Dagblaðið - 20.07.1979, Síða 3

Dagblaðið - 20.07.1979, Síða 3
E5S DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1979. --------------------------------------------------------------------------------------- 1 ....................... ENGINN VEIT UM UPP- BOÐSTEKJUR FÓGETA — hve lengi liðist einkaf yrirtæki slík bókhaldsóreiða og hugsanleg skattsvik? Hólmar hringdi: Getur það verið rétt að borgar- fógetaembættið í Reykjavík stundi skattsvik í stórum stil? Ekki verður annað séð á frétt sem birtist í Þjóðviljanum sl. miðvikudag. Þar stendur í frétt á baksíðu þessa ann- ars stærsta- stjórnarblaðs að dóms- málaráðuneyti, fjármálaráðuneytið eða ríkisbókhaldið hafi ekki hand- bært neitt heildaryfirlit yfir inn- heimtur eða tekjur af uppboðum, sem fari fram hjá þvi embætti. í greininni kemur fram að þar sé þó um að ræða langstærstu tekjulind embættisins og þar af leiðandi lang- stærstu tekjulind borgarfógeta, sem hefur prósentur af slíkum embættis- gerðum og auk annarra innheimtna. Allt bendir til að um sé að ræða verulegar fjárhæðir. Ekki verður annað séð en þarna gangi ríkisstofnun á undan með ófullnægjandi bókhald og hugsan- lega skattsvikum, þar sem áðurgreind ráðuneyti geta ekki upplýst hverjar heildartekjur eru af uppboðum og þar af leiðandi hafa þau ekki hug- mynd um hvaða tekjur undirmenn þeirra, fógetar og sýslumenn um land allt hafi af þessum aukaverkum sinum. Nú hefur þessi tekjustofn fógeta og sýslumanna oftsinnis verið gagn- rýndur og meðal annars verið kallaður verknaður þar sem löglærðir menn hafi eymd annarra aðféþúfu. Um það skal ekki fjallað hér að sinni en aðeins spurt: Gengur borgar- fógetaembættið í Reykjavík á undan í bókhaldsleysi og hugsanlegum skattsvikum? Hve lengi liðist einka- fyrirtæki með sambærilega veltu að haga bókhaldi og fjárreiðum sínum þannig, eins og fram kemur í Þjóðviljagreininni? Hvernig lízt þér á nýja bensínverðið? Traustl Bertelsson, vinnurhjá ísal: Mér finnst það óheyrilega hátt, með þvi hæsta í heimi miðað við kaupmátt. Spurning dagsins Einstök hjálpsemi Kópavogslögreglu ,,Lesendabréfin í dagblöðunum njóta mikilla vinsælda en oft virðast þau fremur notuð til aðspúa galli yfir menn og málefni en til þess að geta þess sem vel er gert. Enda mun marg- sannað, að þau hin illu tiðindi eru mun vænlegri til sölu en þau hin góðu. Atvinnuleys- isbætur hærri en sjúkradag- peningar Guðbjörg Sigurðardóttir hringdi: Hún sagðist hafa legið á sjúkra- húsi síðan um áramót. Nú væri hún komin heim og þyrfti að sjá fyrir heimili en væri óvinnufær og þyrfti jafnframt að greiða húshjálp. Það eina sem hún fengi frá Trygginga- stofnuninni væri 1600 kr. á dag og ættu allir aðgeta séð að enginn gæti lifaðafþvi. Hún sagði ennfremur að ef hún gæti fengið atvinnuléysisbætur þá væri það 2900 á dag og munaði það þó nokkru. Hún vildi lýsa undrun sinni yfir því að ekki væri borgað meira til fólks sem væri sjúkt en þeirra sem væru atvinnulausir og gætu séðumsig. Fékk ekki aðfara meðson sinn inn á bíómyndina Ásmundur hringdi: Hann sagðist hafa ætlað með unn- ustu sína og son sem er 6 ára í Tóna- bíó á mynd sem er bönnuð innan 14 ára. Hann sagði að dyravörðurinn hefði stoppað þau við innganginn og ekki viljað hleypa syni þeirra inn. Ásmundur sagðist ekki hafa verið hress yfir þvi vegna þess að hann hefði séð önnur börn ganga inn á myndina og hafi þau verið á aldrin- um 9—10 ára. Sagði Ásmundur að dyravörðurinn hafi gefið þá skýringu að þau böm væru nær fjórtán ára aldrinum. Vildi Ásmundur því vita hvort það væri dyravarðarins að vega og meta hverj- um væri hleypt inn og hverjum ekki. Ennfremur spurði hann dyravörðinn hvort foreldrarnir bæru ekki ábyrgð á því sem barnið sæi en dyravörður- inn sagði það ekki vera. Vildi Ásmundur hér með koma þessum spurningum sínum á fram- færi við aðila þá sem setja reglur um þessi mál. Sl. mánudagskvöld var undirrituð á sveimi í Kópavogi til að leita að ný- fluttu bifreiðaverkstæði. Ég verð að játa að fátt er mér verr gefið en rat- vísi og ég hefði sjálfsagt aldrei fundið fyrirtækið ef ég hefði ekki verið svol heppin að rekast á bíl frá Kópavogs- lögreglunni. Gengu vaktmenn um- svifalaust til liðs við mig við að leita. Eftir að staðurinn var fundinn kom í Ijós að þarna var mjög miklum erfiðleikum bundið að finna leigubif- reið og strætisvagnar voru hættir að ganga. Hinir vingjarnlegu lögreglu- menn óku með þá að næsta leigubíla- stæði í Kópavogi. En þar sem hin nýju lög ríkisstjórnarinnar um opnunartíma veitingahúsa virðast hafa mælzt mjög vel fyrir var þar heldur engan bil að fá. Lét lögreglan sig þá ekki muna um þaðað aka þess- ari vegvilltu konu i bæinn. Hafið kæra þökk fyrir hjálpsemina, Svanhvit og Sæmundur.” Valentinus Valdimarsson fyrrv. bíl- stjóri: Ég er löngu hættur að kaupa bensín og hættur að keyra bíl, svo verðið á bensininu kemur ekki við mig þó það sé hræðilega hátt. Marteinn Andersen, vinnur hjá borgar- sjóði: Mér finnst það óeðlilega hátt. Kristinn Rósantsson verkamaflur: Mér lizt vægast sagt mjög illa á það. Elias Þorsteinsson bilaréttingamaður: Ja, mér lízt ekki nógu vel á það. Bensínið er allt of dýrt. Gísli Magnússon matreiðslumaður: Er það nokkuð nema samkvæmt hækkun- um erlendis, þó finnst mér nú að það mætti vera lægra. Jóhanna á Trabantinum. 1 sumar verða Skógarmenn KFUM 50 ára í tilefiii afþví verður OPIP HÚS í VATNASKÓGI um verzlunarmannahelgina, 3.-6. ágúst. 13 31 ..ife- 2. .. • I rr..i Allir velkomnir dagsstund, heilan dag eöa lengur. Engin innritun — ekkert þátttökugjald. Hópferð fyrir bíllausa (miðar seldir til 31. júlí). Ökeypis tjaldstæði. Greiðasala á staðnum. íþróttir, leikir og gönguferðir. Bátsferðir og „baðstrandarferðir”. Samverustundir og kvöldvökur. Sérdagskrá fyrir yngstu kynslóðina. Nýi íþrótta- og samkomuskálinn formlega tekinn í notkun. Allar nánari upplýsingar veittar á aðalskrifstofu KFUM að Amt- mannsstíg 2b, sími 13437. Vonumst til að sjá þig! Skógarmenn KFUM.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.