Dagblaðið - 20.07.1979, Síða 14
18
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1979.
Erlendu vinsældalistarnir
BachlagBeach
Boyserkomið
áblað
röð fjögurra vinsælustu laganna
ekkert breytzt frá því síðast. Tvö ný
lög eru þó á topp tíu. Dr. Hook er í
sjöunda sæti með When You’re In
Love With A Beautiful Woman og í
tíunda sæti er lagið Gold sem John
Stewart flyíur. John þessi söng fyrr á
árum með Kingston tríóinu, en hefur
litt verið áberandi hin síðari ár. Þó
hefur hann að jafnaði sent reglulega
frá sér plötur, en þær hafa hlotið
lítinn hljómgrunn.
í efsta sæti þýzka vinsældalistans
er lag sem nýtur sívaxandi vinsælda
vestanhafs. Þetta er lagið Born To
Be Alive n eð Patrick Hernandez.
Þetta er hi .ssilegt diskólag, sem var í
efsta sæti bandaríska diskólistans í
síðustu viku.
Janet Kay, lítt þekkt söngkona,
er komin í efsta sæti brezka
vinsældalistans. Lag hennar, Silly
Games, hefur smám saman verið að
þoka sér upp' á við og var um
síðustu helgi í öðru sæti.
Það lag sem siglir hraðast upp á
við í Englandi þessa vikuna er með
gömlu kempunum í Beach Boys. Það
er lagið Lady Lynda, eitt bezta lagið
á nýjustu breiðskífu hljómsveit-
arinnar, Light Album. Beach Boys
byggja laglínuna á þekktu verki eftir
Johann Sebastian Bach. Slá þú hjart-
ans hörpustrengi nefnist það á
islenzku.
í Bandaríkjunum verða litlar
breytingar frá því í síðustu viku á tíu
vinsælustu lögunum. Til dæmis hefur
Vinsælustu litlu plöturnar
ENGLAND
1. (2) SILLYGAMES..................JanetKay
2. (1) ARE „FRIENDS" ELECTRIC....Tubeway Army
3. ( 4 ) C' MON EVERYBODY .........Sex Pistols
4. (7) GOODTIMES........................Chic
5. ( 5 ) NIGHT OWL................Garry Rafferty
6. (10) BABYLON'S BL,<’ *wNG............Ruts
7. ( 6) LIGHT MY FIRE.............Amii Stewart
8. (3) UPTHEJUNCTION.................Squeeze
9. (23) LADY LYNDA.................Beach Boys
10. (13) GIRLSTALK...............DVE Edmunds
BANDARÍKIN
1. (1 ) BADGIRLS................Öonna Summer
2. ( 2) RING MY BELL................AnKa Ward
3. ( 3) HOT STUFF................Donna Summer
4. (4) I WANTYOUTO WANTME.........CheapTrick
5. (6) SHE BELIEVESIN ME..........Kenny Rogers
6. (5 ) YOU TAKE MY BREATH AWAY.....Rex Smith
7. (11) WHEN YOU' REIN LOVE WITH A BEAUTIFUL WOMAN
................................Dr. Hook.
8. ( 8 ) SHINE A LITTLE LOVE............ELO
9. (10) MAKIN'IT................David Naughton
10. (13) GOLD......................JohnStewart
HOLLAND
1. (1) THEME FROM DEER HUNTER.......Shadows
2. (2) REUNITED..............PeachesAndHerb
3. (3) WEEKEND LOVE.............Golden Earring
4. (5) I WAS MADE FOR LOVING YOU........Kiss
5. ( 7 ) LAVENDER BLUE............Mac Kissoon
6. (11) 'JUST WHEN I NEEDED YOU MOST .. Randy Vanwarmer
7. (10) RINGMYBELL................AnitaWard
8. (4) BRIGHT EYES...............Art Garfunkel
9. (9) TELLITALL ABOUTBOYS.........Dolly Dots
10. ( 6) DANCE AWAY THE HEARTACHES..Roxy Music
HONG KONG
1. (1 ) CAN YOU READ MY MIND..Maureen McGovern
2. ( 3) BOOMERANG...................Celi Bee
3. ( 2 ) BAD GIRLS...............Donna Summer
4. (4) LOGICALSONG................Supertramp
5. (9) GEORGY PORGY.....................Toto
6. (10) MUSICBOX.........Evelyn „Champagne" King
7. ( 5) IF LOVING YOUIS WRONG...Barbara Mandrell
8. (20) UPINTHEROOF...............JamesTaylor
9. (8) SAY MABE...................Neil Diamond
10. (6) RINGMYBELL.................AnitaWard
VESTUR-ÞÝZKALAND
1. (1) BORNTOBEALIVE...........Patrick Hernandez
2. ( 4) DOES YOUR MOTHER KNOW......... ABBA
3. ( 2) SOME GIRLS.....................Racey
4. (3) HEARTOFGLASS..................Blondie
5. (5) SAVEME..........................Clout
6. ( 7) IWAS MADE FOR DANCING......Leif Garrett
7. (8 ) SHALLI DO IT............Leslie McKeown
8. (6) TRAGEDY.......................Bee Gees
g ( 9) CHIQUITITA.......................ABBA
10. (11) HEREISTAND.................. Teens
Nokkrir hjálparmenn Gláms og Skráms, sem sjá um að platan verði sem bezt gerð úr garði. Upptökustjórarnir Ragn-
hildur Gisladóttir og Þórhailur Sigurðsson, Tony Cook upptökumaður og Halli og Laddi, sem hjálpa til við söng. Tony
upptökumaður liggur undir grun að hafa tekið upp vélina i bílnum. DB-mynd: Árni Páll.
Ný íslenzk barnaplata erísmíðum
Glámur og Skrámur
skreppa ígeimferö
Glámur og Skrámur, hesturinn
Faxi og kýrin Ljómalind eru aðalper-
sónurnar á nýrri hljómplötu sem
verið er að vinna að þessa dagana.
Platan, sem er ævintýri með
söngvum, er að sjálfsögðu ætluð
börnum. Flytjendur eru dágóður
hópur af þekktustu hljóðfæra-
leikurum landsins. Upptökustjórn er
í höndum þeirra Þórhalls
Sigurðssonar og Ragnhildar Gísla-
dóttur söngkonu. Þau hafa ekki áður.
setið við stjórnvölinn við plötuupp-
tökur. Jafnframt semja þau alla
tónlistina á plötunni.
Ævintýrið sem tengir tónlistina er
eftir Andrés Indriðason. Þar segir frá
því er vinirnir Glámur og Skrámur
fara i geimferð með hestinum Faxa,
sem reyndar er blár á litinn. Farar-
tæki þeirra er nokkuð óvenjulegt,
ekki fljúgandi diskur, heldur fljúg-
andi bolli.
Sagan greinir síðan frá ævintýrum
Gláms, Skráms og Faxa. Ýmislegt
furðulegt drifur á daga þeirra. Til
dæmis hitta þeir kúna Ljómalind,
sem getur ekki á heilli sér tekið því
hún kann ekki að dansa. Glámur og
Skrámur leysa úr þeim vanda og
kenna kúnni diskódans.
Glámur og Skrámur urðu fyrst
þekktir er þeir komu fram í
Stundinni okkar í sjónvarpinu fyrir
nokkrum árum. Þar brá einnig Faxa
bláhesti fyrir, svo og henni Ljóma-
lind.
Þaðer Róbert Amfinnsson leikari
sem les ævintýri Gláms og Skráms
inn á plötuna. Útgefandi hennar er
Hljómplötuútgáfan hf.
-ÁT-
McCartney
og Wings
leikaí
kvikmynd
Paui McCartney og fjölskylda
munu þrátt snúa sér að kvik-
myndaleik. Fjölskyldan ásamt
hljómsveitinni Wings hyggst leika
aðalhlutvefkin i kvikmyndinni
Band On The Run, sem jafnframt
er titillinn af einni af þekktustu
plötum hljómsveitarinar.
Kvikmyndin fjallar um Wings
á hljómleikaferðalagi. Á miðju
ferðalaginu stingur aðalstjarna
hljómsveitarinnar (Paul) af til að
stofna nýja hljómsveit. Þó að
þráðurinn minni í fljótu bragði
dálítið á það er Paul yfirgaf
Beatles og stofnaði Wings síðar,
segir hann kvikmyndina ekki vera
byggða á neinum atburðum úr lífi
sínu.
Handrit Band On The Run er
eftir William Russel. Hann var
einnig höfundur söngleiksins,
John, Paul, George, Ringo og
Bert, sem naut mikilla vinsælda í
Englandi fyrir nokkru.
Úr AKTUELT.
Rafmagnsljós ELO
Myndaruglingur varð i umsögninni um nýjustu plötu hljómsveitarinnar
Electric Light Orchestra á miðvikudaginn var. Þar átti þessi mynd af ELO á
hljómleikum að birtast, en þess i stað fengum við að sjá Bev Bevan trommu-
leikara að störfum. — Það er annars um sviðsbúnað Electric Light Orchestra
að segja að hann er eftirliking af geimskipi og er fimm lestir að þyngd. Sviðs-
búnaður þessi, sem er skreyttur Ijóskösturum í bak og fyrir, var fyrst tekinn i
notkun á hljómleikaferðalagi ELO i fyrra. Þeir sem séð hafa hljómsveitina á
sviði segja að hún sé engu öðru lik, slík eru tilþrifin þegar allt er komið i gang
og öll Ijós kveikt.
Auk þess að nota venjulega Ijóskastara til að auka áhrif hljómleikanna notar
ELO lasergeisla. í enda hvers konserts leggst mikið reykský yfir geimskipið og
lasergeislarnir lýsa í gegnum það. Electric Light Orchestra ber því sannarlega
nafn með rentu.