Dagblaðið - 12.01.1980, Side 5

Dagblaðið - 12.01.1980, Side 5
5 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1980. Benedikt Gröndal utanríkisráðherra um Afghanistanmálið: „Ekki ástæða til að blanda ólympíu- leikunum og skák inn í þetta” — 3 umsóknir um rannsóknir sovézkra vísindamanna á íslandi liggja fyrír „Miðað við allar venjur í samskipt- um ríkja eru mótmæli íslands við inn- rásinni í Afghanistan hörð. Við vorum í hópi 40—50 þjóða er kröfðust fundar í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um málið og síðan höfum við óskað eftir frestun um óákveðinn tíma á heimsókn Zensokov, varaforsætisráðherra Sovét- ríkjanna, til íslands,” sagði Benedikt 'Gröndal utanríkisráðherra i gær. „Við fylgjumst náið með atburðum og viðbrögðum erlendis, m.a. í gegnum sendiherra okkar. Ég tel ekki hyggilegt að blanda ólympíuleikunum inn í þetta Og sé ekki ástæðu til að draga t.d. sam- skipti okkar við sovézka skákmenn inn i málið. Hvað samskipti á vísindasviði varðar, falla þau undir Rannsóknaráð ríkisins og menntamálaráðuneytið.” 3 umsóknir um rannsóknir sovézkra vísindamanna á íslandi í sumar liggja fyrir hjá Rannsóknaráði, að því er Vil- hjálmur Lúðvíksson, framkvæmda- stjóri ráðsins, upplýsti DB um. Umsóknirnar hafa verið sendar til vísindamanna sem standa næst verk- efnum sem sótt er um. Þau eru einkum á sviði jarð-, jarðeðlis- og steingerv- ingafræði. „Það hefur verið mikil pressa frá Sovétmönnum að senda hingað fjölda vísindamanna á hverju ári. Við höfum takmarkað veitingu leyfa og sett það skilyrði gagnvart þeim, og öðrum hlið- stæðum umsóknum, að íslendingar gætu haft gagn af rannsóknunum. Og að þær falli að okkar eigin rannsóknar- mynztri. Margir erlendir visindamenn hafa unnið mjög gott og gagnlegt starf hér. En svo hefur komið fyrir að rann- sóknarniðurstöður sem birtar hafa verið séu tóm vitleysa,” sagði Vil- hjálmur. - ARH Rafmagnstaflan skoðuð: „ENGIN LEIÐ |IR ÞESSARIIBUД — segir Anna Sveinbjömsdóttir í Sandgerði „Það er engin rafmagnstafla hér og það er alls engin leið úr þessari íbúð niður á skrifstofuna,” sagði Anna Sveinbjörnsdóttir, íbúi á efri hæð Pósthússins í Sandgerði, er hún kallaði DB-menn á sinn fund vegna fréttar blaðsins i fyrradag. Þar sagði að komið hefði i ljós við vettvangs- rannsókn, að hægt væri að komast inn í pósthúsið úr anddyri efri hæðar hússins um rafmagnstöflugat í vegg. Eina rafmagnstaflan í húsinu er að sögn önnu á vegg á milli skrifstofu stöðvarstjórans á jarðhæð og geymsluherbergis og vandséð er, hvernig þjófarnir hefðu átt að kom- ast þar í gegn. DB-menn skoðuðu efri hæð hússins undir leiðsögn Önnu í gær og þaðan virtist engin leið að komast inn á skrifstofur Pósts og sima á jarðhæðinni. Þrátt fyrir að mikið hafi verið unnið að rannsókn pósthússránsins 2. janúar er það enn óupplýst eins og ránið er framið var á sama stað í fyrra. Anna Sveinbjörnsdóttir, starfsmaður á símstöðinni i Sandgerði og ibúi á efri hæð hússins, á stigapalli framan við ibúðina. Innfellda myndin er af rafmagns- töflunni I húsinu. 1 DB-myndir: Hörður. Auðunn Hermannsson, 4 ára, kom með móður sinni á skrifstofu Hjálparstofnunar kirkjunnar um hádegisbilið I gær og af- henti söfnunarbauk. Þar með var heildarsöfnunarupphæðin komin i 122,6 milljónir króna og „heimsmetið” var jafnað. Það er Kristjana Jónsdóttir, skrifstofustjóri Hjálparstofnunarinnar, sem veitir bauknum móttöku. DB-mynd Ragnar Th. Kampútseu-söfnunin komin í 122,6 milljónir: ÓOPINBERT HEIMSMET — hver íslendingur hefur að meðaltali gefið 546 krónur Opinbert heimsmet í söfnun til hjálpar hungruðum var