Dagblaðið - 08.11.1980, Page 6

Dagblaðið - 08.11.1980, Page 6
6 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980. AMERiSK VÖRUBiLA- 0G JEPPADEKK frá Armstrong Rubber Co. Svarað í síma á kvöldin og um helgar Upplýsingar 92-2348 í símum 92-2495 10x61/2 \ kr. 108.700 '11 x 15 kr. 118.100 700 x 15 kr. 73.400 1100x20, kr. 328.100 1000x20, framd., kr. 242.600 ,/1400x24 ;v'kr. 535.800 I Faðir.okkar, tengdafaðir og afi Ólafur Sigurjónsson Dvergasteini Reyðarfirfli verður jarðsunginn frá Reyðarfjarðarkirkju laugardaginn 8. nóvember kl. 14.00 Maria öiafsdóttir Vigfús Ólafsson, Sigrún Guflnadóttir og bamabörn. EIGUM REIÐHJÓL en vantar röskan sendisvein á það, helzt allan daginn. Uppl. á skrifstofunni við Brautarholt. Hampiðjan h/f. KVIKMYNDIR 8 mm og 16 mm kvikmyndafilmur til leigu í mjög miklu úr- vali í stuttum og löngum útgáfum, bæði þöglar og með htjóði, auk sýningarvéla (8 mm og 16 mm) og tökuvéla, m.a. Gög og Gokke, Chaplin, Walt Disney, Bleiki Pardusinn, Star Wars o.fl. Fyrir fullorðna m.a. Jaws, Deep, Grease', Godfather, China Town o.fl. Filmur til sölu og skipta. Ókeypis kvikmyndaskrár fyrirliggjandi. Opið alla K vikmy ndamarkaöurinn dagajki. 1—7. iSími 36521! Guttfattegur Vo/vo245 stationárg. 1978 ekin 52 þús. km. Orange, útvarp, segulband, sjálfskiptur, sumar- og vetrarhjólbarðar, dráttarbeisli. Skipti möguleg upplýsingar í síma 75135 og 40081. FráÁrmúlaskó/a, fjölbrautaskólanum viðÁrmúla Umsóknarfrestur um skólavist á vorönn er til 24. nóvember. Eldri umsóknir þarf aðstaðfesta. í skólanum eru þrjú námsvið: heilbrigðissvið, uppeldissvið og viðskiptasvið. Skólastjóri. Prentaradeilan: Atvinnurekendur biðja Þjóðhags- stofnun um úrskurð Félag islenzka prentiðnaðarins biður Þjóðhagsstofnun að kanna og úrskurða, hve háum hundraðshluta þær launahækkanir muni nema, sem almennt var samið um 27. október. Þetta er innlegg í prentaradeiluna, þar sem sitt sýnist hverjum um, hve háar almennu kauphækkanirnar hafi verið. Félag prentiðnaðarins sendi Ólafi Davíðssyni forstjóra Þjóðhags- stofnunar bréf með þessari beiðni í gær. Þar er minnt á, að deilan sé í höndum sáttasemjara. Síðan segir: ,,Er gengið hafði verið frá sérkröfum og byrjað var að ræða um hugsan- legar hækkanir launaliða, var staðan sú, að atvinnurekendur tjáðu sig reiðubúna að ganga til samninga um hækkanir er voru i samræmi við það, sem önnur sambærileg launþegafélög hefðu fengið er samið var á grund- velli sáttatillögu ríkissáttasemjara og sáttanefndar milli VSÍ og ASÍ hinn 27. október. Fram hefur komið, meðal annars hjá formanni Bók- bindarafélags íslands i Þjóðviljanum í dag, 7. nóvember, að bókagerðar- menn hafi ekki farið fram á meira en önnur stéttarfélög hefðu þegar fengið. Virðist þvi mikil nauðsyn á því að fá úr skorið af hlutlausum aðila, hve hár sá hundraðshluti sé er önnur sambærileg stéltarfélög hafi fengið I launahækkun með samning- unum 27. október. Förum við þvi fram á það við Þjóðhagsstofnun, að hún láti nú