik-
velli Arsenal.
Southampton, sem tapaði gegn Nottingham For-
est 1 úrslitum deildabikarsins á Wembley á laugar-
dag, lék enn betur en á laugardag og sóknarloturnar
buldu á vörn Arsenal — Dýrlingamir voru drifnir á-
fram af stórleik hins unga Austin Hayes. Það var
hann, sem skoraði fyrra mark leiksins á 63. mín.
eftir að Pat Jennings hafði variö stórkostlega frá
Phil Boyer. Báðir höfðu að auki verið nærri að
skora fyrr I leiknum. En þremur mín. síðar fékk
Arsenal hornspymu. Graham Rix gaf fyrir og
Gennoe, markverði Dýrlinganna, urðu á mikil mís-
tök. Hljóp úr markinu og ætlaöi að slá knöttinn frá
— en hitti ekki. Boltinn barst til David Price, sem
var frir, og hann renndi boltanum í autt markið.
Mikil spenna var lokakaflann — Boyer fékk enn
tækifæri, svo og Willie Young hjá Arsenal. Dýrling-
amir urðu fyrir áfalli — David Peach borinn af velli
og óliklegt að hann geti leikið á miðvikudag.
Þá var einn leikur I '4. deild. Wigan sigraði
Rochdale 2—0 á útivclli og nálgast nú efsta sætið í
deildinni.
Anna-María efst
í heimsbikarnum
. Anna-María Moser, austurríska skíðadrottningin,
sigraði I heimsbikarkeppninni í sjötta sinn í gær-
morgun, þegar hún varð i öðru sæti í stórsvigi í Fur-
ano I Japan. Fyrir það hlaut hún 23 stig en Hanni
Wenzel, Lichtenstein, sem var 20 stigum á undan
Önnu-Maríu fyrir keppnina í stórsviginu, hlaut ekki
stig. Anna-Maria hlaut þvi samtals 243 stig en Wenz-
el 240 stig. Minni gat munurinn varla verið. Maria-
Theresa Nadig, Sviss, sigraði i stórsviginu i gær-
morgun. Varð fimmta i stigakekppninni.
Ingemar Stenmark sigraði örugglega i stórsviginu i
Furano — tíundi sigur hans I stórsvigi heimsbikars-
ins i vetur eða í öllum stórsvigsmótum keppninnar.
Siíkt hefur aldrei skeð áður i keppni heimsbikarsins
— og Stenmark setti einnig annað met. Þetta var 13.
sigur hans i heimsbikarnum í vetur — og þar með
bætti hann fyrra met Frakkans fræga, Jean-Claude
Killy. Hann vann eitl sinn 12 sigra í keppni heims-
bikarsins.
Stenmark hlaut því samanlagt þá hámarksstiga-
tölu, sem hann gat hlotið í keppni heimsbikarsíns,
eða 150 stig, en aðeins þrír sigrar í grein hjá honum
töldu. Peter Lutscher, Sviss, var hins vegar sgiurveg-
arí samanlagt i keppni heimsbikarsins vegna hinna
furðulegu reglna, sem settar voru í keppnisbyrjun —
reglna, sem bcinlinis stefndu að því að koma í veg
fyrir sigur Stcnmarks í fjórða sinn i röð. Stenmark
keppti ekki i bruninu — og meiðsli svigmanna i
brunkcppni vetraríns, sýndu fram á að hann gerði
þar rétt.
Stenniark var auðvitað sigurvegari í svigkeppni
heimsbikarsins. Hlaut 150stig. Lútscher varö annar
með 102 stig og Bojan Krizaj, Júgóslavíu, þriðji með
96 stig. Heini Hemmi, Sviss, fjórði með 86 stig.
870 þúsund kr.
fyrir 11 rétta
Það á ekki af Bretum að ganga. Eftir að vorið
hafði boöað komu sina, skall yfir á föstudag mikil
fannkoma, sem kom í veg fyrir, að 28 knatt-
spyrnuleikir í Mið- og Norður-Englandi færu fram.
Fresta varð 5 af leikjum getraunaseðilsins og Axel
varð að grípa til teningsins cnn einu sinni á þessum
velri. Röðin varð þá þessi: 2XX — 2X1 — 22X —
ÍXX. Aðeinseinn seðill kom fram með 11 réttum og
var vinningur fyrir hann kr. 868.000.- Eigandinn er
verzlunarmaður úr Breiðhollinu í Reykjavik. Með
10 rétla voru 8 raðir og vinningur fyrír hverja röð
kr. 46.500.-
IAAF beygði sig
Alþjóðafrjálsíþróttasambandið, IAAF, „beygði
hné sin i duftið i pólitfskum tilgangi fyrir
alþýðulýðveldinu Kina, þegar Taiwan var vísað úr
IAAF eftir 22 ár,” sagði Robert Alexander, lög-
maður, fyrir brezkum hæstarétti í gær. Hann hafð)
þar fariö fram á að ákvörðun þings IAAF á Puerto
Rico í haust, þar sem samþykkt var með 200 at-
kvæðum gegn 153 að útiloka Taiwan, yrði hrundið.
