Dagblaðið - 20.07.1979, Síða 23
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1979.
Útvarp
Sjónvarp
Hrollvekjupúkk
D
27
Útvarp
kl.
20,00:
„Púkkið verður tileinkað hrollvekj-
um í kvöld,” sagði annar stjómandinn,
Sigrún Valbergsdóttir, sem er jafn-
framt kennari í leiklistarskólanum.
Hinn stjórnandinn er Karl Ágúst Úlfs-
son og er hann nemandi í sama skóla.
„Egill Egilsson rithöfundur kemur í
þáttinn og ætlar að ræða um hvaða
áhrif hrollvekjur hafa á fólk og við ætl-
um að spUa tónlist sem hefur Franken-
stein eða Drakúla sem yrkisefni.
En við komumst að því þegar við lit-
um á plötusafn útvarpsins að það eru
heilmargar plötur sem eru með hryll-
ingslögum. T.d. sáum við eina sem hét
Frankenstein Twist og aðra sem hét
Drakúla-discó.
Vjð munum síðan lesa sögu, auðvit-
að hryliingssögu, eftir nemanda í
Hagaskóla og einnig verður fluttur
smápistill um sögu hroUvekjunnar.
Að síðustu verður svo rætt við fólk
sem við hittum á hryllingsmynd, og er
það m.a. spurt hvers vegna það fer í bíó
til að horfa á hrollvekju og hvað það
fái út úr því,” sagði Sigrún að lokum
en þáttur þeirra er íjörutiu mínútna
langur.
- ELA
-K
FOSTUDAGSKVÖLDIO 20.JÍILÍ JtJ
wTONfl BÆ viff MIKLUBRAUT.4C4C
Nýjasta diskó- og popptónlistín ki. 21.30—00.30 —
„Lightshow" o.l1. — Diskótekiö Dísa — Nýjar
poppkvikmyndir frá Karnabæ og Fáikanum sýndar
kl. 20.30-21.30.
Aldurstakmark, fædd '63 og fyrr.
NAFNSKÍRTEINI
AÐGÖNGUMIUAVERO 2000____________________***
Stjómendur Púkks, Sigrún Valbergsdóttir og Karl Ágúst Úlfsson.
22 feta hraðbátur af
Flugfiskgerð ti/sölu
Dísilvél og Volvo-Penta
Aquamatic drif. Samskonar
bátur varð sigurvegari í sjóralli
DB og Snarfara í ár og í fyrra.
Uppl. í síma 53755 og 52774 á
kvöldin og um helgar.
NYTTISLENZKT
SJÓNVARPSLEIKRIT
Margir hafa eflaust heyrt að auglýs,
hefur verið eftir 13 ára stúlku, í útvarp-
inu, til að leika i sjónvarpsleikriti.
Þetta sjónvarpsleikrit, sem er eftir
Guðlaug Arason, er nú i undirbúnings-
vinnu hjá sjónvarpinu að sögn leik-
stjórans Lárusar Óskarssonar. Aðeins
hefur verið ákveðið með einn leikara
i aðalhlutverk, Þráin Karlsson, sem
hefur leikið með Alþýðuleikhúsinu og
Leikfélagi Akureyrar.
Leikritið fjallar um fjölskyldu á
Reykjavíkursvæðinu maðurinn er sjó-
maður á togara og eftir heiftarlegt
rifrildi milli hjónanna er ákveðið að
skilja. Þó koma inn i söguna miklar
breytingar, og óvæntir atburðir eiga sér
stað. Hjónin eiga tvær dætur, 10 og 13
ára, og lýsir leikritið bæði heimilis- og
sjómannslífinu.
Leikritið verður bæði tekið upp I
stúdiói og úti á rúmsjó, og er áætlað að
byrjað verði á upptökum í ágúst.
Verður þetta fyrsta islenzka leikritið
sem tekið er upp i lit.
Eins og áður er sagt var auglýst eftir
13 ára stúlku til að leika í leikritinu og
hafa nú þegar yfir áttatíu stúlkur sótt
um. Enn hefur þó ekki verið valið í
hlutverkið.
— eftir Guðlaug Arason rithöfund
Þessi bíll er til sölu
FIAT1400, ÁRG. 1957.
