Dagblaðið - 20.07.1979, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1979.
Washington:
umþrjá
ráðherra
Jimmy Carter Bandaríkjaforseti
hefur fallizt á afsögn þriggja fyrrum
ráðherra sinna. Eru það þeir Blument-
hal fjármálaráðherra, Joseph Califano
heilbfigðisráðherra og Griffin Bell
dómsmálaráðherra. Sá síðastnefndi var
hinn eini sem i raun er talinn hafa
óskað að láta af embætti.
Nýi fjármálaráðherrann heitir
William Miller og gegndi áður störfum
formanns Alríkisseðlabankans banda-
ríska, Patricia Roberts sem áður var
húsnæðismáiaráðherra verður heil-
brigðisráðherra. Er hún eini sverting-
inn í ríkisstjórn Carters. Benjamin
Civiletti er áður var aðstoðardóms-
málaráðherra og hægri hönd Bell tekur
við embætti hans.
Pólland:
Nokkrir hvalanna I fjörunni. Mestar líkur eru taidar á að þeir hafi sýkzt af oliumengun og leitað til lands I dauðastriðinu.
Kanada:
Tvö hundruð hvalir
syntu á land upp
Nærri tvö hundruð hvalir runnu :t
land nærri Point au Gaulá Nýlundna-
landi um síðustu helgi. í frasognum tiá
Kanada um þetta mál segir að klapp-
irnar þar sem hvalirnir hafa vaðið á
’and haft verið blóði drifnar. Ástæðan
l'yrir þessu landhlaupi hvalanna er ekki
I tós en talið er að þeir hafi sýkzt af ein-
hverjum ástæðum og þá jafnvel blind-
azt. Er getum að því leitt að þeir hafi
N
Umsóknarfrestur
um námslán
Umsóknarfrestur um haustlán 1979—
80 er framlengdur til 1. ágúst nk.
Áætlaður afgreiðslutími lánanna er:
Fyrir námsmenn erlendis 1. okt. 1979. !
Fyrir námsmenn á íslandi 1. nóv. 1979. ;
Skilafrestur fylgiskjala er mánuði fyrir
áætlaðan afgreiðslutíma.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu
sjóðsins á Laugavegi 77, afgreiðslutími
er frá 1 —4 e.h. Sími 25011.
Reykjavík, 3.7. 1979
Lánasjóður ísl. nðmsmanna.
lent illilega i oliumengun.
Talið er að það hafi verið tvö
hundruð og fimmtíu hvalir sem syntu á
land við Point au Gaul á sunnudaginn.
Fiskimenn og fleira fólk reyndi að
beina hvalatorfunni aftur til hafs en
með litlum árangri en þó nokkrum.
Veður var vont og því erfitt að starfa
við verkið. Seinlegt var að komast að
hvölunum og það var ekki fyrr en eftir
langa mæðu sem tókst að koma
nokkrum hluta þeirra aftur til hafs.
Tæplega tvö hundruð létu sér hins
vegar ekki segjast og enduðu uppi í
fjöru.
Hvalirnir, sem eru um það bil sjö og
hálfur metri að lengd, eru af tegund
sem heitir pothead á ensku. Sér-
fræðingar hafa engar öruggar skýring-
ar á þessari sjálfsmorðsför þeirra.
Fiskimenn sem skoðað hafa þá og sáu
aðfarirnar telja að þeir hafi lent i olíu-
brák og blindazt, auk þess sem öndun-
aropþeirra hafi stíflazt.
Vart hefur orðið við olíumengun út
af strönd Nýfundnalands. Fuglar hafa
drepizt og veiðarfæri úr sjónum eru
menguðolíu.
konurmeð
heykvíslar
hugðust
stinga nakið
par
Ung pólsk kona og vinur hennar sem
brugðu sér kviknakin í sjóinn í austur-
hluta lands síns ollu mikilli reiði meðal
nokkurra bændakvenna í nágrenninu.
Svo var reiðin mikil að konurnar réðust
að skötuhjúunum með heykvíslum.
