Dagblaðið - 12.01.1980, Side 6

Dagblaðið - 12.01.1980, Side 6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1980. 6 ----------------|---------------- Kirkjusamkeppni á Seltjamamesi: IISLENZKRIBYGGINGARUST ÆPA ALUR HVER Á ANNAN Bygginga- list Það er að mörgu leyti athyglisvert þegar efnt er til samkeppni um hönn- un á kirkjum vegna þess að sú hefð hefur skapast gegnum tíðina að i þeim endurspeglist hápunktur bygg- ingarlistar á hverjum tíma. Oftast bera kirkjurnar svip af þeim tíma er þær eru reistar á. Má þar nefna að margar evrópsku miðaldakirkjurnar eru gullkorn síns timabils eða stils, svo sem hins rómanska, gotneska eða renaissance. Við hönnun kirkna öðlast hönn- uðir eins mikið tjáningarfrelsi og frekast getur orðið við hönnun mannvirkja. Þar fá listamannshæfi- leikarnir notið sín að fullnustu og hugmyndaflugið að láta gamminn geisa. Þegar lausnir þær sem bárust í kirkjusamkeppnina á Seltjarnarnesi eru skoðaðar i þessu Ijósi vakna upp ýmsar spurningar. Hvert stefnir í ís- lenskri byggingarlist? Hver er ástæðan fyrir hinni miklu ringulreið sem þarna ríkir? Hugmyndirnar koma úr öllum áttum og stefna í allar áttir. Hönnuðir virðast vera að leita fyrir sér, finna fótfestu. Enginn einn still er ráðandi og allir æpa hver á annan. Reyndar er þetta ekki sérís- lenskt fyrirbæri, því ég hef rekist á nokkrar greinar í erlendum tímarit- um sem fjalla einmitt um þetta fyrir- bæri og er það kallað post-modern- ismi, þ.e. eins konar millibilsástand, sem fylgir á eftir hinum svokallaða modernisma, sem ýmsir telja að nú sé liðinn undir lok. Einkennist þetta tímabil af mikilli ringulreið og leit- andi byggingarlist. Einkum kemur þetta vel í Ijós hjá bandarískum arki- tektum, sem nota form og liti nokk- urn veginn hömlulaust og blanda öllu saman, gömlu og nýju. Kirkjusamkeppnin Nú er nýafstaðin fyrrnefnd sam- keppni á Seltjarnarnesi og bárust í hana 19 tillögur. Þessar tillögur höfðu flestar nokkuð til síns máls, en samt bentu ýmsir ágallar til þess að islenskir arkitektar séu ekki miklir kirkjunnar menn. Margar lausnirnar voru beinlínis lélegar og minntu einna helst á skólaverkefni. Á ég bágt með að trúa að íslenskir arkitektar geti ekki gert betur. Ástæðan er líklega sú að menn hafa ekki gefið sér nægan tíma i verkefnið, eða ekki kynnt sér nægilega vel hvernig kirkjur eru notaðar. Á þessu voru samt nokkrar undantekningar, og m.a. var verð- launatillagan greinilega ítarlega unn- in. Verðlaunatillagan Höfundur hennar er Hörður Björnsson byggingatæknifræðingur. Hugmyndin og útfærsla hennar er að mörgu leyti athyglisverð. Má segja að formið sé tvíþætt. Annars vegar er grunnmyndin byggðá sexhyrningum, og hins vegar eru þakform tenings- laga (sjá mynd). Hefur höfundi tekist að sameina þessi form á sannfærandi hátt. Á hinn bóginn er ýmsu fórnað fyrir formið. Til dæmis verða ýmis rými innanhúss annaðhvort of lítil eða of stór, eða illa staðsett, sem af- leiðing þessa. Eins valda hin an- kannalegu horn þvi að í byggingunni er ekki eitt einasta 90° rétt horn, sem stórskemmir mörg rými, sérstaklega þau minni. Má segja að það sé í grundvallaratriðum rangt að gefa sér form og laga síðan rými og þarfir eftir því. Auðvitað á að leggja fyrst niður þau rými sem gera skal ráð fyrir, tengja þau, og smíða siðan ramma utan um. Hins vegar taka menn sér oft skáldaleyfi þegar hönn- un guðshúsaáí hlut. \ Er vonandi að sóknarnefndin nái samstöðu um þessa tillögu (með viss- um breytingum), því hún var greini- lega sú besta i annars frekar lélegum hópi. Önnur og þriðju verðlaun hlutu tvær tillögur saman. Var önnur unn- in af arkitektunum Hilmari Ólafs- syni, Hrafnkeli Thorlacius og Nirði Geirdal, en hin af Jes Einari Þor- steinssyni arkitekt. Hörður Björnsson Verfllaunatillaga að kirkju, Seltjarnarnesi. „ÉG ER Á MÓTI MANNAFORRÁÐUM” — segir Ámi Bergmann sem héfur sagt lausu ritstjórastarfi á Þjóðviljanum .. lú. það er rétt. ég hef sagt upp starti mínu sem ritstjóri Þjóðvilj- ans,” sagði Árni Bergmann í gær. ,,En það þýðir ekki það að ég hætti störfum á Þjóðviljanum. Þetta er spurning um æskilega verkaskiptingu séð frá rnínu bæjarhlaði. Hér er um að ræða minar persónulegu óskir um að nýta minn tínta skynsamlegar. Ég er þannig gerður að ég er á móti mannaforráðum. Það má segja það að ég þrengi mitt vcrksvið, en ekki er endanlega ákveðið hvernig málin þróasl.” — F.r væntanleg uppstokkun á Þjóðviljanum og breytingar á rekstri i sparnaðarskyni? ,,Það eru allir sem hugleiða sparn- aðarráðstafanir á slíkum krepputím- um,” sagði Árni. — Þýðir þetta að Kjartan Ólafs- son sezt i sinn gamla ritstjórastól að nýju? Árni Bergmann: Vill láta af ritstjórastörfum og snúa sér aftur að fyrri afmörkuðu sviðum. ,,Ég get ekki sagt til um það nú sitja í stólnum í þrjá mánuði í við- hvernig málin þróast með Kjartan en bót.” ljóst er að ég er dæmdur til þess að -JH Óvíst er enn hvort Kjartan Ólafsson veröur á ný ritstjóri Þjóðviljans. Kjartan Ólafsson: r MIN EINLÆG OSK AÐ ÁRNIENDUR- SKODIHUG SINN ,,Það hefur ekki veriðrætt um það að ég taki við ritstjórastarfi á Þjóð- viljanum,” sagði Kjartan Ólafsson í gær. ,,Það hefur ekki verið leitað til mín og ég reikna ekki með því. Menn vita þó aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér. Eg tek því rólega með nýtt starf og býst við að hafa ýmsa möguleika. En það er ekkert ákveðið. En það er mín einlæg ósk að Árni Bergmann endur- skoði uppsögn sina og sitji áfram i ritstjórastól.” - JH Meðallaun hjá Sam- vinnutryggingum lægri en sagt var og Hraðfrystistöð Vestmannaeyja með4,6 milljón kr. meðallaun 1978. Nú hefurDB borizt leiðrétting frá Samvinnutryggingum og þar segir: „Vegna mistaka blaðamanns Frjálsrar verzlunar var rangt farið rneð launatölur og meðallaun sögð hafa verið 4,6 millj. Hið rétta er að launagreiðslur til starfsmanna nániu alls 327.242.000 en fjöldi starfs- manna var i árslok 101. Meðallaun eru því 3.200.000. Leiðréttist þetta hér með.” - A.St. Í siðasta Dagblaði fyrir jól var þcss getið að Fiskiðjan sf í Keflavik hefði greitt langhæst meöallaun allra Ls- lenzkra fyrirtækja. Var í þessum efn- um vísað til lista sem Frjáls verzlun birti í desemberhefti sinu. Þar kom fram að Fiskiðjan hafði að meðaltali 78 starfsmenn i sinni þjónustu 1978 og meðallaun þeirra voru 6,7 millj- ónir króna. í næstu sætum með meðallaun voru á lista Frjálsrar verzlunar Sildarvinnslan í Neskaupstað með4,9 millj. og síðan Samvinnutryggingar Skákþing Reykjavíkur hefst á sunnudaginn Skákþing Reykjavikur 1980 hefst ina er hafin og lýkur laugardag, 12. nk. sunnudag, 13. janúar, kl. 14. janúar, kl. 14—18. Keppni i ung- Teflt verður i félagsheimili Tafl- lingaflokki (14 ára og yngri) hefst féiags Reykjavikur að Grensásvegi laugardag 19. jan., kl'. 14. 46- Skákþing Reykjavíkur er með Sú breyting verður nú gerð á aðal- meiriháttar skákmótum sem haidin keppninni aö allir flokkar munu tefla eru á höfuðborgarsvæðinu. Búizt er sameiginiega i einum riðli 11 um- við góðri þátttöku i mótinu nú og ferðir eftir Monrad-kerfi. hafa allmargir landsmenn þegar Skráning þátttakenda i aðalkeppn- skráðsig til þátttöku. -GAJ TÓNKVÍSL LÁNAR MAGNARAKERFI Tónkvísl heitir hún hljóðfæra- verzlunin sem mun sjá skemmti- kröftum á væntanlegum Kampútseti- tónleikum í Austurbæjarbiói laugar- daginn 9. febrúar fyrir græjum til að koma framleiðslu sinni áleiðis í hlustir áheyrenda. Dagblaðið sagði frá hljómleikunum i frétt i fyrradag en fór rangt með nafn búðarinnar. Hjálparstofnun kirkjunnar stendur að hljómleikunum og allir aðstand- endur og þátttakendur gefa vinnu sina. Allur ágóði fer til fióttamanna- söfnunar i Kampútseu. Þursa- flokkur, Söngsveitin Kjarabót, Fræbbiarnir og Snillingarnir sjá um framleiðslu tónlistar á hljómleikun- um. -ARH

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.