Dagblaðið - 12.03.1980, Síða 8

Dagblaðið - 12.03.1980, Síða 8
8 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1980. TOYOTA-SALURINN . Nýbýlavegi 8 fí portinu). AUGLÝSIR: Toyota Cressida hardtopp, sjálfskiptur, '78, ekinn 45 þús. km, verð, 5 millj. Toyota Cressida 4ra dyra '77, ekinn 30 þús. km, verð 4,6 millj. Toyota Corona Mark II station, ekinn 3 þús. á vél, verð 3,4 millj. Toyota Corona Mark II '73, ekinn 40 þús. á vél, verð 2,7 millj. Toyota Corolla station '72, ekinn 1500 km á vél, verð 1,7 millj. Toyota Corolla cupé '73, ekinn 66 þús. km, verð 1,7 millj. Alfa Romeo 4ra dyra '77, ekinn 16 þús. km, verð 3,8 millj. VW Golf '76, ekinn 57 þús. km, verð 2,9 millj. Ath.: Okkur vantar aliar gerðiraf notuöum Toyota-bíl- um í sýningarsal. TO YOTA-SALURINN NÝBVLAVEG!8, KÓP. SÍM 144144. r °t>*ð Tilkynning um aðstöðugjald í Reykjavík Ákveöið er að innheimta í Reykjavík aðstöðu- gjald á árinu 1980 samkvæmt heimild í V. kafla laga nr. 8/1972 um tekjustofna sveitar- félaga og reglugerð nr. 81/1962 um að- stöðugjald, sbr. lög nr. 104/1973. Samkvæmt ákvörðun borgarstjórnar verður gjaldstigi eins og hér segir: A) 0,33% af rekstri fiskiskipa og flugvéla. B) 0,65% af rekstri verslunarskipa og fiskiðn- aði. C) l ,00% af hvers konar iðnaði öðrum. D) l ,30% af öðrum atvinnurekstri. Prentun og útgáfa dagblaða skal þó vera undanþegin aðstöðugjaldi. Með tilvísun til framangreindra laga og reglu- gerðar er ennfremur vakin athygli á eftirfar- andi: 1. Þeir, sem framtalsskyldir eru í Reykjavík, en hafa með höndum aðstöðugjaldsskylda starfsemi í öðrum sveitarfélögum, þurfa að senda Skattstjóranum í Reykjavík sundur- liðun, er sýni, hvað af útgjöldum þeirra er bundið þeirri starfsemi, sbr. ákvæði 8. gr. reglugerðarinnar. 2. Þeir, sem framtalsskyldir eru utan Reykja- víkur, en hafa með höndum aðstöðugjalds- skylda starfsemi í Reykjavík, þurfa að skila til skattstjórans í því umdæmi, þar sem þeir eru heimilisfastir, yfirliti um útgjöld sín vegna starfseminnar í Reykjavík. 3. Þeir, sem margþætta atvinnu reka, þannig að útgjöld þeirra teljast til fleiri en aðeins gjaldflokks samkvæmt ofangreindri gjald- skrá, þurfa að senda fullnægjandi greinar- gerð um, hvað af útgjöldunum tilheyri hverjum einstökum gjaldflokki, sbr. 7. gr. reglugerðarinnar. Framangreind gögn ber mönnum áð senda til skattstjóra eigi síðar en 15. apríl nk., en félög- um og öðrum lögaðilum eigi síðar en 31. maí nk. Að öðrum kosti verður aðstöðugjaldið, svo og skipting í gjaldflokka, áætlað eða aðilum gert að greiða aðstöðugjald af öllum útgjöld- um samkv. þeim gjaldflokki, sem hæstur er. Reykjavík 10. marz 1980, Skattstjórinn í Reykajvík. Ragnar Amalds f jármálaráðherra um mikla hækkun talna í f járlagaf rumvarpinu: „Afþví að reynt er að hafa tölum- ar raunhæfar” —f rumvarpið felur ekki í sér aukna skattbyrði Þar er um að ræða l,4 milljarða aukningu í niðurgreiðslum, 252 milljóna aukningu til lista, 400 milljónir í aukningu tekjutryggingar og II5 milljóna aukningu vegna orlofs- og fræðslumála verka- lýðshreyfingarinnar. Frumvarpið hækkar auk þess um 6,l milljarð frá frumvarpi Tómasar vegna leiðréttinga og ýmissa annarra breytinga. Þar vegur þyngst 1,2 milljarðar til Lánasjóðs námsntanna, 850 milljónir i greiddu aðlögunar- gjaldi til iðnþróunar og 800 milljóna aukning útflutningsbóta. Á móti framangreindum hækkun- um koma lækkanir frá frunrvarpi Tómasar, meðal annars að olíu- styrkir eru teknir út úr frumvarpinu og verða afgreiddir með sér skatt- lagningu. Þetta lækkar tölur fruni- varpsins um 2,3 milljarða. Lækkuð eru framlög til fjárfestingarlánasjóða um 2,8 milljarða frá frumvarpi Tómasar. Aðrir liðir lækka um 0,7 milljarða. Af þessu leiðir, að rekstrarafgang- ur verður 3,5 milljörðum lægri en var samkvæmt frumvarpi Tómsar. Sam- kvæmt frumvarpinu nú verður hins vegar greitt 5 milljörðum minna af lánum til Seðlabankans en var í fruni- varpi Tómasar. Útkoman, þegar á allt er litið, verður sú, að greiðsju- afgangur verður 2 milljarðar sam- kvæmt frumvarpi Ragnars, sem er 1,7 milljörðum meira en var hjá Tómasi. -HH. Fjárlagafrumvarpið felur