Dagblaðið - 25.09.1980, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 25.09.1980, Blaðsíða 1
Föstudagur 26. september 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Stjörnuprýdd knattspyrna. Vegur knattspyrnunnar fer hrað- vaxandi fyrir vestan haf, og áköfustu fylgismenn hennar þar heita því, að Bandaríkjamenn vinni heimsmeistarakeppnina, áður en langt um líður. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 21.05 Rauði keisarinn. Fimmti og síðasti þáttur. (1945—53 og eftir- leikurinn). Að heimsstyrjöldinni lokinni stóð Stalín á hátindi valda sinna. Hann drottnaði yfir Sovétríkjunum og ríkjum Aust- ur-Evrópu með harðri hendi og kæfði allar vonir manna um lýð- ræðisþróun í þessum löndum. Stalín lést árið 1953. innan þriggja ára höfðu arftakar hans rúið hann æru og orðstír, en þjóðskipulagið, sem hann studdi til sigurs, er enn við lýði. Þýð- andi og þulur Gylfi Pálsson. 21.50 Stalín. Umræðuþáttur um Stalínstímabilið og framvindu kommúnismans eftir daga hans. Stjórnandi Bogi Ágústsson fréttamaður. 22.35 Alltaf til í tuskið (A Fine Madness). Bandarísk gaman- mynd frá árinu 1966. Aðalhlut- verk Sean Connery, Joanne Woodward og Jean Seberg. Sam- son er ljóðskáld í fremur litlum metum. Hann er kvensamur, skuldum vafinn og ekki eins og fólk er flest, en hann á góða konu, sem stendur með honum í blíðu og stríðu. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. 00.15 Dagskrárlok. Laugardagur 27. september 16.30 Iþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.30 Að gæta bróður síns. Mynd um strák, sem þarf að gæta bróður síns meðan móðir hans vinnur úti og getur ekki alltaf gert hvað sem hann vill. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nord- vision — Danska sjónvarpið) 18.50 Enska knattspyrnan. Hlé. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Shelley. Lokaþáttur. Þýð- andi Guðni Kolbeinsson. 21.00 1 minningu Peters Sellers. Viðtal, sem sjónvarpsmaðurinn Alan Whickers átti við hinn heimskunna gamanleikara, Peter Sellers, skömmu fyrir andlát hans. i þættinum eru einnig sýndir kaflar úr nokkrum mynda Sellers. Þýðandi Guðni Kolbeins- son. 21.25 Sammi á suðurleið (A Boy Ten Feet Tall). Bresk bíómynd frá árinu 1965. Aðalhlutverk Ed- ward G. Robinson og Fergus Mc- Clelland. Sammi er tíu ára gam- all. Foreldrar hans láta lífið i loftárás á Port Said í Egypta- landi, og drengurinn heldur af stað að finna frænku sina, sem búsett er í Suður-Afríku. Þýð- andi Ingi Karl Jóhannesson. 23.20 Dagskrárlok. Sunnudagur 28. september 18.00 Sunnudagshugvekja. Séra Ólafur Oddur Jónsson, prestur í Keflavík, flytur hugvekjuna. 18.10 Fyrirmyndarframkoma. Ólund. Þýðandi Kristín Mantylá. Sögumaður Tinna Gunnlaugs- dóttir. 18.15 Óvæntur gestur. Níundi þáttur. Þýðandi Jón Gunnars- son. 18.40 Apar í Afríku. Norsk dýra- Iífsmynd. Þýðandi og þulur Óskar Ingimarsson. (Nordvision — Norska sjónvarpið). 19.05 Hlé. 20.00 Ftéttir og veður. 20.25 Auglýsingarogdagskrá. 20.30 ,,Ó, mín flaskan fríða”. Fyrri þáttur um drykkjusýki og drykkjusjúklinga. Rætt er við alkóhólista og aðstandendur þeirra, sérfræðinga á sviði áfeng- ismála og fólk á förnum vegi. Umsjónarmenn Helga Ágústs- dóttir félagsráðgjafi og Magnús Bjarnfreðsson. Stjórn upptöku Valdimar Leifsson. Síðari þáttur verður sýndur mánudagskvöldið 29. september kl. 21.10. 