Málinu verður fram haldið i dag f Lundúnum.
Badminton
á Selfossi
Opið B-flokks-mót í badminton verður háð i
iþróttahúsinu á Sclfossi 25. marz næstkomandi og
hefst kl. 13.30. Keppt verður i einliðaleik og tvíliöa-
leik karla og kvenna. Einnig tvenndarleik. Þátttöku-
tilkynningar þurfa að hafa borizt fyrir 21. marz til
Hjalta Sigurðssonar í sima 99—1604 eða Báru
Gunnarsdóttur í síma 99—1219.
13
Ofbeldið í íslenzkum körfuknattleik
komst á nýtt stig í Höllinni í gærkvöld
er Valur sigraði Njarðvík. Öll Höllin
logaði — það var slegizt á áhorfenda-
pöllum, dómari var sleginn af áhorf-
anda, Bandarikjamaðurinn í liði Vals,
Tim Dwyer gaf Árna Lárussyni vænt
olnbogaskot í andlitið og gul spjöld
dómaranna voru óspart notuð á ýmsa
af forustumönnum Njarðvíkinga. Þeir
lngi Þorsteinsson og Hilmar Hafsteins-
son slepptu sér alveg í æsingnum og
Kristbjörn Albertsson, einn af starfs-
mönnum leiksins hljóp völlinn þveran
eftir að Dwyer sló Árna og var rekinn
út. Þeir slepptu sér alveg er Valsmenn
sigruðu Njarðvikinga 92—79 í úrvals-
deildinni. Valsmenn leika því til úrslita
— það er næsta víst, eiga aðeins eftir
einn ieik við Þór og síðan við núver-
andi íslandsmeistara KR.
Þegar flautan gall til merkis um
leikslok streymdu æstir áhorfendur að
dómurum og hugðust kenna þeim
lexíu. í látunum var einum unglingnum
hent í gólfið svo harkalega að hann lá
lengi vankaður á eftir. Skömmu síðar
fékk Þráinn Skúlason dómari högg í
andlitið — frá fullorðnum manni, ekki
ungling. Slík voru lætin! Áhorfendur
ætluðu beinlínis að ærast. Og er það nokk-
ur furða þegar leikmenn á vellinum og
forráðamenn liðs sleppa alveg fram af
sér beizlinu. Stjórnendur liðs UMFN
hafa þráfaldlega orðið sér til skammar,
þegar þeir hafa ekki getað hamið skap
sitt. Svo var einnig í gærkvöld með þá
Hilmar Hafsteinsson og Inga Þor-
steinsson. Mikil var heiftin í Hilmari
eftir leikinn og einn leikmanna Njarð-
víkur varð að ganga á milli hans og
dómara — hrinti Hilmari frá. Þessi æs-
ingur þeirra félaga smitar út frá sér í
liðið því þegar illa fór að ganga hjá
Njarðvíkingum í lok fyrri hálfleiks þá
tóku þeir að grípa til óyndisúrræða.
Hugsuðu meir um andstæðinginn en
eigin leik. Slíkt kann ekki góðri lukku
að stýra — og þarna liggur áreiðanlega
meginskýringin á því hvers vegna
Njarðvíkingar virðast ávallt missa af
titli áúrslitastund.
En Valsmenn voru ekki saklausir
heldur. Það virðist orðið í tízku meðal
bandarísku leikmannanna að láta hnef-
ana tala. Slíkt gerðist síðast þegar KR
tapaði fyrir Val. Þá réðst Bandaríkja-
maðurinn í liði KR á annan dómarann.
Tim Dwyer lét sig ekki muna um að
gefa Árna Lárussyni vænt olnboga-
högg i andlitið, þegar Árni dekkaði
hann upp en áður hafði verið dæmd
villa á Árna. Tim Dwyer slapp alveg við
tiltal.
