Dagblaðið - 18.04.1980, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 18.04.1980, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1980. Hvað er á seyðium helgina? fLAGI Byggingarfélag alþýðu Aðalfundur félagsins árið 1980, verður haldinn í Átthagasal, Hótel Sögu, þriðjudaginn 22. apríl kl. 8.30; e.h. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. önnur mál. Aðalfundur Iðja, félag verksmiðjufólks heldur fyrrihluta aðalfund ar mánudaginn 21. april 1980. i Dómus Medica kl. 5 síðdegis. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á 4þing Landssambands iðnveka- fólk. 3. Kjaramál. 4. Tillaga um heimild til stjórnar félagsins. til endur- byggingar eða nýbyggingar íbúðarhúss fyrir ábúanda i Svignaskarði. 5. Tillaga um heimild til kaupa á viðbótarhúsnæði á Skólavörðustíg 16. 7. önnurmál. Iþrottir Reykjavíkurmótið í knattspyrnu ME1.AVÖLLUR LAUGARDAGUR Vlkingur— Þróttur kl. 2. SUNNUDAGUR Ármann—Fram kl. 17. Stórsvigsmót Ármanns veröur haldiö sunnudaginn 20. april í Bláfjöllum og hest kl. 11.00. Keppt veröur i öllum flokkum. Þautaka berist til Haljdórs Sigfússonar fyrir 18. apríl. Arshátíðir Arshátíð Nemenda- sambands Samvinnuskólans verður haldin föstudaginn 18. april að Hótcl Sögu (Súlnasall. Hátiðin hefst kl. 19.30 stundvislcga en húsiðeropnaðkl. 19.00. Daginn eftir verður almennur félagsfundur i Hamragörðum sem hefst kl. 13.30. Mætum öll! Fundir Mæðrafélagið Fundur verður haldinn þriðjudaginn 22. april að Hall veigarstöðum kl. 20. Inngangur frá Öldugötu. Búnaðarfélag Kjalarnesþings heldur almennan bændafund laugardaginn 19. april nk. kl. 13,30 að Fólkvangi, Kjalarnesi. Fundarefni: Kvótakerfið. Frummælandi Hákon Sigurgrimsson. Stjornmalafundir Alþýðubandalagið Hafnarfirði Fundur i bæjarmálaráði mánudaginn 21. apríl kl. 20.30 i Skálanum. Dagskrá: Fjárhagsáætlun. önnur mál. Allir velkomnir. Félagsmálanámskeið Framsóknarflokksins — Norðurland eystra veröur haldið i húsi framsóknarfélaganna Hafnar- stræti 90, Akureyri, laugardaginn 19. april og sunnu- daginn 20. apríl. nk. Á námskeiðinu verður fjallaö um fundarhöld, fundasköp og stjórnmálastefnur, sögu þcirra og þróun. Dagskrá: Laugardaginn 19. april kl. 10. Kl. 10.15: Félög, fundir og fundarsköp. Fyrirlestur og umrsdur. Kl. 14.15: Þjóðfélagið og gerð þess. Fyrirlestur. Kl. 16:15: Stjórnmálastefnur á 19. öld. Fyrirlestur. Umrsður. Sunnudaginn 20. april kl. 10. Stjórnmálaflokkar á tslandi. Fyrirlestur. Umræður. Kl. 14.15: Almennar umræður um verkefni námskeiðsins og yfirlit yfir störf þess. Kl. 17: Námskeiðinu slitið. Stjórnandi: Tryggvi Gísla- Njörður FUS Siglufirði og SUS Fundur verður haldinn i Sjálfstæöishúsinu á Siglufirði laugardaginn 19. apríl. kl. 16. Jón Ormur Halldórsson og ólafur Helgi Kjartansson flytja framsögu um hvaö nú þurfi að gera í Sjálfstæðisflokknum og íslenzkum stjórnmálum. Allir velkomnir. FUS Sauðárkróki ogSUS Fundur verður haldinn í Sæborg Sauðárkróki, sunnudaginn 20. april kl. 16. Jón Ormur Halldórsson og Helgi Kjartansson flytja framsögu um hvað þurfi að gera i Sjálfstæðisflokknum og islenzkum stjóm- málum. Allir velkomnir. Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélag- anna í Kópavogi heldur fund mánudaginn 21. april kl. 20.30 i Sjálf- stæðishúsinu að Hamraborg 1. 3. hæð. Fundarefni: Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins Richard Björgvins- son, Bragi Michaelsson og Guðni Stefánsson flytja stutt yfírlit yfir bæjarmálin og svara fyrirspurnum. Allir velkomnir. Fljótsdalshérað — almennur fundur Alþýðubandalags Héraðsmanna boöar til almenns fundar um iðnaðar og orkumál i Valaskjálf laugardaginn 19. apríl kl. 13.00. Frum- mælendur: Hjörleifur Ciuttormsson orku- og iðnaðar- ráðherra og Kristján Jónsson rafmagnsveitustjóri. Allir velkomnir. Alþýðubandalagið t Reykjavík Fundur verður haldinn þriðjudag 22. april kl. 20.30 í Sóknarsalnum á Freyjugötu 27. Vilborg Sigurðar- dóttir kennari flytur framsögu, sem hún nefnir: Kvennamál — karlamál. Tilkynningar Borgfirðingafélagið í Reykja- vík — Skemmtikvöld Borgfirðingafélagið i Reykjavik heldur skemmti- kvöld i Dómus Medica, laugardaginn 19. april kl. 20.30. Félagsmenn eru beðnir að athuga að þetta verður siöasta skemmtikvöldið i vetur. Mætið nú vel og stundvislega og takið með ykkur gesti. Gíróreikningur til stuðnings Opnaður hefur veriö giróreikningur til stuðnings Rögnvaldi Pálssyni frambjóðanda til forsetakjörs. Stuðningsmönnum er hér með bent á þetta. Númcr reikningsinser 310328. Ný stjórn hjá Vöku Aðalfundur VÖKU félags lýðræðissinnaðra stúdenta i Háskóla lslands var haldinn fyrir skömmu. Hin nýkjörna stjórn er þannig skipuð: Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson. formaður: Einar örn Thorlacius. vara formaður; Garöar Gunnlaugsson. gjaldkeri; Gerður Thoroddsen, ritari; Ólafur Jóhannsson. ritstjóri Vöku blaðsins; Friðbjörn Sigurðsson og Ragnar Ólafsson. mcðstjórnendur. Kaffisala Færeyski Sjómannakvennahringurinn heldur kaffisölu sunnudaginn 20. april kl. 15 i Sjómanna heimilinu aö Skúlagötu 18. Margar gerðir af gómsætu heimabökuðu meðlæti. Opið hús Loki F.U.S. Langholts- og Laugameshverfi heldur opið hús föstudaginn 18. april kl. 20.30. að Langholls vegi 124. Félagar eru hvattir til að fjölmenna. Kvennadeild Slysavarnafélagsins í Reykjavík vill hvetjafélagskonurúl aö panta miöa sem allra fyrst á 50 ára afmælishófið sem verður á afniælisdaginn mánudaginn 28. april nk. að Hótel Sögu og hefst með borðhaldi kl. 19.30. Miðapantanir i sima 27000 i Slysavarnahúsinu á Grandagarði á venjulegum skrif- stofutima. Einnig i sima 32062 og 44601 eftir kl. 16. Ath. miðar óskast sóttir fyrir 20. april — Stjórnin. Frá Félagi einstæðra foreldra Okkar vinsæli Miniflóamarkaður verður næstu laugardaga kl. 14—16 i húsi félagsins að Skeljanesi 6 i Skerjafirði. Endastöð leið 5 á staðinn. Þar gera allir reyfarkaup þvi að flikurnar eru allar nýjar og kosta aðeins eitt hundrað krónur. Frá Guðspekifélaginu I kvöld kl. 21.00 verður kvikmyndasýning „Sveita- þorpið Vidarosen” (Septima). Föstudaginn 25. apríl verður Halldór Haraldsson. meðerindi. Fimir fætur Templrahöllin 19. april. SVRF Opiö hús Siðasta „opna hús” vetrarins verður í kvöld. og hefst kl. 20.30 aö Háaleitisbraut 68. Dagskrá: 1. Bikarafhending (Birgir J. Jóhannsson). 