Dagblaðið - 09.08.1980, Side 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1980
-----------------------------
RIS YLRÆKTARVERI
GERÐIINNAN FÁRRA
HVERA-
ÁRA?
Athygli vekur að framkvæmdastjóri olíufélags er í undirbúningsnefnd með garðyrkju- og
vísindamönnum
Fullur skriður er nú aftur kominn á
undirbúning að byggingu ylræktar-
vers. Landbúnaðarráðherra hefur
skipað 5 manna nefnd og sett henni
fyrir fimm verkefni. í þeim lista er
hið síðasttalda að undirbúa frumvarp
til laga um ylræktarver og undirbúa
stofnun félags um rekstur fyrirtækis-
ins, ef niðurstöður hagkvæmnikönn-
unar reynast jákvæðar. Formaður
nefndarinnar er skipaður Vilhjálmur
Lúðvíksson framkvæmdastjóri
Rannsóknarráðs rikisins og með hon-
um eru skipaðir 3 garðyjkju- og land-
búnaðarmenn og loks Árni Lárusson
framkvæmdastjóri olíufélagsins
Skeljungs. Er það óráðin gáta hvar
armar olíufélaga blandast græðlinga-
ræktun í gróðurhúsi við jarðhita, en
sami maður er einnig i stjórn riýlega
stofnaös fiskiræktarfélags. •
Pálmi Jónsson ráðherra sagði i við-
tali við DB að skapazt hefðu ný við-
horf varöandi byggingu ylræktarvers
hér á landi. Hollendingar, sem hann
kvað aðalkaupendur framleiðslu
væntanlegs ylræktarvers á íslandi
hefðu misst græðlingaekrur sínar í
Afriku vegna sýkingar. Við þetta
hefði skapazt eyða eða lag sem at-
hyglisvert væri fyrir íslendinga að
nýta sér. Sagði ráðherrann að ef Hol-
lendingar fengju ekki chrysantemum-
græðlinga hér yrðu þeir sér úti um þá
annars staðar.
Nýju nefndinni er ætlað að kanna
áhuga aðila á þátttöku í fyrirtækinu,
einnig að gera markaðskönnun fyrir
afurðirnar og hagkvæmnikönnun á
byggingu og rekstri fyrirtækisins og
loks að gera tillögu um staðarval.
Ef eitthvað má ráða af skipun
manna i nefndina þykir Ijóst fyrir-
fram að Hveragerði er ofarlega á
baugi. í nefndinni eru auk Vilhjálms
formanns Grétar Unnsteinsson skóla-
stjóri í Hveragerði og Hans Gústafs-
son garðyrkjumaður í Hveragerði.
Þar er og dr. Björn Sigurbjörnsson
framkvæmdastjóri RALA og lo'ks
áðurnefndur framkvæmdastjóri
Skeljungs hf.
Ráðherrann sagði í viðtali við DB
að ekki væri gert ráð fyrir eignaraðild
útlendinga í fyrirlækinu, en hins
vegar væri dæmið reiknað út frá því
að samið yrði við Hollendinga um
kaup á framleiðslunni sem aðallega
yrðu chrysantemumgræðlingar.
- A.St.
Snarfari:
Stangveiðimót
um helgina
Snarfari, félag smábátaeigenda sem
frægt er orðið fyrir þátttöku sina með
DB og FR í sjóralli gerir það ekki enda-
sleppt og hyggst efna til sjóstangaveiði-
móts um næstu helgi. Hefur verið tals-
vert öflugt starf hjá þeim félögum
undanfarið, m.a. héldu þeir fjölskyldu-
hátið í Viðey um verzlunarmannahelg-
ina. Var þar gert margt sér til skemmt-
unar og yndisauka, farið í gönguferðir,
leikinn fótbolti og golf, auk varðelds á
kvöldin.
Hafa Snarfaramenn fjárfest i húsi og
það sett niður á svæði Snarfara við
Elliðavog auk þess sem sett var þar út
flotbryggja. Þegar fjölskyldumótið var
haldið í Viðey gerðu þeir sér einnig litið
fyrir og drógu flotbryggju þangað út
svo hægara yrði að athafna sig þar.
-R.Th./BH
Verndartollur á kex og sælgæti í bígerð?
Kex- og sælgætis-
iðnaður f ékk aldrei
aðlögunartíma
— segir Valur Valsson hjá Félagi íslenzkra
iðnrekenda
„Strax i apríl sl. fórum við fram á
aðgerðir til að styðja við bakið á kex-
og sælgætisiðnaðinum,” sagði Valur
Valsson hjá Félagi íslenzkra
iðnrekenda í samtali við DB í gær
þegar hann var inntur eftir því hvort
hugmyndin um 35—40% verndartoll
á innflutt kex og sælgæti væri komin
frá félagi iðnrekenda. „Meðal þeirra
aðgerða er við gátum fallizt á voru
aðgerðir er fælu i sér tímabundna
verðaðlögun á sælgæti og kexi, sam-
hliða öðrum aðgerðum,” sagði
Valur.
