Dagblaðið - 04.07.1980, Side 13
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR4. JÚLÍ1980.
c
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
FrammætirVíkingi
í gær var dregið um þafl, hvaða lið leika saman i
8-liða úrslitum i bikarkeppni KSÍ og varð niður-
staðan þessi:
Vikingur - fram
Fylkir — KSeðaUBK
FH — Þróttur, Nk.
ÍBK — ÍBV.
Ágæturárangur
hjá Filbert Bayi
Fyrrum heimsmethafi i 1500 m hlaupi, Filbert
Bayi, sigraði með yfirburðum i þeirri grein ú frjáls-
iþróttamóti i Gautaborg f gærkvöldi. Timi hans var
3:36,97 min. í 2. sæti varð Bronlslaw Malinowski
frá Póllandi á 3:40,86 og þriðji Phil Kane, Banda-
ríkjunum 3:43,37 min. Nýbakaður heimsmethafi í
1500 m hlaupi, Steve Ovett frá Englandi, keppti i
800 m hlaupl og sigraði á 1:48,16 mín. Annar varð
Bandarikjamaðurinn Billy Martin á 1:48,64 min. og
þriðji John Walker, N-Sjálandi á 1:48,82 mín.
Átta nýliðar
ílandsliðinu
Landsliðsnefnd tilkynnti i gær val 15 leikmanna
sem mæta eiga Græniendingum á Húsavikurvelli i
kvöld í þriggja landa keppninni. Eftirtaldir lelkmenn
skipa hópinn: Diðrik Ólafsson, Lárus Guðmunds-
son og Hinrik ÞórhaUsson úr Vlkingi, Trausti Har-
aldsson, Marteinn Geirsson, Jón Pétursson, Simon
Kristjánsson, Guðmundur Steinsson og Pétur
Ormslev úr Fram, Agúst Hauksson, Jóhann
Hreiðarsson og PáU Ólafsson úr Þrótti, Stefán
Jóhannsson, Ottó Guðmundsson og Elias Guð-
mundsson úr KR. f þessum hópi eru alls átta nýUðar
og er meglnástæðan fyrir þvi, að 1. deUdarfélögin
FH, ÍBV, ÍA, UBK, Valur og ÍBK vildu ekki láta
sina menn af hendi við landsliðið þar sem þessi félög
eiga að leika á laugardag. Þrátt fyrir þetta ætti stór
sigur að vinnast á Grænlendingum sem þarna leika
sinn annan landslelk, sá fyrsti tapaðist gegn Færey-
ingum, 0—6.
Meistaramótinu
frestað „vegna
veðurs”í
blíðskaparveðri
Þrátt fyrir bUðskaparveður i gærkvöldi var
fslandsmeistaramótinu, sem þá átti að halda á
LaugardalsveUi, „frestað vegna veðurs”. Óneitan-
lega kom þessi ákvörðun mönnum mjög á óvart þvi
oft hafa frjáisiþróttamót verið haldin I afskaplega
slæmu veðri.
Astæðan mun vera sú, að vallarstarfsmönnum
hafði ekld tekizt að merkja hlaupabrautirnar á aðal-
leikvanginum vegna rigningarinnar sem var um
miðjan dag i gær. Ekki var unnt að halda mótið á
frjálsiþróttaveUinum vegna viðgerða sem þar hafa
staðið yfir að undanförnu.
Ef ekkert óvænt kemur upp á hefst meistaramóUð
á Laugardalsvellinum kl. 19,30 i kvöld.
-GAJ.
Borg kominn í úrslit
Svíinn Björn Borg nálgast fimmta Wimbledon
sigurinn i tennis skref fyrir skref. f gær tryggði hann
sér rétt til að leika úrslitaleikinn i keppninni þegar
hann sigraði Bandarikjamanninn Brian Gottfried
með 6—2, 4—6, 6—2 og 6—0. t kvennaflokkinum
varð hins vegar núverandi Wimbledon-meistari
Martina Mavratilova að sætta sig viö tap i undan-
úrslitum fyrir bandarisku stúlkunni Chris Evert
Lloyd, 4—6, 6—4 og 6—2. Lloyd mætlr áströlsku
stúlkunni Eonne Goolagong i úrsiitaleiknum i dag
og verður það sjötti úrslltaleikur hennar á átta árum
i Wimbledon-keppninni.Það ræðst f dag hver verður
andstæðingur Borgs i úrslitaleiknum en þá leiða
saman hesta sina i undanúrslitum örvhentu Banda-
ríkjamennirnir John McEnroe og Jimmy Connors.
