Dagblaðið - 20.07.1979, Side 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1979.
5
Sjórall ,79:
Verðlaunaafhending
Tvenn verðlaun i verðlaunagetraun vegna Sjóralls ’79 voru afhent I vikunni. Baldur
Oxdal, sem hlaut þríðju verðlaun, tók við CB talstöð af Lafayettc gerð frá Radfóvirkj-
anum Týsgötu 1. Jóhanna Árnadóttir fékk fímmtu verðlaun, Konica sjónauka frá
Gevafótó hf.
Aðrir sem hlutu verðlaun fá sln verðlaun síðar. DB-mynd Árni Páll.
Róiðí
Súðavík
Þeir byrja snemma aö róa, strákamir /
Súðavik. Þessir tveir ungu og knáu sjó-
menn heita Ömar Jónsson og Garöar
Sigurgeirsson. Ómar á bátinn og Garðar
er háseti hjá honum. Með þeim félögum i
stafhi er bátsþeman Perla, en hún notast
viðstnafjórafœtur. DBmyndJH
— mikill fjöldi osottra vinninga í Happdrættisláni
ríkissjóðs
Dregið hefur verið í sjötta sinn í
happdrættisláni rík issjóðs 1974,
Skuldabréf D, vegna vega- og brúa-
gerða á Skeiðarársandi, er opni hring-
veg um landið.
Útdrátturinn fór fram í Reiknistofn-
un Háskólans með aðstoð tölvu
Reiknistofnunar, skv. reglum er fjár-
málaráðuneytið setti um útdrátt vinn-
inga á þennan hátt, í samræmi við skil-
málalánsins.
Vinningaskráin birtist í dagbók DB i
dag. í Seðlabankanum er að finna skrá
yfir ntikinn fjölda ósóttra vinninga.
Þar eiga margir hundrað þúsund króna
vinninga og milljón króna vinningar
koma þar líka fyrir. Þannig er
1.000.000 kr. vinningur á miða númer
47319 úr 4. drætti 12. júlí 1977 og ann-
ar vinningur að sömu upphæð á miða
númer 121276 úr 5. drætti 12. júlí 1978.
Vinningar eru eingöngu afgreiddir í
afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnar-
stræti 10, Rvík.gegn framvísun skulda-
bréfanna.
Þeir handhafar skuldabréfa, sem
hlotið hafa vinning og ekki geta sjálfír
komið í afgreiðslu Seðlabankans, geta
snúið sér til banka, bankaútibúa eða
sparisjóða hvar sem er á landinu og af-
hent þeim skuldabréf gegn sérstakri
kvittun. Viðkomandi banki, bankaúti-
bú eða sparisjóður sér síðan um að fá
greiðslu úr hendi útgefanda með því að
senda Seðlabankanum skuldabréf til
fyrirgreiðslu. -GAJ
200 manns á norrænu
í gær fannst sprengikúla frá styrj-
aldarárunum skammt frá Reykjum í
ölfusi. Sótti lögreglan á Selfossi kúl-
una og kom henni í geymslu unz
sprengjusérfræðingur kannar hvort
hún er virk.
Þá fréttist í gær af fundi tveggja
slíkra kúlna skammt frá Hrauni í
ölfusi. Hafði þeim verið stungið í hús
og menn ekki varað sig á að þær gætu
verið virkar. Eru þær einnig i geymslu
Selfosslögreglunnar nú. -ASt.
Litlu flugfélögin
þola ekki
fargjaldastríöið
— ogLufthansa er á móti frjálsri verölagningu farmiöa, segir Michael
Kuttner, upplýsingafulltrúi vestur-þýzka flugfélagsins Lufthansa
„Forráðamenn Lufthansa hafa
ávallt verið á móti þeirri stefnu banda-
rískra flugmálayfirvalda að leyfa
frjálsa verðmyndun á fargjöldum flug-
véla á Norður-Atlantshafsflugleiðinni
— milli Evrópu og Bandaríkjanna —
sem gilt hefur nú um nokkurt skeið.”
Þetta voru orð Michael Kuttner,
upplýsingafulltrúa Lufthansa flug-
félagsins vestur-þýzka, sem hér er á
ferð. Skrifstofa hans er í Kaupmanna-
höfn en starfssvæði hans er Danmörk,
Noregur og ísland.
Hann tók fram að í sjálfu sér væri
félagið ekki á móti lágum fargjöldum,
sem væru auðvitað æskileg fyrir við-
skiptavinina. Verð farmiðanna mætti
aftur á móti ekki vera svo lágt að ekki
nægði fyrir kostnaði við eðlilegan flug-
rekstur. í fljótu bragði mætti líta svo á
að slíkt kæmi hinum almenna flugfar-
þega ekki við en forráðamenn Luft-
hansa teldu að ef litið væri til lengri
tíma væri slíkt ástand flugfarþegum til
skaða.
