Dagblaðið - 25.04.1980, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 1980.
Hvað er á seyðium helgína?
NÝJA POSTULAKIRKJAN, Háaleitisbraut 58:
Messa sunnudag kl. 11 og 17. Kaffi á eftir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Fermingarmessur kl.
10.30 f.h. og 2 e.h. Sóknarprestur.
Listasöfn
Messur
Guðsþjónustur i Reykjavikurprófastsdæmi
sunnudaginn 27. april 1980.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barnasamkoma í,
safnaöarheimili Árbæjarsóknar kl. 10.30 árd. Altaris-i
gönguathöfn fyrir fermingarbörn og aðstandendur
þeirra kl. hálfníu síðd. Sr. Guömundur Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Fermingarguösþj
ónustur í Bústaöakirkju kl. 10.30 og kl. 13.30. Sr. Jón
Bjarman.
BÚSTAÐAKIRKJA: Fermingar Breiöholtssóknar kl.
10.30 og 13.30. Safnaðarstjórn.
DIGRANESPRESTAKALL: Barnasamkoma i
safnaðarheimilinu við Bjarnhólastig kl. II. Ferming
arguösþjónusta i Kópavogskirkju kl. 2. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
DÓMKIRKJAN: Kl. 11 messa. Sr. Hjalti
Guðmundsson. Kl. 2. Fermingarmessa Fella og
Hólasóknar. Sr. Hreinn Hjartarson.
FELLA og HÓLAPRESTAKALL: Laugardagur:
Barnasamkoma í Hólabrekkuskóla kl. 2 e.h.
Sunnudagur: Barnasamkoma i Fellaskóla kl. 11 árd.
Fermingarguðsþjónusta i Dómkirkjunni kl. 2. Sr.
Hreinn Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA: Sunnudagaskólinn fer i
heimsókn i Breiðholtssókn. Börn mæti kl. 10 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 — altarisganga. Organleikari: Jón
G. Þórarinsson. Sr. Halldór S. Gröndal.
HALLGRtMSKlRKJA: Guðsþjónusta kl. II. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson. Guðsþj()nusta kl. 2. Sr.
Erlendur Sigmundsson messar. Sr. Karl Sigurbjörns
son. Kirkjuskólinn fer í ferðalag kl. 2 á laugardag.
Þriðjud. Bænaguðsþjónusta kl. 10.30 árd. Beðið fyrir
sjúkum.
LANDSPtTALINN: Messa kl. 10. Sr. Erlendur Sig
mundsson messar. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. II.
Messa kl. 2. Sr. Arngrímur Jónsson. Organleikari
Orthulf Prunner.
KARSNESPRESTAKALL: Barnasamkoma i Kárs
nesskóla kl. 11 árd. Fermingarguðsþjónusta i KópaJ
vogskirkju kl. 10.30 árd. Sr. Arni Pálsson.
LANGHOLTSPRESTAKALL: Barnasamkoma kl
11. Jón Helgi, Sigurður Sigurgeirsson, Kristján og
sóknarpresturinn sjá um stundina. Guðsþjónusta kl.
2. Sóknarprestur.
LAUGARNESKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. II.
Messa kl. 14. Aðalsafnaðarfundur strax eftir messu.
Þriðjud. 29. apríl. Bænaguðsþjónusta kl. 18 og
æskulýðsfundur kl. 20.30. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11 árd. í Félags
heimilinu. Sr. Guðmundur óskar Ólafsson.
FRtKIRKJAN t REYKJAVtK: Messa kl. 2.
Organleikari Sigurður tsólfsson. Prestur sr. Kristján
Róbertsson.
MOSFELLSPRESTAKALL: Messa að Mosfelli
sunnudag kl. 14. Hestamönnum Haröar sérstaklega
boöið aö koma riðandi til kirkju. Eftir messu veröa
seldar veitingar. Sóknarprestur.
Sýningar
DJÚPIÐ, Hafnarstræti (Hornið): Brian Pilkington,
málverk & teikningar. Opnar laugardag.
ÁSMUNDARSALUR v/Freyjugötu: Hannes
Lárusson, myndverk og gjörningar.
GALLERt SUÐURGATA 7: Engin sýning um
helgina.
Tónleikar
Háskólatónleikar
Sjöttu Háskólatónleikar vetrarins verða haldnir
laugardaginn 26. apríl 1980. Tónleikarnir verða
haldnir i Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut og
hefjast kl. 17. Aðgangur er öllum heimill.
