Dagblaðið - 20.03.1979, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 20.03.1979, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979. 15 ÞRIÐJUNGUR ÞJÓÐARINNAR HEFUR SÉÐ GREASE Nú hafa 76 þúsund manns séð kvik- myndina Grease sem sýnd hefur verið í Háskólabíói að undanfömu, og þætti það eflaust saga til næsta bæjar meðal stærri þjóða ef þriðjungur þjóðarinnar sæi eina og sömu kvikmyndina eins og raun hefur orðið á hér. „Þetta er algjört met,” sagði Friðfinnur Ólafsson framkvæmda- stjóri Háskólabíós í samtali við Dag- blaðið. Sagði hann að uppundir 70 þúsund manns hefðu séð Sound of Music eftir að hún hafði verið endur- sýnd en upphaflega sáu hana rúmlega 50 þúsund manns og var það met á sín- um tíma. Friðfinnur sagðist reikna með að Grease yrði sýnd eitthvað áfram og a.m.k. út þessa viku. Þá tekur við önnur stórmynd, sem einnig hefur farið mikla sigurför i Bandaríkjunum, það er kvikmyndin Superman. -GAJ- Friöfinnur Ólafsson, framkvæmda- stjóri Háskólabfós hefur sannarlega á- stæðu til aö brosa þvf að kvikmyndin Grease hefur slegið öll fyrri aðsóknar- mct, og önnur stórmynd verður tekin tii sýningar i Háskólabiói á næstunni, þ.e. Superman. Hér eru þeir Friðfinnur og Bogi sýningarstjóri í Superman- stellingum. DB-mynd Ragnar Th. Sig. Hærri aldur starfs- manna borgarinnar? r m ■ ■ * ■■■ ■ x | rm■ * Kannað verður á næstunni hvort möguiegt sé að hækka aldurshámark borgarstarfe- manna, en það er núna bundið við 70 ár. „Við sjálfstæðismenn í borgarstjórn fluttum fyrir rúmum hálfum mánuði tillögu um að tekin yrðu til endurskoð- unar lög um aldurshámark á starfs- mönnum borgarinnar,” sagði Birgir ísl. Gunnarsson, einn af fulltrúum sjálfstæðismanna í borgarstjórn, i sam- tali við DB í morgun. Birgir ísleifur sagði að tilgangurinn með tillögunni hefði verið tvíþættur. Annars vegar að athuga með mögu- leika á að hækka aldurshámarkið og hins vegar að athuga hvort ekki væri hægt að hefja skipulegar aðgerðir sem miðuðu að því að menn gætu fengið að vinna hluta úr starfi þótt þeir væru komnir á eftirlaun. Hann sagði, að ein- angrun aldraðra væri orðið félagslegt vandamál og vaxandi áhugi væri meöal aldraðra á að halda áfram starfi. Þessi tillaga væri fram komin vegna þessa. í lok síðustu viku var þessi nefnd skipuð og er Ásdís Skúladóttir leikkona formaður hennar. -GAJ- Stórmót Bridgefélagsins: Góður sigur Norðmannanna Per Breck og Reidar Lien, hinir norsku gestir á stórmóti Bridgefélags og ReidarLien. DB-mynd Bjarnleifur. Reykjavíkur fóru með sigur af hólmi með 204 stig. t öðru sæti urðu Jón Baldursson og Sverrir Alfonsson með 172 stig. í þriðja sæti urðu þeir Sigurður Sverrisson og Valur Sigurðsson með 170 stig, í fjórða sæti Símon Símonarsson og Jón Ás- björnsson með 168 stig. Ásmundur Pálsson og Hjalti Elíasson urðu í 5. sæti með 137 stig og í 6. sæti urðu Guðmundur Pétursson og Karl Sígur- hjartarson með 103 stig. í þessu stórmóti var spilaður tvímenningur og stóð keppnin á laugardag og sunnudag. Hinir erlendu gestir, sem eru íslenzkum bridgespilurum að góðu kunnir, báru sigurorð af gest- gjöfunum með talsverðum yfir- burðum. -BS. BLACKE ^COIO KARLAR — — ‘WMT Nú fer hver ab verba SÍÐASTUR t TIL ÞESS AÐ FAGNA HEIMSMETI MickieGee HANN KVEÐUR SUNNUD. 25. með1500tíma að baki Video ÝMSIR HEIMSFRÆGIR LISTAMENN VERÐA Á SKJANUM ”GLEYMD BÖRN 79„ Þakka BLIKKSMIÐJU BREIÐFJÖRÐS veitta fjárhagsaðstoð

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.