Dagblaðið - 25.04.1980, Síða 3
Hvað er á seyðium helgina?
Móðurást
Hamraborg 7 Kópavogi — Sími 45288.
Gallerí Langbrók flytur i Bernhöftstorfu
Fundir
Kvenfélag Óháða
safnaðarins
Fundur verður laugardaginn 26. apríl kl. 15 í Kirkju-
bæ. Kvöldferðalag rætt. Kaffiveitingar.
Frá Guðspekifálaginu
1 kvöld kl. 21 verður Halldór Haraldsson meðerindi.
Hugleiðingar um Svami Vivekanda.
Tilkynningar
Skemmtikvöld Framsóknar-
félaganna í Reykjavík
Framsóknarfélögin í Reykjavík gangast fyrir skemmti-
kvöldi laugardaginn 26. apríl. Hefst það með borð-
haldi kl. 19.30 í Hótel Heklu. Veizlustjóri veröur
Hrólfur Halldórsson. formaður Framsóknarfélags
Reykjavikur. Karon sýningarflokkurinn heldur tízku-
sýningu. Töframaðurinn Baldur Brjánsson sýnir listir
sínar nýkominn frá London. Hljómsveitin Ásar leikur
gömlu og nýju dansana. Allir velkomnir á meðan hús-
rúm leyfir. Upplýsingar i síma 24480.
Kaffiboð Iðju
Iðja heldur kaffiboð fyrir félagsmenn sina 65 ára og
eldri. Kaffiboðið verður haldið i Súlnasal Hótel Sögu
sunnudaginn 27. april kl. 15.
Tilkynning frá
félaginu Anglia
Stjórn Anglia mælist til að félagar fjölmenni við
kvöldverðá Hótel Loftleiðum laugardaginn 26. april.
Breska vikan verður þá i fullum gangi. Þátt
tökutilkynning hjá veitingastjóra.
Basar
Haldinn verður basar á vegum nemenda Myndlista
og handiðaskóla tslands í Bernhöftstorfunni
föstudaginn 25. apríl, laugardaginn 26. og
sunnudaginn 27. apri! frákl. 10—18.
Guðlaugur Þorvaldsson sittasemjari.
Ríkissáttasemjari f fri
Félagsmálaráðuneytið hefur veitt Guðlaugi Þorvalds-
syni ríkissáttasemjara launalaust leyfi frá störfum
tímabilið 21. apríl til 1. júni næstkomandi. I framhaldi
af þvi mun ríkissáttasemjari vera i sumarleyfi í júní-
mánuði.
1 fjarveru Guðlaugs Þorvaldssonar mun Guð-
mundur Vignir Jósefsson vararíkissáttasemjari gegna
störfum rikissáttasemjara.
Gallerí Langbrók flytur
í Bernhöftstorfu
Galleri Langbrók, sem starfað hefur í rúmt eitt og
hálft ár að Vitastíg 12, flytur í turn Bernhöftstorfu i
byrjun júni nk. Galleríið hefur tekið jarðhæð tumsins
á leigu til 5 ára hjá Torfusamtökunum.
Galleri Langbrók opnar í nýja húsnæðinu með þátt-
töku í Listahátíð með sýningu á smámyndum eftir að
standendur Langbrókar sem eru 14 konur. Þessar
myndir, sem ekki verða stærri en 20 x 20 cm, eru unn-
ar i margvisleg efni.
Galleri Langbrók lokar að Vitastig 12 um mánaða-
mótin apríl-maí og mun þvi starfsemi Langbrókar
liggja niðri í maí á meðan unnið er að endanlegri lag-
færingu nýja húsnæðisins.
Benedikt Gröndal, alþingismaöur og formaður
Alþýðuflokksins.
Viðtalstímar forystumanna
Alþýðuflokksins
Almennir viðtalstímar forystumanna Alþýðuflokksins
i Reykjavik hefjast föstudaginn 25. april. Fara viðtöl-
in fram i Alþýðuhúsinu. Hverfisgötu 8—10 Rvik
kl. 16—18. Þar sitja fyrir svörum Benedikt Gröndal
alþingismaður formaður Alþýðuflokksins og Bjarni P.
Magnússon, annar varaborgarfulltrúi flokksins í
Reykjavík, sem á meðal annars sæti í stjórn veitu-
stofnana Reykjavíkur og er formaður framkvæmda-
stjórnar Alþýðuflokksins. Eins og aó framan getut eru
þessir viðtalstímar fyrir almenning og er þvi fólk hvatt
til að notfæra sér þá.
