Dagblaðið - 09.08.1980, Blaðsíða 24
Sannkölluð sumarstemmning
Það ar mikil kyrrð oy fegurð yfir þessum svani, þar sem hann linnur á hreiðri slnu.
Sannkiilluð sumarstemmning. Myndin er send inn í sumarmyndakeppni DB 1980.
Gðð þátttaka er í keppninni en hún stendur til 31. ágúst. Vegleg verðlaun eru veitr
fyrir þrjár heztu myndirnar I keppninni. Takið þvi fram myndavélarnar og sendið
inn sumarmyndir. Fleiri sumarmyndir eru hirtar á bls. 13 í dag og einnig greint frá
verðlaununum. Höfundur sumarmyndar: Sveinhjörn Gizurarson.
VERKFALLSHEIM-
ILDIN SAMÞYKKT
Sumarmyndakeppni DB í f ullum gangi:
„Menn þurfa ekkert 200 þúsund í
visitölubætur hvort sem þeir eru ráð-
herrar eða eitthvað annað, ekki éta
þeir meira ket fyrir það,” sagði
Guðmundur J. Guðmundsson, vara-
formaður Dagsbrúnar á félagsfundi i
gær. Var hann að flytja framsögu
með tillögu stjórnar félagsins um
verkfallsheimild til handa stjórn
Dagsbrúnar. Tillagan um verkfalls-
heimildina var eina málið á dagskrá
fundarins.
Fundinn sóttu eitthvað á þriðja
hundrað manns og var verkfalls-
heimildin samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum gegn fimm. Var
1»
Guðmundur J. Guðmundsson, vara-
formaður Dagsbrúnar, flytur hér
framsöguræðu slna á fundinum I
Iðnó í gærdag.
l)B-mynd Ragnar Th.
hugur slíkur í mönnum á fundinum
að vart lék vafi á að tillagan næði
fram að ganga, er fundurinn hófst
klukkan rúmlega fimm í gærdag.
f framsögu sinni skýrði
Guðmundur J. frá gangi samninga-
viðræðnanna að undanförnu, ýmsum
tilbrigðum þeirra og hugmyndum
sem settar hafa verið fram. Veitti
ekki af enda ekki á færi alls almenn-
ings að fylgjast með hinum flókna
gangi samningaviðræðnanna og
hvaða hlutir þar eru til umræðu.
-BH.
KJOTIÐ SEM LÆKKAR VISI-
TÖLUNA HVERGIFÁANLEGT
Dilkakjötsskortur í Reykjavík í ágúst en tæp 5000 tonn hafa verið flutt út með uppbótum
,,Það kjöt sem sagt er að til sé i
landinu er hreinlega ekki til og ég er
fullviss um að a.m.k. sjö af hverjum
tíu kjötkaupmönnum i Reykjavík fá
ekkert kjöt til sölu í ágústmánuði fyrr
en nýja kjötið kemur,” sagði Hrafn
Backmann í Kjötmiðstöðinni i spjalli
við ÐB.
„Það er búið að tala um það siðan
um miðjan júlí að til stæði að auka
niðurgreiðslur á landbúnaðarvörum
til lækkunar vísitölu. Slíkt umtal
hefur auðvitað sin áhrif og hafi þess-
ar kjötbirgðir sem til eru á pappírun-
um einhvern tíma verið til, þá hafa
þær hreinlega horfið og eru hvergi til
kaups. Auðvitað eiga kaupfélög úti á
landi eitthvað af kjöti en þær kjöt-
birgðir láta félögin ekki í munn Reyk-
víkinga fyrr en tryggt er að þeirra við-
skiptavinir séu búnir að fá sínum
óskum fullnægt. Það kunna að koma
í Ijós einhverjar birgðir af gömlu
kjöti þegar hið nýja — á hærra verði
— er komið á markaðinn. En þetta
kjöt fæst ekki í dag,” sagði Hrafn.
„Það eru ýmis rök sem hníga í þá
átt að um fullkominn leikaraskap sé
að ræða með þessum auknu niður-
greiðslum nú til að lækka vísitöluna.
Það er fullyrt að birgðir séu til — en
af þeim er ekkert hægt að fá. Freist-
andi er að trúa því að verið sé að spila
með allt kerfið. Einn liður í kjötverði
er „geymslukostnaður”. Séu birgðir
til leggst geymslukostnaður á þær
kjötbirgðir og hækkar kjötverð eftir
á. En það er ljótur leikur ef verið er
að reikna geymslukostnað á birgðir
sem ekki eru fáanlegar. Slíkt minnir á
frægt dæmi úr birgðasöfnun sjávar-
útvegs og afurðalán út á tómt yfir-
tjaldað rými,” sagði Hrafn.
