Dagblaðið - 25.02.1980, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 25.02.1980, Blaðsíða 28
28 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1980. ffltekinn maöur á íslandi helði getaö hjálpaö mer.. — undir venjulegum kringumstædum, segir Viktor Kortsnoj í einkaviðtali við Dagblaðið Viðtalið við Kortsnoj tóku þau Margrét Stefánsdóttir og Guttormur Sigurðsson á Evrópuráðstefnu PROUT-hreyf ingarinnar, sem haldin var í Hannover í V-Þýzkalandi um áramótin. Spyrjandi: Hvcrnig atvikaðist það að þú kemur hingað á Proul-ráðstefn- una? Kortsnoj: Fyrir cinu ári síðan keppti ég á Filippseyjum við sovéska heims- meistarann Karpov, þá skeði það einu sinni að tveir félagar í Ananda Marga komu til mín og buðu fram hjálp sína — ókeypis, aðeins sem hugmynd. Og þau hófust síðan handa við að kenna mér jógaæfingar og hugleiðslu, þau reyndu lika að hal'a áhrif á dulsálfræðinginn sem var mjög virkur á meðan á keppninni slóð, og þeini tókst það mjög vel. Brátl tóku Rússarnir eftir því og skjótlega hófu þeir aðgerðir gegn þeim. Fyrst var þeim ekki leyft að vera í appelsinugulum fötum í keppn- issalnum, síðan voru þau rekin út úr keppnissalnum og að lokum var þeim hannað að dvelja i hótelinu þar sem ég bjó. Og þcgar stigin voru jöfn í Guttormur Margrét Sigurðsson Stefánsdóttir keppninni voru þau rekin út úr borg- inni þar sem við kepptum. Jæja, það var jú fullkominn sigur fyrir Sovét, en áhrifin sem þau (jógarnir) höfðu á hinn sovéska herramann sýna um leið andlegan kraft þeirra. Spyrjandi: Nota skákmenn í Sovét aldrei andlegar æfingar eða hug- leiðslu? Kortsnoj: Nú, Georgio var á Indlandi og eftir því sem mér skilst kynntist hann þessum hlutum en er samt eng- inn sérfræðingur sjálfur. Hann er veikari en raunverulegir jógar. Svartigaldur eða falsvísindi? Spyrjandi: Er það svo að rikisstjórn- in hafi gert einhverjar rannsóknir á dulhyggju, hugleiðslu o.s.frv.? Kortsnoj: Nú yfirgaf ég Sovétrikin l'yrir þremur og hálfu ári svo ég veit ekki hvað er um að vera þar núna cn ég veit að þeir voru að gera lilraunir á sviði dáleiðslu og þeir voru byrjaðir að kynna sér parasálfræði, enda þótt það svið sé fyrirmunað almenningi. Það er jú svarti galdur eða falsvís- indi. En í raun og veru þróuðu þeir þau af hernaðarástæðum. Það besta sem þeir eru að gera er ávallt af hern- aðarástæðum, það verður heimurinn að fá að vita. Fyrir þá eru t.d. yfir- burðir i skák mjög mikilvægir. Þeir þarfnast áróðursefnis, vegna þess að þeim mistókst að byggja upp efna- hagskerfið. Þeir þarfnast þessa áróð- urs í nútímaheimi til að sigra heiminn eða mikilvægustu hluta hans. Já, þeir þarfnast yfirburða í skák og nota öll ráð til að ná þeim yfirburðum. Þegar ég kom til Filippseyja ásamt fjórum stuðningsmönnum til að keppa við Karpov, þá vakti það furðu að Karpov hafði í upphafi 13 aðstoðar- menn. Þeir gerðu allt til að hjálpa honum. Hann var umkringdur sér- fræðingum—í læknisfræði, í sálar- fræði, í lögfræði. Hann var með fjóra skákmeistara i kringum sig auk nokkurra félaga í KGB. Góður hugleiðslu- nemandi Spyrjandi: Lærðir þú hugleiðslu til að vinna á móti dáleiðslu? Kortsnoj: Ég var góður nemandi, svo ég lærði nokkrar æfingar mjög vel og ég geri þær að sjálfsögðu enn af og lil. Þeir (jógarnir) sögðu mér að með þvi að læra hugleiðslu myndi ég ekki verða á valdi áhrifa utan frá. Spyrjandi: Finnst þér hugleiðsla auka einbeitni þina? Kortsnoj: Þessi spurning er ótíma- bær, ég yrði að gera hana almenni- lega. Spyrjandi: Hvað finnst þér um þessa ráðstefnu? Viktor Kortsnoj, landflótta rússneskur skákmaður, ræðir við Guttorm og Margréti i Hannover: „Og núna, þegar ég er að undirbúa málshöfðun á hendur FIDE, þá er hr. Ólafsson enn á móti mér ...” DB-myndir: Guttormur Sigurðsson. \ TfKUV miv BLAÐSÖLUBÖRN óskast í Stór-Reykjavík: Vesturbœ — Hlíðar — Fossvog — Kleppsholt — Laugarnes — Kópavog — Garðabœ — Hafnarfjörð. Ath.: Blöðin eru keyrð heim til ykkar seinni part miðvikudags og um leið sótt uppgjör frá síðasta blaði. SÍMI 27022 - VIKAN AFGREIÐSLA ITMV hkuv Kortsnoj: Mér hafði áður verið boðið, en hafði þá ekki lima. En ég var alltaf áhugasamur að koma á slíkt mót. Þú segir ráðstefnu, ég myndi kalla þetta námskeið til þess bara að læra og efla hæfileikana. Ég er hrifinn af þessu. Ég held að það sé mjög gagnlegt. Spyrjandi: Þar sem Ananda Marga og PROUT-hreyfingarnar eru mjög umdeildar, að minnsta kosti i stórum hluta heims, heldurðu þá að þær geti hjálpað þér til þess að fá son þinn út úr Rússlandi? Friðrik ánægður í Moskvu Kortsnoj: Nú, sjáðu til, þetta er við- kvæmt atriði. T.d. hefði tiltekinn maður á Islandi hjálpað mér undir venjulegum kringumstæðum. En hann olli mér og mörgum stuðnings- mönnum sem.hjálpuðu honum að verða forseti hins Alþjóðlega skák- sambands vonbrigðum. Þessi maður er Friðrik Ólafsson. Honum var boðið til Sovétríkjanna. Hann var mjög ánægður þegar hann var i Moskvu og þegar hann fór frá Moskvu. Ég hitti hann eftir það og hann bauð mér i bílinn til sin til að ræða málin. Það sló mig þegar hann sagði: „Þetta get ég ekki gert, þetta getum við ekki stutt.” Ég gel útskýrt fyrir þér aðstöðu mína: Fyrir nokkrum árum, áður en ég yfirgaf Sovétríkin, ræddi ég við nokkra starfsmenn og fyrrverandi ráðamenn í Alþjóðasambandinu, um hvort þeir gætu hjálpað mér. Auð- vitað lofuðu þeir mér því, en gátu svo ekki staðið við það vegna þess að i Alþjóða skáksambandinufá þeir laun frá Sovétríkjunum. Svo hvernig geta þeir þá ráðisl gegn Sovétrikjunum? Vandamálið er að Sovétríkin ráðast á mig frá mörgum hliðum. Þeir settu

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.