Dagblaðið - 20.07.1979, Síða 10

Dagblaðið - 20.07.1979, Síða 10
10 WBIAÐIB frfálst, nhúð dagblað Útgefandi: Dagblaðið hf. Framkvœmdastjóri: Sveinn R. EyjóHsson. Ritstjórí: Jónas Krístjánsson. Rhstjómarfulitrúi: Haukur Helgason. Skrífstofustjórí rítstjómar Jóhannes Reykdal. Fréttastjórí: Ómar Valdknarsson. íþróttir Hallur Simonarson. Menning: Aflalsteinn IngóHsson. Aflstoflarfróttastjórí: Jónas Haraldsson. Handrít: Ásgrímur Pálsson. Btaflamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Adi Steinarsson, Bragi Sigurflsson, Dóra Stefánsdótt- ir, Gissur Sigurflsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Ólafur Geirsson, Sigurflur Sverrisson. Hönnun: Gufljón H. Pálsson. Hilmar Karisson. Ljósmyndir: Ámi Páll Jóhannsson, BjamleHur BjamleHsson, Hörflur Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurflsson, Sveinn Þormóflsson. Skrífstofustjórí: Ólafur EyjóHsson. Gjaldkerí: Þráinn ÞoríeHsson. Sölustjóri: Ingvar Sveinsson. DroHing- arstjóri: Már E.M. Halldórsson. Ritstjóm Siðumúla 12. Afgreiflsla, áskrHtadeild, auglýsingar og skrifstofur Þverholti 11. Aflalsími blaflsinser 27022 (10 Hnúr). Setning og umbrot Dagblaðifl hf., Síðumúla 12. Mynda og plötugerfl:'Hilmir hf., Siðumúla 12. Prentun: Árvakur hf., SkeHunni 10. Verfl í lausasölu: 180 krónur. Verfl I áskríft innanlands: 3500 krónur. Kjartan á réttrí leið Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráð- herra á heiður skilinn fyrir afstöðu hans til skipakaupa erlendis. Þjóðarhagur verður að ganga fyrir stundarhag ein- stakra byggðarlaga. Eitt hinna stærstu vandamála í efna- hagsmálum okkár er, að við rekum of stóran fiskiskipaflota. Flestir viðurkenna nauðsyn á takmörkun veiða á helztu nytjafiskunum. Stjórnmála- foringjar hafa undanfarin ár látið undan þrýstingi hagsmunahópa í kjördæmum þeirra með þeim afleiðingum, að skip hafa stöðugt bætzt í flotann, sem var alltof stór fyrir. Þegar floti, sem kann að vera allt að helmingi of stór, eltist við fískstofna, þar sem veiðar eru takmarkaðar, leiðir umframstærðin til taps út- gerðar og umfram allt þjóðarbúsins. Þessi skekkja kemur víða við sögu. Hún leiðir af sér stórfellda styrki til að bæta upp óhagkvæmni í rekstri. Fiskvinnslan er látin bera hana að miklu, sem leiðir til gengisfellingar og aukinnar verðbólgu. Öll þjóðin ber þessa byrði að lokum, þótt vandinn sé falinn með bráðabirgðafölsun gengis. Stjórnvöld hafa síðustu ár haft í orði þá stefnu, að hafa þyrfti hemil á skipakaupum. Reyndin hefur þó orðið, að gjarnan hefur verið látið undan kröfum hags- munahópanna. Engin leiðrétting hefur fengizt á þeim mikla vanda, sem of stór floti hefur í för með sér. Sjávarútvegsráðherra hefur sjálfur ekki hreinan skjöld í þessu efni, en gott er, ef hann hefur nú séð að sér. Gjarnan má sýna fram á, að nýtt skip sé tímabundið hagsmunamál ákveðins byggðarlags, þótt kaup þess séu þjóðhagslega óæskileg og leiði aðeins til þess, að eitthvert annað byggðarlag fær þeim mun minni afla úr að spila. Hvar á þá að draga mörkin? Ef eitt byggðarlag fær að fly.tja inn nýtt skip, hvers vegna þá ekki annað byggðarlag? Sjávarútvegsráðherra segir, að ráðuneyti hans hafi tuttugu umsóknir um skuttogara til meðferðar. Umsækjendur hafa vafalaust einhver áhrif hjá þing- mönnum sinna byggðarlaga. Greinilega þarf að spyrna við fæti. Það hefði þurft að gerast fyrr í fullri alvöru, en því fyrr því betra. Stefna þarf markvisst að verulegri fækkun fiski- skipa. Hlúa þarf að innlendum skipasmíðum, sem eiga við mikinn vanda að etja. Innlendar stöðvar eiga að sjá um þá endurnýjun fiskiskipa, sem nauðsynleg getur talizt. Sannarlega væri fákænt að eyða dýrmætum gjald- eyri okkar á tímum olíukreppu til að auka við eða halda óbreyttum alltof stórum fiskiskipaflota, sem eykur byrðar þjóðarinnar. Dagblaðið hefur bent á, að aðgerðir sjávarútvegs- ráðherra til að skera niður þorskaflann á þessu ári eru hið skásta, sem sést hefur frá sjávarútvegsráðherra hér á landi, þótt Kjartan hefði átt að ganga mun lengra í takmörkun aflans. Margt af slíku, takmörkun afla og fækkun fiski- skipa, er líklegt til að verða óvinsælt um tima í þeim byggðarlögum, sem fyrst verða fyrir barðinu á þess háttar aðgerðum. Svavar Gestsson viðskiptaráðherra hefur með afstöðu sinni til skipakaupa erlendis fyrir Neskaupstað og Akranes viðhaldið þeirri pólitík, sem rikt hefur um árabil, þjóðinni til ófarnaðar. Þess er að vænta, að Kjartan Jóhannsson haldi áfram að láta þjóðarheill sitja í fyrirrúmi, úr því að hann hefur loks lagt inn á þá braut í þessu efni. