Dagblaðið - 20.07.1979, Side 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1979.
Heimsókn íhúsnæði almannavarnanefndar
Akureyrar í kjaljara lögreglustöðvarinnar
Talstöðin sem tryggja á talsamband við hjálparlið hvar sem það er statt.
Munið frímerkjasöfnun
Geðverndar
Innlend og erlend frímorki. Gjama umslögin heil, einnig vólstímplufl umslög. Pósthólf 1308 efla skrifstofa fól. Hafnarstræti 5,
| I
*ara/ÐV«MiMua iUANOsa simi 13468.
Fóstrur
Barnaleikvellir Reykjavíkurborgar vilja ráða
tvær umsjónarfóstrur við gæzluvelli borgarinn-
ar.
Upplýsingar um störfin veitir Bjarnhéðinn Hall-
grímsson, Skúlatúni 2, sími 18000.
Leikvallanefnd Reykjavlkur.
Bækistöðin ramm-
gerða sem í neyð
gæti orðið stjóm-
stöð alls landsins
Þarna situr æðsta ráðið. Fógeti, bæjarstjórí og bæjarritarí, við háborðið, slökkviliðs-
stjóri og bæjarverkfræðingur framar. Á veggjunum eru beinu sfmalfnurnar til helztu
hjálparstöðva í neyðartilfellum. DB-myndir Hörður
í traustbyggðum kjallara lögreglu-
stöðvarhússins á Akureyri er bækistöð
almannavarna og stjórnstöð almanna-
varnanefndar Akureyrar. í glæsilegum
salarkynnum er búið að koma upp
góðri aðstöðu og traustri bækistöð fyrir
stjórnendur almannavarnakerfisins —
og stöðin er þannig byggð að hún
getur, ef á þarf að halda, tekið við
hlutvekri stjórnstöðvar almannavarna-
ráðs og þá orðið stjórnstöð ails lands-
ins i neyðartilfellum.
Eftir er að loka þennan hluta hússins
af með sérstakri járnhurð og með hana
lokaða er húsnæði almannavarna ein-
angrað frá umheiminum. Gera á húsið
enn pottþéttara til íveru fyrir stjórn-
endur varnarkerfisins með því að koma
fyrir loftsíuvél, svo mengað eða eitrað
loft geti ekk'i átt leið inn í höfuðstöðv-
arnar.
í húsinu er sér Ijósavél, svo aldrei
verður þar rafmagnsleysi. En ef hún
skyldi nú bila þá er varaolíuhitakerfi í
húsinu.
Fullkomið eldhús er hluti húsnæðis-
ins og áfastur við það matsalur, nú með
fimm harðviðarhurðum. Sérstök
matargeymsla er þarna og þar geymdar
vistir sem hita má í sérstökum geislahit-
unarofni.
í stjórnsal almannavarnastöðvarinn-
ar er öllu haganlega fyrir komið. Sæti
eru fyrir þrjá við eins konar háborð. Á
bæjarfógeti, formaður almannavarna-
nefndar, sætið fyrir miðju háborðinu
og hefur rauðan síma fyrir framan sig,
bein lína. Til hliðar við hann sitja
bæjarverkfræðingur öðrum megin og
bæjarstjóri hinum megin. Þeir hafa
líka beinar línur, símtæki í öðrum lit-
um.
Út frá háborðinu gengur annað borð
þar sem sitja slök kviliðsstjóri og
héraðslæknir, en þessir fimm mynda
almannavarnanefnd Akureyrar. Tveir
hinir síðasttöldu hafa einnig beinar
línur. Á borðum eru möppur hvers
nefndarmanns, sem geyma skjöl um
allar áætlanir um aðgerðir í neyðartil-
fellum sem gerðar hafa verið.
Á vegg að baki háborðsins eru ftmm
simtól og sé hvert þeirra merkt eftir-
töldum nöfnum: slökkvistöðin, flug-
völlurinn, almannavarnir ríkisins,
landsimastöðin, sjúkrahúsið. Á þessum
símum eru engar skífur en sé tólum lyft
er beint samband við áðurnefnda staði
komið á. Sex neyðarstöðvar hafa verið
skipulagðar á Akureyri ef til neyðar-
ástands kemur. Stöðvarnar eru: Hótel
Varðborg, Oddeyrarskóli, Glerárskóli,
Lundaskóli, Barnaskóli Akureyrar og
Iðnskólinn. Sérstakt starfslið hefur
verið skipulagt til starfa á þessum
stöðum ef á þarf að halda.
