Dagblaðið - 04.07.1980, Qupperneq 6
6
DAGBLADIÐ. FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1980.
Norður-írland:
Sorg móðurinnar metin
á 40 milljónir króna
—faðirinn hyggst stof na barnahjálparsjóð fyrir bæturnar
Harmur móðurinnar og sálarkvalir
sem hún leið eftir að hafa misst þrjú
börn sín var metinn á þrjátíu og fimm
þúsund pund eða jafnvirði rétt um
fjörutíu milljóna islenzkra króna,
sanilcvæmt úrskurði dómstóls í
Belfast á Norður-írlandi fyrir
nokkrum dögum. Fimm mánuðir eru
siðan móðirin réð sjálfri sér bana er
hún taldi sig ekki getá afboriðcsorg
sína.
Fyrir fjórum árum var konan,
Anne Maguire, á gangi á götú í
Belfast, þegar bifreið ók upp á gang-
stéttina og lenti á henni og þrem
börnum hennar ungum. Börnin
Joanne átta ára, John tveggja ára og
Andrew sex vikna gamall, létust öll af
afleiðingum slyssins. Sjálf slasaðist
Anne mjög mikið.
Tildrög slyssins voru þau að IRA
félagi, en þau samtök berjast fyrir
sameiningu alls frlands, var undir
stýri bifreiðarinnar. Hann var látinn
þegar bifreiðin sveigði upp á gang-
stétt. Hafði orðið fyrir skoti frá
brezkum hermanni þegar hann
reyndi að komast hjá handtöku.
Eftir þetta náði Anne Maguire sér
aldrei aftur andlega. Hún átti einnig
lengi í veikindum vegna meiðsla.
Móðurinni tókst aldrei að má minn-
inguna um dauða barna sinna úr
huga sér. Hún og maður hennar
Jackie reyndu að flytjast á brott til
Nýja Sjálands til að komast á brott
frá minningunum en það mistókst og
þau festu ekki rætur þar. Með þeim
fór eina barn þeirra sem eftir lifði,
sem þá var sjö ára gamalt. Hjónin
eignuðust barn á meðan þau bjuggu í
Nýja-Sjálandi. Var það stúlka sem
skl rð var Joanne eftir eldri systur
sinni, sem látin var. Síðar eftir að
Anne og Jackie höfðu snúið aftur til
Noröur-írlands eignuðust þau annað
barn sem nú er aðeins fjórtán
mánaða.
Allt kom fyrir ekki og hinn 21.
janúar siðastliðinn fannst Anne
Maguire látin á heimili sínu. Hafði
hún auðsjáanlega ráðið sér bana.
Faðirinn Jackie hefur tilkynnt að
hann hyggist nota hluta þeirra 35
þúsund punda sem honum og
börnum hans voru dæmdar í bætur
til að stofna til sjóðs sem aöstoöa á
þurfandi börn.
Anne Maguire náði sér aldrei eftir að
þrjú barna hennar létust er bifreið
IRAmanns á flótta ók á þau f Belfast
fyrir fjórum árum.
Það var gleðidagur hjá Ashe fjölskyldunni hrezku á sunnudaginn var. Kins og DB hefur áður skýrt frá slapp Rohert Ashe úr
höndum Vietnama austur í Kampútseu þann dag ásamt þrem félogum sínum. Á K.nglandi var hins vegar verið að vlgja hróður
hans, John, til prestsþjónustu. Kkki er þvi að furða þótt móðir þeirra, Maureen Ashe, sé ánægð á svipinn en með henni á
myndinni er John, presturinn.
Þú flnnur m.a.
RAKSTRAEVÉLAR
x garðverkfœradelldinni
okkar. Tllvaldar á
blettinn heima eöa
fjölbýlishúsálóðina.
BYGGINGAVÖRUVERSLUIM
KÓPAVOGS
NÝBÝLAVEGI 6
BYKO
10.35
Pólland:
Fólk sættir
sig víð hækk-
un á kjötinu
Svo virðist að órói og vinnustöðvanir
í pólskum verksmiðjum fari minnkandi
siðustu daga. Fyrr i vikunni kom til
nokkurra átaka vegna þess að verð á
kjöti hækkaði um helming í
verzlunum. Segja yfirvöld að ekkert
hafi orðið úr mótmælum sem heitið
geti og verkföll hafi engin orðið. Opin-
berir aðilar viðurkenna hinsvegar að til
harðra deilna hafi komið á fundum í
ýmsum verksmiðjum sem settir hafi
verið á í kjölfar ólöglegra skyndiverk-
falla.
— Þær deilur eru nú að fjara út og
við teljum að þeim sé lokið, sagði tals-
maður pólsku stjórnarinnar í gær.
Á þriðjudaginn var tilkynnti póLska
stjórnin að ákveðið hefði verið aðgripá
til aðgerða i verðlagsmálum, sem nllu
þvi að ýmsar kjötvörur hækkuðu mjög
mikið. Órói sá og deilur sem þetta olli í
ýmsum stórum verksmiðjum er talinn
sá alvarlegasti í Póllandi siðan árið
I976. Þá urðu stjórnvöld að afturkalla
fyrri tilkynningu um verðlagshækkanir
í kjölfar mikilla verkfalla og óeirða.
Sierra Leone:
KLOFNA SAM-
TÖK AFRÍKU-
RÍKJANNA
— hart deilt um hvort Polisariohreyf ingin
áaðfáaðild
Brestur er kominn i Samtök Afríku-
rikja sem nú þinga i Freetown í Sierra
Leone. Deilt er um hvort veita eigi
Polisariosamtökunum, sem berjast
fyrir frjálsræði Sahara inngöngu í sam-
tökin. Þau hafa starfað i sautján ár og
fordæmi eru fyrir því að frelsissamtök
eða skæruliðasamtök fái inngöngu
áður en formlega er búið að veita landi
þeirra frelsi.
Nú standa mál hinsvegar þannig að
Polisariosamtökin hafa lýst yfir stofn-
un sjálfstæðs arabalýðveldis í S.ahara.
Andstæðingamir þar eru ekki lengur
nýlenduherrar frá Evrópu heldur
stjórnin í Marokko. Her Marokko
hefur lengi átt í höggi við skæruliða
Polisario sem njóta aðstoðar frá Alsír.
Hassan konungur í Marokkó hefur
vísað hugmyndum um inngöngu Poli-
sario í samtök Afrikurikja á bug. Segist
hann munusegja land sitt úr samtökun-
um ef ákveðið verði að verða við beiðni
Polisario um inngöngu.