Borg þótti mjög sannfærandi i leik sínum gegn Gott-
fried og eflaust hefur það háð hinum siðarnefnda að
hann hafði keppt i tviliðaleik kvöldiö áður.
Frábært heimsmet
ígrindahlaupi
Bandarfski hlauparinn Edwin Moses ólympiu-
meistari i 400 metra grindahlaupi á síðustu ólympíu-
leikum setti i gær frábært heimsmet i þessari aðal-
keppnisgrein slnni. Metið setti hann á frjálsiþrótta-
móti i Milanó á ftaliu og tlmi hans reyndist ótrúlega
góður eða 47,13 sek. Eldra heimsmetið átti hann
sjálfur og var það 47,45 sekúndur, sett árið 1977.
Fimmtíu ár f rá síð-
asta Þingvallahlaupi
— Haukur Einarsson og Magnús Guðbjörnsson, báðir KR-ingar, hlupu
Þingvallahlaup 6. júlí1930.,, Ferþrautin var skemmtilegust,” segir Haukur
Einarsson íviðtali við DB en íhenni var keppt í1000 m hlaupi,
1000 m hjólreiðum, 1000 m róðri og 1000 m sundi. Allt í einni lotu
Það lék mikill ævintýraljómi um
nafn Hauks Einarssonar hjá okkur
strákunum i vesturbænum áratuginn
fyrir siðari heimsstyrjöldina. Haukur
prentari Einarsson frá Miðdai var einn
af þessum mönnum sem allt gat i
iþróttum — synti, gekk, hljóp, hjólaði
og það heyrði til algjörra undantekn-
inga ef Haukur kom ekki fyrstur f
mark. íslandsmeistaratitlar hans eru
margir. Nýlega hitti undirritaður Hauk
á götu, stæltan og hressan og 71 árs að
aldri ber hann enn öll einkenni iþrótta-
mannsins. Æfir lika daglega göngu og
sund. Haukur gat þess að nú á sunnu-
dag, 6. júlf, væru fimmtfu ár frá því
siðasta Þingvallahlaupið var háð og við
báðum hann að segja okkur frá þvf og
stikluðum um leiö á þvi helzta á
iþróttaferli hans. Haukur er einn hinna
kunnu Miðdals-systkina, fæddur 19.
febrúar 1909. Einn fjölhæfasti fþrótta-
maður fslands fyrr og siðar.
,,Það var mikið rætt um það fyrir
þjóðhátiðina á Þingvöllum 1930 að
efna til boðhlaups frá Reykjavik austur
i sambandi við hátiðina með nokkrum
hlaupurum eftir gamla Þingvallavegin-
um. Hins vegar töldu forráðamenn
hátíðarinnar og lögreglan það ekki ráð-
legt — og báru við mikilli umferð.
„Mangi hlaupari” — Magnús Guð-
björnsson, sem þá var fremstur
íslenzkra langhlaupara, vildi ekki við
það una — vildi endilega hlaupa Þing-
vailahlaup. Eg var þá 21 árs og hafði
æft hlaup nokkuð þó líkamsbygging
min gæfi ekki beint tilefni til þess. Stór
og nokkuð þungur. Magnús lagði hart
að mér að hlaupa með sér en ég var
tregur til. Þetta var löng vegalengd, 50
kílómetrar.
Kristján L. Gestsson, sá mikli
iþróttamaður og íþróttafrömuður,
m.a. formaður KR, lagði einnig að mér
að hlaupa með Magnúsi. Sagði að ég
gæti hætt við Rauðavatn eftir að hafa
hlaupið maraþonvegalengdina, 42,6
km. Ég lét því tilleiðast, þó ég hefði
lagt miklu meira kapp á að æfa göngu.
