Dagblaðið - 20.07.1979, Qupperneq 24

Dagblaðið - 20.07.1979, Qupperneq 24
■ 9 STORKOSTLEGR ERFID- LEIKAH FRAMUNPflN —segir Eggert G. Þorsteinsson forstjóri stof nunarinnar „Það eru stórkostlegir erfiðleikar framundan ef ekki verður gripið til aðgerða alveg á næstunni,” sagði Eggert G. Þorsteinsson, forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, í sam- tali við DB i morgun um greiðslu-: vanda stofnunarinnar. Eggert G. Þorsteinsson kvað sífellt hafa sigið á ógæfuhlið Trygginga- stofnunarinnar frá ársbyrjun 1972, en til þess tima mætti rekja núver- andi fjárhagsvanda. Starfshópur hefur um skeið unnið að úttekt á greiðsluvandanum og skilaði hann áliti í apríl. Fjármála- ráðherra hefur síðan haft niðurstöð- urnar til athugunar og einn fundur verið haldinn um málið. Forstjóri Tryggingastofnunarinnar vildi ekki staðfesta orðróm um að greiðsluþrot blasi við i september. Flann kvaðst ekki telja viðeigandi að fjalla um niðurstöður nefndarinnar meðan málið væri í höndum ráðherra sem ynni aðlausnþess. -GM - fijálst, úháð daghlað FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ1979. ÓskarVigfússonum hækkun olfugjalds: „Mun rýra kjör sjómanna” ,,Ég er auðvitað andvígur olíugjaldi utan skipta, enda er nú svo komið að utan skipta eru tekin heil 25% af fisk- verði. Þetta mun rýra kjör sjómanna og veikja enn stöðu þeirra í þeirri við- leitni að halda í við aðra hópa launa- fólks,” sagði Óskar Vigfússon, for- maður Sjómannasambands íslands, um þá hlið oliuráðstafana ríkis- stjómarinnar er snýr að sjómönnum. Búizt er við bráðabirgðalögum um 8% hækkun á oliugjaldi og olíugjald verður þvi alls 15%. Af 8%-khækkun- inni koma 3% til skipta og kaup- hækkun til sjómanna nemur þvi 3%. „Ég hef áður sagt að olíumálið sé vandamál allrar þjóðarinnar, án þess að gera lítið úr vandanum. Ríkis- stjórnin lofaði á sínum tíma að ekki skyldi koma til hækkunar á olíu til fiskiskipa. Ég hélt að ég gæti treyst því, en nú blasir við að lítið verður úr efndum hjá stjórninni.” -ARH HAUKURNÁÐI ÁFANGANUM Haukur Angantýsson sigraði Bret- ann Britton í síðustu umferð Phila- delfiuskákmótsins í Bandarikjunum og dugði það honum til að ná áfanga í alþjóðlegan meistaratitil. Hefur Haukur nú hlotið tvo áfanga af þremur. Haukur hlaut 6,5 vinninga á mótinu en sigurvegari varð rúmenski stórmeistarinn Georghiu. Hann hlau: 8 vinninga. Margeir Pétursson hlaut 6 vinninga. Kemur þessi ágæti árangur Hauks í kjölfar sigurs hans á World Open skákmótinu fyrir nokkru. -GAJ- HMsveina: Jóhanní 5—10. sæti Jóhann Hjartarson sigraði Júgóslavann Brasko í siðustu umferð heimsmeistaramóts sveina í skák sem staðið'nefur undanfarna daga í Belfort í Frakklandi. f 10. umferð gerði Jóhann jafntefli við Heaven frá Wales. Hlaut hann því 7 vinninga og hafnaði í 5.-10. sæti af 44 keppendum. Tempone, Argentínu, hlaut 8,5 vinninga. Short, Englandi, á möguleika á að ná honum að vinningum. Hefur 7,5 vinninga og sennilega unna biðskák gegn Benjamin frá Bandaríkjunum. Morovic, Chile, hlaut 8 vinninga og Milos, Brasilíu, 7,5. Jafnir Jóhanni með 7 vinninga eru Elvest, Sovét- ríkjunum, Greenfeld, ísrael, Barbulesku, Búlgaríu, og Benjamin, Bandaríkjunum, þ.e. ef hann tapar biðskákinni gegn Short. Athygli vekur slakur árangur austantjaldsmanna sem oftast hafa einokað efstu sætin á