Dagblaðið - 02.08.1979, Side 15

Dagblaðið - 02.08.1979, Side 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1979. tróttir íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir dahlaupi, en hann setti nýtt heimsmet i sinum aldurs- ARFRAM lÓlafssongerðiútum 8. mínútu aðþrengdur og skot hans fór framhjá. Eftir þetta gekk boltinn lengst af mótherja á milli í hálf- leiknum. Síðari hálfleikurinn var mjög svipaður þeim fyrri. Fram-liðið fékk þó öllu hættulegri tæki- færi en tókst ekki að nýta neitt þeirra. Á 55. mínútu átti Gunnar Orrason skalla af markteig rétt yfir mark Þróttar og á 62. mínútu hefur Guðmundur Steinsson, sóknarmaður Fram sennilega forðað marki fyrir Þrótt er hann varð fyrir skallabolta Marteins við marklínu Þróttar. Fátt markvert gerðist nú þar til á 85. mínútu að nokkrir Þróttarar stóðu nánast fyrir opnu marki Fram en mistókst öllum að skora. Mínútu síðar komst Ásgeir Elíasson einn í gegnum vörn Þrótt- ar en skaut framhjá. Sigurmarkið Þróttar kom síðan á 88. mínútu eins og áður segir. Páll Ólafsson hafði verið einna atkvæðamestur Þróttara i leiknum og fór því vel á því að hann gerði markið. Hjá Fram var meðalmennskan ríkjandi eins og hjá Þrótti og erfitt er að nefna einn leikmann öðrum fremri. Raunar er varla rétt að tala um meðalmennsku því bæði liðin léku langt undir meðallagi og eiga að geta langtum meira. Það var helzt að Gunnar Orrason, Fram sem kom inn á i siðari hálfleik sýndi góða takta. Þar er greinilega efnilegur leik- maður á ferð. -GAJ- ‘gaði Notth. iðurlægingu landsliðið 4-0 í æfingaleik í gærkvöld með mörkum Peter Barnes, Cyrille Regis, Alistair Brown og sjálfsmarki Lou Seng. Loks má geta þess að Sepp Maier útskrifaðist af sjúkrahúsi í gærkvöldi eftir bílslysið sem hann lenti í fyrir nokkru. Hann mun ekki geta byrjað að æfa fyrr en eftir tvo mánuði. „Stakk hann af um leið og ég heyrði f honum” —sagði hinn þrefaldi heimsmeistari, Valbjöm Þorláksson, eftir að hafa sett heimsmet í 110 metra grindahlaupi í gærkvöldi 15 D „Jú, blessaður vertu, þetta var léttur sigur,” sagði hinn þrefaldi hcimsmeist- ari Valbjörn Þorláksson í samtali við Dagblaðið í gærkvöldi eftir að hann hafði krækt sér i þriðja gullið á Heims- meistaramóti öldunga i Hannover með því að vinna 110 metra grindahlaupið á nýjum heimsmetstíma i hans aldurs- flokki, 14,84 sek. Gamla metið var 15 sek. sléttar. ,,Ég fór nú rólega af stað — bókstaf- lega labbaði fyrstu 40 metrana, en þá ihrópaði Úlfar Teitsson, fararstjóri minn, til mín: „Ætlarðu ekki að fara að hlaupa, Valbjörn?” Rétt um það leyti heyrði ég að meistarinn frá síðasta ári var kominn upp að hælunum á mér svo ég tók sprettinn og stakk hann af og hann kom i markið á 15,59 sék. — langt áeftir.” — Meiðslin i lærinu hafa ekkert háð þér í hlaupinu? ] ',,Jú, dálitið, en ég passaði mig á að fara bara rólega af stað og síðan þegar ég fann að lærið myndi ekki gefa sig tók ég sprettinn og þá var engin spurn- ing um sigurvegara í þessu hlaupi. Ég ætti meira að segja að geta komizt í 14,1—14,2 sek. með góðri æfingu, en grindurnar hérna eru lægri auk þess, sem örlítið styttra er á milli þeirra. Þetta kemur manni talsvert til góða en ég kann bara ekki alveg á