Dagblaðið - 09.08.1980, Síða 1

Dagblaðið - 09.08.1980, Síða 1
6. ÁRG. — LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1980. — 179. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI 27022. Sovézka flóttamanninum veitt dvalarieyfi hér —sem pólitískum f lóttamanni. Sendiráð Sovétríkjanna óskar eftir því að maðurinn verði fluttur til skipsins Sovézki sjómaðurinn Viktor Kovalenko, 24 ára gamall skipverji á botnvörpungnum Kharovski frá Murmansk, hefur beiðzi hælis hér á íslandi sem pólitískur flóttamaður. Dómsmálaráðherra hefur veitt hon- um dvalarleyfi hér á landi til að byrja með á meðan málið er í athugun. Þessi ákvörðun var tekin eftir að hinn sovézki sjómaður hafði verið a.m.k. tvívegis til viðtals i Útlend- ingaeftirlitinu. Að sögn Baldurs Möller, ráðuneytisstjóra dómsmála- ráðuneytisins, er talin ástæða til þess að greina ekki frekar frá málinu á þessu stigi, meðal annars ekki þeim ástæðum, sem sjómaðurinn hefur fært fram fyrir beiðni sinni. Samkvæmt heimildum, sem DB telur réttar, hefur sendiráð Sovétrikj- anna hér í Reykjavík snúið sér til íslenzka utanríkisráðuneytisins og óskað eftir milligöngu þess við dóms- málaráðuneytið í því skyni að maður- inn verði færður til skipsins. Var sendiráðsmanni gefinn kostur á að ræða við Kovalenko i gær. Skipstjóri togarans Kharovski hafði gert boð eftir hafnsögumönn- um vegna brottferðar, þegar Ijóst varð, að einn skipverja hafði ekki mætt til skips. Hafði hanaekki sýnt á sér fararsnið kl. 19 í gærkvöld, þrátt fyrir ákvörðun dómsmálaráðherra um dvalarleyfi fyrir Kovalenko. Samkvæmt framansögðu er þvi fátt vitað um ástæður fyrir beiðni Kovalenkos um að fá hér hæli sem póhtískur flóttamaður. Hann hefur gegnt herþjónustuskyldu í heima- landi sínu og talar einungis úkraínsku. - BS Hitnaði í skólastjóra- íbuðinm a Grundarfirði — er f ulltrúar mennta- málaráðuneytisins hugðust leysa „skólastjóramálid” Litlu munaði, að illa færi er öryggisventill á miðstöðvarkatli gaf sig i skólastjóraíbúðinni á Grundar- firði síðastliðiö fimmtudagskvöld. íbúðin var orðin full af gufu þegar að var komið og töldu kunnugir, að ekki hefði miklu mátt muna að ketiliinn spryngi i loft upp, þar sem hiti á honum var oröinn 120°C. Skólastjóraíbúðin var mannlaus er þetta atvik átti sér stað enda skóla- stjórinn, örn Forberg, staddur er- lendis. Eins og fram hefur komið í Dagblaðinu hafa flestir kennarar skólans sagt upp störfum, sumir þeirra a.m.k. í mótmælaskyni við skólastjórann, og höfðu fulltrúar frá menntamálaráðuneytinu einmitt verið á fundi með skólanefnd -á Grundarfirði vegna þessa máls sama dag og umrætt atvik átti sér stað i skólastjóraíbúðinni. DB hefur ekki tekizt að fá upp- lýsingar um niðurstöður fundarins, sem sagðareru trúnaðarmál. Að sögn Garðars Eiríkssonar, formanns skólanefndar, er reiknað með að málinskýristum helgina. íbúar Grundarfjarðar munu vera orðnir langeygir eftir lausn þessa máls og óttast að skólinn geti ekki tekið tii starfa á réttum tíma í haust vegna kennaraskorts. -GAJ. Vísitölufjöl- skyldan notar litasjónvarp „Visitölufjölskyldan kaupir núorðið einungis litasjónvörp,” sagði Hrólfur Ástvaldsson á Hagstof- unni i samtali við DB. „Fjölskyldan fylgist að þessu leyti alveg með timanum, þó svo að hún eigi