Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 12.03.1980, Qupperneq 6

Dagblaðið - 12.03.1980, Qupperneq 6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1980. SPRENGING 0G OLIU- SKIPIÐ SOKK A 40 SEK. —þr játíu og sjö manns saknað eftir að 122 þúsund tonna olíuskip sekkur við Af ríkuströnd Mikil sprcnging varð i spænsku oliuskipi undan strönd Vestur-Afríku i gær og sökk það nær samstundis. Aðeins hafði tekizt að bjarga fimni af fjörutiu og tveggja manna áhöfn skipsins i morgun. Tilkynning um þelta barst frá I.loyds í London. Aðeins um fjörutiu sekúndum eflir að sprengingin varð í skipinu sern hét Maria Alejandra var það horfið í djúpið. Það var 122.500 tonn að stærð. Gerðist þetta um það bil eitt hundrað mílur vestur af slouadhibou í Mauritaníu. Fimmmenningarnir sem tókst að bjarga úr sjónurn voru leknit um boið i liberiskt flutninga- skip, sem leitar nú á slysstaðnum á- santl fleiri skipum. í morgun voru nokkrar líkur á að tala þeirra sem bjargazt hefðu væri komin upp í sex, en að likindum eru þeir aðeins fimrn. Tvö liberisk flutningaskip og eitt norskt leita nú á slysstaðnum auk verksmiðjuskips og fimm fiskibáta, sem voru að veiðum er skipið sökk. Þyrla er á leiðinni á vettvang. Ekki er kunnugt um það i morgun hvort spænska oliuskipið Maria Alejandra hafi verið fullhlaðið oliu þegar slysið varð né hvert ferðinni var heitið. Skipið var i eigu spænska olíufélagsins Mar Oil og var smíðað árið 1977. Zimbabwe: r TVEIR HVITIR RÁÐHERRAR MEÐ MUGABE Erlendar fréttir REUTER i Kkkerl varð af því að fimm manna nefnd Sameinuðu þjóðanna hitli gísl- ana í bandaríska sendiráðinu í íran að máli. Fimmmenningarnir eru nú komnir til New York og munu ræða við Kurt VValdheim aðalritara Sameinuðu þjnðanna í dag. Myndin sýnir mann- fjölda fyrir utan sendiráðið i Teheran þar sem mótmælt var öllum málamiðl- unum varðandi gíslana. Roberi Mugabe hefur tilkynnl ráð- herra þá sem silja munu i stjórn hans sem tekur við völdum i Zimbabwe þegar landið fær sjálfstæði innan fárra vikna. Ráðherrarnir eru 22. Þar af sextán úr flokki Mugabes. Fjórir ráð- herrar eru úr flokki Nkomos og siðan eru tveir ráðherrarnir hvítir. Mugabe er að sjálfsögðu frjrsælis- ráðherra og auk þess halda flokksmenn hans fleslum helztu ráðherraembæll- um einsog hermála-, uianrikis-og fjár- málaráðuneytum. Alhygli vekur að Mugabe lekur sjálfur að sér hermálin og þykir það benda til að hann ælli að sjá svo um að skæruhernaður leggisl skjótl af. Joshua Nkomo fær embæili innan- rikisráðherra og er lalið að hann muni beiia sér gegn áköfustu kröfunt þeirra svartra stjórnmálamanna, sem jafnvel vilja ganga rnilli bols og höfuðs á hvíta minnihlutanum. Mugabe, forsætisráð- herrann væntanlegi, mun einnig ælla varaforsætisráðherranum og utanríkis- ráðherranum Dimon Mzenda svipað hlulverk. Hvítu mennirnir scm taka við ráð- herraembætti verða þeir David Sntilh sem verður viðskipla- og iðnaðarráð- herra og Dennis Norman landbúnaðar- ráðherra. Sovézkur togari tekinn Bandaríska slrandgæzlan lók í gær sovézkan logara fyrir að gefa rangar upplýsingar um aflamagn sitl innan bandariskrar efnahagslögsögu. Var þetia við eyna Kodiak út af Alaska- strönd. Þegar eftirlilsmenn konni um borð í togarann rnunaði 66,5 lonnuni á raunverulegum afla og þvi sem stóð í skýrslunt skipstjórans. Allt á einum stað SMIÐJUBÓN AUGLÝSIR Nú geta allir þvegið, bónað, og hreinsað bílinn innandyra eða látið okkur vinna verkið. Vanir menn. Allt á einum stað. Opið alla daga og. einnig um helgar. SMIÐJUBÓN SF., SmiAjuvegi 9 A - Sími 45340. 1X2 1X2 1X2 28. leikvika — leikir 8. marz 1980. Vinningsröð: 2X1 —X22 — X21 — X 1 X 1. Vinningur: 12 réttir — kr. 2.127.000 33005 <1/12,4/11) (Hafnarfiröi) 2. Vinningur: 11 réttir — kr. 101.200. 