21.30 Dýrin mín stór og smá. Átt- undi þáttur. Stoltir eigendur. Efni sjöunda þáttar: Siegfried er i slæmu skapi. Það líður að greiðsludegi viðskiptavinanna, og þeir eru ekki allir lambið að leika sér við, þegar á að borga, Sérstaklega er Dennis Pratt af- leitur. Hingað til hefur enginn getað séð við honum, en nú skal hann ekki sleppa. James leitar til læknis í öðrum bæ, þegar gera þarf hættirlegan uppskurð á tík einni. Honum kemur á óvart hve allt er fullkomið þarna, gerólíkt því sem hann á að venjast heima í Darrowby. Greiðsludagurinn rennur upp og Pratt er mættur, auðvitað ekki til að borga reikn- inga sína, því fer fjarri. Honum tekst ekki aðeins að snúa á Sieg- fried; Tristan og James verða líka að bita í súrt epli. Þýðandi Óskar Ingimarsson. 22.25 Stórborgin Róm. Rómaborg er eitt af höfuðbólum vestrænnar menningar, og fáar borgir eiga sér jafn-stórkostlega sögu. Það er Anthony Burgess, hinn kunni, breski rithöfundur, sem er leið- sögumaður okkar í Róm. Þýð- andi Dóra Háfsteinsdóttir. Mánudagur 29. september |20.00 Fréttir og veöur. |20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Tommiog Jenni. Bjami Falixson sór um iþröttaþétlinn á mánudagskvöld. 20.40 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 21.10 „Ó, mína flaskan friða.” Síðari þáttur um drykkjusýki og drykkjusjúklinga. Umsiónar- menn Helga Ágústsdóttir og Magnús Bjarnfreðsson. Stjórn upptöku Valdimar Leifsson. 22.10 Nýsjálenskt sjónvarpsleikrit. 22 ;r- Dagskrárlok. Þriðjudagur 30. september 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingarog dagskrá. 20.35 Tommi og Jenni. 20.40 Prýðum landið, plöntum trjám. Fræðsluþáttur um haust- vinnu í görðum. Áður sýndur í maímánuði síðastliðnum. 20.45 Dýrðardagar kvikmynd- anna. Elskcndurnir. Þýðandi Jón O. Edwald. Lögfrœðingurínn Kazinski varður á sinum stað i dagskránni á þríðjudagskvöld. 21.20 Sýkn eða sekur. Morðmál. Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson. 22.05 I lausu lofti. Umræðuþáttur um vandamál Flugleiða hf. og óvissuna í flugmálum. Stjórn- andi Sigrún Stefánsdóttir frétta- maður. 22.55 Dagskrárlok. Miðvikudagur 1. október 18.00 Fyrirmyndarframkoma. Fljótfæmi. Þýðandi Kristín Mántylá. Sögumaður Tinna Gunnlaugsdóttir. 18.05 Óvæntur gestur. Tíundi þáttur. Þýðandi Jón Gunnars- son. En þú verður nú að viðurkenna að rigningin er miklu hlýrri en heima. í LAUSU L0FTI — sjónvarp þriðjudag kl. 22,05: MEIRIVANDIEN BÚIZT VAR VIÐ? — Umræðuþáttur um óvissuna í flugmálum Flugleiðamálið hefur verið á hvers manns vörum að undanförnu enda ekki að undra þar sem hér er um að ræða mikið hagsmunamál þjóðar- innar allrar. Þegar hefur stórum hluta starfsmanna fyrirtækisins verið sagt upp störfum. Óþarft ætti að vera að rekja þá sögu. Hún er allri þjóðinni kunn. För Steingríms Hermannssonar samgönguráðherra til Luxemborgar og fréttir og umræður í kjölfar hennar hafa leitt i ljós að ástandið hjá Flugleiðum var ennþá verra en flestir höfðu talið. Luxemborgurum þykir íslendingar hafa verið svifa- seinir i málinu, gert sér of seint ljóst i hvert óefni stefndi. Á meðan hafi rekstri Flugleiða á Atlantshafs- leiðinni farið síhrakandi. Komið hefur i ljós að langflest flugfélögin fljúga .með tapi á Atlantshafsleiðinni. Hvort birtir til á þessari leið á næstu árum eru talið með öllu óvíst og ljóst má vera að stórt og sameiginlegt átak stjórnenda, starfsfólks og ríkisvalds þarf að koma til ef málefnum Flugleiða á að koma í viðunandi horf og tryggja þar með öryggi í sam- göngumálum þjóðarinnar. Um það virðast menn sammála. Um fátt annað í þessu mikla hagsmunamáli virðast menn sammála og má því búast við snörpum umræðum í þætti Sigrúnar Stefánsdóttur um þessi mál á þriðjudagskvöldið. -GAJ. Samgönguráóherra og þingmenn ræða um ríkisábyrgó á láni Fluglcióa. DB-invnd Kagnar Tli.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.