Töldu konurnar að með þessu háttalagi
sínu væru hinir nöktu baðgestir að
reyna að tæla menn þeirra frá hey-
skapnum.
Konurnar hófu síðan að ræða um
hvort heldur ætti að múra hjúin inni í
vegg eða leiða þau í sjóinn en hvort
tveggja mun vera gamall siður þar um
slóðir. Brugðu karlmennirnir þá við og
björguðu stúlku og pilti úr klóm hinna
reiðu kvenna. Hlupu þau á brott sem
fætur toguðu. Ekki er þess getið i frétt-
inni af atburðinum hvort þeim hafi
gefizt kostur á að klæða sig fyrir flótt-
ann.
veiiu vatnsdælurnar
dælurnar nýkomnar. Verð kr. 106.727.
<tg8:v: ’
BYGGINGAVÖRUVERZLUN
ÍSLEIFS JÚNSSONAR HF.
BOLHOLTI4 - SÍMI36920
Bandaríkin:
Samtök flugfar-
þega líftrygg-
ingafélag
— höf uöaöilinn í DC-10 banninu á nú undir högg að sækja
gagnvart flugfélögum heimsins
Samtök flugfarþega í Banda-
ríkjunum eru sá aðili sem fyrst stóð
fyrir því að flugleyfi DC—-10 þotna
var afturkallað. Á ensku heitir félag
þetta Airline Passanger Association,
skammstafað APA. í bandarisku
blaði, Aviation Daily, sem gefið er út
af einkaaðilum og fjallar um málefni
flugsins, var grein þar sem rætt er
um þessi svonefndu samtök neyt-
enda.
í byrjun greinarinnar er sagt að sú
nefnd öldungadeildar þingsins í
Washington sem kanna muni allt
málið í kringum flugbannið á DC—
10 þotumar, muni sérstaklega fara
ofan í saumana hjá Samtökum flug-
farþega.
Þess er getið að forseti sam-
takanna James E. Dunne gefi lítil
svör við spurningum um umboð og á-
stæður þeirra fyrir því að berjast
fyrir flugbanni á DC—10 þotur.
Einnnig er hann talinn gefa litlar
skýringar á hvað þessi samtök séu
eiginlega.
Fullyrt er að fjölmargir séu alls
ókunnir því hvað samtök flugfarþega
séu. í greininni í Aviation Daily
kemur fram að samtökin hafa mjög
náin tengsl við tryggingarfélag. Einn
af fyrrverandi stjórnarmeðlimum
samtakanna, sem sagði af sér vegna
þess að hann taldi stefnuna í DC—10
málinu ranga, hefur látið hafa eftir
sér innihald bréfs sem hann sendi
Dunne stjórnarformanni við afsögn
sína. ,,Ég veit og þú veizt, herra
Dunne, að Samtök flugfarþega hafa
ekki stefnt að tæknilegri kunnáttu
um flug eða að þætti þjónustu og ör-
yggis farþega. Upphaflega hug-
myndin var að selja tryggingar (lif)
og svo er í raun ennþá.” Þessu neitar
formaður samtakanna.
Samtök flugfarþega APA eru í
eigu fyrirtækis, sem heitir Travel
Aviation and Insurance Consultants
Ltd. Áðsetur þess er á Jómfrúr-
eyjum. Samtök flugfarjtega hafa hins
vegar skrifstofur í Texas. Hver með-
limur þarf að greiða 17,5 dollara ár-
gjald. Samtökin eru sögð ráða yfir
ýmsum flugtryggingum að verðmæti •
tiu milljarða dollara. Eiga þær
tryggingar eða þau verðbréf sem
jieirn tilheyra að vera á markaði hjá
Lloyd’s í London. Samtökin hafa
fimmtíu þúsund félaga, gefið er út
tímarit, félögum er boðinn afsláttur á
ýmsum hótelum og mótelum. Sam-
tökin telja sig vera fulltrúa þeirra
sem tíðum fljúga með flugvélum.
Hafa þau viljað fá fulltrúa i ýmsum
nefndum, sem kanna eiga flugmál en
með misjöfnum árangri.