1546 9657 10786 34862 + 41354 Kxrufrestur er til 31. marz kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skrif- legar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og aðalskrifstofunni.1 Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Handhafar nafnlausra seðla verða að framvisa stofni eða scnda stofninnj og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir greiðslu- dag vinninga. GETRAUNIR — Iþróttamiðstöðin — REYKJAVÍK Hollywood íheimsfréttunum: Lúxusvændi eða fullur pólitíkus? —f rétt Ritzau f rá Reykjavík um vændi fyrir f ulltrúa á þingi Norðurlandaráðs var mistök, segir danska Ekstra bladet Frá Hákoni Leifssyni frétta- ritara DB í Kaupmannahöfn: Engin kynlrfstilboð á íslandi Þannig hljóðar fyrirsögn í danska blaðinu Ekslra bladel í gær. Undir- fyrirsögnin er síðan: Norðurlanda- ráðsfundur i Reykjavík i nýju Ijósi. Greinin fjallar um lúxusvændi í Reykjavík og er frásögn um það byggð á frétl frá fréltamanni Ritzau fréltastofunnar í Reykjavík. Ekslra bladet leilar þó víðar heimilda og kemur þá í Ijós að danskir fulllrúar á þingi Norðurlandaráðs og irúnaðar- menn blaðsins í Reykjavik hafa ekki orðið varir við neitl vændi. Helztu frétlirnar af gleðimálum höfuðborg- ar íslands eru af dönskum stjórn- málamanni, sem dó á dansgólfinu i diskótekinu Hollywood. Ritz.au fréttastofan virðist hins vegar hafa verið vökulli og telur sig hafa góðar heimildir fyrir lúxus- vændi i diskótekinu Hollywood sem stundað hafi verið af miklu fjöri á meðan á Norðurlandaþinginu stóð. Hafi þessi atvinnugrein verið slunduð af stúlkum úr Islands Model Forening. Grein í Ekstra bladet er annars þannig í lauslegri þýðingu: Á meðan Lisa Östergaard og K.B. Andersen (danskir stjórnmálamenn) notuðu tíniann í Reykjavik til að leysa ýmis persónuleg vandamál eins og hvort þeirra væri heimskara og latara þá var andrúmsloflið alll öðru vísi á diskóteki sögueyjunnar, Hollywood. Þar skiptust norrænir stjórnmálamen á hástemmdum yfir- lýsingum um fegurð staðarins. Hérna leyndist syndin i eldfjallinu. Eftirfarandi kom fram i frétl frá Rilzau fréttastofunni, sem þeim hefurþótt nauðsynlegt að senda: „Verðið er ofsahátl,” sögðu nokkrir ráðstefnugesta eftir heimsókn í Hollywood. Samkvreml Ritz.au í Reykjavik er um að ræða byrjun á lúxusvændi sem er iðkað af stúlkum í Islands Model Forening. Stúlkum sem á daginn sýna nýjustu tízkuvörurnar, segir Ritzau. Ekstrabladet náði tali af nokkrum dönskum stjórnmálamönnum, sem komu í diskótekið Hollywood í Reykjavík. Enginn þeirra hafði veitt því athygli að þar hefði blíða kvenna verið boðin fyrir peninga. Hins vegar hafi fólk í Hollywood orðið svolítið hissa á dönskum stjórnmálamanni, sem orðinn var mjög drukkinn. Hann var að dansa við eina sýningarstúlkuna, sem síðan nennli ekki að dansa við hann lengur. Sá danski hélt áfram að dansa einn þar til hann féll á dansgólfið dauður. Sem belur fer ekki af hjartaslagi eða neinu slíku heldur var þarna aðeins um að ræða venjulegan áfengis- dauða. Danskir gestir i Hollywood þelta kvöld segja að stjórnmálamaðurinn hafi kannski hagað sér ofurlítið ósiðsamlega án þess þó að þeir lelji það alvarlegt. Þess vegna er frétt Ritz.au mistök samkvæmt upplýsingum Ekstra bladet. Heimildir Ekstra bladet á íslandi hafaþetta aðsegja: „Það er náttúrlega á hreinu að ýmislegt skeður þegar fimm hundruð nianns koma alll í einu í svo lítið þjóðfélag. En að við hér á íslandi séum að drukkna i lúxusmellum er mjög vafasamt,” segir hin islenzka heimild Ekstra bladet. Þannig lýkur þessari frétt í danska Ekstra bladet frá íslandi.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.