nú í sér svo mikla hækkun frá fjárlögum í fyrra, af því að reynt er að hafa tölur þess raunhæfar, fremur en áður hefur verið gert með fjárlagafrum- vörp sagði Ragnar Arnalds fjármála- ráðherra i gær. Nú er reynt að áætla verð- og launabreytingar út árið. Þess vegna verður hækkun talna fruni- varpsins svo mikil nú, yfir 60°/o, þegar borið er saman við fjárlög, eins og þau voru afgreidd fyrr rúniu ári. Frumvarpið nú felur saml ckki i sér neinar skattahækkanir,” sagði Ragn- ar. Ragnar sagði, að flest benti til, að árið 1979 hefði komið út með 3ja milljarða halla á ríkisrekstrinum. Rekstrarhalli hefði verið undanfarin 7—8 ár, nema eitt árið. Ragnar kvaðst leggja mikla áherzlu á, að rikisbúskapurinn yrði í ár rekstrar- og greiðsluhallalaus. Samkvæmt frumvarpinu nú er greiðsluafgangurinn tveir milljarðar. Þetta væri það svigrúm, sem fjár- veitinganefnd þingsins hefði til að spila innan. Nefndin mælli ekki fara nteð viðbótareyðslu frani yfir þetta mark. 10 milljarða hækkun útskýrð Ragnar gerði grein fyrir, hvers vegna frumvarp hans er um I0 milljörðum hærra en frumvarp Tómasar Árnasonar var siðastliðið haust, úr því að skattar eiga ekki að Kagnar Arnalds fjármálaráöherra: Þriggja milljarða halli ríkissjóAs. 1979. hækka samkvæmt orðum hans. Breyting á forsendum um verðlag, sem eru gerðar til að tölurnar verði raunhæfari að sögn Ragnars, valda 10,6 milljarða útgjaldaauka frá frumvarpi Tómasar og 9,6 milljarða aukningu á áætlun um tekjur. Stjómarsáttmálinn veldur út- gjaldaaukningu um 2,2 milljarða. Matthías Á. Mathiesen alþingismaður: Ekki að sjá að forsætisráð- herrann sé sjálfstæðismaður ,,Þriðja útgáfa fjárlagafrum- varpsins ber þess greinilega merki að Alþýðubandalagið hefur lekið við fjármálastjórninni og stefnumiðin sýnast að hluta til vera „norska leið” Frantsóknar lil niðurlalningar á verð- lagí,”’ sagði Matthias Á. Mathiessen alþingismaður og fyrrum fjárntála- ráðherra (S) í samtali við DB um fjár- lagafrumvarpið: „Það er Ijóst mál af útkomu árins 1979 að verðlagsvísitalan hefur Matthias Á. Mathiesen: „Alþýðu- hantlalagið hefur lekiA viA fjármála- stjórninni.” hækkað um 61% frá upphafi árs til loka. Þá hefur og komið í Ijós að staða rikissjóðs er 13 milljörðum króna lakari i lok ársins en fjárlög gerðu ráð fyrir. Skuldaauknjng við Seðlabankann varð 2.4 milljarðar i slað þ ess að gert hafði verið ráð fyrir að greiða niður skuldir við Seðla- bankann um 5 milljarða. Til þess að kóróna allt saman eru stórfelld útgjöld rikissjóðs hreinlega þurrkuð út úr frumvarpinu og ætlun- in er að leysa þau vandamál með nýrri skattheimlu eða auknunt er- lendum lántökum einhvern tima seinna. Lánsfjáráætlun er ekki lögð frant, skattstigar liggja ekki fyrir og þvi enga heildaryfirsýn hægl að fá yfir rikisfjármálin né peningamálin í landinu. Það er ekki hægl að sjá af þessu frumvarpi að forsætisráðhcrrann i rikisstjórninni sé sjálfstæðismaður. Frumvarpið ber nteð sér aukin ríkis- umsvif, aukna skattheimtu og þvi ekkert þak sett áeyðslu Itinsopinbera eins og forsætisráðherra hefur slundum ntinnzt á. Fruntvarpið sýnist þvi berlega vera vegvisir að áframhaldandi vinstri stjórnarverð- bólgu.” -ARH. Hafrannsóknarstofnun: r FJARVEITING HÆKKAR UM HÁLFAN MILUARÐ — „Hafnþór" fær 50 milljónir nú, fékk 200 í fyrra Fjárveiting til Hafrannsóknastofn- unar hækkar um 527 milljónir eða 41,7% frá fjárlögum ársins 1979. Framlag til hafrannsóknarskipsins Hafþórs (sem gárungarnir kalla Hafnþór vegna þess að skipið hefur legið i höfn árum saman) er 50 milljónir. Þar af eru 30 milljónir vegna togvindu skipsins og 20 milljónir til að halda uppi nauðsyn- legri gæzlu i skipinu. „Þar til ákvörðun verður tekin um nýtingu þess,” eins og segir i fjárlagafrum- varpinu. Á fjárlögum 1979 var heildarfram- lag til Hafþórs áætlað tæplega 200 milljónir eða fjórum sinnum hærra en nú. Á móti þessari útgjalda- lækkun er fjárveiting til annarrar rannsóknarstarfsemi Hafrannsókna- stofnunar aukin um 110 milljónir. Endanleg ráðstöfun fjárins verður ákveðin í samráði við hlutaðeigandi aðila. -ARH.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.