Allt þetta ofbeldi, allur þessi æsingur
leikmanna og forráðamann Iiða æsir
upp áhorfendur. í gærkvöld voru 1100
manns i Höllinni, þegar Valur og
Njarðvik kepptu. Þeir slepptu alveg
fram af sér beizlinu, jafnvel svo að
Pétur ekki
með Val
— þegar Valur og KR
leika til úrslita
I gær kom skeyti frá Banda-
ríkjunum, þar sem Valsmönnum var
tilkynnt að léki íslenzki risinn, Pétur
Guðmundsson með Val þá gæti hann
ekki leikið með háskóla sínum meir á
keppnistímabilinu. „Þetta hefur aðal-
lega verið blásið upp í blöðum og kom
mér í raun á óvart,” sagði Pétur
Guðmundsson, hinn geðugi risi í gær-
kvöld í Höllinni þar sem hann fylgdist
með leik Vals og Njarðvíkur. Fyrir
leikinn þá hitaði hann upp — og þeir
hlutir, sem hann gerði beinlinis skóku
Höllina.
„Hins vegar mun ég væntanlega
leika með íslenzku úrvalsliði gegn liði
Bandaríkjamanna,” sagði Pétur enn-
fremur. Pétur mun því ekki leika
væntanlegan úrslitaleik Vals og KR.
slegizt var á áhorfendapöllum, og eftir
leikinn komu áhorfendur hlaupandi og
vildu koma sinni skoðun að — og gripu
til sömu úrræða og leikmenn og for-
ráðamenn áður. Hnefarnir voru látnir
tala og formælingar slíkar að vart er
eftir hafandi.
Höllin logaði af heift, æsingi. En
hvað um sjálfan leikinn — sigur Vals.
Tim Dwyer, Bandaríkjamaðurinn í liði
Vals, vann enn einn sigur sinn. Bar
höfuð og herðar yfir aðra leikmenn á
vellinum. Var allt í öllu í leik Vals, en
þó voru aðrir leikmenn mun virkari en
oft áður og þeir komu mjög á óvart,
Ríkharður Hrafnkelsson, sem lék
sennilega sinn bezta leik í vetur, og
Gústaf Gústafsson er lék sinn bezta leik
fram til þessa. En Dwyer var yftrburða-
maðurinn, jafnvel svo að Njarðvíking-
ar gripu til þess ráðs, að setja tvo menn
til höfuðs honum en þá losnaði líka um
aðra leikmenn Vals.
Á meðan Njarðvíkingar héldu höfði
þá höfðu þeir í fullu tré við Valsmenn.
Höfðu frumkvæðið framan af fyrri
hálfleik. Á 12. mínútu höfðu Njarðvik-
ingar fjögurra stiga forustu, 24—20 og
þá þegar var Kristján Ágústsson í liði
Vals kominn með fjórar villur. En
hittni beggja liða var slök framan af.
Sérstaklega var Ted Bee, Njarðvíking-
ur, óvenju daufur og skoraði aðeins sex
stig i fyrri hálfleik. Á 16. mínútu var
staðan jöfn, 30—30 og á 18. minútu
36—34 en leikur Njarðvíkinga hrundi
fram að leikhléi. Þeir skoruðu ekki stig
— og Valsmenn með yfirveguðum leik
náðu afgerandi forustu, 43—34 i leik-
hléi. Pirringur Njarðvíkinga kom síðan
betur í ljós í síðari hálfleik og á köflum
leystist leikur þeirra upp. Forráðamenn
liðsins voru ávailt að leita að villum,
einkum hjá Dwyer — og þóttust finna
nokkrar. Og það má til sanns vegar
færa að á köflum er engu líkara en
þessi skapmikli Bandaríkjamaður sé
ginnheilagur í augum dómara og
nokkrum sinnum slapp hann með
nokkuð Ijósar villur.
En hvað um það — í stað þess að ein-
beita sér að þvi að leika körfu, þá
misstu Njarðvíkingar alveg tökin á
teiknum og Valsmenn sigu örugglega
framúr og sigruðu 92—79 — verð-
skuldaður sigur. Þeir héldu sig ávallt
við efnið, það er að leika körfuknatt-
leik.
Tim Dwyer var stigahæstur leik-
manna Vals — með 37 stig. Ríkharður
Harfnkelsson skoraði 18 stig, Torfi
Magnússon og Gústaf Gústafsson 10
stig hvor. Hjá UMFN skoraði Stefán
Sagði af sér
Formaður Bayern Munchen,
Wilhelm Neudecker, sagði af sér for-
mennsku í félaginu í gær vegna þeirra
deilna, sem átt hafa sér stað innan
félagsins, þegar áætlað var að ráða
Max Merkel, Austurriki, sem fram-
kvæmdastjóra.
Staðan
f úrvais-
deildinni
Staðan í úrvalsdeildinni er nú eftir
sigur Vals á Njarðvík.
