Dagblaðið - 20.07.1979, Side 2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1979.
Við viljum
verka-
lýðsflokk
— en ekki með Guðmundi jaka og Karli Seinari
Félagi í EIK(ml) skrifar:
Við erum 100% sammála Aðalheiði
Magnúsdóttur í DB 16. þ.m., að
verkalýðsbaráttan hafi verið alveg í
molum undanfarið. Við erum ekki
síður sammála Aðalheiði og „Grand-
vara” um það, að stofna þurfi nýjan
verkalýðsflokk og viljunt mikið á
okkur leggja til aðþaðtakist sem fyrst.
En við erum 100% ósammála
þeim báðum um það, að Gvendur
jaki og KarlSteinareigi heima í þeim
flokki og þaðan af síður í forystu
hans.
Ef Gvendur jaki og Karl Steinar
stofna fiokk, þá er útilokað að sá
flokkur verði hætishóti meiri verka-
lýðsfiokkur en Alþýðubandalagið og
kratarnir eru, og það eru nú ekki
verkalýðsflokkar, þótt margt verka-
fólk kjósi þá fremur en ekki neitt. Ef
þeir kumpánar færu að stofna verka-
lýðsflokk, þá væri það eins og Satan
sjálfur færi að stofna kristinn
söfnuð.
Menn spyrja kannske hvernig við
getum fullyrt þetta? Jú, við höfum
nefnileg fylgzt með störfum þeirra
Gvendar og Karls Steinars sem verka-
lýðsforingja. Menn hafa sjálfsagt séð
eins og við hvernig þeir nota aðstöðu
sína til að uppfylla óskir stéttarand-
stæðinga okkar, atvinnurekendanna
og þessa rotna ríkisvalds, sem þeir
ráða að mestu.
Guðmundur jaki hefur verið af-
kastameiri við stéttsvikin, þó svo að
hann slái um sig með rauðum
glamuryrðum á köfium. Við höfum
ekki gleymt, að það var hann og hans
nánustu í Verkamannasambandinu,
sem lagði blessun sína yfir þessa
viðskiptakjaravísitölu, svo
olíuverðhækkanirnar Jenda þyngst á
verkafólki. Fletir atvinnurekendur,
sleppa sléttir (fá að hækka verðið,
blessaðir) og ríkið stórgræðir á öllu
saman.
Hafnarverkamenn hjá Eimskip
Og gosflöskurnar halda áfram að springa..
DB-mynd: Hörður.
Lítraf laskan sprakk
6888-2672 hringdi
Hún vildi koma því á framfæri
vegna skrifa DB um litraflöskur sem
hefðu sprungið, að hún hefði orðið
fyrir því við vinnu sína i fyrra að lítra'
kókfiaska sprakk i hendi sér með
þeim afleiðingum að slagæð fór í
sundur og myndaðist taugahnútur.
Hún hefur ekki getað unnið neitt
síðan sem á reynir. Vildi hún enn-
fremur taka það fram, að hún hefði
þurft að standa í þrasi við þá hjá Kók
vegna þessa máls, þeir hefðu ekki
viljað viðurkenna að flaskan gæti
sprungið.
Hún sagðist því hafa verið fegin
þegar hún heyrði að slíkt gæti gerzt
hvar og hvenær sem er. Jafnframt
vildi hún fá að vita hver réttur sinn
væri í máli þessu og hvort hún ætti
heimtingu áeinhverjum bótum.
Við erum 100% ósammála Aðalheiði og Grandvar að Guðmundur jaki og Karl Steinar eigi heima I nýjum verka-
lýösflokki, segir félagi í EIK-ml.
hafa ennþá ekki gleymt, að
Guðmundur jaki gekk í fararbroddi
fyrir að breyta kaffitímanum fyrir
nokkrum árum að óskum Eimskipa-
féíagsins, en hafnarverkamenn mega
vera kaffilausir frá hádegi þar til
kortér fyrir fimm. 1 svitabaði því,
sem fylgir bónusvinnunni við út-
skipun á fiski, hugsa eyrarkarla oft
þungttil jakans, er klukkan er að
nálgast fjögur og þorstinn og hungrið
fer að naga. Þá fær forystumaðurinn
þeirra stundum kaldar kveðjurnar.
Við erum félagar í litlum sam-
tökum baráttuviljaðs fólks, sem heita
Einingarsamtök kommúnista,
skammstafað EIK(ml) Og það er ein-
mitt efstáblaðihjásamtökumokkar
að stofna verkalýðsflokk. Þessi
samtök gefa úr Verkalýðsblaðið.