Á þessum tónleikum leika hjónin Ursula Ingólfsson
Fassbind og Ketill Ingólfsson fjórhent á píanó auk
tónverka fyrir tvö pianó. Til er talsverður fjöldi tón
verka fyrir píanó og tvo flytjendur en mörg þeirra eru
píanóútsetningar á tónverkum sem upphaflega voru
samin fyrir önnur hljóðfæri. Verkin sem flutt verða á
þessum tónleikum eru hins vegar öll upphaflega samin
fyrir pianó þó að sum þeirra hafi siöar verið umrituð
fyrir hljómsveitarflutning.
Á efnisskránni eru Mars i D-dúr og Fúga í e moll
eftir Franz Schubert, Sónata í D-dúr og Fúga i c moll
eftir W.A. Mozart og Tilbrigði i B dúr um stef eftir
Joseph Haydneftir Johannes Brahms.
Styrktartónleikar
í Self ossbíó
Á morgun, laugardag, verða haldnir tónleikar i
Selfossbíói til styrktar skóla þroskaheftra þar á
staðnum.
Á tónleikunum koma fram meðaí annarra: Samkór
Selfoss, stjórnandi Björgvin Þór Valdimarsson. Kór
Barnaskólans, stjórnandi Björn Þórarinsson. Kór
Gagnfræðaskólans, stjórnandi Ólafur Þórarinsson.
sem jafnframt stjórnar tvöföldum kvartett úr Samkór
Selfoss og flytur þar að auki frumsamin lög ásamt
félögum sínum.
Einnig koma fram hljóðfæraflokkurinn Musica
Nostra og sönghópurinn Fjögur í leyni.
Tónleikarnir hefjast kl. 15. Eins og áður segir
rennur allur ágóði til styrktar skóla þroskaheftra á
Selfossi.
Pétur Kowald leikur
á bassa í Djúpinu
Vestur-þýzki bassaleikarinn Peter Kowald leikur
einleik á tvennum tónleikum sem Galleri Suðurgata 7
gengst fyrir á morgun. Kowald hefur hér viðkomu á
leiðsinni til Bandaríkjanna, þar sem hann mun stunda
tónleikahald á næstunni. Hann hóf hljómlistarferil
sinn um 1960, og hefur einkum starfað innan
svokallaðrar „frjálsrar tónlistar” og þykir einn fremsti
bassaleikari á því sviði í Vestur-Þýzkalandi í dag.
Hann hefur leikið með fjölmörgum þekktum
evrópskum og bandariskum tónlistarmönnum og má
þar nefna Irene Schweizer, Evan Parker, Peter
Brötzmann (sem öll hafa komið hingað til lands í boði
Gallerí, Suðurgötu 7), Albert Mangelsdorff, Marion
Brown, Carla Bley, John McLaughlin, Jeanne Lee og
Leo Smith. Hann hefur leikið inn á fjölda
hljómplatna, bæði undir eigin nafni og með John
Cage, Barre Phillips, Globe Unity Orchestra o. fl.
Tónleikarnir verða í kvöld, föstudaginn 25. april, kl.
20.30 og á morgun, laugardaginn 26. kl. 16.00 í
Djúpinu við Hafnarstræti.
Lilja Guðrún ÞorvaldsdóUir, Hjalti Rögnvaldsson og
Margrét Helga Jóhannsdóttir i hlutverkum sínum.
Leiklist
Er þetta ekki mitt líf?
Laugardaginn 26. april verður fimmtugasta sýningin á
leikritinu Er þetta ekki mitt lif? hjá Leikfélagi Reykja-
vikur í Iðnó. Leikritið var frumsýnt 20. maí i fyrra.
Höfundur er Brian Clark og leikstjóri María Kristjáns
dóttir.
Aðeins örfáar sýningar eru eftir á þessu geysivin
'sæla leikverki, sem verður að víkja af fjölunum fyrir
siðustu frumsýningu þessa leikárs, sem verður um
miöjan mai.
Með hlutverkin i leiknum fara: Hjalti Rögnvalds-
son. Valgerður Dan, Jón Sigurbjörnsson, Margrét
Helga Jóhannsdóttir, Sigurður Karlsson, Karl Guð
mundsson. Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir. Harald G.