KR 20 14 6 1735—1582 28
Njarðvík 20 13 7 2033—1848 26
Valur 19 13 6 1652—1620 26
ÍR 20 10 10 1788—1751 20
ÍS 20 6 14 1708—1833 12
Þór 19 3 16 1557—1873 6
Aðeins einum leik er ólokið í úrvals-
dcildinni — viðureign Vals og Þórs.
Engum blandast hugur um hvernig það
fer. Ekkert nema öruggur sigur Vals
gegn slöku liði Þórs kemur til greina og
að Valur og KR leiki siðan til úrslita um
íslandsmeisaratign í ár.
Bjarkason mest, 22 stig, sumar körfur
hans gullfallegar. Ted Bee er alveg féll í
skugga landa síns, skoraði 18 stig,
Gunnar Þorvarðarson 16, Jónas
Jóhannsson lOstig.
Þeir Þráinn Skúlason og Guðbrand-
ur Sigurðsson dæmdu. Þeir voru i erf-
iðu hlutverki — nánast í Ijónagryfju
milli tveggja æstra Ijóna er aldrei gátu
sætt sig við úrskúrði þeirra. Þeir — eins
og leikmenn, gerðtt mistök en í heildina
sluppu þeir alveg þolanlega l'rá mjög
erfiðu hlutverki. Það cr ekki öfunds-
vert að vera dómari i islen/kum körfu-
knattleik í dag.
H.llalls.
Út, út, út, gæti Guðbrandur Sigurðsson, dómari verið að segja þar scm liann visar
Kristbirni Albertssyni út af vellinum. Og Krístbjörn bendir á sig—„ég". Kríst-
björn hljóp inná völlinn, þegar Dwyer sló Árna Lárusson, en hann ásamt forráöa-
mönnum Njarðvíkinga gat ekki hamið skap sitt.
DB-mynd Ragnar Th.
fþróttir
iþróttir
fþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Allt logaði í slagsmálum, heift
og æsingi er Valur vann UMFN
— Dómari sleginn í andlitið — slegizt á áhorf endapöllum og Tim Dwyer gaf Árna Lárussyni vænt olnbogaskot,
þegar Valur sigraði UMFN 92-79 í úrvalsdeildinni ígær
Hart barizt undir körfu Njarðvíkinga — og það var hart barízt í leiknum — á
áhorfendasvæðunum og leikvellinum eftir leikinn. Heift og æsingur er farinn
að setja mörk sin á körfuknattleikinn hér. Tim Dwyer ber hæst á DB-mynd
Ragnars Th. — og knötturinn stefnir í körfu Njarðvíkinga.
Gripurþúítómt?
Ekki með rauðu MAX VINYLglófunum. Þeir eru með grófri
krumpáferð sem eykur griphæfni þeirra.
Um endinguna vitna þeir sem nota þá.
MAXf Rauðu MAX VINYLglófarnir.
Heildsölubirgðir og dre'ifing Davíó S. Jónsson og Co. hf. S 24333.
Bandarísku körfurisarnir gegn
stúlkum KR í Laugardalshöll
—f jölbreytt handboltahátíð í Höllinni á f immtudag í tilefni 80 ára af mælis KR
handknattleikssviðinu á árunum
1955—1960, garpar þeir, sem komu ís-
landi á blað í alþjóðlegum handknatt-
leik. Þar má nefna menn eins og Ragn-
ar Jónsson, Birgi Björnsson, Örn Hall-
steinsson og Hjalta Einarsson hjá FH
— og KR-ingana Karl Jóhannsson,
Guðjón Ólafsson, Reyni Ólafsson, svo
nokkrir séu nefndir.
Meistaraflokkur kvenna í KR í hand-
boltanum mun leika við stjörnulið er-
lendu körfurisanna, sem hér leika — og
stúlka verður i marki þeirra. Þar verða
og leyniskyttur — og í gær var byrjað á
því að kenna risunum reglurnar í hand-
boltanum. Þeir verða saman í iiði Hud-
son og Dwyer svo varla kemur til átaka
milli þeirra — en hver veit?
Þá leika „tröll” á móti „tittum”.
Hilmar Björnsson velur tröllin, leik-
menn mega ekki vera léttari en 85 kg.
og þar verða Valsmenn i meirihluta,
leikmern eins og Þorbjörn Guðmunds-
„Ég bursta Egil,” sagði Pétur rakari
og sketlihló á blaðamannafundi KR í
gær — og Egill rakari svaraði sam-
stundis: „Ég tek niðrum'ann” og var
hvergi banginn. Þessir tveir kappar —
Egill rakarí, KR-ingurinn mikli, og
Pétur rakari, Valsmaðurinn mikli,
verða meðal þátttakenda á mikilli
handboltahátíð KR í Laugardaishöll-
inni á fimmtudag í tilefni 80 ára af-
mælis KR nú ■ vikunni. Þar verður
margt til gamans gert — og allir ættu
að fá eitthvað við sitt hæfi á hátíðinni.