jafnað á jslandi í gær þegar Kampútseusöfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar komst í 122 milljónir og 600 þúsund um há- degisbilið í gær. Þar með hefur hver íslendingur gefið að meðaltali 546 krónur í þessa söfnun. Norðmenn gáfu í haust sem samsvarar nákvæmlega 546 kr. ísl. á hvern íbúa í hliðstæðri söfnun. Vakti sú söfnun mikla athygli um alla Evrópu og var talin óopinbert heimsmet. íslendingar eiga örugglega eftir að gera enn betur því söfnuninni lýkur ekki fyrr en 15. janúar og ekkert lát er á framlögum til Hjálparstofnunarinnar. Guðmundur Einarsson, fram- kvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkj- unnar sagði í samtali við DB að hjálparstarf kirkjunnar í Kampútseu gengi allt samkvæmt áætlun. Eggert Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, hefur hins vegar látið i Ijósi efasemdir um að framhald geti orðið á hjálparstarfi Rauða krossins vegna þess hve starfið gangi illa. „Það eru vissulega mörg Ijón i vegin- um,” sagði Guðmundur, „en erfiðleik- arnir eru bara til að sigrast á þiim og það hefur gengið hingað til K-tu er striðshrjáð land og engum dettur í hug að allt gangi snurðulaust.” Guðmundur vitnaði í ummæli Niels Olsens, sem er fulltrúi hjálparstofnun- arinnar i Kampútseu, sem hefur ferðazt um landið og kynnt sér ástandið. Hann segir dreifingu hjálpargagna ganga hægar en æskilegt væri en þó misfellu- laust. Hann telur mjög brýnt að ekki verði látið staðar numið við hjálpar- starfið þar sem þörfin sé mjög brýn. Eins og DB hefur áður greint frá starfar Hjálparstofnun kirkjunnar i samvinnu við brezku hjálparstofnunina Oxfam, hjálparstofnun lúthcrska heimssambandsins og kaþólsku hjálparstofnunina Karitas sem allar starfa innan Kampútseu. - GAJ Alþingi greiddi reikninginn ekki — tókum ferðakostnaðinn á okkur sem ferðakostnað innan kjördæmis Helgi Seljan alþingismaður: „Alþingi hefur ekki greitt þennan reikning, sem Bjarni Guðnason vitnar til í kjallaragrein sinni i Dagblaðinu i fyrradag,” sagði Helgi Seljan alþingis- maður í gær. í kjallaragreininni sagði Bjarni: „Tveir frambjóðendur og þingmenn urðu veðurtepptir í Rvík og komu því of seint til Egilsstaða til þess að ná til hins fræga fundar á Bakkafirði. En til þess að komast til Vopnafjarðar, þar sem framboðsfundur var sama dag, leigðu tvímenningarnir sér flugvél frá Egilsstöðum til Vopnafjarðar. Reikn- ingurinn hljóðaði upp á 90 þús. kr. og frambjóðendurnir létu skrifa þetta lítil- ræði hjá Alþingi íslendinga.” Þeir tveir þingmenn sem þarna er um rætt eru Helgi Seljan og Tómas Arna- son. Helgi sagði að ástæða þess að reikningurinn var sendur Alþingi hefði verið sú regla Alþingis að greiða þing- mönnum ferðakostnað á áfangastað í kjördæmi, sem að þessu sinni var Vopnafjörður. „Hins vegar var reikn- ingurinn hár,” sagði Helgi, „og því var strax haft samband við Friðjón Sigurðsson skrifstofustjóra Alþingis og tilkynntum við honum að við myndum ræða við hann síðar sem við og gerðum. Friðjón borgaði reikninginn heldur ekki og við urðum ásáttir um að við tækjum hann á okkur sem ferða- kostnað innan kjördæmis. Skrifstofustjóri úrskurðaði að við ættum rétt á eðlilegum ferðakostnaði frá Egilsstöðum til Vopnafjarðar, en við tókum reikninginn til baka. Ég er á því að kostnaður vegna ferðar okkar frá Egilsstöðum til Vopnafjarðar hefði átt að greiðast af Alþingi sem ferð á áfangastað í kjördæmi. Hins vegar vissum við að reikningur þessi orkaði tvímælis vegna upphæðarinnar og því var skrifstofústjórinn strax látinn vita,” sagði Helgi. - JH

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.