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1979. /~~..... ""........... Um\ DC-10 þotur aftur á loft: Hver verður látinn borga stóra brúsann? — Freddie Laker þegar búinn að kref jast sjö milljarða sterlingspunda ogönnurflugfélögá leiðinni Flug DC—10 þotna hefur nú verið leyft aftur í Bandaríkjunum og annars staðar í veröldinni. Að lokinni þeirri miklu rahnsókn sem fram fór á öllum flugvélum af þeirri tegund verður tæplega annað sagt en hún hafi staðizt prófið. Að vísu hefur Douglas MacDonnell verksmiðjun- um verið gefinn nokkur frestur til að bæta úr ýmsum minni háttar göllum, sem flugmálayfirvöld Bandaríkjanna telja að komið hafi í ljós við skoðunina. Ákvörðun bandartskra yftrvalda að banna allt flug meöDC-iOþotum og meðfylgjandi bann annarra ríkja var síður en svo gagnrýnislaus. Strax í byrjun gagnrýndu ráðamenn ýmissa flugfélaga flug- bannið, og svo fór að flugmálayfir- völd annarra ríkja afléttu því mun fyrr en hin bandarísku. Freddie Laker, sem rekur sam- nefnt flugfélag var einn hinna skorin- orðari og taldi flugbannið hreina vitleysu og „histeríu”. Boðaði hann þegar að flugfélag hans mundi krefja viðkomandi aðila um skaðabætur. Laker beið heldur ekki boðanna eftir að bandarísk flugmálayfirvöld afléttu flugbanninu með DC—10 þotum til og frá Bandaríkjunum. í brezka blaðinu The Finiancial Times, hefur verið skýrt frá þvt, að flugfélag Lakers telji sig hafa orðið fyrir sjö milljarða sterlingspunda tjóni á meðan á banninu stóð og sé nú verið að undirbúa málshöfðun til að fá það tjón bætt. Ljóst er að fjölmörg flug- félög vinna að því sama og vilja láta höfðu þeir svikið einhvers konar drengskaparloforð sín við Flug- málastjórn Bandaríkjanna (FAA) um endurbætur á DC—10 þotunum. Er Flugmálastjórn Bandaríkjanna sek? Upplýst er að forsvarsmenn þar, gáfu Douglas McDonnell verk- smiðjunum oft frest til endurbóta á þotunum. Veruleg gagnrýni gefur komið fram á það að ekki skuli hafa verið, af hálfu eftirlitsmanna FAA, gengið ríkar eftir þvi að kröfum um úrbætur væru fullnægt i verk- smiðjunum, innan skynsamlegra tímamarkanna. Eru hin svonefndu Samtök flug- farþega í Bandaríkjunum sek? Þessi samtök sem i Bandaríkjunum eru skammstöfuð APA (Airline Pass- enger Association). Formaður þeirra James E. Dunne, átti stóran þátt í að DC—10 þoturnar voru kyrrsettar. Fékk fyrir því dómsúr- skurð og að líkindum kom hann (á einum vissum timapunkti), þegar bandarísk flugmálayfirvöld voru enn tvístígandi um hvað gera ætti, i veg fyrir að þoturnar flygju áfram. Samtök flugfarþega, hvaðer það? Slík samtök eru ekki til á íslandi og fáum sögum hefur farið af slíkum samtökum í öðrum löndum, þar til hin bandarísku gerðu svo eftirminni- lega vart við sig í lok maí sl. í erlendum fréttum DB í dag á bls. 6 er frásögn um hin bandarísku sant- tök. Eru þau höfð eftir timariti, sem gefið er út af sjálfstæðu fyrirtæki þar i landi og fjallar einvörðungu um flugmál. þann sem á sök á því að bann var sett á flug DC—10 þotnanna greiða skað- ann. Einnig er fullljóst að þar verður um að ræða himinháar upphæðir og enginn aðili, sem tilbúinn verður til að greiða þær án málalenginga, máls- höfðunar og úrskurða dómstóla. En hvern á að lögsækja? Hver ber ábygð á því, að DC—10 þoturnar ein mikilvægasta flugvélategund í far- þegaflugi nútímans var kyrrsett á flugvöllum um víða veröld? Þessar spurningar einar eiga vafalaust eftir að vefjast fyrir mörgum og verða mikið deiluefni. Eru Douglas McDonnell flugvéla- verksmiðjurnar framleiðendur DC— 10 þotnanna sekar? Upplýst er að forráðamenn verksmiðjanna hafa hvað eftir annað látið undir höfuð leggjast, að láta framkvæma ýmsar þær endurbætur á göllum sem i Ijós höfðu komið á þotunum. Einnig

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.