Synd að hún skuli ekki vera keppnis-
grein á íslandi nú. Það var þvi úr að
Þingvallahlaup var háð í sambandi við
þjóðhátíðina,” sagði Haukur.
Lagtaf stað
úr Almannagjá
„Við Magnús lögðum af stað i Þing-
vallahlaupið kl. tvö 6. júlí 1930 en
Kristján L. Gestsson og fleiri komu í
humátt á eftir í bíl. Við Magnús hlup-
um samsiða fyrstu fimm kílómetrana
en síðan tók Magnús forustuna. Tals-
vert eldri og miklu reyndari hlaupari en
ég. Það var allt á fótinn upp á Háamel
og ekki sá ég alltaf til Magnúsar. Frá
Þingvöllum niður i Miðdal voru 33 km
og við hlupum þá vegalengd á um 2
klst. og 30 mínútum. Þar dró ég mikið
á Magnús enda þar á heimaslóðum og
þekkti vel til. Það var um tíma orðið
stutt á milli okkar en síðan fór að draga
sundur með okkur á ný. Magnús mjög
sterkur langhlaupari. Við komum
niður á Suðurlandsveginn við Geitháls
og höfðum þá lítið orðið varir við um-
ferð. Hins vegar fylgdust margir með
hlaupinu eftir að komið var vestur fyrir
Elliðaárnar.
Nú, ég sagði víst i byrjun að talað
hefði verið um að ég hætti við Rauða-
vatn. Kristján var á því að ég hætti þar
,en mér fannst þá vera stutt eftir og
ekki svo mjög þreyttur. Ákvað þvi að
hlaupa til loka — og vissulega léttu
áhorfendur undir. Var þó talsvert
þreyttur í Sogamýrinni og á Laugaveg-
inum. Hins vegar spretti ég úr spori
niður Bakarabrekkuna og inn í
Lækjargötu, þar sem hlaupinu lauk.
Þar var fjöldi manns. Magnús var þá
fyrir nokkru kominn i mark og hljóp
þessa rúmu 50 km á fjórum klukku-
stundum og tíu mínútum. Ég var um
15—20 mín. á eftir honum. Þetta var
talsvert erfitt —- mér fannst það miklu
erfiðara en þegar ég synti nokkrum
árum síðar Drangeyjarsund. Þetta var
nú fyrir 50 árum og síðan hafa Þing-
vallahlaup ekki verið háð. Mér finnst
sjálfsagt að endurvekja þau,” sagði
Haukur.
Þekktastur
sem göngumaður
Þó Haukur Einarsson hafi komið
víða við sem íþróttamaður er hann ef-
laust þekktastur sem göngumaður.
Fyrir síðari heimsstyrjöldina var ganga
vinsæl íþróttagrein hér á landi en síðan
hefur verið litil rækt lögð við hana sem
keppnisgrein nema hvað Sverrir
Magnússon var sterkur göngumaður
um 1950. Fyrir strið var keppt igöngu á
Meistaramótinu i frjálsum íþróttum,
svo og Allsherjarmótinu. Haukur
Einarsson var ósigraður i göngukeppni
frá 1928 til 1941 að hann hætti keppni.
„Ég keppti aldrei erlendis á iþrót'a-
ferli minum. Það voru langar ferðir og
dýrar að fara til útlanda í keppni, þegar
ég var upp á mitt bezta. Ég hafði náð
ólympíulágmarkinu í 50 km göngu fyrir
ólympiuleikana i Berlin 1936, en
tognaði illa nokkru fyrir leikana og gat
ekki farið. Brezkur göngumaður
sigraði með miklum yfirburðum í 50
km göngunni f Berlín. Gekk á um 20
mín. betri tíma en ég átti þá bezt. Það
er ekki mikið í 50 km kappgöngu,”
sagði Haukur Einarsson. Nokkrir
íslendingar tóku þátt í ólympíuleikun-
um í Berlín við sæmilegan orðstir en
margir eldri íþróttamenn hafa látið þau
orð falla við undirritaðan að Haukur
hefði þar átt mesta möguleika að verða
framarlega. Meiðsli Hauks komu í veg
fyrir að hann gæti þar keppt við beztu
göngumenn heims.