„Nú þegar er ástandið þannig að þau
bandarísku flugfélög, sem nær ein-
vörðungu byggja á Norður-Atlants-
hafsflugleiðinni, eru rekin með tapi.
Þetta ástand þýðir í raun að minni
félög verða að sameinast öðrum eða
hætta,” sagði Michael Kuttner.
Han sagði að Lufthansa teldi slíkt
skaða því þeir væru fylgjandi sam-
keppni, héldist hún innan skynsam-
legra marka. Hún gæti verið í bættri og
öruggari þjónustu, fullkomnu við-
haldskerfi, öruggum tímaáætlunum og
i verði. Hið síðastnefnda þó að vissu
marki.
Kuttner var spurður hvernig hann
gæti skýrt gengi flugfélags Freddie
Laker hins brezka í ljósi þessara kenn-
inga. Laker hefur boðið upp á mjög lág
fargjöld yfir Atlantshafið að undan-
förnu og svo hefur virzt sem hann væri
síður en svo á neinum fallandi fæti.
„Það er auðskýrt,” sagði upplýs-
ingafulltrúinn. „Laker byggir flug-
Átt þú milljón án
þess að vita það?
Michael Kuttner, upplýsingafulltrúi v-þýzka flugfélagsins Lufthansa.
DB-mynd Bjarnleifur
þjónustu sína upp á einni leið að mestu
og stefnir ekki að neinni heildarflug-
þjónustu um heiminn. Hann hefur
áætlað flug sitt á því að fylla flugvélar
sínar og starfar á fjölförnustu flugleið
heimsins — yfir Atlantshafið á milli
Evrópu og Bandaríkjanna.
Við getum ímyndað okkur almenn-
ingsvagnakerfi í borg,” sagði Michael
Kuttner. „Allir gera sér grein fyrir því
að auðvelt væri að reka fjölförnustu
leiðina með hagnaði og jafnvel lægri
fargjöldum. Almenningsvagnakerfið
verður aftur á móti að ná til óarðbær-
ari leiða og þær eru þá jafnvel reknar
með halla. Þannig teljum við hjá Luft-
hansa að flugfélögum beri líka skylda
til að hugsa,” sagði upplýsingafulltrú-
inn.
„Lufthansa er stórt félag og á um
það bil níutíu flugvélar. Starfsmenn
félagsins eru nærri þrjátíu þúsund,
víðsvegar um heiminn. Ef hallarekstur
er á einni flugleiðinni hefur það mögu-
leika á að mæta honum með hagnaði af
öðrum. Þetta geta minni flugfélög með
fáar eða eina flugleið síður. Þeim er því
hætt þegar verð fargjalda fer niður
fyrir raunverulegan rekstrarkostnað,”
sagði Michael Kuttner.
Hann ítrekaði að__Lufthansa væri á
móti slíkri þróun mála. Verðsam-
keppni þyrfti að vera innan skynsam-
legra takmarka. -ÓG.
æskulýðsmóti í
Fallbyssukúlur
f rá styrjaldar-
árunum
finnast
Reykjavík
Norrænt æskulýðsmót verður sett í
hátíðarsal Háskóla íslands á laugar-
daginn klukkan þrjú. Að mótinu
stendur samstarfsnefnd Æskulýðs-
sambands íslands og æskulýðsnefnda
norrænu félaganna. Mótið sækja 200
manns, þar af um 40 frá íslandi.
Karl Jeppesen, formaður sam-
starfsnefndarinnar, setur mótið en
síðan flytur Ólafur Jóhannesson for-
sætisráðherra ávarp. Einnig flytja
ræður þeir Peter Backa, formaður
Norðurlandasambands norrænu
félaganna, og Hjálmar Ólafsson, for-
maður Norræna félagsins.
Mót af þessu tagi eru haldin til
skiptis á Norðurlöndunum til að
kynna málefni viðkomandi landa. Á
dagskrá mótsins hér eru íslenzk mál-
efni; efnahagsmál, stjórnmál, æsku-
lýðsmál o.fl. Farið verður í kynnis-
ferðir um Reykjavík og út á land.
Æskulýðsmótinu lýkur 29. júlí.
Við bryggjusmíði á
Þeir voru berir að ofan, strákarnir
frá Vita- og hafnamálum, er unnu við
að steypa plötu á olíubryggjunni á Isa-
firði. Það var enda ástæða til, því sól
skein í heiði og logn var á firðinum.
Þessir strákar, Hörður Þorsteins-
son, Stefán Már Arnarson og Guð-
mundur Guðjónsson, undu hag sínum
vel, en þeir dvelja á ísafirði fram í
miðjan ágúst við bryggjusmiðina.
Þeir dvelja á Hótel Eddu og segja
það þægilega vist, enda hótelið i ný-
legri heimavist menntaskólans.
DB-mynd JH