Dagblaðið - 11.05.1979, Blaðsíða 25
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1979.
29
Söngæfing hjá hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar. Frá vinstri eru Gunnar Bernburg, Vilborg Reynisdóttir og hljóm-
sveitarstjórinn sjálfur. DB-mynd Ragnar Th.
Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar verður húsband á Sögu ísumar:
Auglýstu eftir sSngkonu
/ smáauglýsingum DB
„Ég rakst á smáauglýsingu 1 Dag-
blaðinu þar sem auglýst var eftir
söngkonu, sótti um og fékk starfið,”
sagði Vilborg Reynisdóttir, sem mun
syngja meö hljómsveit Birgis
Gunnlaugssonar á Hótel Sögu í
sumar. Vilborg er ný í faginu og
hefur ekki áður sungið með hljóm-
sveit.
Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar
mun leysa Ragnar Bjarnason og
félaga af hólmi i Súlnasal Sögu í
sumar. í hljómsveitinni verða Alfreð
Alfreðsson trommuleikari, Gunnar
Bernburg bassaleikari, nafni hans
Ormslev, sem leikur á saxófón að
vanda, Reynir Sigurðsson leikur á
píanó og víbrafón, Birgir Gunnlaugs-
son leikur á gítar og syngur með
Vilborgu. Þá er áformað að bæta
trompetleikara við í hljómsveitina
fljótlega.
„Ég verð að vera með stóra hljóm-
sveit, þvi að fyrirhugað er að erlendis
skemmlikraftar komi fram á Sögu i
sumar og við komum til með að leika
undir hjá mörgum þeirra,” sagði
Birgir Gunnlaugsson. Hann hefur
starfrækt hljómsveit sína i um fimm
ár og leikið í Skiphóli í Hafnarfirði,
Sigtúni, Þórscafé og loks á Sögu. Á
þessum árum hefur hljómsveitin
/5
verið misjafnlega fjölmenn, allt frá
tríói upp i sjö manna band.
„Það svöruðu átta söngkonur
auglýsingunni okkar og eftir að hafa
prófað fjórar þeirra réðum við
Vilborgu,” sagði Birgir. „Fæstar
þessar stúlkur höfðu nokkru sinni
sungið með hljómsveit. Satt að segja
vissum við ekki að áhuginn fyrir
söngkonustöðunni væri svona
mikill.”
Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar
hefur störf á Hótel Sögu 23. júni
næstkomandi. Vilborg Reynisdóttir
var að lokum spurð að þvi, hvort hún
væri farin að kviða fyrir þeim degi.
„Nei, ekki ennþá,” svaraði hún.
„Ég læt hverjum degi nægja sína
þjáningu, svo að það á eftir að reyna
á hvort ég fæ magapínu fyrsta
kvöldið.”
Sólóplata Helga Péturssonar er komin iít:
Kveikjan var titillagiö
„Það má segja að kveikjan að
þessari sólóplötu minni hafi verið
titillagið, Þú ert,” sagði Helgi
Pétursson meðal annars, er hann
kynnti nýútkomna plötu sína blaða-
mönnum á þriðjudagskvöldið. „Ég
var lengi búinn að berjast fyrir því að
fá að syngja þetta lag í Ríótrióinu
meðan það var og hét, en varð að
beygja mig undir vilja meirihlutans
og sleppaþvi.”
Á plötu Helga eru tíu lög, níu
erlend. Það islenzka er eftir Þórarin
Guðmundsson tónskáld. Textahöf-
undar eru þeir Jónas Friðrik, Jón
Sigurðsson, Gestur og Helgi Péturs-
son sjálfur, sem gerir fjóra af textum
plötunnar.
Útgefandi Þú ert, Gunnar Þórðar-
son, er potturinn og pannan í hljóð-
færaleik plötunnar. Hann leikur á
gítar, bassa, mandólín, banjó,
pianó, minimoog og synthesizer auk
þess að sjá um útsetningar allar og
upptökustjórn. Aðrir hljóðfæraleik-
arar eru Sigurður Karlsson og Lárus
Grímsson. Helga til aðstoðar við
sönginn eru Ágúst Atlason, Ellen
Kristjánsdóttir, Ragnhildur Gísla-
dóttir og Þuríður Sigurðardóttir.'Þá|
heyrist einnig í Gunnari Þórðarsyni á
nokkrum stöðum. Bryndís dóttir
Helga syngur lagið Míó maó seinast í
einu lagi plötunnar.
Helgi Pétursson kvaðst á blaða-
mannafundinum ekki hafa nein lang-
tímaáform í huga um frekari plötu-
gerð. „Ef þessi fær góðar viðtökur,
þá langar mig til að raula lög og ljóð
eftir þá Jón Múla og Jónas Árnasyni
einhvern tíma inn á plötu,” sagði
hann. -ÁT.
HELGI PETURSSON ásamt
Bryndísi dóttur sinni, sem
kemur fram í einu lagi. —
Mig langar til að syngja lög
eftir Jón Múla og Jónas
Árnasyni inn á plötu, segir
hann.
Ljósm. Studio 28.
Verð
aðeins
kr. 34.700.-
m. söluskatti
RAFHLUTIR HF.
SÍÐUMÚLA 32 - SÍMI 39080
Tilvalið tæki fyrir þann sem vill
framkvæma sinar viðgerðir sjálfur.
★
★
★
★
★
★
Rafsuðusett
Eins árs ábyrgð
Létt og fvrirferðarlitið.
Power 100 amper.
Tilvalið til bíla- og boddivið-
gerða.
Hægt að nota við
13—15 ampera öryggi.