2. Litskyggnusýning. Myndir frá veiöisvæöum félagsins, Ljósmyndari Rafn Hafnfjörð. 3. Happdrætti. Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti. , Ásgeir l.áruvson* Ásgeir sýnir i Mokkakaffi Þessa dagana heldur Ásgeir Lárusson sýningu á 13 myndum á Mokkakaffi. Þetta er fjórða einkasýning Ásgeirs. en hann sýndi siöast i Galleri Suðurgötu 7 við góðar undirtektir og má geta þess að á þeirri sýningu seldust allar myndirnar. Sýning Ásgeirs mun standa fram yfir nastu mánaðamót. Kvennadeild Slysavarnafélags íslands í Reykjavík vill hvetja félagskonur til að panta miða sem allra fyrst á 50 ára afmælishófið sem verður á afmælisdaginn. mánudaginn 28. april. að Hótel Sögu og hefst með horðhaldi kl. 19.30. Miðapantanir verða i sima 27000 Slysavarnahúsinu við Grandagarð á vcnjulegum SArifstofutima. cinnig i simum 32062 og 44601 cftir kl. 16. Miðar óskast sóltir fyrir 20. april. Afmælisgjafir til mannúðarmála óháði söfnuðurinn i Reykjavík og kvenfélag hans minnast 30 ára afmælis sins viö guðsþjónustu i safnaðarkirkjunni nk. sunnudag. 20. april. kl. 11 ár degis. Venjulega eru kirkjunum sjálfum gclnar gjafir við slik tækifæri en i þetta sinn fer Kvenfélag Óháða safnaðarins öðruvisi að. Það hcfir nú i tilcfni af afmælinu komið upp hjólastólabraut á kirkjutröppun um til þes$ að auðvelda lömuðum aðgang að kirkj unni og verður braut þessi vigð við athöfnina á sunnu daginn. Nauðsyn sjikrar aðstöðu hefir mjög verið höfð á orði i sambandi við opinberar byggingar undanfarið og fer vel á þvi að kirkjur gangi þar á undan með góðu fordæmi. Við afmælisguðsþjónustuna á sunnudaginn mun formaður Kvenfélags óháða safnaðarins ennfrcmur afhenda Styrktarfélagi vangefinna. sem stofnaðar i Kirkjubæ 1958. peningagjöf. sem kvenfélagskonurnar hafa ákveðiö að gefa til vistheimilisins Bjarkaráss við Blesugróf, en Styrktarfélagið rckur það hcimili. Hin nýja hjólastólabraut á tröppum Kirkju Óháóa safnaðarins. Frá grunnskólum Kópavogs Innritun 6 ára barna (barna sem fædd eru á árinu 1974), fer fram i skólum bæjarins. föstudaginn 18. april kl. 15—17. Börn sem þurfa aö flytjast milli skóla komi i skólana á sama tima eða láti vita simleiðis. Stúdentaráð Háskóla íslands kunngjörir hér með, að nýtt stúdentaráð hefur störf af fullum kröfum frá og með laugardcginum 12. april 1980. Formaður hins nýja ráðs er Stefán Jóhann Stefánsson. Aðalfundur Iðngarður hf. verður haldinn i húsi lönaöarbanka Islands, 5. hæð. föstudaginn 25. april kl. 17.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Aðalfundur Félags hesthúsaeigenda i Viðidal verður haldinn í félagsheimili Fáks þriðjud. 22. april kl. 20.30. Dagskrá: Venjulegaðalfundarstörf. Sýningar og fyrirlestrar ÍMÍR I jósmvnda og bókasýning i tilefni 110 ára afmælis l.enins verður opnuð i nýjum húsakynnum MIR. Menningartengsla Islands og Ráðstjórnarrikjanna. að Lindargötu 48. 