Dagblaðið - 20.07.1979, Page 7

Dagblaðið - 20.07.1979, Page 7
DAGBLAOIÐ. FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 19?9. 7 Nicaragua: Falli Somoza mjög fagnaöí Managua Baidagar eru hættir i Nicaragua en ástand allt er heldur óljóst. Svo virðist sem uppgjöf þjóðvarðliðsins hafi gcngið friðsamlega fyrir sig og ekki hefur heyrzt um neinar hefndarað- gerðir gegn fulltrúum fyrri valdhafa. Sandinistar virðast hafa tögl og hagldir um landið allt. í höfuðborginni Managua stóð yfir mikil fagnaðarhátíð er síðast fréttist. Þúsundir fólks fór um götur hlæjandi og syngjandi, eins og segir i fréttaskeytum. Hrópað var — lengi lifi byltingin og almennur fögn- uður virðist vera meðal íbúa borgar- innar yfir því að fjörutíu og þriggja ára valdaferli Somozafjölskyldunnar skuli vera lokið. 1 REUTER K Yfirvöld i Vestur-Þýzkalandi scgj- ast óttast að írönsk yfirvöld standi nú fyrir eltingaleik í Vestur-Þýzkalandi og leiti þeirra sem hafi verið í tengslum við keisaras'tjórnina. í fyrradag réðst lögreglan inn í farfuglaheimili í Hamborg þar sem iranskir menn höfðu aðra í haldi og voru aðyfirheyra þá. Danmörk: Hundruöa milljóna viröisaukaskattsvik sjónvarp og útvörp urðu að reipum og veiðarfærum á skýrslunum Enn eitt stórsvindlmálið er komið upp i Danmörku vegna svika á skil- um virðisaukaskatts. Er þar um að ræða nokkur fyrirtæki i Esbjerg, sem hafa falsað skjöl og þannig skotið undan skattgreiðslum sem nema jafn- virði nærri fjögur hundruö milljóna íslenzkra króna. Við rannsókn málsins, sem er nú i fullum gangi, hefur komið í ljós að þarna hefur á skipulagsbundinn hátt verið gefið upp rangt vöruheiti á reikningum. Ýmis fyrirtæki hafa selt einstaklingum sem starfa við sjávar- útveginn til dæmis sjónvörp, útvörp og annað. Á reikningunum hefur þetta aftur á móti orðið að reipum og veiðarfærum, sem samkvæmt lögum eru undanþegin virðisaukaskattinum. Hann er í daglegu tali kallaður moms í Danmörku. Eins og áður sagði stendur rann- sókn málsins enn yfir og að sögn danska blaðsins Politiken er ætlun danskra skattyfirvalda að kanna þetta mál til hlítar. Er þá eftir að kanna bókhald og reikningsfærslu um það bil fjögur hundruð fiskibáta og nærri fimmtiu fyrirtækja af ýmsu tagi. Rannsóknin hófst í fyrra. Nokkuð hefur borið á því að aðilar innan fyrirtækja hafi reynt að leyna svikum sinum með því að eyðileggja frumnótur sinar. Hefur það að sögn gert rannsókn á þessu skattsvikamáli, eða -málum, mun erfiðari. Fyrsti hluti málsins verður tekin fyrir hjá dómstóli að loknum sumarleyfum. - v: v Lufthansa kaupir 57 nýjar þotur —stærsti evrópski flugsamningur til þessa aðverðmæti um það bil f imm hundruð milljarða króna Vestur-þýzka flugfélagið Luft- hansa hefur ákveðið að kaupa alls fimmtíu og sjö nýjar farþegaþotur. Er þarna um að ræða þrjátiu og tvær Boeing 737 200 og tuttugu og fimm þotur af gerðinni Airbus A 310 S. Þarna er um að ræða stærsta samn- ing um flugvélakaup sem gerður hefur verið til þessa í Evrópu. Er þá átt við í farþegafiugi. Þoturnar á að afhenda i tveim áföngum. Hinn fyrri er siðari hluta næsta árs en siðari helmingur vélanna afhendist smám saman á árinu 1981. Heildarfiugvélakaupin nema jafn- virði um það bil fimm hundruð millj- arða islenzkra króna. Boeing 737 þot- urnar eiga að leysa eldri gerðir slikra véla af hólmi. Airbus A 310 á að hluta til að koma í stað Boeing 727 á leiðum í Evrópu og til Austurlanda og Norður-Afriku. Nýja Airbus gerðin er að sögn mjög hagkvæm og eyðir til dæmis 6% minna eldsneyti en fyrri gerð. Airbus er framleidd í Evrópu. Eru það einkum Frakkar og Þjóðverjar, sem hafa unnið að þvi. Forráðamenn Lufthansa hafa lýst yfir andstöðu við frjálsa verðlagn- ingu á flugfarmiðum á leiðinni yfir Norður-Atlantshafið, á milli Evrópu og Bandaríkjanna. Sjá nánar viðtal ■við Michael Kuttner á bls. 5. Kannski dæmigerð mynd. Á sjónvarpsskerminum er Jimmy Carter að halda ræðu en til hliðar er verið að dæla dýrmætri orku á bifreið. Starfsmenn stöðvarinnar hlusta alvarlegir á forsetann. Hvaða áhrif hefur orkuskorturinn á lif heirra? Erlendar fréttir Astralía: Pallurinn hrundi óvænt undan feg- uröardfsunum —ungfrú Venezuela kjðrin alheims- fegurðardís Alheimsfegurðarsamkeppnin, sem undanfarið hefur staðið yfir í borg- inni Perth i Ástraliu endaði með ósköpum í nótt þegar sýningarpall- urinn þar sem dísirnar stóðu brast. Er talið að viðbótarþunginn sem bættist við þegar Ijósmyndarar hópuðust að hafi riðið baggamuninn. Fulltrúi Venezuela, Maritza Sayalero, átján ára gömul, sigraði i keppninni og hlaut titilinn ungfrú alheimur. Ungfrú Bermuda varð í öðru sæti og ungfrú England i þriðja. Nokkrar stúlknanna meiddust þegar pallurinn hrundi en aöeins ein, ungfrú Tyrkland, þurfti að fara á sjúkrahús. Var það vegna meiðsla á fæti.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.