Ný stjórn í
Sjálfsbjörg
Nýlega hélt Sjálfsbjörg, félag fatlaðra í Reykjavík.
aöalfundsinn.
I félagið gengu 35 aðalfélagar og 46 styrktarfélagar
á árinu. Eru félagar nú 956. 543 aðalfélagar og 413
"styrktarfélagar. Á árinu létust 10 félagar.
Á árinu voru haldnir 3 félagsfundir og 12 stjórnar-
fundir. Félagsstarf var mikiðsem fyrri ár. Basar félags
ins var haldinn sem undanfarin ár í Lindarbæ í byrjun
desember og seldist fyrir kr. 1.824.150,00.
Skrifstofa félagsins er opin frá kl. 10.00 til 12.00 og
14.00 til 17.00 mánud.—föstud., en þar vinna nú
Sigurrós Margrét Sigurjónsdóttir og Guðriður Ólafs
dóttir. og hefur verið unnið að hinum ýmsu þáttum
félagsstarfsins þar og félögum sem öðrum veittar leið-
beiningar og aöstoð. Beina fyrirgreiðslu hlutu um 800
einstaklingar á skrifstofunni siðastliðið ár og einnig
hefur skrifstofan séð um sölu happdrættismiða Sjálfs
bjargar og orðið nokkur hagnaður af því.
Á nýliðnum aðalfundi urðu breytingar á stjórn
félagsins. Sigurður Guðmundsson varaformaöur
félagsins og Vilborg Tryggvadóttir ritari þess gáfu ekki
kost á sér til endurkjörs. Sigurður Guðmundsson var
formaður félagsins í 15 ár en 1977 lét hann af þeim
starfa og hefur verið varaformaður siðan. Vilborg
Tryggvadóttir hefur verið ritari síðastliðin 20 ár og
hefur hún starfað með 4 formönnum, þ.e. þeim Guð
laugi Gislasyni, Vigfúsi Gunnarssyni, Sigurði Guð
mundssyni og núverandi formanni, Rafni Benedikts-
syni. Þakkar stjórn félagsins þeim vel unnin störf á
liðnum árum.
Stjórn félagsins skipa nú: Formaður Rafn Bene
diktsson, varaformaður Sigurrós Margrét Sigurjóns-
dóttir, gjaldkeri Ragnar Sigurðsson, ritari Jóhann
Pétur Sveinsson, vararitari Guðriður Ólafsdóttir.
I varastjórn eru: Gísli Bryngeirsson, Kristín Jóns-
dóttir, Lýður Sigurður Hjálmarsson, Sigurður Björns-
son, Þorbjörn Magnússon.
Aöalfundur
Garðyrkjufélags íslands
var haldinn nýlega.
Mikil gróska er í félaginu. Á síðasta ári var meðal
annars gefin út bók um ísl. sveppi, Sveppakverið, sem
er mjög handhæg bók og fróðleg til aflestrar, fyrir þá
sem vilja tina sveppi sér til matar. Sveppatinsla er nú
orðin þó nokkuð útbreidd hérlendis.
Á fundinum kom fram að auka þyrfti fræðslu full
orðinna um meðferð gróðurs, en hún er víða bágborin.
Aðalfundur Garðyrkjufélags lslands vill þvi hvetja
alla landsmenn til að bæta almenna umgengni og þá
sérstaklega við gróður, sem verið er að koma upp i
landi voru.
Stjórn félagsins skipa: Formaður Jón Pálsson, vara
form. Ágústa Björnsdóttir, gjaldkeri Berglind Braga
dóttir, ritari Ólafur B. Guðmundsson, meðstj. Einar I.
Siggeirsson.
Framsöknarvist
í Reykjavík
Framsóknarfélag Reykjavikur gengst fyrir spilakvöldi.
að Rauðarárstig 18, Hótel Heklu, mánudaginn 28.
apríl kl. 20. Mjög góð verðlaun. Kaffiveitingar í hléi.
Athugið: Hótel Hekla er vel staðsett, nokkur skref frá
Hlemmi. Miðapantanir í sima 24480.
Flataskóli, Garðabæ
Innritun
Fólk sem flytur í Garðabæ á þessu ári láti skrá skóla-
skyld börn sin, sömuleiðis fer fram innritun 6 ára
barna, þessa viku.