Sennilega eini
bíllinn
afþessari gerð
á landinu.
Upplýsingar f síma 98—1376.
iií.
GRÖDRARSTÖDIN
SOGA' VEGUR
BUSTADA VEGUR
Guðlaugur Arason, höfundur að nýju íslenzku sjónvarps leikríti.
'MorK Vlííú'ó
Ekki vissi Lárus hvenær leikritið yrði
frumsýnt en vafalaust verður það seint
i haust eða í byrjun næsta árs.
Sjónvarpið hélt í vetur námskeið
fyrir höfunda og voru sex verk valin til
sýningar. Þetta leikrit Guðlaugs er það
fyrsta sem tekið er upp. Tvö önnur
leikrit verða tekin upp í haust, annað
eftir Steinunni Sigurðardóttur og hitt
eftir Davíð Oddsson. -ELA
IWWWEf
STJÖRNUGRÓF 18 SÍMI 84550
Býóur úrval garðplantna
og skrauttunná.
Opi*
virka daga 9-12 og 13-18
sunnudaga lokað
Sendum um allt land.
Sækiö sumariö til okkar og
flytjió þaö meö ykkur heim.
Útvarpkl. 20,50:
SIÐARIHALFLEIKUR
KA0GÍA
SJÓSKÍÐI
Póstsendum
Glæsibæ—Sími 30350 -J
— lýsingfrá
Akureyri
í kvöld kl. 20.50 verður Hermann
Gunnarsson með útvarpslýsingu frá
leik KA og Akraness, á grasvellinum á
Akureyri. Hlutverk þessara liða hefur
verið ólikt undanfarin ár. Akranes varð
íslandsmeistari 1977 og bikarmeistari í
fyrra. KA á hinn bóginn hefur verið að
vinna sig upp á við allt frá því að Akur-
eyrarliðin ákváðu að keppa sitt i hvoru
lagi. Það var vorið 1975 að KA og Þór*
hófu keppni i 3. deild. Bæði liðin unnu
sig upp í 2. deild á sama ári og haustið
1976 vann Þór sér rétt til að leika í 1.
deildinni. Sumarið 1977 féll Þór niður i
1. deildinni en KA tók sæti erkifjend-
anna. Sl. sumar hafnaði KA í 8. sæti í
I. deild og slapp mjög naumlega við
fall.
KA er í 9. sæti í 1. deildinni nú þegar
9 umferðum er lokið í íslandsmótinu.
Akurnesingar eru hins vegar í 5. sæti.
Munurinn á liðunum er aðeins 4 stig og
með sigri í kvöld myndi KA nálgast
toppliðin. Akranes vann fyrri leik lið-
anna í sumar 3-2. Á siðasta ári vann
Akranes einnig 3-2 á Akranesi og síðan
5-0 á Akureyri. Þá léku liðin einnig í
bikarkeppninni i fyrra á Akranesi og þá
sigruðu Skagamenn einnig, 3-2. Það
verður því að telja Akumesinga líklegri
sigurvegara i leiknum en þess bera að
gæta að lið KA er mun betra og heil-
steyptara en það var í fyrra. Hvað sem
því líður ætti leikurinn að geta orðið
góð skemmtun fyrir hlustendur.
- ELA / SSv.
Hermann Gunnarsson lýsir síðari hálf-
leik í lelk KA og ÍA frá Akureyri i
kvöld.
L.
28611
28611
Verzlunarhusnæði í Reykjavík.
Iðnaðarhúsnæði.
1140 ferm. iðnaðar- eða verzlunarhúsnæði á jarðhæð, vel
staðsett. Húsnæðið skiptist í 3 sali, kaffístofur, verkstjóra-
herbergi og 3 snyrtíleg skrifstofuherbergi. — Möguleikar
eru á að skipta húsnæðinu (640 ferm og 500 ferm).
Tvennar innkeyrsludyr.
Verzlunarhúsnæði I Kópavogi.
100 ferm verzlunarhúsnæði við Auðbrekku á 1. hæð. Verð
og útborgun tílboð.
HÚS & EIGNIR
BANKASTRÆTI 6 - SÍMI28611.
Lúðvík Gizurarson hrl. Sími 28611.