Ferþrautin
skemmtilegust
Auk þess sem Haukur Einarsson
varð íslandsmeistari í kappgöngu og
hlaupum sigraði hann sex sinnum i fer-
þraut eða frá 1929 til 1935 að læknar
lögðu til að hætt yrði að keppa í fer-
þrautinni hér á landi. Að þeirra mati
var hún allt of'erfið fyrir keppendur.
„Mér fannst ferþrautin skemmti-
legust og æfði sérstaklega fyrir hana.
Fyrst voru hlaupnir 1000 m frá Hlemmi
niður Hverfisgötu og i Hafnarstræti.
Þar beið manns hjól og hjólað vestur í
Selsvör — einnig 1000 metrar. Þá tók
við 1000 metra róður. Róið var úr Sels-
vörinni út í Örfirisey. Þar var lagzt til
sunds. Syntir 1000 metrar í sjónum við
örfirisey og í höfninni. Þetta var allt
tekið i einni striklotu og ég náði beztum
tima 34 minútum og 12 sekúndum i
þessari 4 km ferþraut. Ég varð að
viðurkenna að þetta langa sjósund í
lokin var mjög erfitt — og það var
aðallega vegna þess, sem læknar lögðu
til að hætt yrði að keppa í ferþraut-
inni.”
Drangeyjarsund
Haukur kom mjög viða við á íþrótta-
ferli sínum. Auk þess, sem hann keppti
Haukur Finarsson eftir Viöeyjarsund 1931 — Jón Pálsson, íþróttakennari, til vinstri.
Kristján L. Gestsson, formaöur KR, til hægri.
Haukur Einarsson hleypur niöur Bakarabrekkuna (Bankastræti) i Þingvallahlaupinu 1930.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1980.
17
2
íþróttir
Iþróttir
Iþróttír
Iþróttir
Haukur Einarsson 1930 meö ýmsa verðlaunagripi. Ferþrautarbikarinn til vinstri á
borðinu, Þingvallahlaupsbikarinn sá stærri.
á hlaupabrautum, tók hann þátt í
mörgum víðavangshlaupum, t.d. Ála-
foss- og Hafnarfjarðarhlaupum. ,,Ég
hafði mjög sterka fætur og mikið
lungnaþol en hlaup lágu þó aldrei vel
fyrir mér vegna líkamsbyggingar
minnar — var of þungur. Ég hafði þó
gaman af því að taka þátt í þessum
hlaupum — en gangan var fyrst og
síðast mín helzta keppnisgrein. Synti
þóeinnig mikið þó ég hefði ekki gaman
af því — ekkert hrifinn af sjósundum,”
sagði Haukur.
MikiII ljómi lék þá um Drangeyjar-
sund. Erlingur Pálsson yfirlögreglu-
þjónn hafði fyrstur synt Drangeyjar-
sund 1927 — Pétur Eiríksson siðan
1936. Haukur Einarsson synti Drang-
eyjarsund 1939 og náði mun betri tíma
en áður hafði náðst í því sundi.
Nokkru síðar hófst heimsstyrjöldin
síðari og hún batt enda á íþróttaferil
Hauks Einarssonar. Hann var á togur-
um öll stríðsárin og sigldi mikið.
,,Ég hef mikinn áhuga á að keppni i
hjólreiðum verði tekin upp hér á landi.
Það mætti keppa á Keflavíkurveginum
á sunnudagsmorgnum. Hjóla frá
Hafnarfirði að veginum viðKeflavíkur-
flugvöll og til baka aftur. Þá er umferð
þar litil og vel hægt að korria þar á
skemmtilegri hjólreiðakeppni,” sagði
Haukur Einarsson í lok viðtals okkar.
Hann hjólar enn, syndir og gengur —
um tvær og hálfa klukkustund á dag.
- „Sunnudagarnir eru hvað beztir. Þá
geng ég rösklega 12 km fyrir hádegi —
og yfírleitt syndi ég rösklega 300—400
metra á hverjum degi. Þetta er mitt
bezta tómstundagaman síðan ég komst
á eftirlaun.” Kannski ekki mikið fyrir
mann, sem eitt sinn fór 50 hringi á
gamla Melavellinum i keppni á einum
og sama deginum. Tók fyrst þátt í 10
km kappgöngu — og hljóp síðan 10 km
hlaup „til að fylla töluna, svo hlaupið
félli ekki niður”.
