Dagblaðið - 09.08.1980, Page 9

Dagblaðið - 09.08.1980, Page 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. ÁGOST 1980 9 \ NOFN FRAMTWARRMAR AÐ FINNA í LE HAVRE —þar sem f ram fer heimsmeistaramót sveina í skák Elvar Guðmundsson stendur í ströngu þessa dagana í Le Havre í Frakklandi, þar sem fram fer heims- meistaramót sveina í skák. j byrjun mótsins átti hann frekar erfitt upp- dráttar, en hefur sótt sig mjög nú í síðustu umferðum, enn alls verða þær 11 á mótinu. Þátttökurétt eiga skákmenn sem ekki hafa náð 17 ára aldri og eru flestir keppenda rétt innan við þau mörk. Nokkrir eru þó mun yngri og er sérstaklega eftir þeim tekið. Sá yngsti er aðeins 12 ára gamall, Rizvi að nafni, og er kominn alla leið frá Pakistan. Ein meyja tekur þátt í mótinu, Helen Clare Watkins frá Wales. „Sveinamótin” hafa yfirleitt skartað einni slíkri skrautfjöður og í Wales virðist vera að finna óvenju mikla kvenskörunga. Eini kvenkyns þátt- takandinn á heimsmeistaramótinu 1977 í Cagnes sur mer, var einmitt frá Wales. Á síðasta ári hélt Pia Craml- ing frá Svíþjóð uppi heiðri kynsystra sinna og var hún ekki ein um að standa sig með prýði. Sigurstranglegastur á mótinu er án efa sovéski þátttakandinn, Salov. Þeir sem fletta sovéskum skákblöð- um að staðaldri kannast við nafnið, enda hefur hann nú um skeið verið fremstur meðal ungherja austan- tjalds. Þetta er nafn, sem vert er að leggja á minnið. Bandaríkjamenn binda eflaust rniklar vonir við sinn mann, Joel Benjamin, sem þrátt fyrir ungan aldur er orðinn velþekktur utan síns heimalands. Mikill uppgangur hefur verið í skáklistinni i Bandaríkjunum nú síðari ár og fæðist hvert efnið öðru efnilegra. Piltarnir „westra” keppast við að slá met Fischers, sem náði meistaragráðu aðeins 13 ára og 5 mánaða gamall. Benjamin sló metið fyrstur og komst þá í heimsfréttirnar. Það var 1977 og var hann tveimur mánuðum yngri en Fischer. Nýjasta stjarnan er hinn rússnesk ættaði John Litvinchuk, sem náði meistaraár- angri (jafngildir um 2200 Eló-skák- stigum) í nóvember í fyrra, aðeins 12 ára og sjö mánaða gamall! Af öðrum keppendum mótsins má nefna Englendinginn lan Wells, Greenfeld frá ísrael og Milos frá Brasilíu. Auk þess binda Danirnir miklar vonir við Curt Hansen, sem aðeins er 15 ára gamall. Hansen verðureinnig fulltrúi Dan- merkur á heimsmeistaramóti ungl- inga 20 ára og yngri, sem fram fer í Dortmund siðar i mánuðinum. Helsta áhyggjuefni Dananna er að hann hafi teflt of mikið að undan- förnu og búast þeir fastlega við því að hann fái skell á öðru hvoru þess- ara móta. Það kemur a.m.k. fram í Politiken. Á alþjóðlegu skákmóti í Esbjerg sem lauk fyrir stuttu náði Hansen FlDE-meistaraárangri og þótti tefla mjög vel á köflum. Ein skáka hans hlaut næstflest atkvæði í kosningu um fegurðarverðlaun og er ekki úr vegi að renna yfir hana. Andstæðing- ur hans er Englendingurinn Wicker, sem hafði nýlokið við að rita bók um það afbrigði sem uppi varð á teningn- um. Hvitl: Wicker (England) Svart: Hansen (Danmörk) Esbjerg 1980 Drottningarbragð. I. c4 eð 2. Rc3 d5 3. d4 Rf6 4. Bg5 Rbd7 5. cxd5 exd5 6. e3 c6 7. Bd3 Be7 8. Dc2 0-0 9. Rge2h6 í bók Wickers er þessi leikur talinn vafasamur vegna 10. Bf4, 11. 0-0-0 ásamt framrás g-peðsins. Þessa áætl- un velur Wicker auðvitað í skákinni, en hún leiðir ekki til neins. Hugleiða mátti 10. Bh4. 10. Bf4 Rh5 11.0-0-0 Rxf4 12.exf4? Sjálfsagt er 12. Rxf4 . Textaleikur- inn veikir aðstöðu hvíts á miðborðinu og framrás svarts, — c6-c5, eykst þvt að gæðum. 12, —Rb6 Fyrirbyggjandi aðgerðir. Svartur tefur fyrir g2-g4 13. f5Bd7 14.g4Hc8 15.h4c5 Með hótuninni 16. — c4. Hvítur hefur ekki hugað sem skyldi að aðgerðum andstæðingsins og á nú úr vöndu að ráða. Hann grípur til þess ráðs að fórna peði, en fellur á sjálfs sin bragði. 