Haraldsson, Ásdis Skúladóttir, Kjartan Ragnarsson.
Jón Hjartarson, Guðmundur Pálsson og Steindór
Hjörleifsson.
Leikhúsin um helgina
FÖSTUDAGUR
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ: Smalastúlkan og útlagarnir kl.
20.
IÐNÓ: Hemmi kl. 20.30. Græn kort gilda. Miðar
stimplaðir 17. april gilda á þessa sýningu.
LAUGARDAGUR
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ: Sumargestir kl. 20.
IÐNÓ: Er þetta ekki mitt líf? kl. 20.30.
Ráðstefnur
IMáttúmlækningafélag
íslands og tímaritið
Heilsuvernd
Ráðstefnan verður haldin að Laufásvegi 12 laugar
daginn 26. april kl. 14. Framsögumenn verða:
Sigurður Þráinsson kennri við Garðyrkjuskóla
rikisins, Halldór Sverrisson, plöntsjúkdómafræðingur,
Guöfinnur Jakobsson, garðyrkjustjóri og matvæla-
fræðingur frá Rannsóknastofnun landbúnaðarins.
Að loknum frásöguerindum veröa hring
borðsumræður, þar sem áheyrendum gefst kostur á að
koma spurningum og athugasemdum á framfæri.
Allir áhugamenn eru velkomnir.
Sími43-500
— Það sufíar afít og bufíar af fjörí
ípartíinu! —
Skemmtistaðir
FÖSTUDAGUR
GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Glassir ogdiskótek.
HOLLYWOOD: Diskótek.
HÓTEL BORG: Diskótekiö Dísa.
HÓTEL SAGA: Útsýnarskemmtikvöld með mat.
Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar ásamt söngkonunni
Mariu Helenu leikur fyrir dansi. Mímisbar: Gunnar
Axelsson leikur á pianó. Stjörnusalur: Matur fram
reiddur fyrir matargesti. Snyrtilegur klæðnaður.
INGÓLFSCAFÉ: Gömlu dansarnir.
LEIKHÚSKJALLARINN: Hljómsveitin Thalia.
ÖÐAL: Diskótek.
SIGTÚN: Hljómsveitin Pónik og diskótek, Gisli
Sveinn Loftsson.
ÞÓRSCAFÉ: Hljómsveitin Galdrakarlar og diskótek.
Matur framreiddur fyrir matargesti. Snyrtilegur
klæönaður.
LAUGARDAGUR
GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Glæsir og diskótek.
HOLLYWOOD: Diskótek
HÓTEL BORG: Lokaðeinkasamkvæmi.
HÓTEL SAGA: Súlnasalur: Hljómsveit Ragnars
Bjarnasonar ásamt söngkonunni Maríu Helenu.
Mimisban Gunnar Axelsson leikur á pianó. Stjörnu-
salur: Matur framreiddur fyrir matargesti. Snyrtilegur
klæönaður.
INGÓLFSCAFÉ: DGömlu dansarnir.
KLÚBBURINN: Hljómsveitin Goðgá og diskótek á
tveimur hæðum.
LEIKHÚSKJALLARINN: Hljómsveitin Thalia.
LINDARBÆR: Gömlu dansarnir. Hljómsveit Jóns
Sigurðssonar ásamt söngkonunni Mattý Jóhanns og
Grétari Guðmundssyni.
ÓÐAL: Diskótek.
SIGTÚN: Hljómsveitin Pónik og diskótek. Gisli
Sveinn Loftsson.
ÞÓRSCAFÉ: Hljómsveitin Galdrakarlar og diskótek.
Matur framreiddur fyrir matargesti. Snyrtilegur
klæðnaður.
SUNNUDAGUR
GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Glæsir.
HOLLYWOOD: Diskótek.
HÓTEL BORG: Gömlu dansarnir. Hljómsveit Jóns
Sigurðssonar ásamt söngkonunni Kristbjörgu Löve.
HÓTEL SAGA: Súlnasalur: Iðja með kaffiboð fyrir
félagsmenn 65 ára og eldri. Mímisbar: Gunnar Axels
son leikur á pianó. Stjörnusalur: Matur framreiddur
fyrir matargesti. Snyrtilegur klæðnaður.
HREYFILSHÚSIÐ: Gömlu dansarnir.
ÓÐAL: Diskótek.
ÞÓRSCAFÉ: Hljómsveitin Galdrakarlar og diskótek.