Eftir inngöngu íslands í EFTA
1970 og seinna eftir samningagerðina
við Evrópubandalagið lækkuðu
tollar í áföngum á innfluttum
iðnaðarvörum, öðrum en kexi og
sælgæti. Var þá afráðið að kex- og
sælgætisiðnaðurinn keypti mjólkur-
duft á innlendu verði en ekki heims-
markaðsverði sem er allt að sex
sinnum ódýrara. Var afráðið sérstakt
kvótakerfi á innflutning á kexi og
sælgæti, innlendum framleiðendum
skyldi endurgreiddur mismunur
heimsmarkaðsverðs og heimaverðs á
mjólkurdufti. Siðan gerist það í
desember 1979 að skyndilega er
afráðið að gefa innflulninginn á kexi
og sælgæti með öllu frjálsan enda fái
innlendir kex- og sælgætis-
framleiíendur mjólkurduftið á
heimsmarkaðsverði. Þýðir þetta i
raun að kex- og sælgætisiðnaðurinn
fékk i raun ekkert aðlögunartímabil
eins og aðrar iðnaðarvöru, þar sem
tollur lækkaði í áföngum, heldur
stóð hann frammi fyrir því að geta
loksins keypt hráefnið til framleiðslu
sinnar á heimsmarkaðsverði, en um
leið og það var, féll öll vernd niður.
-BH.
Annirhjá Þú ogég:
Gefa út plötur
í sjö löndum
—og taka þátt í söngvakeppni í Póllandi
Gunnar, Helga og Jóhann leggja á mánudag land undir fót og halda til Póllands
til þátttöku I mikilli söngvakeppni þar i landi.
„Við fengum telexskeyti í morgun
frá CBS í Japan, þar sem þeir lýstu
yfir miklum áhuga á að gefa út plötu
með fjórum lögum með Þú og ég.
Lögin eru Ljúfa líf, Þú og ég, í
Reykjavíkurborg og Dans, dans,
dans, en við létum CBS fá spólu
með þessum lögum á MIDEM
ráðstefnunni í fyrra,” sagði Gunnar
Þórðarson i samtali við DB i fyrra-
dag. „Ráðamenn CBS telja tónlistina
alveg rétta fyrir Japansmarkað, en
við vitum ekkert hvað platan verður
gefin út i stóru upplagi.”
Japan er einn stærsti markaður
heims fyrir poppplötur, og það væri
vissulega mikilsverður áfangi ef Þú
og ég næði fótfestu þar.
En fleira er svo í bígerð hjá Þú
og ég, en plötuútgáfa í Japan. Á
mánudag heldur dúettinn ásamt
Gunnari Þórðarsyni til Póllands, þar
sem hann mun keppa í sönglaga-
keppni. Lítið er vitað um keppnina,
nema hvað meðal keppenda í henni á
undanförnum árum hafa verið
hljómsveitir á borð við ABBA og
Boney M. Þá munu um 100 milljónir
manna fylgjast með keppninni í sjón-
varpi, aðallega íbúar Austur-Evrópu-
landa. Þú og ég flytja tvö lög í
keppninni, Dans, dans, dans og
pólsxt lag. Fyrir keppnina var
dúettinum send spóla með fjórum
pólskum lögum og þau beðin að æfa
eitt iag upp, sem þau og gerðu.
Sigurlaun í keppninni eru 80.000
zloty, eða jafnvirði 1,3 milljóna
króna. Þá má geta þess að eftir
keppnina er gefin út breiðskífa með
öllum helztu lögum keppninnar. En
Þú og ég láta ekki þar við sitja,
heldur kemur einnig út með þeim
tveggja laga plata í Póllandi, sem á
reyndar að vera komin út núna.
I Póllandi verðurdvalið I lOdaga,
en að þvi loknu halda Gunnar, Helga
og Jóhann til Stokkhólms, þar sem
gerður verður fjögurra daga stanz.
Seinna í þessum mánuði, nánar
tiltekið 25. ágúst, kemur út tveggja
laga plata á Norðurlöndunum, og
kemur hún samtímis út i Noregi,
Svíþjóð og Danmörku. Aðallag
hennar verður í Reykjavíkurborg, en
það vérður flutt á ensku og nefnist á
því máli, In my home town.
Fyrir jól er síðan ætlunin að út
komi á Norðurlöndunum breiðskífa
með lögum af báðum plötum Þú og
ég, Ljúfa líf og Sprengisandur.
Loks má geta þess, að Steinar
Berg er nú nýkominn úr ferð til
London, þar sem hann gekk frá
samningum varðandi útgáfu á
tveggja laga plötu með Þú og ég I
Bretlandi og Hollandi í haust. Kynnti
Steinar lagið í útilegu af plötunni
Sprengisandur, en það nefnist á
ensku Shady’s in Love og hlaut það
góðar viðtökur ytra. Þá lét Steinar
Berg skrásetja vörumerkið Hot lce I
höfuðborg Bretaveldis og verður litla
platan gefin út á því merki. Hins veg-
ar mun fyrirtækið Pinacle sjá um
dreifingu og kynningu á plötunni i
áðurnefndum tveimur löndum. -SA.
<£lKOMIN til hveragerðis j
STORT URVAL
AF LEIKFÖNGUM OG
GJAFAVÖRUM
HAGSTÆTT VERÐ
Á POTTABLÓMUM
Burknar á kr. 2000.
Blómstrandi pelargóníur á kr. 3000.
Munið veiðivörurnar frá ABU.
önnumst allar blómaskreytingar.
BLOMABORG S/F
Breíðumörk 12 - Sími 4225
(Áður Blómaskáli Michelsen)