Dagblaðið - 11.05.1979, Blaðsíða 24
28
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1979.
UPPSIGLINGU
Læknir Tjaldanesheimilisins:
Flestir vistmenn
fá aðeins vítamín
— foreldrafélagið lýsir yf ir fullum stuöningi við forstöðumanninn
Erlendu vinsældalistarnir:
NÝ TOPPLÖGí
Efstu sæti erlendu vinsældalist-
anna fimm eru lítið breytt frá því i.
síðustu viku, en vænta má einhverra
Þessi skallakarl heitir Mike
Batt og hefur unnið sér það til
frægðar að hafa samið lagið
Bright Eyes, sem verið hefur á
toppi enska vinsældalistans
siðustu vikurnar. — Ekki er
skalli Batts með öllu náttúr-
legur. Eitthvert síðdegið,
þegar hann vissi ekkert livað
hann átti að taka sér fyrir
hendur, ákvað hann að raka
af sér allt hárið. — Mig hefur
lengi langað að vita hvernig ég
liti út með skalla, segir Mike
Batt, svo að ég lét verða af
þessu vopnaður skærum, rak-
vél og spegli. Hins vegar er ég
hræddur um, eftir að hafa séð
sjálfan mig hárlausan, að ég
kærði mig ekkí um að leggja
það fyrir mig að vera sköllótt-
ur.
breytinga innan tíðar. I Englandi til
dæmis er sænska hljómsveitin
ABBA á hraðri uppleið, fer úr þrítug-
asta sæti í níunda með lagið Does
Your Mother Know. Burtséð frá því
að þetta er dæmigert ABBA-lag þá er
það einmitt einnig dæmigert topplag
á vinsældalistum. Því má ætla að
veldi Art Garfunkels á toppi enska
listans sé nú ógnað.
Lagið sem fer með hvað mestum
krafti upp bandaríska vinsældalist-
ann núna er Hot Stuff með diskó-
söngkonunni Donnu Summer. Það
er nú í sjöunda sæti og hækkar sig
um níu sæti frá því í fyrri viku. —
Donna er Bandaríkjamönnum mjög
hjartkær um þessar mundir burtséð
frá því að diskótónlistin er aðal-
músíkin vestan hafs um þessar
mundir. Það er því ekki út í bláinn að
Spá því, að Donna Summer komist í
efsta sætið von bráðar.
í Hollandi er bandaríska hljóm-
sveitin Cheap Trick i efsta sætinu
með lag, sem nefnist I Want You To
DIRE STRATIS — enska hljómsveitin sem sló fyrst í gegn í Bandarikjunum
með laginu Sultans Of Swing er nú í efsta sæti vinsældalistans í Hong Kong.
Innan skamms er væntanleg frá hljómsveitinni breiðskífa, sem vafalaust inni-
heldur margt forvitnilegt.
Want Me. Hljómsveit þessi er lítt
þekkt hérlendis en hefur á undan-
förnum árum verið í stöðugum upp-
gangi í heimalandi sínu. Hún er sögð
leika hressilegt rokk og hefur verið
likt við hljómsveitina Cars, sem gerði
garðinn frægan fyrir nokkru.
Kínverjar eru nýbúnir að uppgötva
lagið In The Navy, sem geysist nú
upp Hong Kong-listann. Af því lagi
er það að frétta að bandaríski sjóher-
inn íhugaði að nota þetta vinsæla lag
hljómsveitarinnar Village People sem
áróðurslag til að plata menn til að
ganga i sjóherinn. Fyrir nokkru var
tilkynnt að fallið hefði verið frá því.
Sérstaklega var tekið fram að lagið
þætti ekki ónothæft vegna kynvillu
liðsmanna Village People, heldur
vegna þess að lagið hefði takmarkað
áróðursgildi þegar frá væri talið
viðlagið.
„Stærstur hluti vistmanna hefur
aldrei fengið nein lyf nema vítamín,”
segir m.a. í yfirlýsingu Þrastar Lax-
dal, læknis Tjaldanesheimilisins, en
ásakanir hafa komið fram um óeðlj--
legar lyfjagjafir þar.
Á fundi með stjórn heimilisins,
stjórn félags foreldra vistmanna,
lækni heimilisins, héraðslækni Mos-
fellssveitar og landlækni, auk for-
stöðumanns heimilisins og starfs-
manna í gærkvöldi, kom fram fullur
stuðningur þessara aðila við for-
stöðumann Tjaldanesheimilisins.
Fyrir um það bil tveim árum kærði
kona ein forstöðumanninn fyrir að
hafa slegið einn vistmanna skömmu
eftir að hann hafði komið úr höfuð-
uppskurði.
Á fundi með stjórnum félags for-
eldra og Tjaldaness í gær kom fram
að konan sem kærði var þá í stjórn
foreldrafélagsins og tengd viðkom-
andi vistmanni. Var hún þá hin eina
innan stjórnarinnar, sem ekki vildi að
fullu sætta sig við afgreiðslu þá er
málið hlaut af landlækni og heil-
brigðisráðuneyti.
Vildu stjórnarmenn foreldrafélags-
ins og Tjaldanesheimilisins halda því
fram að réttmæti ákæranna á hendur
forstöðumanninum sæist bezt á þvi
að viðkomandi kona hefði eindregið
verið þess mjög hvetjandi að viðkom-
andi vistmaður væri áfram að
Tjaldanesi. Var hann það lengi eftir
að hinn kærði atburður átti sér stað.
Kona þessi er nú í stjóm Réttar-
verndar.
Á fundinum í gærkvöldi kom fram
mikil gagnrýni á talsmenn samtak-
anna Réttarvernd, sem hafa í blaða-
viðtölum talið mjög brýnt að kæru-
mál þessi væru könnuð hið skjótasta.