Matur framreiddur fyrir matargesti. Snyrtilegur
klæðnaður.
Iþróttir
Reykjavíkurmótið
í knattspyrnu
LAUGARDAGUR
MELAVÖLLUR
Ármann — Fylkirkl. 14.
Ferðalög
Útivistarferðir
Sunnud. 27.4. kl. 13
Grænadyngja — Sog, létt ganga í fylgd með Jóni Jóns
syni jarðfræðingi. sem manna bezt þekkir Reykjanes
skagann. Verð 3000 kr., fritt f. börn m. fullorðnum
Fariðfrá BSl, bensinsölu (í Hafnarf. v. kirkjugarðinnl.
Landmannalaugar (5 dagar) 30.4—4.5. Gengið (á skíð-
um) frá Sigöldu. Fararstj. Jón I. Bjarnason. Farseðlar
á skrifstofu Útivistar, Lækjarg. 6a, simi 14606.
Fyrirlestrar
Fyrirlestur um
alþjóðastjórnmál
Prófessor, dr. phol. O. Karup Pedersen flytur fyrir-
lestur á vegum félagsvisindadeildar Háskólans i dag kl.
17.15 í stofu 102 i Lögbergi. Fjallar fyrirlesturinn um
utanríkisstefnu Dana — frá hlutleysi til NATO'
(Dansk udenrigspolitik — fra neutralitet til NATO).
Dr. Karup Pedersen er prófessor í alþjóðastjórn
málafræði við Kaupmannahafnarháskóla og
viðkunnur fræðimaður á sínu sviði. Hann er hér
meðal gesta i boði Háskóla tslands i tilefni af 500 ára
afmæli Kaupmannahafnarháskóla.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Fyrírlestur um mataræði og
hjartasjúkdóma
Bandarískur læknir, William P. Castelli, flytur fyrir-
lestur á vegum Manneldisfélags lslands i Lögbergi,
kennslustofu laganema nr. 101, Háskóla lslands föstu-
daginn 25. apríl kl. 20.30/ Fyrirlesturinn nefnist
„Mataræði og hjartasjúkdómar” og er öllum heimill.
aðgangur meðan húsrúm leyfir.
William P. Castelli er einn af forstöðumönnum
hinnar þekktu hóprannsóknar m.t.t. hjartasjúkdóma.
sem kennd er við Framingham i Massachusett fylki í
Bandarikjunum. Læknirinn er hér í fyrirlestrarferð á
vegum Hjartasjúkdómafélags ísl. lækna og Fél. isl. lyf-
lækna. Hann mun m.a. flytja fyrirlestur á laugardag á
symposium um háþrýsting sem haldið verður i Domus
Medica.
Á föstudag 25. april kl. 14.00 flytur hann fyrirlestur
i kennslustofu Landspitalans um aðra þætti rann-
sóknarinnar.
Stjórnmálafundir
Sjálfstæðisfélag
Akureyrar
boðar til fundar i Sjálfstæðishúsinu Akureyri laugar-
daginn 26. april nk. kl. 14.00.
Fundarefni:
Stefna ríkisstjórnar.
Hvers má vænta í baráttunni við verðbólguna?
Frummælandi forsætisráðherra Gunnar Thoroddsen.
Allt áhugafólk hvatt til aö koma á fundinn og taka
beinan þátt i umræðunum.
Aðalfundir
Aðalfundur
Flugleiða hf
verður haldinn mánudaginn 28. apríl i Kristalsal
Hótels Loftleiða og hefst kl. 13:30. Dagskrá: 1. Venju
lega aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta félagsins
2. Breytingar á samþykktum félagsins. 3. önnur mál.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir hlut-
höfum á aðalskrifstofu félagsins, Reykjavíkurflugvelli
frá og með 21. april nk. og lýkur laugardaginn 26.
apríl. Athugið að atkvæðaseðlar verða afgreiddir
laugardaginn 26. apríl kl. 10 — 17.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi,
skulu vera komnar i hendur stjórnarinnar eigi siðar en
7 dögum fyrir aðalfund. Tekiö skal fram aö fyrri um-
boö til aö mæta á aöalfundi Flugieiðá hf. eru fallin úr
gildi og er þvl nauðsynlegt aö framvisa nýjum
umboöum hafi hluthafar hug á aö láta aöra mæta fyrir
sig á aðalfundinum.