- hsim.
DB-mynd Þorri.'
„Byst við mjög haröri
keppni í kvöld”
—segir Ólafur Unnsteinsson, frjálsíþróttaþjátfari um
meistaramótið í friálsum íþróttum sem hefst íkvöld
Ólafur Unnsteinsson frjálsiþrótta-
þjálfari er manna bezt að sér um
árangur frjálsiþróttamanna hér á iandi.
Hér fer á eftir stutt grein sem hann
hefur ritað i tilefni meistaramótsins i
frjálsum iþróttum sem hefst á Laugar-
dalsvelli í kvöld.
Frjálsíþróttafólkið er nú að komast í
góða æfingu og má búast við mjög
harðri keppni á íslandsmeistaramótinu
sem hefst í kvöld.
f spretthlaupunum mun nýbakaður
methafi i 400 m hlaupi láta mikið að sér
kveða. Væntanlega mun hann eiga sinn
stóra þátt í því að sveit KA mun sigra í
boðhlaupum, bæði í 4x100 m og
.4 x 400 m. Vilmundur Vilhjálmsson,
methafinn í 100 m og 200 m, er nú að
ná sér af meiðslum í baki en verður lítið
með í sumar. Þorvaldur Þórsson og
Aðalsteinn Bernharðsson eru á fram-
faraleið . Jón Diðriksson er nú í met-
formi í millivegalengdahlaupum og lík-
legur til stórafreka. Gunnar Páll Jóa-
kimsson hefur aukið hraða sinn í 400
m í 49,82 sek. og á möguleika á því að
fara niður fyrir 1:50,0 mín. í 800 m.
Guðmundur Sigurðsson UMSE er nýr
„sputnik” í hlaupum og er þegar
kominn í fremstu röð. Brynjólfur
Hilmarsson UÍA dvelst í Gautaborg,
kornungur hlaupari sem er á leið með
að verða bezti langhlaupari landsins.
Stefán Hallgrímsson og Valbjörn Þor-
láksson eru sem fyrr beztu grinda-
hlauparar landsins.
Friðrik Þór Óskarsson er beztur i
lang- og þrístökki en hinn 16 ára gamli
Kristján Harðarson, hinn 16 ára
gamli langstökkvari, er mesta efni sem
hefur komið fram siðan Vilhjálmur
Einarsson hætti keppni, segir Ólafur
Unnsteinsson frjálsiþróttaþjálfari.
DB-mynd: S.
Kristján Harðarson HSH er mesta efni
sem fram hefur komið síðan Vilhjálm-
ur Einarsson var með í keppni. Hörku-
keppni er í hástökki og geta einir 6
menn barizt um sigurinn. Guðmundur
R. Guðmundsson FH fær harða
keppni í sumar frá þeim Stefáni
Friðlei fssyni, Unnari Vilhjálmssyni,
Karli West og Stefáni Stefánssyni. f
stangarstökki er Kristján Gissurarson
orðinn bezti stökkvari landsins og mun
örugglega nálgast metið í sumar. Met-
hafinn Sigurður T. Sigurðsson KR mun
ekki keppa í sumar vegna meiðsla. Val-
björn sýnir ennþá ótrúlega getu 46 ára.
í kúluvarpi eru Hreinn Halldórsson og
Óskar Jakobsson á heimsmæiikvarða
og vekja alls staðar athygli. Guðni
Halldórsson, Pétur Pétursson og
Vésteinn Hafsteinsson eru orðnir kast-
arar á Norðurlandamælikvarða. í
kringlukasti mun íslandsmetið 64,32 m
trúlega verða bætt í sumar. Óskar
Jakobsson og jafnvel Erlendur
Valdimarsson munu eiga þar hlut að
máli. 1 spjótkasti eiga fslendingar nú
þrjá 70 m kastara, þá Óskar Jakobsson
methafann með 76,32 m, Sigurð
Einarsson Ármanni sem kastað hefur
yfir 74 m i sumar og Einar Vilhjálms-
son UMSB méð 70,08 m. Allir geta þeir
bætt metið í sumar. Hver verður
fyrstur? Erlendur Valdimarsson er
einráður í sleggjukasti eins og áður.