EIK(ml) hvatti fólk til að skila
auðu í síðustu kosningum og leggja
sitt af mörkum til að byggja upp
samtök sin og þar á meðal stjórn-
málaflokk til að leiða baráttuna. Þar
vorum við sammála öldruðu baráttu-
konunni henni Aðalheiði Magnús-
dóttur.
Okkur vantar fieira fólk í lið með
okkur, ekki síst fólks eins og þig,
Aðalheiður, sem hefur langa reynslu
úr verkalýðsbaráttunni, meðan hún
var oghét.
Þið, sem viljið taka þátt í þessu
brýna starfi, hafið samband við
sölufólk Verkalýðsblaðsins, eða
sendið línu í pósthólf 5186, Reykja-
vík.
INNHVERFIHUGUN
ÞR0SKATÆKNI
EKKITRÚARBRÖGD
— segir íslenzka íhugunarf élagið
Jón Halldór Hannesson skrifar f.h.
íslenzka íhugunarfélagsins:
Vegna lesendabréfs í DB í fyrradg
vill íslenzka íhugunarfélagið benda á
'að Innhverf íhugun hefur verið kynnt
hérlendis sem annars staðar sem hug-
læg tækni til þróunar vitundar. Lögð
hefur verið áherzla á að Innhverf
íhugun væri óháð skoðunum, trú,
menntun og aldri iðkenda. Þess
vegna er aðferðin kölluð tækni. Það
er reyndar ekki einu sinni
nauðsynlegt að hafa trú á þvi að
tæknin hafi áhrif. Áhrifin koma
jafnt fyrir það.
Tæknin felst í því að leyfa
athyglinni að leita til fingerðari og
máttugri stiga hugans. Hugurinn fær
þá hvíld og likaminn einnig. Þetta
leiðir til þess að líkamlegt óeðli eða
streita, sem safnast hefur fyrir i
taugakerfinu, tekur að hverfa.
Rannsóknir gerðar viða um heim
hafa staðfest að iðkendur öðlist mjög
djúpa huglæga og líkamlega hvíld
meðan á iðkuninni stendur og fjöl-
Lesendabréfið í DB sem er tilefni athugasemda íslenzka íhugunarfélagsins.
Toppurinn Jrá Finnlandi
50ÁRA
SEIMDUM UM
ALLT LANDIÐ
BUÐIN
'SKIPHOLT119. SÍMI29800
margar rannsóknir hafa einnig sýnt
fram á að heilleg þróun persónuleika
iðkenda eigi sér stað við það að þeir
losi sig jafnt og þétt við streitu þá
sem safnazt hefur fyrir í tauga-
kerfinu — en streitan veldur því að
einstaklingurinn getur ekki fullnýtt
þá möguleika sem hann býryfir.
Dr. Hans Selye forstöðumaður og
prófessor við lífeðlisfræðideild
Montreal háskólans notaði fyrstur
orðið „Stress” og hefur hann sagt að
áhrif Innhverfrar íhugunar á hug og
líkama séu þveröfug við áhrif streitu.
Iðkun Innhverfrar íhugunar er
framtak einstaklingsins til að bæta
sig sjálfan og bætaeinnig áhrif
sín á umhverfið. íhugunin er ákaf-
lega auðveld og situr iðkandinn á
þægilegum stól heima hjá sér í þær
15—20 mínútur sem iðkað er kvölds
og morgna. Innganga i íslenzka
ihugunarfélagið er alls ekki
nauðsynleg, en félagið veitir þó
öllum, sem lært hafa tæknina, svo-
kallaða einkakönnun eða upprifjun
svo oft sem menn vilja. Slík einka-
könnun tryggir hámarksárangur og
er innifalin í námsgjöldum sem
greidd eru í eitt skipti fyrir öll í
upphafi.
Lítraf laska sprakk
— íþúsund mola
0339-2503 skrifar:
í DB 9. júlí sl. er grein undir fyrir-
sögninni „Lítrafiöskur hafa sprungið
hér”.
Það virðist ekkert einsdæmi að
svona lagað geti átt sér stað, og er hér
eitt dæmi um það:
Nokkur ungmenni sem voru á
Raddir
lesenda
„rúntinum” höfðu keypt lítrafiösku
sem lögð var í hillu undir hanskahólfi
í bílnum. Eftir að hafa ekið í um 10
minútur á malbikaðri götu sprakk
fiaskan og glerbrotum rigndi yfir þá
sem í framsætunum voru. Er það
óskiljanlegt að ekki skyldi hljótast
slys af í það skiptið, því flaskan fór
bókstaflega í þúsund mola.
7S