Sérstök neyðaráætlun hefur verið
gerð fyrir sjúkrahúsið í neyðartilfell-
um. Ef á þarf að halda er Gagnfræða-
skóli Akureyrar starfræktur í sam-
bandi við sjúkrahúsið.
Í húsinu eru nokkrar birgðir af
börum og teppum en svo hefur verið
samið um að í neyðartilfellum sé vöru-
lager Gefjunar til taks fyrir almanna-
varnanefndina. Aldrei munu færri
teppi á lager Gefjunar en 400. Sams
konar samningur er við dýnuverk-
smiðju Sjafnar.
Ýmsar æfingar á neyðarkerfinu hafa
farið fram, m.a. með tilbúnu flugslysi í
Fnjóskadal, ýmsar símakerfisæfingar
o.fl.
Umsjónarmaður almannavarna-
nefndar Akureyrar og eftirlitsmaður
með öllum tækjumog búnaði er Gísli
Ólafsson yfirlögregluþjónn og það var í
hans fylgd sem við DB-menn fengum
að skoða helgidóminn.
- ASt.
MEÐ REKAVIÐ AF
HAFITIL AÐ GIRÐA
EYÐIJÖRÐINA
—Sæmileg af koma smábátaeigenda á Húsavík
Ég tíndi þetta saman hér skammt úti
á víkinni þó það sé áreiðanlega ættað
frá Síberíu,” sagði Sigurður Gunnars-
son sem við hittum á fiskibryggjunni á
Húsavík stuttu eftir að hann kom með
einkennilegan afla að Iandi. Hann
hafði fundið 8—10 rekaviðardrumba
og dró þá til hafnar á bát sínum, Sól-
veigu.
,,Ég þurrka þetta í sumar, klýf það í
haust og svo fer það væntanlega í
girðingarstaura á eyðijörð okkar syst-
kinanna að Arnamesi í Kelduhverfi,”
sagði Sigurður.
„Annars er ég á netaveiðum og hef
verið síðan i febrúar,’ sagði Sigurður
en hann hefur tekið netin upp fyrir
nokkru.
„Ég man ekki aðra eins djöfuls ótíð
og hefur verið i vetur. En aflamagnið er
þó komið i tæp 30tonn á netunum. Og
þar sem ég er einn er þetta sæmileg af-
koma,” sagði Sigurður. ,,Ég sé nú ekki
fyrir öðrum en mér og konunni og hún
vinnur í saltfiski og þvær togarakassa
þegar með þarf.”
Sigurður er búinn að vera 20 ár á
Húsavík og segir hvergi betra að vera.
,,Hér er ákaflega gott og heiðarlegt
fólk og sérlega sumargott.”
Þegar Sigurður stundar netaveiðarn-
ar einn sins liðs fer hann síðari hluta
nætur út, sækir yfirleitt stutt, dregur
net úr sjó og leggur önnur og kemur
oftást sæmilega timanlega að landi.
Túrarnir á handfæraveiðunum á
sumrin taka lengri tima. „Þetta verður
að gera daglega, annars er maður
straffaður,” sagði Sigurður.
Fiskinn leggur hann á land óað-
gerðan eins og aðrir á Húsavík. Aflinn í
netin hjá honum var misjafn i vetur,
mest 2200 kg og allt niður í 5 fiska.
„Meðan ísinn var var ekki hægt að
sækja nema rétt út á víkina og í rúma
viku komst enginn neitt á sjó út,” sagði
Sigurður.
Bátur Sigurðar er 3 tonn, happasæl
fleyta sem hann hefur átt síðan 1972.
Sigurður hefur átt sæti í hafnarnefnd
Húsavíkur en i þeirri nefnd hefur í
mörgu verið að snúast enda Húsavíkur-
höfn stórlega stækkuð og bætt á síðari
árum.
Sigurður og systkini hans fimm eiga
saman eyðijörð í Kelduhverfi, sem
Sigurður var að hugsa til er hann sá
rekaviðardrumbana. Systkinahópurinn
hefur dreifzt allmikið. Einn er bóndi á
Víkingavatni, tveir bílstjórar, á Kópa-
skeri og Húsavík, einn starfsmaður
Seðlabanka og eina systirin hótelstýra á
Hótel Esju i Reykjavík — og svo
Sigurðurútgerðarmaðurá Húsavík.
- ASt.
RekaviðardrumDarnir, sem soiveig dró
að landi, geta verið stórhættulegir á
siglingaleiðum nyrðra. Sigurður er ó
maganum ó skut bóts sins og kemur
löndunarvír ó drumbana.
DB-myndir Hörður