Dagblaðið - 20.07.1979, Síða 1
Sríálst
úhái
dsgUsð
5. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 20. JULÍ1979 — 163. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÓLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 1 l.-AÐALSÍMI 27022.
Alþýðubandalqpð þver-
klofið um aðgerðimar
| Ráðherrarflokksinsgáfusigsíðdegjsígær, eftiraðforsætísráðherragekkíliðmeðkrötum
Alþýðubandalagið er þverklofið í
olíumálunum. Sumir þingmanna
flokksins telja, að ráðherrar
flokksins hafi samið stórlega af sér á
seinni fundi rikisstjórnarinnar í gær,
að því er tekur til mikillar hækkunar
á oliugjaldi.
Ráðherrar Alþýðubandalagsins
létu þar undan kröfum Kjartans
Jóhannssonar sjávarútvegsráðherra.
Framsókn var lengi tvístígandi en
kom í gær til liðs við sjávarútvegs-
ráðherra. Þá kom fram mála-
miðlunartillaga frá Ólafi Jóhannes-
syni forsætisráðherra um hækkun
oliugjalds og að þrjú prósentustig
hækkunarinnar gangi til sjómanna.
Þá málamiðlun samþykktu ráðherrar
Alþýðubandalagsins.
,,Éggeri ráðfyrir aðbráðabirgða-
lögin komi í dag,” sagði Magnús H.
Magnússon félagsmálaráðherra i
morgun. Magnús kvaðst hafa fengið
umboð þingmanna Alþýðuflokksins í
síma til að samþykkja þær aðgerðir
sem urðu niðurstaða ríkisstjórn-
arinnar i gær.
í samkomulaginu felst að lítri af
gasolíu hækkar í 137 krónur eins og
DB skýrði frá í gær. Full hækkun
verðsins á að verða 1. október ei:
þangað til greiðir ríkissjóður verðið
niður. Kostnaðarverð gasolíu er nú
155,4 krónur á lítra. Olíugjaldið
hækkar úr 7% í 15%. Ríkið tekur 2,8
milljarða lán til að standa undir
niðurgreiðslum. Menn meta, að
gcnaissigið, sem af aðgerðunum
lciðir, verði um 8% og dreifist á
i okkrar vikur.
700 milljónum verður varið úr
ríkissjóði til að hækka olíustyrki til
húshitunar.
Tonn af svartolíu hækkar úr
52.900 krónum í 67.200 kr. -HH.
sjábls.9
Tökum
Norðmenn
ígegn
eins og
Bretana
Skrítið
aðkoma
sem
ferðamaður
—sjábls.9
Litluflug-
félögin
þola ekki
fargjalda-
stríðið
9 — sjábls.5
Attþú
milljón
ánþessað
vitaþað?
— sjábls.5
af steypubílnum. Til
huga menn að meiðslum
bilstjórans.
DB-mynd Sv. Þorm.
Steypubíll afvelta í Ártúnsbrekkunni
— eftir gálauslegan framúrakstur utanbæjarbíls
Það var ömurleg aðkoma að steypu-
bil sem fór út af háum vegarkanti í
Ártúnsbrekkúnni í gær. Ofan á brotn-
um öflugum símastaur var hræ steypu-
bílsins margbrotið og sundurtætt,
framhjól undan, ökumannshús saman-
klesst að hluta og afturhjól vísuðu ská-
hallt uppávið
SFlugleiðir í pílagrímaflug:1
Aðdragandi slyssins var sá að í
Ártúnsbrekkunni fór utanbæjarbíll
fram úr steypubílnum sem var fullhlað-
inn steypu. ökumaður utanbæjarbíls-
ins kveðst eftir að hafa ekið fram úr
bílnum hafa ætlað yfir á hægri akrein
og segist hafa séð steypubilinn í úti-
spegli á hægri hlið bils síns. Síðan varð
hann þess var að bill hans lenti á
steypubilnum, jók þá hraðann og
komstundan.
Við þetta allt reyndi kona sem
steypubilnum ók að forða frá slysi, fór
æ lengra út á vegarkantinn og loks gaf
kanturinn sig undan heljarþunga
Starfsmenn endurráðnir á meðan
Flugleiðir hafa náð bráðabirgða-
samkomulagi við Nigeríumenn um
pílagrímaflutninga til Jedda. Er
búizt við að samningurinn verði jafn-
vel staðfestur'í næstu viku.
Ef af yrði, yrðu tvær af vélum
Flugleiða i flutningunum, DC-10 og
DC-8. Þá yrði flogið fyrst milli 4. og
23. október og þá gert hlé. Aftur yrði
svo flogið 3. og 23. nóvember. Um
verður að ræða sambærilegan hóp og
áður hefur verið fluttur, hvað stærð
varðar.
Ef af verður, verður nokkuð af því
starfsliðið Flugleiða sem búið er að
segja upp endurráðið á meðan á fiug-
inu stendur. Þegar því er lokið ræðst
hins vegar af frekari verkefnum hvort
fólkið verður áfram. Unnið er að
markaðsútvegun erlendis um þessar
mundir. .j)s.
steypubílsins. Skipti engum togum að
hann valt og lenti á staumum og bæði
staur og steypubíll teljast ónýtt brak.
Það furðulega er að konan sem steypu-
bílnum ók gekk af slysstaðen var fiutt í
slysadeild eitthvað meidd.
-ASt.
Fallbyssukúlur
frástyrjaldar-
árunumfiimast
—sjábls.5