16. f6 Bxf6 17. g5 cxd4! Ekki 17. — hxg5 18. hxg5 Bxg5 + 19. f4 dxc3 20. Bh7 + Kh8 21. Bg8 + ! og 22. Dh7 mát. 18. gxf6 dxc3 19. Bh7 + Kh8 20. fxg7+ Kxg7 21. Hdgl + Kh8 22.b3 Aðstaða hvíts er allt annað en þægileg eftir 22. — bxc3, en engu að síður er það skárri kostur. 22. — Df6 23. Rg3 Df4+ 24. Kbl f5 25. Bg6 26. Hdl Bb5 27. Rh5 Dg4 28. Hhgl d3! Staðan sem alla skákmenn dreymir um að fá! 29. Dcl c2+ 30. Kb2 Dd4+ 31. Ka3 Dc5 + 32. Kb2 Dc3+ 33. Ka3 Rc4 mát. 22. ágúst hefst i Reykjavík Norður- landamót grunnskóla. Tvær íslenskar sveitir munu taka þátt — frá Álfta- mýrarskóla og Æfingadeild Kennara- skólans. Slegið var upp æfingamóti í húsakynnum TR við Grensásveg og lauk því með sigri Lárusar Jóhannes- sonar, sem hlaut 7 1/2 v. af 9 mögu- legum. Hrafn Loftsson varð annar, með 6 v. (á einni skák ólokið) og þriðji varð Sveinn I. Sveinsson, með 5 1/2 v. Frá TR er það annars að frétta, að mæting á æfingar í sumar hefur verið mjög góð og sterkir skákmenn orðið efstir á 10 og 15 mínútna mótunum vinsælu. Síðustu þrjú fimmtudags- kvöld hafa unnið 10 mínútna mótin, Ingi R. Jóhannsson og Ásgeir Ás- björnsson tvisvar, en 15 mínútna mótin á þriðjudagskvöldum hafa unnið: Ingi R., Ásgeir og Guð- mundur Pálmason. Mótin hefjast stundvíslega kl. 20 báða dagana. Fyrir þá sem heldur vilja tefla á miðvikudagskvöldum, má minna á sameiginlega skákæfingu Skákfélags- ins Mjölnis og Taflfélagsins Nóa, í Garðsbúð við Hringbraut (Stúdenta- kjallaranum) kl. 20. Upp með taflið! JÓN L. ÁRNAS0N SKRIFAR UM SKÁK ráð fyrir að i framtíðinni verði hægt að koma fyrir fleiri og stærri munum ef reist verður húsnæði fyrir slíkt utan við Gömlubúðina sjálfa. Þar i kjallaranum er einnig geymdur einn forláta bátur auk ýmissa annarra forvitnilegra muna. Mun óhætt að segja að minjasafn Austur-Skaftfellinga sé í alla staði hið forvitnilegasta og vert fyrir ferðamenn, jafnt sem heimamenn, að leggja agnár- litla lykkju á leið sína til að koma við i Gömlubúð. -BH. Gisli Arason stendur hér við bátana tvo i túni Gömlubúðar sem sést f baksýn. Skál! Gisli býst til að hella úr brennivinslegli I tinstaup. Vafalaust ekki óþekkt fyrir- brigði I Gömlubúð áður, er bxndurnir staupuðu sig I kaupstaðarferðunum. fluttur þaðan til Hafnar laust fyrir síðustu aldamót. Gísli Arason er safnvörður í Gömlubúð og hefur unnið að því að koma byggðasafninu á laggirnar. ,,Við fengum úthlutað hérna rétt í bæjar- jaðrinum allstórri lóð sem er prýðis- framtíðarsvæði fyrir byggðasafnið,” sagði Gísli í samtali við DB. ,,Að vísu hafði þjóðminjavörður mælzt til þess að húsið yrði varðveitt á þeim stað sem það stóð á Höfn, en því varð ekki við komið”. Utan við Gömlubúð standa tveir bátar og er gert Heimagerður rugguhestur er meðal muna I Gömlubúð. Vafalaust hefur hann skemmt mörgu barninu um dagana áður en hann hætti að gegna upphaflegu hlutverki sfnu og varð til sýnis á minjasafni. 1 Gömlubúð er byggðasafn þeirra Austur-Skaftfellinga, skammt fyrir utan Höfn í Hornafirði. Var byggðasafnið nýlega opnað, vígsla þess fór fram snemma i sumar. Húsið sem safnið er í er gömul skemma sem stóð lengst af á Höfn og var notuð sem slík allt til ársins 1972. Hefur húsið alla tíð 'verið kallað Gamlabúð og er hús á Höfn í Hornafirði. Að stofni til er húsið gert úr viðum forns verzlunarhúss er stóð við Papós, en Papós má kalla forvera Hafnar í Hornafirði, því verzlunarstaður var Minjasaf n Austur-Skaftfellinga: í ftfÍMI III l|jn 1 VVlTILUI —elzta hús Hornf irðinga 1UV

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.