Dagblaðið - 16.05.1980, Side 1
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1980. '13
Laugardagur
17. maf
16.30 Iþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson.
18.30 Fred Flintstone í nýjum ævintýrum. Þriðji
þáttur. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.55 Enska knattspyrnan.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Löður. Gamanmyndaflokkur. Þýðandi
Ellert Sigurbjömsson.
21.00 Peter Tosh. Mynd frá tónleikum með
PeterTosh.
21.30 Lifum bæði lengi og vel. (Living Longer,
Living Better). Ný, bresk heimildamynd um
viðleitni visindamanna til að lengja
æviskeiðið. Telja ýmsir þeirra, að hundrað ár
verði ekki óvenjulegur aldur, þegar fram líða
stundir. Þýðandi JónO. Edwald.
22.00 Hombre. Bandarískur „vestri” frá árinu
1967. Aðalhlutverk Paul Newman, Diane
Cilento og Frederic March. John Russel hefur
alist upp meðal indíána i Arizona. Hann erfir
gistihús sem hann selur, vega þess, að hann
fellir sig ekki við lifshætti kynbræðra sinna.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
23.45 Dagskrárlok.
Sunnudagur
18. maf
18.00 Sunnudagshugvekja. Séra Gunnþór Inga-
son, sóknarprestur i Hafnarfirði, flytur hug-
vekjuna.
18.10 Stundin okkar. Farið vcrður í heimsókn til
héraðsskólans á Reykjanesi við lsafjarðardjúp.
Nemandi úr Samvinnuskólanum við Bifröst
leikur á flöskur og segir frá skóla sinum, og
nemendur úr Leiklistarskóla rikisins sýna brot
úr trúðaleikriti. Leikstjóri er Þórhildur Þor-
' leifsdóttir, Rætt verður við Jón Baldur
Sigurðsson um fuglaskoðun og Árni Blandon
segir sögu, auk fastra liða. Umsjónarmaður
Bryndis Schram. Stjórn upptöku Tage
Ammendrup.
19.00 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Þjóðlíf. Rætt verðurviösöngvarann Ivan
Rebroff og farið i Hallormsstaðarskóg, talað
við Jón Loftsson skógarvörð og Sigurð
Blöndal, skógræktarstjóra nkisins. Einnig
verður tréskurðarmaðurinn Halldór
Sigurðsson á Egilsstöðum sóttur heim. Þá
verður farið i jöklaleiðangur með lslenska
alpaklúbbnum. Meðal gesta í sjónvarpssal,
verða Gisli Jónsson, Halldór Laxness,
Hannibal Valdimarsson, og Vilhjálmur
Hjálmarsson. UmsjónarmaðurSigrún Stefáns-
dóttir. Stjórn upptöku Valdimar Leifsson.
21.35 f Hertogastræti. Fimmtándi og síðasti
þáttur. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir.
22.25 Söngur skýjanna. Japönsk heimildamynd.
Blómaskreytingar eru meðal hinna fornu,
þjóðlegu lista Japana. Fyrr á öldum voru þær
keppnisíþrótt aðalsmanna; nú þykja \ .
mikilsverð heimilisprýði, og eru uppi marg
vislegar stefnur i greininni. Þýðandi og þulur
Óskar Ingimarsson.
.22.45 Dagskrárlok.
Mánudagur
19. maí
20.00 Fréttirog veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Tommi og Jenni.
20.40 Iþróttir. Umsjónarmaður Jón B. Stefáns-
son.
21.15 Skyldu konur vita hvað þær vilja? Finnskt
sjónvarpsleikrit eftir Bengt Ahlfors, sem
einnig er leikstjóri. Aðalhlutverk Lilga
Kovanko, Svante Martin og Johanna Ring-
bom. Lisbet hefur um nokkurt skeið verið
óánægð með hjónaband sitt. Hún ákveður að
flytja til fráskilinnar vinkonu sinnar, sem hún
telur að njóti frelsis og sjálfstæðis. Þýðandi
Óskar Ingimarsson (Nordvision — Finnska
sjónvarpið).
22.50 Dagskrárlok.
Þriðjudagur
20. maí
.20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Tommi og Jenni.
20.40 Dýrðardagar kvikmyndanna. Þriöji
þáttur. Kúrekahetjurnar. Þýðandi Jón O.
Edwald.
21.10 Óvænt endalok. Tíundi þáttur. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
21.35 Umheimurinn Þáttur um erlenda viðburði
og málefni. UmsjónarmaðurSonja Diego.
22.25 Dagskrárlok.
Miðvikudagur
21. maí
18.00 Börnin á eldfjallinu. Tiundi þáttur. Þýö-
andi Guðni Kolbeinsson.
18.25 Llfið um borð. Þriðji þáttur lýsir starfi
þeirra, sem fljúga farþegaþotum. Þýðandi Bogi
Arnar Finnbogason. (Nordvision — Norska
sjónvarpið).
18.45 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Nýjasta tækni og visindi. Umsjónarmaður
örnólfurThorlacius.
