Dagblaðið - 11.05.1979, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1979.
13
Kópavogur:
Yfirvaldið vill losna við
unglingana á Hallærisplanið
— segir stjórnarmaöur í Gerplu í Kópavogi
„Neitun bæjarfógetans í Kópavogi
kom okkur á óvart,” sagði Þórunn
ísfeld, stjórnarmaður 1 íþróttafélag-
inu Gerplu Kópavogi, en fógeti leyfði
ekki diskótek í Kópavoginum eins og
DBgreindi frá.
„Gerpla hefur einu sinni áður
haldið slikt diskótek og þá urðu engin
ólæti. Hins vegar hafa orðið ólæti
eftir diskótek sem íþróttafélag Kópa-
vogs og Blakdeild Breiðabliks hafa
haldið. Við héldum diskótek 21. apjcil
ogþá fór ekkert úrskeiðis. ... -
Fógeti telur ábyrgðarmenn ..hald-
litla. Ég skal ekki segja-^tm-áðra, en
okkar ábyrgðarmennhafa staðið sig í
sínu starfi.
Það er mín reynsla að þau börn,
sem hafa verið með ólæti eftir þessar
skemmtanir séu ekki i íþróttafélögun-
um. Ég tel hins vegar að fógeti og
lögreglan vilji losna við þessa ungl-
inga á Hallærisplanið til þess að hafa
ekki áhyggjur af þeim.
Ég sótti skriflega um leyfi fyrir
diskótekinu eftir hádegi á föstudag,.
en það átti að halda á laugardag. Ég
var síðan látin bíða í hálftíma hjá
fógeta og fékk munnlega neitun.”
- JH
Útvarpið hættir að senda sjómönnum morse-fréttir:
SJÓMENN REIÐIR
ÚT í ÚTVARPH)
Borgum fullt afnotagjald en missum af fréttunum, segja skipverjará Selfossi
Áhöfn ms. Selfoss, alls 30 manns,
hefur sent Dagblaðinu bréf, þar sem
greint er frá þjónustu við íslenzk skip,
sem nú hefur verið felld niður, far-
mönnum til ama.
Undanfarin fjölmörg ár hefur
Reykjavíkur-radíó sent út daglega á
morsi stutt ágrip innlendra frétta frá
fréttastofu Ríkisútvarpsins. Þessir
fréttapistlar hafa verið litlir að vöxtum,
eða rúmlega hálf vélrituð síða, og
myndu ekki þykja merkilegt fréttablað
ef því væri dreift meðal fólksí landi.
En þeir sem dveljast víðs fjarri heim-
ilum sínum og heimalandi mestan hluta
ársins fagna hverjum möguleika til þess
að fá fréttir að heiman. Þessar morse-
fréttir hafa því gegnt m'ikilvægu hlut-
verki, enda oft einu íslenzku fréttirnar
sem fólkið á farskipunum fær svo vik-
um skiptir.
En um síðustu mánaðamót hætti
Reykjavíkur radíó þessum útsending-
um. Þessu mótmæla skipverjarnir á
ms. Selfossi harðlega og vonast til þess
að þær ríkisstofnanir sem hlut eiga að
máli sjái að sér. Skipverjarnir benda á
að þeir eru islenzkir ríkisborgarar, sem
greiða sína skatta og skyldur, þar með
talið fullt afnotagjald af útvarpi og
sjónvarpi.
„Ástæðan fyrir því að þessi þjónusta
var lögð niður,” sagði Stefán Arndal,
stöðvarstjóri í Gufunesi, ,,er sú að
Ríkisútvarpið, sem staðið hefur fyrir
þessari þjónustu og borið kostnað af
henni, hefur fellt hana niður af fjár-
hagsástæðum.”
„Við ráðum þessu ekki,” sagði
Stefán. ,,Þetta er aðeins þjónusta, sem
Landssíminn hefur tekið að sér fyrir
ákveðið gjald. í athugun er að breyta
þessu fyrirkomulagi. j
Kostnaður fyrir árið 1979 var áætl-
aður 4 milljónir króna. Sent hefur verið
út fjórum sinnum á sólarhring á fjórum
tiðnum.
Ég lagði til að þessum útsendingum
yrði fækkað um helming, þ.e. að sent
yrði út tvisvar á sólarhring á þremur
tíðnum, til þess að gera þetta viðráðan-
legra fyrir útvarpið.
Ég held að það ætti að nægja fyrir
skipin. Ég hef þá trú,” sagði Stefán,
„að þessi þjónusta verði tekin upp á
Prinsessan hálftíma
styttri:
Kostnað-
ur enn
ekki Ijós
Aðstandendur söngleiksins Prinsess-
unnar á bauninni, sem nú er sýnd í
Þjóðleikhúsinu, komu saman í gærdag
og samþykktu að stytta sýninguna.
Verður hún nú tveir og hálfur klukku-
tími í stað þriggja áður. Aðallega voru
teknar út endurtekningar.
Sýningin hefur hlotið slæma dóma
gagnrýnenda og þá bæði fyrir lengd og
það hversu miklu er eytt í það að gera
verk sem ekkert er glæsilegt á sviði.
ívar H. Jónsson skrifstofustjóri Þjóð-
leikhússins var í gær spurður að því
hvað prinsessan kostaði. „Það er alls
ekki ljóst ennþá. Allir reikningar eru
ekki komnir inn ennþá og þó að við
höfum okkar kostnaðaráætlun er hún
ekki þannig að hægt sé að birta hana í
blöðunum,” sagði hann.
- DS
Egill Ólafsson á æfingu fyrir „Prins-
essuna” — nú á að skera sýninguna
niður.
DB-mynd Bj.Bj.
Nýtt leikrit eftir Ólaf Hauk
„Vísum ekki gestum
út á gaddinn í júlf’
Alþýðuleikhúsið — sunnandeild —
hefur ákveðið að binda enda á það
ófremdarástand að leikhúsgestum sé
vísað út á gaddinn í júlimánuði og
hefur þvi ákveðið að sýna nýtt leikrit,
Blómarósir, eftir Ólaf Hauk Símonar-
son út júlímánuö. Síðari hluta ágúst
verður farið með verkið í leikför um
landið.
Æfingar á Blómarósum standa nú
yfir og verður frumsýningin á næst-
unni, að því er segir í fréttatilkynningu
frá Alþýðuleikhúsinu.
Blómarósir er ádeilinn gamanleikur
og fjallar um líf nokkurra iðnverka-
kvenna, persónuleg afdrif þeirra og
samskipti við vinnukaupendur.
Leikstjóri Blómarósa er Þórhildur
Þorleifsdóttir og tónlist eftir Ólaf
Hauk. -ÓV
Gatnagerðargjöld
lækka á Bakkanum
Eins og kunnugt er af fréttum varð
mikil óánægja meðal Eyrbekkinga í
vetur út af gatnagerðargjöldum sem
lögð voru á hluta þorpsbúa vegna
malbikunar á hluta aðalgötunnar.
Hreppsnefndin hefur í vor fjallað um
málið og samþykkti nú nýlega að
lækka gjaldstuðla reglugerðar um
gatnagesCargjö'd um 33%. Eru
gjaldéndúr^ auðvitað ánægðir með
þessa breytmgu, en gera sér um leið
grein fyrir fTvi að fé til varanlegrar
gatnagerðar á Eyrarbakka minnkar
allverulega og um leið lengist 1 það að
allar götur þorpsins verði slitlags-
bundnar.
- GAJ / MKH, Eyrarbakka
Smurbrauðstofan
BJORNINN
NjáEsgötu 49 — Simi 15105