Hún hefst kl. 19.30 með leik Skóla-
hljómsveitar Kópavogs — og hljóm-
sveitin mun leika öðru hvoru meðan
hátíðin stendur. KR-ingar hafa reynt
að hafa dagskrána sem fjölbreyttasta
— gaman og „viss” alvara til að mis-
muna ekki kynjum og aldursflokkum.
„Þetta getur orðið hörkugott," sagði
Guðlaugur Bergmann, sá dugnaðar-
forkur, sem er við stjórnvölinn á þess-
arí KR-hátíð. „Það stefnir greinilega í
góða uppskeru,” sagði formaður KR,
Sveinn Jónsson, á blaðamannafundi
KRígær.
Drengir úr 5. flokki KR og Fram
munu leika meðan áhorfendur eru að
koma sér fyrir í Höllinni — og að leik
þeirra loknum leika garpar þeir, sem
gerði* garðinn frægan hjá KR og FH á
KR-stúlkur i Melaveili fyrír 50 árum.
son, Þorbjörn Jensson, Stefán Gunn-
arsson, Jón Pétur, ÓIi Ben., Jón Karls-
son, allir Val, Einar Magnússon, Sig-
urður Svavarsson og fleiri. Jóhann Ingi
velur litlu leikmennina, menn eins og
Óla Jóh., Gústav Björnsson, Bjarna
Guðmundsson, Steindór Gunnarsson
og Jens Einarsson og fleiri.
í leikhléum verða nýstárleg atriði —
þá munu rakararnir Egill og Pétur
reyna með sér — vítakeppni, og fróð-
legt að sjá hvort boxarinn og dansarinn
Egill hefur betur gegn sundknattleiks-
garpinum ogdansaranum Pétri. Frægir
garpar, KR-ingar með meiru, Svavar
Gests og Guðmundur Jónsson sjá um
allar kynningar — og kannski bregða
þeir líka á leik. í hvaða þyngdarflokki
þeir keppa er ekki gott að vita —
stærðarmunur er nú ekki svo voðalega
mikill á þeim!
En hvað sem öllu líður þá ætti KR-
hátíðin á fimmtudag að geta orðið
hörkuskemmtileg. KR-ingar eru líka
allra manna skemmtilegastir og beztir,
þegar þeim tekst upp.
Hvað er langt síðan fjölskyldan
ætlaði sér að kaupa uppþvottavél,
nýtt sófasett, litasjónvarp, jafnvel
ferð til útlanda eða . . . ?
Sparilánakerfi Landsbankans er
svar við þörfum heimilisins, óskum
fjölskyldunnar eða óvæntum út-
gjöldum.
Með reglubundnum greiðslum
inn á sparilánareikning í Lands-
bankanum geturfjölskyldan
safnað álitlegri upphæð í um-
saminn tíma. Að þeim tíma loknum
ftireittár
æflumvið
•••
getur hún fengið sparilán strax eða
síðar. Sparilán, sem getur verið
allt að 100% hærra en sparnaðar-
phæóin og endurgreiðist á allt
ó 4 árum.
Þegar sparnaðarupphæðin og
parilánið eru lögð saman eru
upin eða útgjöldin auðveldari
■iðfangs.
Biðjfð Landsbankann um
kllngínn um sparilánakerfið.
Sþarifláisöfiiiinteiigd rétti tfl lán
Sparnaður þinn eftir Mánaöarleg innborgun hámarksupphæö Sparnaöur í lok tímabils Landsbankinn lánar þór Ráöstöfunarfé þitt 1) Mánaðarleg endurgreiösta Þú endurgreiöir Landsbankanum
12 mánuði 25000 300.000 300 000 627.876 28368 á 12 mánuöum
18 mánuði 25.000 450.000 675.000 1.188.871 32.598
24 mánuði 25.000 600 000 1200.000 1.912.618 39.122 á 48 mánuðum
1) tölum þessurifer reiknað með 19% vöxtum af innlögðu fé, 24% vöxtum af lánuðu fé, svo og kostnaði vegna lántöku. Tölur þessar geta
breytzt miðað við hvenær sparnaður hefst. Vaxtakjör sparnaðar og láns eru háð vaxtaákvörðun Seðlabanka íslands á hverjum tíma.
LANDSBANKINN
Sparilán-tiyggmg í fiwntíð