Dagblaðið - 09.08.1980, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 09.08.1980, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1980 7 Hart sótt í hafnaraðstöðu: Hafskip og Eimskipafélagið vilja bæði í Kleppsskaf tið „Bæði Hafskip og Eimskip eru óánægð með a.m.k. vissa þætti í tillög- um mínum um aðstöðu þeirra í Reykja- víkurhöfn,” sagði Gunnar B. Guð- mundsson hafnarstjóri í viðtali við DB. Eimskipafélag íslands hf. og Haf- skip hf. eru í harðri samkeppni á vöru- flutningamarkaðnum, eins og kunnugt er. Þýðingarmikið atriði í rekstri þeirra er vitanlega aðstaðan í Reykjavikur- höfn. „Höfnin keppir að því að láta báða þessa aðila hafa þá aðstöðu sem þeim nægir,” sagði Gunnar. Hann sagði, að nýlega hefði verið lokið byggingu á við- leguplássi í Sundahöfn, sem nefnt er Kleppsskaft eða Kleppsbakki. Á sínum tíma fékk Eimskipafélagið fyrirheit hafnarstjórnar um skipalægi þar. Sam- hliða eru reistar eða fyrirhugaðar bygg- ingar á vegum fyrirtækisins á nærliggj- andi lóð, sem það hefur fengið úthlut- að. Hafskip hf. hefur lýst áhuga sínum á þessu nýja hafnarsvæði og aðstöðu- uppbyggingu þar. Bæði fyrirtækin hafa í huga framtíðaraðstöðu á þessum stað. Þegar á allt er litið virðist það samdóma álit þeirra sem DB hefur rætt við að bezta aðstaðan sé til frambúðar í Sundahöfninni á þessum stað. Hafskip hefur rutt brautina hérlendis með nýtízku gámaflutningaskipum. Eimskipafélagið hefur nú ákveðið að taka á leigu a.m.k. tvö stór skip af hlið- stæðri gerð. Bæði fyrirtækin miða að- stöðuþörf sína við þessa þróun. Markmið hafnarstjórnarinnar hefur verið að losa vöruflutninga úr Vestur- höfninni. Eimskipafélagið stefnir að því að flytja alla aðstöðu sína inn í Sundahöfn. Hugur forráðamanna Haf- skips stefnir í sömu átt. Hins vegar eru hugmyndir uppi um að Hafskip fái aðstöðu Eimskipafélagsins í Austur- höfninni. Meðal annars fengi það þá Faxaskála til sinna nota. Kæmi þá til greina að Hafskip keypti hann af Eim- skip eða þá að Reykjavikurhöfn eign- aðist hann og leigði hann Hafskip eða seldi, efhentara þætti. Loks er ekki til fulls kannað hvort bæði skipafélögin gætu rúmazt með aðstöðu sína í Sundahöfn og þá ef til vill með sameiginleg not af Klepps- skaftinu nýja. Enda þótt nú sé reynt að ná sam- komulagi um lausn þessa máls með milligöngu hafnarstjóra að tilmælum hafnarstjórnar Reykjavíkur er langt frá því að úrslit þess liggi fyrir. Samkvæmt heimildum, sem DB telur áreiðanlegar, verður mikið kapp lagt á það af hálfu beggja skipafélaganna að þau fái aðstöðu til frambúðar sem skapi þeim sem jafnasta aðstöðu af hálfu Reykja- víkurhafnar og borgarstjórnar. -BS Kynningargudsþjónusta vegna væntanlegra prestskosninga í Seljapresta- kalli fer fram í Bústaðakirkju þann 10. ágúst kl. 11. Séra Valgeir Ástráðsson, annar umsækjandi Seljaprestakalls, predikar. Guðsþjónustunni verður útvarpað á miðbylgju 1412 KHZ 210 metrar. Safnadarnefnd. „Þriðji kom og bætti um betur” Þau eru fljót að ske óhöppin sem þó geta valdið hundruða þúsunda eða milljóna tjóni. Eitt slíkt varð á Miklu- brautinni á fimmtudag, við Grensás- veginn. Þar nam ökumaður bíls staðar vegna einhverrar bilunar I bensíngjöf. Tveir næstu á eftir stöðvuðu eðlilega, en sá þriðji, sem á eftir kom, veitti ekki kyrrstæðu bílunum athygli fyrr en of seint og skellti öllum hinum þremur saman. Engin slys urðu á fólki en að sjálfsögðu miklar skemmdir á bíl- unum, m.a. tveimur í báða enda. - A.St. / DB-mynd R.Th. Sig. HELMINGIMEIRA ATVINNU- LEYSI í JÚLÍ EN í JÚNÍ - Ráðuneytið telur kreppuna ífiskvinnslunni einu ástæðuna Síðasta dag júlimánaðar voru 544 íslendingar á atvinnuleysisskrá og hafði þeim fjölgað um nálega helm- ing (úr 287) frá þvi á siðasta degi júnímánaðar. Heildartalan skiptist svo að í henni teljast 158 atvinnu- lausir karlmenn og 386 atvinnulausar konur. Fjöldi atvinnulausra kvenna hafði aukizt um 220 í júlímánuði en at- vinnulausum körlum hafði fjölgað um 31. í skýrslu félagsmálaráðuneytisins segir að ástæður fyrir ' auknu at- vinnuleysi sé eingöngu að rekja til rekstrarstöðvunar frystihúsa víða um land. Segir ennfremur að meira sé nú en áður um samræmd sumarleyfi í fiskvinnslunni og þeir sem á atvinnu- leysisskrá eru séu því aðallega þeir sem tóku sumarleyfi á öðrum tíma svo og lausafólk. Höfuðborgarsvæðið var það eina þar sem atvinnuleysi minnkaði milli mánaða. Voru 139 skráðir atvinnu- lausir í júlilok en voru 160 í júnílok. Á Vesturlandi voru 70 atvinnulausir í júlilok en voru 8 í júnilok, á Vest- fjörðum 14 móti 3 í júní, á Norður- landi vestra 79 móti 44 í júní, á Norðurlandi eystra 104 móti 45, á Austurlandi 50 á móti 4 í júní, á Suðurlandi 41 á móti 13 og á Reykja- nesi (sunnan Hafnarfjarðar) 47 móti 10 í júní. Skráðir atvinnuleysisdagar i júlí voru 7239 á móti 3610 í júni. Aukn- ingin er þvi rúmlega 100%. Fjöldi at- vinnuleysisdaga svarar til þess að 344 hafi verið atvinnulausir allan mán- uðinn á móti 167 i júni. - A.St. Islandsmet slegið á Vindheimamelum Svínakjöt hækkar „Nú sjáum við okkur ekki fært að biða lengur og hækkum verðið á kjötinu um 15%,” sagði Kristinn Sveinsson formaður svinaræktarfélags íslands i samtali við DB. „Vildum við draga hækkunina á langinn eins og hægt var en eftir hina miklu hækkun fóðurbætisskattsins getum við ekki beðið lengur þó svo að skatturinn sé nú kominn i 40%. Við vonumst auðvitað til að fólk kaupi eftir sem áður svína- kjöt þó svo, eins og gefur að skilja, sé erfitt að standast samkeppni við annað stórlega niðurgreitt kjöt.” - BH Hestamót Skagfirðinga var haldið um siðustu helgi og sótti það fjöl- menni. Veður var þó heldur leiðinlegt á mótsstað, Vindheimamelum. Helztu úrslit urðu þessi: í 150 metra skeiði sigraði Lyfting á nýju íslandsmeti, 14,9 sekúndum. Eigandi og knapi var Ingimar Ingi- marsson Sauðárkróki. í 250 metra skeiði sigraði Skjóni á 22,5 sekúnd- um. Eigandi er Helgi Valmundarson og knapi Albert Jónsson. í 250 metra folahlaupi sigraði Haukur á 18,5 sekúndum. Eigandi er Sigurbjörn Bárðarson og knapi Hörður Þ. Harðarson. í 350 metra stökki sigraði Stormur á 24,7 sekúnd- um. Eigandi er Hafþór Hafdal og knapi Sigurður Sigurðsson. í 800 metra stökki sigraði Cesar á 57,3 sekúndum. Eigandi er Herbert Ólason og knapi Harpa Karlsdóttir. í 800 metra brokki sigraði Faxi á 1,40 mín. Eigandi er Eggert Hvanndal en knapi Sigurbjörn Bárðarson. - SS, Steintúni. ||U^IFERÐAR Nei takk ... ég er ábílnum Heilsuverndarstöð Reykjavíkur óskar að ráða hjúkrunarfræðinga við barnadeild, heilsugæzlu í skólum, kynfræðsludeild (nokkrar klst. f viku) og berklapróf f skólum (nokkra mánuði). Umsóknir berist hjúkrunarforstjóra, sem jafn- framt gefur nánari upplýsingar í síma 22400. Heilbrigðisráð Reykjavíkurborgar. LgKURDAU^!S fjCHTOH íknnu* í niM „ pbooucuon XGOCOtN „monochow Enginn jafnaðist á við karate-meistarann Bruce Lee. Hans síðasta og bezta mynd. Tek- in í Panavision og litum. íslenzkur texti. Bönnuð innan 14 ára. Sýnd kl. 5,7,9og11.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.