þetta ennþá. — Voru það ekki mistök hjá þér að keppa ekki i fleiri greinum? „Jú, alveg áreiðanlega. Eg hefði vafalítið getað náð i ein 4—5 gull til viðbótar með því að keppa í sprett- hlaupunum — 100, 200 og 400 metrun- um — 400 metra grindahlaupinu og langstökkinu. Ég sé það núna að ég á jafngóðan ef ekki betri árangur í flest- um greinanna heldur en þær unnust á hér úti. Annars er það einkennandi hvað það hefur náðst góður árangur |í spretthlaupum og köstum hjá konun- um og flestar stelpnanna heima kæm- ust ekki með tærnar þar sem þessar fer- jtugu hafa hælana hérna.” Valbjörn vildi koma á framfæri sér- jStöku þakklæti til fararstjóra síns, |Úlfars Teitssonar, og ætti hann þakkir skildar fyrir frábæran stuðning. Val- börn kemur heim til íslands kl. 14.30 'með flugvél frá Kaupmannahöfn og er ekki að efa að það munu verða margir 'dl þess að fagna honum við komuna Hughes til Úlfanna og Charlton seldi Flanagan til Palace Liverpool seldi i gærkvöldi styrkustu stoð sína síðustu tólf árin, Emlyn Hughes, til Úlfanna fyrir um 90.000 sterlingspund. Hughes, sem ekki náði að vinna sér fast sæti i aðalliði Liver- pool sl. keppnistímabil sagði í gær- kvöldi: „Ég á a.m.k. þrjú ár eftir í 1. deildinni og þess vegna var það nauð- 'synlegt fyrir mig að skipta um félag, en það fylgir þvi mikill söknuður að yfir- gefa Liverpool.” Þrátt fyrir að geta ekki unnið sér fast sæti í Liverpoolliðinu var Hughes alltaf I náðinni hjá Ron Greenwood, einvaldi enska landsliðsins, og t.d. var Hughes talinn bezti leikmaður enska liðsins i landsleiknum gegn Svíum fyrr í sumar í Stokkhólmi. Ekki er að efa að Hughes mun verða Úlfunum mikill styrkur í hinni hörðu baráttu 1. deildar í vetur. Þá var Mick Flanagan — „hit me” .— seldur frá Charlton til Crystal Palace fyrir 600.000 pund í gærkvöld. iFlanagan var nær kominn til Man- chester fyrir skömmu fyrir 750.000 pund en á síðustu stundu hljóp snurða á þráðinn og City hætti við kaupin. Sala Flanagan vakti mun minni athygli en sala Hughes þrátt fyrir að um nær 7- falt hærri upphæð væri að ræða. Flanagan lenti í vetur í údstöðum við félag sitt eftir að hann og Derek Hales, félagi hans hjá Charlton, lentu i slags- 'málum í miðjum leik. Flanagan slapp ódýrt frá þessum slagsmálum í byrjun og skuldinni var skellt á Hales, en síðan var málið tekið upp og kom þá í ljós hver átti sökina. Flanagan er 25 ára gamall og hefur mörg undanfarin ár jverið aðalmarkaskorari Charlton. FH vaim Magna FH komst í krappan dans á Grenivík í gærkvöldi er liðið lék við Magna. FH sigraði að vísu 4-2, en sigurinn var ekki innsiglaður fyrr en á siðustu mínútum leiksins. Magni náði forystunni með marki Hrings Hreinssonar á 28. mínútu en þeir Pálmi Jónsson og Helgi Ragn- arsson komu FH yfir fyrir hlé. Magni jafnaði metin með marki Þorsteins Þorsteinssonar þegar um 10 mínútur voru til leiksloka, en á lokakaflanum skoraði FH tvívegis. Fyrst Pálmi, sitt 9. Fram íslandsmeistari Framstúlkurnar urðu í gærkvöld Is- landsmeistarar utanhúss er þær sigruðu lið gestgjafanna, FH, 9-8 i úrslitaleikn- um i kvennaflokki. í hálfleik var staðan 6-6. Þá varð jafntefli hjá Val og Haukum, 10-10, í keppninni um 3. sætið. Þessi lið mætast að nýju