21.05 Milli vita. Norskur myndaflokkur í átta
þáttum, byggður á skáldsögum eftir Sigurd
Evensmo. Annar þáttur. Efni fyrsta þáttar:
Karl Marteinn er unglingspiltur í skóla. Vegna
veikinda föður sins verður hann að hætta
námi og fara áð vinna fyrir sér. Erfiðisvinnan
á illa við hann, en vekur áhuga hans á verka-
lýðsmálum. Karl Marteinn skrifar grein i
bæjarblaðið um kjör verkamanna. Hann
langar .að leggja fyrir sig blaðamennsku og
sækir um starf á dagblaði i.litlum bæ. Þýðandi
Jón Gunnarsson (Nordvision — Norska sjón-
varpið).
22.20 Setið fyrir svörum. Dr. Gunnar Thor-
oddsen forsætisráðherra svarar spurningum
blaðamanna. Stjórnandi Ingvi Hrafn Jónsson.
23.00 Dagskrárlok.
Föstudagur
23. maí
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Skonrok(k). Þorgeir Ástvaldsson kynnir
vinsæl dægurlög.
21.10 Kastljós. Þáttur um innlend mál-
efni.Umsjónarmaður Helgi E. Helgason.
22.15 Bhowani-stöðin. (The Bhowani Junction).
Brezk biómynd frá árinu 1955. Leikstjóri
George Cukor. Aðalhlutverk Ava Garnder,
Stewart Granger og Francis Matthews.
Myndin lýsir ástum og ævintýrum ungrar
konu I hjálparsveitum indverska hersins
skömmu eftir lok siðari heimsstyrjaldar. Þýð-
andi Kristmann Eiðsson.
00.00 Dagskrárlok.
Laugardagur
24. maí
16.30 Iþróttir. Umsjónarmaður Bjami Felixson.
18.30 Fred Flintstone I nýjun ævintýrum. Teikni-
myndaflokkur. Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
I8.55 Enska knattspyrnan
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.20 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Löður. Gamanmyndaflokkur. Þýðandi
Ellert Sigurbjömsson.
21.00 Oscars-verðlaunin. 1980. Mynd frá(
afhendingu Oscars verðlaunanna i Hollywood
fyrir rúmum mánuði. Þýðandi Björn
Baldursson.
22.00 Munaðarleysingjalestin. (The Orphan
Train). Brezk-bandarisk sjónvarpsmynd frá
árinu 1979. Aðalhlutverk Jill Eikenberry,
Kevin Dobson og John Femia. Sagan gerist
um miðja nitjándu öld. Emma Symns tekur
við rekstri munaðarleysingjaheimilis i New
York. Henni ofbýður meðferðin á
einstæðingsbörnum í stórborginni og fer með
hóp þeirra upp i sveit, þar sem hún reynir að
finna þeim góð heimili. Þýðandi Jón O.
Edwald.
23.45 Dagskrárlok.
Haraldur Ólafsson lektor þýðir og les útvarpssöguna Siddharta. Haraldur er
kunnur útvarpsmaður, hefur þýtt og lesið upp, flutt erindi og var um nokkurra
ára skeið dagskrárstjóri útvarpsins. Hann situr nú á þingi sem varamaður fyrir
Framsóknarflokkinn. DB-mynd R.Th.
ÚTVARPSSAGAN - útvarp þriðjudag kl. 21.40:
SIDDHARTA
Höfundur bókarinnar Siddharta er
Hermann Hesse. Hann hefur hlotið
nóbelsverðlaun fyrir skrif sln og hafa
bækur hans veríð þýddar á fjölda
tungumála. Hesse var alla tíð tals-
maður réttlætis og andstæðingur
einræðis i hvaða mynd sem var.
þeirra er rita á þýzka tungu á þessari
öld, skrifaði fjölmargar skáldsögur,
orti ljóð og samdi ritgerðir um
bókmenntir og menningar- og
mannúðarmál,” sagði Haraldur.
Meðal þekktustu verka Hesse eru
Siddharta, Áusturförin,
Sléttuúlfurinn og Glerperluleikur.
Hin ágæta saga hans Fórnarlambið
var flutt í rikisútvarpinu í fyrra af
þýðandanum Hlyni Árnasyni.
Haraldur sagði að Hesse hefði alla'
tíð verið talsmaður réttlætis og and-
stæðingur nasisma og einræðis i.
hvaða mynd sem var. Hann hreifst af
indverskri heimspeki og lífs-
skoðunum Buddha.
( Siddharta ber þessa merki. Sagan
segir frá ungum manni, sem leitar
sannleikans um sjálfan sig og
tilveruna. Hún hefur verið þýdd á
fjölda tungumála og nýtur vinsælda
víða um heim.
-EVI.
Siddharta heitir nýja útvarjýs-
sagan, sem byrjar á þriðjudagskvöld.
Halldór Laxness las seinasta kaflann
úr bók sinni Guðsgjafaþulu í síðustu
viku.
„Hermann Hesse, höfundur
Siddharta, var þýzkur að ætt. Hann
gerðist svissneskur ríkisborgari 1923
og hlaut nóbelsverðlaun i
bókmenntum 1946”, sagði Haraldur
Ólafsson lektor, sem þýðir og les
bókina.
„Hesse er í hópi helztu höfunda
Allt í lagi, allt í lagi. Ég skal
fara með þér til Ertglands að
hotfa á fótbolta.