skákmótum. -GAJ- „Það má búast við vandræðum” T í Bílastopp í tvær mínútur í gær. Mikil þátttaka — segir Sveinn Oddgeirsson ,,Þær fréttir sem við höfum fengið, sem eru reyndar bara frá höfuðborgarsvæðinu, benda til þess að mikil þátttaka hafi verið,” sagði Sveinn Oddgeirsson framkvæmda- stjóri FÍB i morgun. Samstarfsnefnd ökumanna hvatti þá í gær til þess að stöðva bíla sina í tvær mínútur til að mótmæla síðustu bensínhækkun. „Fjölfarnar götur eins og Kringlumýrarbraut, Hafnarfjarðar- vegur og göturnar niðri i bæ voru alveg þéttsetnar kyrrstæðum bílum. Við höfum ekki ennþá fengið fréttir utan af landi en við búumst ekki við síðri þátttöku þar." —Á aðgera eitthvað meira í bráð? „Nei, nú hvílum við okkur að sinni. Við vonum að við þurfum ekki að grípa til frekari aðgerða en það fer auðvitað alveg eftir stjómvöldum,” sagðiSveinn. -DS.^ —segir Stefán Gíslason, í stjóm Loftieiða flugmanna Allir bllar stopp um háannatimann. Myndina tók Bjarnleifur við Miklatorg kl. 17.15! gær. „Við eigum inni milli 150 og 200 frídaga frá því í júní og júlí og það er óhætt að segja, að það verður erfitt að fá menn til að vinna á sínum frí- dögum með uppsagnarbréf í vasanum,” sagði Stefán Gislason í stjórn Loftleiðaflugmanna í samtali við DB í morgun, er DB spurði hann, hvort Loftleiðaflugmenn hefðu i hyggju að stöðva flug með því að taka nú út þá frídaga, sem þeir eiga inni í mótmælaskyni við uppsagnir Loftleiðaflugmanna. „Við ræddum þessi mál á stjórnarfundi í gærkvöld og höfum tekið okkar ákvörðun en eigum eftir að tilkynna hana stjóm Flugleiða. Við höfum í sjálfu sér engan áhuga á að stöðva flugið. Við vildum finna aðra lausn á þessu en þeir virðast ekki hafa áhuga. Þeir eru ekki til viðræðu un lausn,” sagði Stefán og sagði að búast mætti við einhverjum vandræðum, en vildi ekki segja, hvaða leið yrði farin. -GAJ-, Alfreð Elfasson, Sigurður Helgason og Orn O. Johnson koma út af stjórnarfundinum í gær. Fundurinn stóð f 6 kist. Að loknum fundi brá svo við, að fundarmenn voru þögulir sem gröfin. DB-myndir Arni Páll. Enginn ágreiningur innan stjómar Flugleiða sagði Öm 0. Johnson, að loknum stjómarfundi í gær „Það er ekki um neinn ágreining að ræða innan stjórnar Flugleiða og þar er engin valdabarátta heldur,” sagði Örn O. Johnson, stjórnarformaður Flug- leiða er hann kom út af 6 klukkustunda löngum stjórnarfundi fyrirtækisins i gær. Á fundinum var eftirfarandi ályktun samþykkt: „í tilefni af blaða- skrifum undanfarna daga um málefni Flugleiða hf. lýsir stjórn félagsins yfir fyllsta stuðningi við forstjóra félagsins, Sigurð Helgason, í vandasömu starfi.” Annars voru stjórnarmenn þögulir sem gröfin er þeir komu út af stjórnar- fundinum. Sigurður Helgason vildi ekkert við blaðamann ræða og aðspurður, hver væri æðsti maður bíla- leigu Loftleiða sagðist Alfreð Elíasson ekkert geta um það sagt og vildi ekkert um fundinn ræða. Örn O. Johnson hefur hins vegar lýst yfir þvi að frá og með 1. júní sl. hafi Sigurður Helgason tekið við stjórn á öllum málefnum Flugleiða, og mun bílaleigan þar ekki undanskilin. Örn sagði að rekstrarerfiðleikar fyrir- tækisins hefðu vissulega sett mark sitt á fundinn, en vildi ekki ræða hann frekar og vísaði á hina fáorðu yfir- lýsingu sem fundurinn samþykkti. -GAJ-

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.