Dagblaðið - 26.05.1979, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1979.
Street Alterd-flokkur:
Mestbreyttu
bílamir
Ólafur Vilhjálmsson á þennan vigalega
Street Alterd Triumph en i Trumpanum
er nú 340 kúbika Chryslervél.
DB-mynd Lilja Oddsdóttir.
Að þessu sinni kynnum við Street
Alterd kvartmiluflokkinn en SA-
flokkurinn er fjórði og jafnframt síð-
asti kvartmíluflokkurinn sem er snið-
inn fyrir skráða bila. Næsti flokkur
fyrir ofan er einungis fyrir óskráð
ökutæki. Street Alterd-bílar verða að .
vera skráðir eins og að framan segir
og þar af leiðandi verða þeir að fylgja
reglum um gerð og búnað ökutækja á
íslandi.
í rauninni er mjög litill munur á
bílum í Pro Stock flokki og Street
Alterd. T.d. geta Pro Stock bílar
keppt í SA-flokki. í SA-flokki má
byggingarlag bílsins vera fólksbíll,
pick up eða roadster. Þá skiptir
aldurinn ekki máli í SA-flokki. Þar
mega bílarnir vera 100 ára gamlir eða
eldri. í SA-bílum verða að vera tveir
stólar og klæðning að innan. Þó má
fjarlægja gólfteppi og loftklæðn-
ingu. Fjöðrun og höggdeyfar verða
að vera á öllum hjólum. Þá má
.......... ............" ' ' ■
breyta lengd milli hjóla en stýriskram
verður að breytast i samræmi við
það. Veltigrind verður að vera I
'opnum bilum, bílum með lækkuðum
toppi og plast- eða ályfirbyggingu.
Þá er talið æskilegt að veltigrind sé í
öðrum bílum í Street Alterd-flokki.
Leyfilegt er að fjarlægja glerrúður og'
setjaplexigler í staðinnen það verður
láð vera minnst 3 mm á þykkt. ,
Vélin í Street Alterd-bilum verður
að vera bílvél og það er eins með
hana og bílskrokkinn, ekki skiptir
máli hvað hún er gömul. Þetta atriði
greinir m.a. Pro Stock-flokkinn og
Street Alterd-flokkinn að. En í Pro
Stock mega hvorki vél né bíll vera
eldri en 10 ára. Leyfilegt er að breyta
SA-vélum að vild en ekki má setja
forþjöppur á þær nema forþjappan
hafi verið fáanleg á vélina frá verk-
smiðju þegar hún var framleidd. Þá
má færa vélina í bílnum allt að 10%
lengdar milli fram- Og afturhjóla.
Kúplingshús og kasthjól vefða að
vera styrkt og sprengiheld. Nota má
hvaða gírkassa sem er en hann verður
að hafa bakkgír virkan. Einu tak-
márkanirnar sem settar eru um hás-
inguna eru að í henni má ekki vera
allæst drif (spóla).
Jóhann Kristjánsson.
Bilarnir sem keppa i Street Alterd-flokki koma til með að verða bæði skrautlegir og sprækir, eða hver kannast ekki við Finn-
björn Kristjánsson og kryppuna ógurlegu úr Hafnarfirðinum. DB-mynd Jóhann Kristjánsson.
Fyrsta kvartmílukeppnin
Loksins er hinn langþráði dagur
runninn upp. Eftir þessum degi hafa
kvartmílingar beðið með öndina í
hálsinum í hartnær fjögur ár enda
eru þeir margir hverjir orðnir æði
bláir i framan. í fjögur ár, eða allt frá
stofnun Kvartmíluklúbbsins, hefur
verið beðið eftir að hægt væri að
halda kvartmílukeppni á lokuðu, lög-
legu svæði og i dag er sá mikli dagur
sem keppnin fer fram. Það er því
kvartmílubrautin glæsilega í Kapellu-
hrauni sem verður miðpunktur al-
heimsins í dag þegar kvartmílingar
reyna þar gæðinga sína i trylltum
darraðardansi.
Keppendur munu verða margir í
fyrstu kvartmilukeppninni og verður
keppt í hvorki meira né minna en
fimm flokkum. Eru það Standard-
'flokkur, Modifted Standard-flokkur,
Pro Stock-flokkur, Street Alterd-
flokkur og mótorhjólaflokkur.
Um síðustu helgi voru kvartmíling-
ar að æfa sig fyrir keppnina og reyna'
ný tímatökuttéki. Voru þessar
myndir teknar við það tækifæri.
Jóhann Kristjánsson.
Ekki var allt sem sýndist með Cortinuna hans Jónasar C. lónassonar þvl að i iðrum
hennar var350 kúbika Chevrolet-vél, enda rar krafturinn og viðbragðið eftir þvi.
Gamli Mustanginn hans Kjarra vann alveg hrottalega og undruðust menn hvernig hann náði fram svo mörgum hestöflum út
úr 351 Windsor-vélinni. Mustanginn fór kvartmiluna á 13,91 sek.
Vilhelm Pétursson náði bezta timanum um siðustu helgi en
hann fór kvartmiluna á 13,51 sek. Hér stillir hann Super Veg-
unni upp á startlinunni. Þessi spyrna varð þó helzt til enda-
slepp því að tímagirinn i vélinni lór í spað.Vonandi er Villi bú-
inn að skipta um timagirinn s\ o að hann geti keppt i dag.
- 1
Mótorhjólin verða að öllum likindum fjölmörg i keppninni
dag en hér sjáum við Arnar Arinbjarnarson skipta 650
Hondunni sinni í annan og framdekkið þeytist upp i loft.
HhHB! .
Chrysler-mennirnir létu ekkj sitt eftir liggja og hér spyrnir Sigurjón Anderssen 340 kúbika Barracudunni sinni.