ekki alveg heilt tæki, heldur einungis um 90% af sjónvarpstæki,” sagði Hrólfur. Fjölskyldan greiðir auk þess nokkurs konar milliverð milli svart- hvíts sjónvarpstækis og litatækis í af- notagjöld árlega eins og hver önnur hciðarleg og grandvör fjölskylda þessalands. -HH. Forseti tslands, Vigdis Finnbogadóttir, hefur nú verið viku I hinu háa embœtti, en hún var sett I embœttið á fóstudag l slðustu viku. Ljósmyndari DB tók litmyndir af innsetningu forsetans og njóta hinir fallegu litir sin óneitanlega betur þar en á þeim svart/hvítu myndum sem birtar voru strax eftir emb- œttistöku. Litirnir I myndinni eru þjóðlegir og mynda réttan ramma um hina hátlðlegu athöfh. Blái liturinn á kjólforsetans, hvlt blómin og I grunni rautt og blátt teppLAð baki forsetan- um eru Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra, Björn Svein- björnsson forseti Hœstaréttar og að baki honum Jón Helga- son forseti sameinaðs þings. Þeir eru sem kunnugt er hand- hafar forseta valds.___DB-mynd Bjarnleifur Bjarnleifsson. Flairi litmyndir eru 1 DB í dag. Sumarmyndir DB eru birtar ó bls. 13 og baksfðu. Samkeppni um hönnun strætis- vagnabiðskýla Strætisvagnar Reykjavikur eru um þessar mundir að fara í gang meö samkeppni um hönnun á gangstéttar- biðskýlum, en þau hafa hingað til engin verið i Reykjavik. Heimild til þátttöku hafa allir þeir, er rétt hafa til að leggja uppdrátt að húsum fyrir hyggingarnefnd Reykjavikur, en til- lögum skal skilað fyrir 12. nóvember. Gert cr ráð fyrir að verðlauna þrjár beztu tillögurnar, og verða fyrstu vcrðlaun ekki undir 1,5 milljón króna, en verðlaunaféð allt nemur fjórum milljónum. Að sögn Ciuðrúnar Ágústsdóttur, formanns stjórnar SVR, er tilgangur- inn með keppninni að fá fram til- lögur um gangstéttarbiðskýli, sem koma megi fyrir við hinar margvís- legustu aðstæður. Þau mega ekki hindra eðlilega umferð um gang- stéttir, verða að falla vel inn í um- hverfiö og vera einföld í uppsetningu. Biðskýli þau, sem nú eru i notkun, standa yfirleitt á víðavangi og gætu með engu móti staöið á venjulegum ganéstéttum. Þau eru flest úr járni, nokkur eru steypt og eitt er úr plasti. Að sögn Guðrúnar Ágústsdóttur eru þau dýr, þannig kostar eitt járnskýli í dag milljón krónur, og er aðalkostn- aðurinn efniskostnaður. Skipuð hefur verið sex manna dómnefnd. Finnur Björgvinsson arkitekt, Hjörtur Kalsöe vagnstjóri og Guðrún Ágústsdóttir skipa dóm- nefndina af hálfu SVR. Fyrir hönd arkitektafélagsins eiga sæti f henni Reynir Adamsson og örn Sigurðs- son, sem báðir eru arkitektar, og Ólafur Jensson framkvæmdastjórL sem er trúnaðarmaður arkitekta. -SA Þaðvarþrítugur Akurnesingur semfórst Slysið á Norðurá í fyrradag bar til með þeim hætti að bát, sem i voru tveir laxveiðimenn, hvolfdi. Náði annar þeirra landi, en Atli Þór Helgason, þrítugur Akurnesingur, lét lífið í ánni. Hann lætur eftir sig konu og þrjú börn. Mennirnir tveir voru við laxveiðar á svæðinu milli Laxfoss og Glanna. Þar eru bátar til reiðu fyrir veiöimenn og voru þeir félagar í slíkum báti. Einn af stjórnarmönnum SVFR bað DB að leiðrétta, að báturinn var ekki í eigu SVFR eins og fram kom I DB í gær, heldur í eigu bændanna eins og allt við Norðurá. -ASt.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.