Dagblaðið - 11.05.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1979.
9
Brigitte Bardot rithöf undur:
BLÓDIDRIFIN BÓK UNI
UTLU SÆTU SEUNA
Heldur fær hin nýja bók Birgitte
Bardot slaka dóma, í það minnsta út
frá bókmenntalegu sjónarmiði.
Bókin, sem er framlag hinnar dáðu
kvikmyndaleikkonu til baráttunar
fyrir friðun sela, vekur aftur á móti
mikla athygli. Hefur hún meðal
annars verið þýdd á dönsku.
Birgitte Bardot hefur sem sagt
Erlendar
fréttir
Kínverjar
gera við
tennur án
þess að
bora uppi
í munninum
Kinverskir tannlæknar hafa fundið
upp aðferð til að fylla upp göt á tönn-
um sjúklinga sinna án þess að bora í
þær áður þar sem þær eru i munni
sjúklingsins.
Samkvæmt fregnum frá Peking
byggist aðferðin einfaldlega á því að
taka tönnina úr sjúklingnum, gera við
hana og koma henni síðan fyrir aftur á
sínum stað.
Samkvæmt fregnum frá Fréttastof-
unni Nýja Kína hafa um það bil tvö
hundruð og fimmtíu tennur verið
þannig dregnar út á síðustu þrem
árum við eitt sjúkrahús. Segir að
jákvæður árangur hafi verið t níu af
hverjum tíu aðgerðum.
Aðgerðin mun taka um það bil
þrjátíu minútur og kemur einkum að
gagni þegar erfitt er að komast að
skemmdinni í tönninni. Sagt er að
varast beri að beita tönninni gegn
harðri fæðu fyrstu tíu dagana eftir
aðgerð en að fullu sé hún orðin jafn-
góð innan þriggja vikna.
Fundurforsetanna
verðuríVín
ínæstamánuði
Búizt var við því að í dag yrði til-
kynnt um að forsetar Bandaríkjanna
og Sovétríkjanna, þeir Jimmy Carter
og Leonid Brésnef, mundu hittast í Vín
í Austurríki í næsta mánuði til að
ganga endanlega frá hinum svonefnda
Salt II samningi, sem fjallar um tak-
markanir á kjarnorkuvígbúnaðar-
kapphlaupi hinna tveggja risavelda.
Carter mun hafa hug á að komið verði
á árlegum fundi ráðamanna Sovétríkj-
anna og Bandaríkjanna.
Nú mega kommar
notaefni hinna
frjálsu
útvarpsstöðva
öldungadeild Bandaríkjaþings sam-
þykkti í gær að feUa úr gUdi bann við
því að kommúnistaríki notfærðu sér
neitt af því efni sem útvarpað hefur
verið frá stöðvunum Frjálsri Evrópu og
Frelsisútvarpinu, Radio Free Europe
og Radio Liberty.
Er þetta gert í því skyni að reyna að
minnka þær truflanir, sem austantjalds
ráðamenn hafa beitt gegn sendingum
þessara stöðva, sem aðallega beina
þeim austur fyrir járntjald og er þá út-
varpað á tungumáli þarlendra.
gefið út bók í samvinnu við rit-
höfundinn Daniel Dollfus. Er þetta
myndabók með texta, sem fjallar um
hinar árlegu kópaveiðar úti fyrir
ströndum Nýfundnalands. Hefur
Birgitte Bardot um nokkurt skeið
verið framarlega i flokki þeirra sem
vilja láta banna þær.
Bókin er mjög hugljúf og fjallar
um lítinn sel, sem enn hefur ekki
fengið nein föt í mótsetningu við
foreldrana, herra og frú stóru seli,
sem bæði eru í brjóstahaldara og
buxum. Noonoah, litli kópurinn,
hittir eskimóadrenginn Irkou, sem
bjargar honum af því þeir eru vinir.
í bókinni skiptast á hugsjónir og
blóði drifin grimmd, þar sem veiði-
menn leika stórt hlutverk í grimmd-
inni. í lokin er reynt að ímynda sér
hvernig það gæti litið út ef pelsar
hinna skrautklæddu kvenna, sem
bera kópaskinnspelsa litu út í glæsi-
sölum heimsborganna ef þeir lituðust
skyndilega blóði hinna saklausu
fórnardýra. Birgitte Bardot ráðleggur
síðan börnum, hvar sem þau búa í
veröldinni, að reyna að telja mæður
sínar af hugmyndum um að óska sér
nýrrar skinnkápu.
Teikningarnar í bókinni eru í
Barbapapa-stílnum og þar rennur
blóð grimmdarinnar og tár sorgar-
innar í stríðum straumum.
íslendingar
úti að aka 9
Já, margir hverjir, þaö fer ekkert feröinni sjálfir - sumir fara um ®
á milli mála - þó eru þeir mörg lönd - aörir fara hægar yfir
sérstaklega úti aö aka á sumrin - og halda sig lengst þar sem
þá skipta þeir þúsundum
Ástæöan?
Jú ástæöan er einföld, hún ersú
aö afsláttarfargjöld okkargera
öllum kleift aö komast utan í
skemmtilegast er.
Þaö þarf engan aö undra þótt
margir séu úti aö aka á sumrin -
á eigin bílum eöa leigöum bílum.
Kynntu þér afsláttarfargjöld
sumarleyfi til þess aö sjá sig um, okkar - þau gætu komiö þér
kynnast frægum stööum - og
gista heimsborgir.
Þeirsem þannig feröastráöa
þægilega á óvart-og oröiö til
þess aö þú yröir líka úti aö aka í
sumar.
FLUGLEIDIR