2. hæð. laugardaginn 19. april kl. 15 — klukkan 3 siðdegis — nieð fvrirlestri sové/ka hag fræðiprófessorsins og vararcktors Moskvuháskola dr. Fclix Volkovs. Ræðir prófevsorinn um Lenm og sósialiska hagfræði. Ennfrcmur verða flutt ávörp og sýnd kvikmynd. Sunnudaginn 20. april spjallar Volkov prófcssor um Moskvuháskóla. sem átti 225 ára afmæli i janúar sl. Spjall sitt flytur prófcssorinn i nýja MIR salnum. Lindargötu 48. kl. 16 — klukkan 4 siðdegis. að lokn um aðalfundi MIR sem hefst kl. 15. Aðgangur að sýningunni i MIR salnum og lyrir lestrum Volkovs er öllum heimill meðan húsrúm levfir. f Halla Jónsdóttir Þió munió hann Jörund i Logalandi. Þarna eru Charlie Brown (Þórir Jónsson) og sir Walter Raleigh (Þorvaldur Pálmason). Að baki eru Þórunn Reykdal og Þórður Stefánsson úr söngtríóinu. Leiklist Borgfirðingar muna hann Jörund Ungmennafélag Reykdæla sýnir um þessar mundir gamanlcikinn Þið munið hann Jörund eftir Jónas Árnason. Leikurinn var frumsýndur á skirdag og hcfur verið sýndur fimm sinnum alls. Nícstu sýningar vcrða á fimmtudag og laugardag i Logalandi i Borgar firði. Aðalhlutvcrk leika Jón Pétursson. Páll Guðnason og Þórir Jónsson. en söngtrióið skipa Þórunn Rcyk dal. Þórður Stefánsson og Þorvaldur Jónsson. Leik stjóri cr Velsmaðurinn Nigel Watson. sem borgfir/ku leikararnir talá um nteð ntikilli virðingu. Hann er 31 árs. kom hingað til lands fyrst 1975 og á islen/ka konu. Ingu Bjarnason. Hann hefur sett upp nokkur verk hcr fyrr og hyggst snúa sér að lcikstjórn á Islandi. Skallagrímur sýnir Pókók í Borgarnesi Leikdeild Ungmennafélagsins Skallagrims frum^ýndi fyrir skömmu gamanlcikinn Pókók cftir Jökul Jakobs son i leikstjórn JakobsS.. Jónssonar. Leikritiðer sýnt i Borgarnesi. Aðalhlutverkin leika Sigurður Páll Jónsson og Elias Ciislason en leikarareru tólf alls. Pókók var fyrsta leik rit Jökuls Jakobssonar. frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavikur 1961. Þá léku Þorsteinn Ö. Stephcnsen og Árni Tryggvason aðalhlutverkin. Leikritið var siðan ekki flutt aftur fyrr en 1978. þegar Lcrkfélag Þorlákshafnar setti það upp. og nú cru það Borgfirðingarnir. Sýningar verða föstu dag 18. april. tvætsýningar laugardag 19. april cn hclgina þar á eftir vcrður væntanlcga farið á Snæfells nes og i Búðardal. FÖSTUDAGUR ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ: Stundarfriður kl. 20. IÐNÓ: Ofvitinn kl. 20.30. Uppselt. LAUGARDAGUR ÞJÓÐLFJKHÚSIÐ: Sumargestir kl. 20. IÐNÓ: Er þetta ekki mitt lif? kl. 20.30. AUSTURBÆJARBlÓ: Leikfélag Reykjavikur sýnir Klerka í klipu á miðnætursýningu kl. 23.30. SUNNUDAGUR ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ: óvitar kl. 15. IÐNÓ: Hemmi kl. 20.30. Hvit kort gilda. Ferðalög Útivistarferðir Sunnudagur 20. april kl. 13: Su‘illuháls eða Krísuvik og nágrenni. Fararstjóri Jón I. Bjarnason.Verð 3000 krónur. Fritt er fyrir börn i lylgd meó fullorðnum. Farið verður frá BSl. bensinsölu, en í Hafnarfirði við kirkjugaröinn. Ferðafélag íslands 1. kl. 10. Skiðaganga yfir Kjöl. Gcngið frá Þrándar stöðum og yfir að Stifiisdal. Verð kr. 5Ö00. greiðist viðbilinn. 2. kl. 13. Tröllafoss — Haukafiöll. Létt ganga Vcrð kr. 3000greiðist viðbilinn. Fararstjóri Þórunn Þórðardóttir. 3. kl. 13. Skfðaganga á Mosfellsheiði. Fararstjóri: Tómas Einarsson. Verð kr. 3000. greiðist við bilinn. Ferðirnar eru farnar frá Umferðarmiðstööinni að austanveröu. Fararstjóri Sigurður Kristjánsson.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.