þegar gera þessa könnun og sendi ríkissáttasemjara niðurstöð- una, þannig að staðreyndir í málinu geti greitl fyrir lausn vinnudeil- unnar. ” -HH. Kvikmyndataka að hefjast á myndinni Leit að eldi: DÝRAATRIÐIN EKKI TEKIN HÉR Á LANDI — of dýrt að þjálfa dýrin f ram til næsta vors Kvikmyndin Leit að eldi, The Quest for Fire, sem 20th Century Fox hugðist taka hér á landi í fyrra- sumar er nú aftur komin í hendur þess kvikmyndafyrirtækis. Er Ijóst varð að bandarískir leikarar gátu ekki starfað hjá bandarísku kvik- myndafyrirtæki vegna verkfalls tóku fransk-kanadískir framleiðendur við rekstrinum. 20th Century Fox fékk síðan að taka við aftur er verkfallið leystist. Einhverjar breytingar kunna að verða á myndinni þar sem ófram- kvæmanlegt er að flytja þau dýr sem hingað áttu að koma til landsins. Lagt hefur verið í gífurlegan kostnað við að þjálfa dýrin frá áramótum svo ekki þykir ráðlegt að halda því áfram fram á næsta vor. Framleiðendurnir hafa þvi þurft að leita að stað sem líkist því hrikalega umhverfi sem þeir höfðu fundið á íslandi. Líklegt er að það atriði verði tekið upp í Skotlandi. Myndin verður að einhverju leyti tekin upp í Kenýa í vetur og siðan verður gert hlé fram á vor þegar kvikmyndatökur geta hafizt hérá landi. „Öll áætlun hefur farið mjög úr skorðum, bæði vegna verkfallsins og eins vegna þess að aðrir framleið- endur höfðu tekið við myndinni,” sagði Gísli Gestsson umboðsmaður 20th Century Fox hér á landi í sam- tali við DB. „Þetta hafa verið óskap- legar tafir og mikill tími farið í pappírsvinnu. Það er ekki vitað enn hvort þeir leikarar sem voru ráðnir i myndina hér á landi halda hlut- verkum sínum. Mörg atriði, sem átti að taka hér, verða tekin annars staðar og öll plön hafa farið úr skorðum,” sagði Gísli. Leit að eldi verður einnig kvik- mynduð í Kenýa, Frakklandi, Kanada og í Skotlandi. -ELA. Magnús og lóhann með sínu fyrstu sjálfstæðu tónleika í Keflavík „Við ætlum að leika nokkur lög af nokkur af þeirri nýju og blanda saman fyrstu plötunni sem við gerðum saman, við þau efni sem við höfum verið að VÖRUMARKADUR---------------- / Breiðfirðingabúð Höfum mjög gott úrval af ungbarnafatnaði í gjafa- settum, barnabuxum, leikföngum og margt f leira. Komið og gerið göð kaup. Opið daglega frá 1—6. ttt 10 og laugardaga 10—12. vinna að að undanförnu,” sagði Magnús Sigmundsson er hann var inntur eftir því hvað hann og Jóhann Helgason ætluðu að bjóða upp á á tón- leikum sínum í Keflavík í kvöld. Magnús og Jóhann eru báðir frá Keflavík, en hafa ekki komið þar áður fram á sjálfstæðum tónleikum. Með þeim verður að þessu sinni Graham Smith fiðluleikari. Á næstunni er væntanleg á markað með Magnúsi Sigmundssyni plata sem ber nafnið Gatan og sólin. Magnús sagði að vel gæti farið svo að þeir bættu við nokkrum lögum af þeirri plötu ef stemmningin gæfi tilefni til. Tónleikar Magnúsar, Jóhanns og Grahams Smith verða i Félagsbíói í Keflavik.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.