Hrafn tjáði okkur að önnur
skuggaleg hlið afurðalána tengd kjöt-
birgðum væri að um leið og kjöt væri
selt væri afurðalán út á birgðir gjald-
fallið. Slíkt kann að vera freisting
einhverra — kaupfélaga eða annarra
— til að gefa upp meiri birgðir en i
raun eru fyrir hendi. Slíkt frestar
gjalddaga lána.
Hrafn var þeirrar skoðunar að af-
skipti rikisvaldsins að söluaðilum
væri mesti skaðvaldurinn. Aldrei
væri vitað upp á hverju yrði næst
tekið af ráðamönnum.
„En nú er svo komið að enginn
kaupmaður getur selt I. eða II. flokks
dilkakjöt í heilu út úr búð sinni. Það
kjöt verður að skiptast í sneiðum
milli viðskiptavina sem vilja grilla og
elda á sérstakan máta. í heilu fæst
aðeins 3. flokks kjöt, sem ekki er
hægt að ná úr lærissneiðum eða grill-
kjöti. Út hafa hins vegar verið flutt
tæp 5000 tonn af 1. og 2. fl. kjöti,”
sagðiHrafn. -A.St.
Dagsbrúnar-
fundur
ígær:
frýálst, nháð daghlað
LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1980.
Lúðvík
hamast á
ráðherrunum
Styrr stendur í Alþýðubandalaginu
vegna harðrar gagnrýni Lúðvíks
Jósepssonar, formanns flokksins, á
ráðherra Alþýðubandalagsins og stefnu
rikisstjórnarinnar.
Lúðvik hefur í vikunni, í innsta
hring alþýðubandalagsmanna, beint
geiri sínum gegn þremur ráðherrum
flokksins. Alþýðubandalagsmenn
skilja mál hans helzt svo að Lúðvík vilji
slíta stjórnarsamstarfinu. En í þvi efni
hefur formaðurinn til þessa fengið litið
fylgi í flokknum.
Lúðvík er einkum andvigur stefnu
ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum,
„niðurtalningarleiðinni” svonefndu.
-HH.
6. riðill
hæfileikakeppninnar:
Söngur
og gítarleikur
Gítarleikur og söngur setur mjög
svip sinn á 6. riðil hæfileikakeppni
Dagblaðsins og hljómsveitar Birgis
Gunnlaugssonar, sem haldinn verður i
Súlnasal Hótel Söga annað kvöld.
Kvöldið hefst klukkan 21.30 með
sýningu á Evitu og tekur flutningur
hennar um klukkustund. Að þvi loknu
hefst hæfileikakeppnin. Fyrstur kemur
fram Ágúst ísfjörð, sigurvegari síðasta
riðils. Þá hefst keppni í 6. riðli, og
kemur fyrstur fram Garðar Harðarson
frá Stöðvarfirði, sem leikur frumsamin
lög á gítar. Hilmar Hlíðberg tekur þá
við og syngur eigin lög og leikur undir á
gitar. Þá standa vonir til að þriðji
keppandinn komi fram, en frá því er þó
ekki fullgengið. -SA.
HM sveina ískák:
Elvaríhópi
hinna efstu
Elvar Guðmundsson gerði jafntefli
við „undrabarnið” Benjamin frá
Bandaríkjunum í 8. umferð Heims-
meistaramóts sveina í skák, sem haldið
er í Le Havre í Frakklandi. Skák þeirra,
sem var hörkufjörug, varð rúmir 40
leikir.
I 9. umferð sem tefld var í gær
sigraði Elvar Coffey frá írlandi örugg-
lega í rúmum 30 leikjum. Að loknum 9
umferðum er Rússinn Saloff með
örugga forystu, 7 vinninga og biðskák.
Greenfeld, ísrael er í 2. sæti með 6,5
vinninga. Staðan er annars mjög óljós
vegna fjölda biðskáka en Elvar, sem
hefur 6 vinninga mun vera i 3. eða 4.
sæti. Hann mun líklega tefla við Rúss-
ann Saloff í dag og mótinu lýkur á
morgun. -GAJ.
Dagblaðsbíó:
Hér koma
tígrarnir
Í Dagblaðsbiói á morgun verður
myndin Hér koma tígrarnir. Þetta er
gamanmynd i lit með íslenzkum texta.
Myndin er sýnd i Hafnarbíói að vanda
kl. 3.
LUKKUDAGAR:
9. ÁGÚST: 15914
Sjónvarpsspil.