Stórátak þarf að gera i þeirri grein i
framtiðinni.
Frjálsíþróttakonur eru nú i stórsókn
hér á landi og margar eru á leið á
norðurlandamælikvarða i sinum
greinum. Þar má nefna Helgu
Halldórsdóttur KR, Sigríði Kjartans-
dóttur KA, Rut og Ragnheiði Ólafs-
dætur FH, Lilju Guðmundsdóttur,
Þórdísi Gísladóttur ÍR, Guðrúnu
Ingólfsdóttur Á og spjótkastarana Dýr-
finnu Torfadóttur KA og fris Grönfeld
UMSB. Því miðurer fjölhæfasta frjáls-
iþróttakonan, Ingunn Einarsdóttir KA,
ekki með í fremstu röð í sumar Vegna
meiðsla.
KR-INGAR SLEGNIR
ÚT í EYJUM
— ÍBV vann KR með 2-1
Vestmannaeyingar sigruðu KR i Eyj-
um í gærkvöldi með tveimur mörkum
gegn einu og hafa þar með tryggl sér
sæti í átta liða úrslitum þar sem þeir
mæta Keflvikingum. Lið ÍBV var mun
sterkari aðilinn i leiknum og veröskuld-
aði sigurinn fyllilega.
Fyrsta mark leiksins kom þegar á 16.
mínútu. Grétar Norðfjörð dómari
dæmdi þá hornspyrnu sem heimamenn
töldu raunar rangan dóm og töldu að
um útspark hefði átt aö vera að ræða.
Upp úr hornspyrnunni fékk Elías Guð-
mundsson boltann frá einum varnar-
manni ÍBV og skoraði örugglega af
stuttu færi.
Vestmannaeyingar Iétu ekki bugast
við mótlætið, þvert á móti var eins og
markið virkaði sem vítamínsprauta á
þá og sóttu þeir mjög fram að leikhléi
en allt kom fyrir ekki og KR-ingar
leiddu því í hálfleik með einu marki
gegn engu.
Eyjamenn komu mjög ákveðnir til
leiks eftir hlé og þegar á 1. mínútu hálf-
leiksins skoraði Sigurlás eftir að hafa
fengið sendingu frá Tómasi en markið
var dæmt af vegna rangstöðu. Á 49.
minútu kom loks jöfnunarmarkið sem
legið hafði í loftinu. Það var Kári Þor-
leifsson sem skoraði markið eftir fyrir-
gjöf fráÓmari Jóhannssyni, 1—1.
Á 71. minútu kom sigurmarkið.
Sigurlás fékk þá stungubolta inn fyrir
vörn KR, lék á einn varnarmann KR og
þegar markvörður KR-inga kom út á
móti honum vippaði Sigurlás yfir hann
af miklu öryggi. Var mjög vel að þessu
Sigurlás Þorleifsson skoraöi annaö mark ÍBV gegn KR i gærkvöldi. Myndin er tekin
i leik Islands og Færeyinga á dögunum og þaö er Sigurlás sem þarna á i höggi viö
markvörö Færeyinga. í kvöld mæta tslendingar Grænlendingum og hefst leikurinn kl.
20 á Húsavik.
DB-mynd: G.Sv., Akureyri.
marki staðið hjá Sigurlási.
Eftir þetta var aldrei spurning um
hvorum megin sigurinn mundi lenda og
Vestmannaeyingar héldu áfram sókn
sinni alveg til leiksloka án þess þó að
bæta við fleiri mörkum.
( Elías Guömundsson var beztur KR-
inga, mjög ógnandi og fljótur. Aö öðru
leyti var liö KR mjög jafnt. f liöi Eyja-
manna áttu bræðurnir Sigurlás og Kári
Þorleifsson ásamt Tómasi Pálssyni allir
imjög góöan leik í sókninni og Sig-
hvatur Bjarnason var sem klettur í
vörninni.
Dómari var Grétar Norðfjörð og
þóttu margir dóma hans orka mjög tví-
'mælis svo ekki sé.meira sagt.
-GAJ/RS, Vestm.
Haukur Einarsson i dag.