kl. 18 i dag. Leikur Fram og FH var oft á tíðum mjög vel leikinn og einkenndist af góðum varnarleik beggja liða og að baki sterkum vörnum vörðu þær Gyða í FH markinu og stalla hennar, Kol- brún í marki Fram, af stakri prýði allan tímann. Fram byrjaði betur og hafði tök á að ná öruggri forystu strax í upphafi en Guðriður Guðjónsdóttír klúðraði tveimur vítum í röð þegar staðan var I- 1. Fyrst skaut hún í stöng og síðan varði Gyða skotv hennar mjög laglega. FH komst yfir 3-2 og síðan 4-3, en síðan ekki söguna meir. Fram náði að jafna og í síðari hálfleik hafði Fram undir- tökin allan tímann án þess nokkurn tíma að ná afgerandi forystu. Þegar skammt var til leiksloka varði Kolbrún víti frá Katrínu Danivalsdóttur mjög glæsilega og var það leiðinlegt fyrir Katrinu þvi hún var að öðrum ólöstuð- um bezt í liði FH. Þrátt fyrir ör- væntingarfullar tilraunir tókst FH ekki að jafna metin og Fram stóð því uppi sem sigurvegari í lokin. Hjá Fram varði Kolbrún mjög vel og átti einna stærstan þáttinn í sigrinum. Guðríður var eitthvað úr formi en Oddný bætti það upp með miklum krafti. Þá átd Steinunn góðan leik. Sem fyrr sagði var Katrín bezt hjá FH, en þær Kristjana, Gyða í markinu og Hildur áttu allar ágædsleik. Úrslitaleikurinn í karlaflokki fer fram kl. 20 í kvöld og eigast þar við Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar. Þau sýndu áberandi mestan stöðug- leika í riðlakeppninni og fer því vel á aö þau leiki saman til úrslita. FH hefut* oftast allra liða orðið meistari utanhúss en Haukar unnu í fyrra og eiga tidlinn að verja. Búast má við fjölmenni á leik- inn í kvöld en takmörkuð aðstaða er fyriráhorfendur. Að leikjunum í kvöld loknum verður lokahóf í Snekkjunni í Hafnarfirði og verða þar veitt verðlaun fyrir módð. M.a. munu verða veitt verðlaun bezta markverðinum, sóknar- og varnarleik- manni bæði í karla- og kvennaflokki auk þess sem sigurliðin munu fá verð- laun sín afhent. Er þetta skemmtileg nýbreytni hjá FH að veita einstaklings- verðlaun fyrir góða frammistöðu. Þeim, sem ætla að sækja hófið í kvöld, er bent á að mæta í betri klæðn- aði en mittisjakkar og gallabuxur munu. víst ekki flokkast undir slíkt. Verða menn því að draga spariklæðin úrpússi sínu og mæta galvaskir til leiks i kvöld. mark i sumar, og þá Helgi aftur — hans 6. mark. Mark Hrings var hans 5. í sumar. I kvöld eru þrír leikir á dagskrá í annarri deildinni. ísafjörður og Selfoss leika fyrir vestan, Þróttur og Breiða- blik mætast fyrir austan á Norðfirði og Þór og Reynir leika á Akureyri. Þá eru hvorki fleiri né færri en 4 leikir í 1. deildinni í kvöld. Á Akranesi leika heimamenn við KR, í I.augardal leika Víkingar við Keflavík, Haukar leika við Val á Hvaleyrarholdnu og í Eyjum leika Vestmannaeyingar og KA frá Akureyri. Staðan í 1. deild: 11 11 II II 11 11 12 12 II 11 6 6 6 2 3 2 2 3 22-11 20-13 18-16 16-9 18-13 16-10 17-19 10 16-23 10 14-25 7 9-27 4 Islandsmeistarar Fram utanhúss eftir sigurinn gegn FH f gærkvöld. j^-1. DEILD ■ ............. DB-mynd Bj.Bj. ■1. DEILDi HVALEYRARHOLTSVÖLLUR HAUKAR - VALUR ÍKVÖLD KL: 20 HAFNFIRÐINGAR! KOMIÐ OG SJÁIÐ ÍSLANDSMEISTARA VALS ■HAUKARi

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.