Hárin á rauða kollinum
munu vera 90 þúsund
Hárgreiðslustofan Papilla efndi til getraunar í auglýs
ingu i DB nýverið, þar sem spurt var hve mörg hár
væru að meðaltali í rauðhærðum kolli. Veitt voru
verðlaun fyrir rétt svör. Gefnir voru þrír möguleikar,
120 þúsund hár, 90 þúsund hár og 110 þúsund hár.
Rétt svar er 90 þúsund hár, en almennt munu færri
hár i rauðhærðum kollum en öðrum.
, Verða hinir rauðhærðu að sætta sig við það, þótt
þeir séu um leið sannfærðir um að þessi háralitur sé
öðrum fallegri.
Fyrstu verðlaun í getrauninni hlaut Þórhildur-
Sigurðardóttir, Hrannargötu 9, tsafirði, kr. 20 þúsund.
önnur verðlaun, kr. 15 þúsund, hlaut Hadda Hálf-
dánardóttir, Sléttahrauni 28. Hafnarfirði. og þriðju
verðlaun, lOþúsund, hlaut Liney Laxdal. Túnsbergi.
Svalbarðsströnd.
Singer, Sara Lidman og
Ólafur Jóhann í Samvinnunni
1 nýjasta hefti Samvinnunnar er m.a. viðtal við
Þórhall Björnsson, fyrrum kaupfélagsstjóra og
aðalgjaldkera Sambandsins, nýtt Ijóð eftir Ólaf
Jóhann Sigurösson, smásaga eftir nóbelsskáldið Isaac
Bashevic Singer og grein eftir Hjört Pálsson dagskrár
stjóra um Söru Lidman, sem hlaut Bókmennta
verðlaun Norðurlandaráðs í ár. Greinar um sam
vinnumál skrifa Axel Gislason framkvæmdastjóri
Skipadeildar Sambandsins, Haukur Ingibergsson
skólastjóri og Bruno Hjaltested aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Samvinnutrygginga. 1 þættinum Mér
finnst segja þær Birna Bjarnadóttir, Dagbjört
Höskuldsdóttir og Sigríður Thorlacius álit sitt á hlut
deild kvenna í samvinnustarfinu. Margt fleira efni er i
heftinu. Ritstjóri Samvinnunnar er Gylfi Gröndal.
Hærri vextir af orlofsfé
Ákveðið hefur verið að hækka vexti af orlofsfé úr
11,5%, eins og þeir voru á siðastliðnu orlofsári, í 24%
fyrir það orlofsár sem nú er senn á enda.
i___________Félagsmálaráðuneytið, 18. april 1980.
«El*
f Halla
^-^^^Jónsdóttir
Specialkursus í Árósum
Við háskólann i Árósum i Danmörku hafa síðan i
október 1945 verið námsbrautir i næringarfræði.
textilfræði, neytenda- og félagsfræði og fleiri greinum.
Allt fólk með kennaramenntun á rétt á-að sækja
námskeiðin en veittar eru undanþágur eftir mati
hverju sinni.
Sérstök athygli skal vakin á ársnámi i félags- og
neytendafræði sem byrjar i scptember 1980.
Kennslan er ókeypis og hægt er að fá húsnæði á
stúdentagörðum.
Tilkynning um þáttöku eöa áhuga á að taka þátl i
námskeiðinu þarf að senda til: Specialkursus i
Husholdning ved Árhus Universitet. Bygning 150.
Universitelsparken, 8000 Árhus C, fyrir 30. april nk..
cn formlega umsókn má senda scinna.
Upplýsingar gefur Anna Gisladóttir húsmæðra
kennari. Reykjavík.s. 33442.
Frá Hjarta og æðaverndar-
félagi Reykjavíkur
Vegna mikillar aðsóknar verður námskeið i endur
lifgun, blástursaðferð og hjartahnoði á vegum félags-
ins endurtekið mánudagana 28. april og 5. mai nk.
Upplýsingar og innritun á skrifstofu Hjartaverndar
'ísima 83755.
ÁKALDA
B0RÐIÐ
Allt
ísenn!
BARNAVAGN,
BURÐARRÚM OG
KERRA
Höfum ennfremur kerrur, leik-
grindur, stóla, klœðaborð, vöggur
og göngugrindur. Allt mjög
vandaðar vörur frá hinu þekkta
ameríska fyrirtæki
„HEDSTROM"
Mikið úrval af fatnaði og gjafavi
um handa ungbörnum.
Póstsendum
um land allt