Að sögn Ólafs Ólafssonar landlæknis
taldi formaður Réttarverndar sig í
gærdag ekki geta komið til fundar
vegna Tjaldanesmálsins fyrr en að
hálfum mánuði liðnum. Einnig taldi
landlæknir mun tregara að afla
gagna frá Réttarvernd en fram hefði
komið opinberlega.
Ásakanir sem fyrir liggja bréflegar
frá starfsstúlkum taldi forstöðu-
maður Tjaldaness, að væru af reiði
vegna uppsagnar einnar starfsstúlk-
unnar á sínum tíma. Sú uppsögn
hefði raunar verið dregin til baka.
„Við hörmum hvernig farið hefur
verið með þetta mál og að aðeins ein
hlið þess var könnuð í byrjun,” sagði
Salóme Þorkelsdóttir, formaður
stjórnar Tjaldanesheimilisins. Undir
það tóku þeir Hilmar Sigurðsson,
stjórnarformaður foreldrafélagsins,
þegar hinir kærðu atburðir eiga að
hafa átt sér stað, og Páll Marteinsson
núverandi formaður.
Öll töldu þau raunar mjög óeðli-
legt að mál sem þetta væru rædd svo
mjög á opinberum vettvangi en í
þessu tilviki hefði, að þeirra mati,
verið vegið svo svivirðilega að for-
stöðumanni Tjaldaness og lækni,
að ekki væri hægt að láta kyrrt
Hggja.
Ákærur á hendur forstöðumanni
töldu allir viðstaddir fullljóst að
væru fjarstæða og efnislega ekki
svaraverðar.
í yfirlýsingu læknis heimilisins,
Þrastar Laxdals, kemur fram að
hann telur upplýsingar fyrrverandi
starfsfólks bera vott um augljósa
vanþekkingu og villandi vitnisburð.
Vistmenn að Tjaldanesi séu mis-
munandi heilaskaðaðir. Nokkrir
þeirra séu einnig haldnir flogaveiki
og þurfi á stöðugri og margvíslegri
lyfjameðferð að halda. Sumir þeirra
hafi svarað mjög illa flogaveikimeð-
ferð eins og títt sé með heilaskað-
aða. Hafi þvi ósjaldan orðið að prófa
sig áfram með lyfjameðferð í mis-
munahdi skömmtum í von um beztan
árangur.
í lok yfirlýsingar sinnar segir
Þröstur Laxdai að honum vitanlega
hafi lyfjagjafir og lyfjabreytingar á
Tjaldanesi aðeins farið fram í fullu
samráði við lækni. Ásökunum um
„lyf á línuna” og , .óhugnanlegar til-
raunir” vísar hann til föðurhúsanna.
Þröstur hefur verið læknir Tjaldanes-
heimilis í sjö ár.
- ÓG
{Ásakanir á hendur forstöðumanni eru efnislega ekki svaraverðar, segir stjðrn
félags foreldra vistmanna að Tjaldanesi. Á myndinni eru frá vinstri: Birgir Finns-
son forstöðumaður, Hilmar Sigurðsson, fyrrverandi formaður félags foreldra og
núverandi stjórnarmaður sama félags, Friðfinnur Ólafsson I stjórn Tjaldanes-
heimilisins, Friðrik Sveinsson héraðslæknir f Mosfeilssveit og Ólafur Ólafsson
landlæknir. DB-mynd Hörður.
ENGLAND
1. (DBRIGHT EYES
2. (3) POP MUZIK
3. (8) HOORAY HOORAY IT'S A HOLI-HOLIDAY Boney M
4. (7) GOODNIGHT TONIGHT Wings
5. (2) SOME GIRLS
6. (6) THE LOGICAL SONG
7. (5) SHAKE YOUR BODY IDOWN TO THE GROUND) . Jacksons
8. (13) KNOCK ON WOOD
9. (30) DOES YOUR MOTHER KNOW
10. (4) COOL FOR CATS
BANDARÍKIN
1.(1) REUNlTED
2. (4) IN THE NAVY
3. (2) HEART OF GLASS
4. (3) MUSIC BOX DANCER
5. (S)KNOCK ON WOOD
6. (11) SHAKE YOUR BODY
7. (16) HOT STUFF
8. (8) STUMBLIN' IN Suzi Quatro b Chris Norman
9. (9) TAKE ME HOME
10. (14) GOODNIGHT TONIGHT
HOLLAND
1. (2) 1WANT YOU TO WANT ME CheapTrick
2. (3) CASANOVA
3. (1) HOORAY HOORAY
4. (4) SOME GIRLS \
5. (8) ONE WAY TICKET
6. (7) HALLELU JAH
7. (9) STIRITUP
8. (6) SAVE ME
9. (5) IN THE NAVY
10.(11)1 WILLSURVIVE
HONG KONG
1.(1) SULTANS OF SWING
2. (2) DOG AND BUTTERFLY
3. (7) BLOW AWAY
4. (10) 1WILL SURVIVE
5. (9) CRAZY LOVAE
6. (20) IN THE NAVY
7. (5) EVERY TIME ITHINKOFYOU The Babys
8. (6) MUSIC BOX DANCER Frank Mills
9. (4) HEART OF GLASS Blondie
10. (8) CAN YOU READ MY MIND Maureen McGovern
VESTUR—ÞÝZKALAND
1.(1) HEART OF GLASS
2. (4) CHIQUITITA ABBA
3.(6) TRAGEDY
4. (3) 1 WAS MADE FOR DANCING
5. (2) Y.M.C.A
6. (S)SANDY
7. (10) IN THE NAVY
8. (8) BABY IT'S YOU
9. (7) WE'LL HAVE A PARTY TONITE NITE.
10. (9) DA YA THINK l'M SEXY