Dagblaðið - 04.07.1980, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1980.
5
Seltjamames:
Merkjasali flutt-
ur með lögreglu-
valdi af kjörstað
,,Ég er svo innilega óvön því að
vera handtekin, að ég bað ekki um
neina handtökuskipun, svo að ég var
flutt i lögreglubíl á stöðina í Reykja-
vík,” sagði Jóhanna Kristjónsdóttir
ritari Félags einstæðra foreldra.
Henni var við forsetakosningarnar á
sunnudaginn meinað að selja merki
félagsins við Mýrarhúsaskóla á
Seltjarnarnesi.
„Við töldum okkur vera í fullum
rétti við miðasöluna, því að við
höfðum fengið leyfi dómsmálaráðu-
neytisins,” sagði Jóhanna. „Þarna
var því um óskiljanlega geðþótta-
ákvörðun formanns yfirkjörstjórnar
að ræða. Við fengum að selja merkin
óáreitt alls staðar annars staðar.”
Upphaf málsins var það, að
annarri merkjasölumanneskju var
vísað af lóð Mýrarhúsaskólans.
Jóhanna sagðist hafa frétt af því hjá
fólki, sem fylgdist með atganginum.
Hún kannaði þegar í stað hvað þarna
værf'á ferðinni og þá kom í Ijós að
brottvisunin var eingöngu runnin
undan rifjum formanns yfirkjör-
stjórnar. Hún kvaðst því myndu
koma á staðinn sjálf og selja þar
merki FEF. — í millitíðinni var ann-
arri sölukonu frá Félagi einstæðra
foreldra vísað í burtu.
Er Jóhanna hóf að selja merkin við
Mýrarhúsaskóla var fyrst reynt að fá
hana til að yfirgefa lóð skólans. Er
það gekk ekki var kallað á lögregl-
úna.
„Þetta voru afskaplega geðþekkir
piltar, sem voru fengnir til að fjar-
lægja mig,” sagði Jóhanna. „Þeir
báðu mig fyrst að selja merkin fyrir
utan lóð skólans, en ég kvaðst vera
að framfylgja prinsippmáli. Þeir hik-
uðu lengi vel og virtust vera í vafa um
hvernig þeir ættu að taka á mér, en
loks var mér ekið á lögreglustöðina í
Reykjavík.
Það kostuglega við þetta lögreglu-
mál var það,” hélt Jóhanna áfram,
,,að meðan á þessu stóð kom
Seltjarnarneslögreglan á staðinn til
að kjósa. Reykjavíkurlögreglumenn-
irnir báðu kollega sina að taka að sé
málið, en þeir neituðu harðlega að
■skipla sér af þvi.”
-ÁT-
DB-myndir Bjarnleifur.
BRYGGIA A HJÓLUM
Sjórallið í kringum landið hefst á
morgun. Þessi árlegi viðburður hefur
átt þátt í því aðsportbátaáhuginn hefur
stóraukizt um allt land síðustu árin.
Mikið er búið að kvarta yfir aðstöðu-
leysi fyrir smábáta í Reykjavíkurhöfn
en í Vík í Mýrdal eru þeir þó enn verr
settir. Þar er engin höfn og engar
bryggjur.
En á sjó vilja þeir engu að síður og
því hafa þeir ekki látið slíkt smávanda-
mál aftra sér. Þeir hafa einfaldlega
smíðað þessa feiknarlegu bryggju á
hjólum og fengið það verkefni í hendur
gömlum trukk á staðnum að bakka
henni út i sjóinn þegar vel viðrar. Þar
er báturinn losaður úr griparminum á
endanumogsigltaf stað. Að sjóferðinni
lokinni er bátnum svo bakkað inn í
arminn á ný og hann dreginn á þurrt og
geymdur til næstu sjóferðar. Kannski
hér sé komin Iausnin á vanda smábáta-
eigenda í Reykjavík.
-JB.
Áskorun
til /s/endínga!
Á meðan þúsundir íslendinga, eru sendir heim í
„sumarfrí”, vegna erfiðleika í sjávarútvegi,
standa íslenzkir atvinnuflugmenn fyrir verkfalli,
sem skaðar ísland og alla íslendinga. Ég skora á
alla íslendinga að mótmæla slíku háttalagi.
Verum þess minnug, að komið getur sú
stund, að allir starfsmenn Fiugieiða h/f.,
verði sendir í æviiangt „sumarfrí".
ÍSL ENDINGUR
LOKAÐ
í réttarhléi frá 1. júlí til 1. september 1980.
Þó verður skrifstofan opin alla þriðjudaga
á þessu tímabili og bréfamóttaka er hvern
virkan dag. |ngj p Helgason hrl.
Laugavegi 31
Friðrik Páll
Jónsson
áferðalagií
Ég held að Pompidoustór-
hýsiö við Beaubourggötu sé
iýsandi dæmi um skemmtilega
menningarhöll. Þessi „olíust-
assjón“, sem sumir nefndu
svo, er ævintýri
líkust utan dyra og
innan. Louvre-
safniö við Tuiler-
iesgaröinn er ekki
langt undan fyrir
léttfætta. Ef menn
þreytast á söfnum
er göngutúr á Signubökkum
góð hressing, einkum í
grennd við Notre Dame kirkj-
una. Þar breiöa „búkkínist-
arnir“ úr gömlum bókum, blöð-
um og kortum. Svo er sjaldnast
langt í næsta kaffihús, þetta
annað heimili Frakka, og
ágætt að tylla sér niður við
gangstéttarborð til þess að
skoöa mannlífið.til dæmis á
ögn snobbuðu kaffihúsi Café
de Flore í St. Germain hverfinu.
Útimarkaöir eru margir mjög
skemmtilegir, einkum á sunnu-
dagsmorgnum, svo sem í götun-
um Montorgueil og Mouffetard
neðanveröri, að ógleymdum
Flóamarkaönum í
Clignancourt út-
hverfinu. Þeir sem
vilja yfirsýn geta
valið um Eiffel-
turninn eða
Montmartrehæö
þar sem málararnir
á Tertretorgi keppast við aö
bjóða vöru sína vart þornaða.
Þar er allt annar bragur
en í stúdentahverfinu,
Latínuhverfinu, með hinum
viröulega skóia Sorbonne
og Panthéon. Hvarvetna
eru litlir matstaöir og ekki
alltaf bestir þeir sem mest eru
áberandi. Hálfur dagur nægir til
þess að skoða höllina í Versölum
skammt fyrir utan borgina.
FLUGLEIDIR
%MSEdgQ
Ef þúhygguráferötil
geturöu klíppt þessa
auglýsingu útog hafthana
með.þaðgaeti komiðsérvel.