Dagblaðið - 08.11.1980, Page 10

Dagblaðið - 08.11.1980, Page 10
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980. !MBIAÐIÐ frfálst, úháð dagblað Útgefandi: Dagblafliö hf. Framkvnmdastjóri: Sveinn R. EyjóHsson. RKstjóri: Jónas Kristjánssonf Afletoflarrhstjóri: Haukur Helgason. Fréttastjóri: Ómar Valdimarsuon. Skrifstofustjórf ritstjómar: Jóhannas Reykdal. (þróttir: Hallur Sfmonarson.Menning: Aflalsteinn IngóHsson. Afletoflarfrétfastjóri: Jónas Haralduson. Handrit: Asgrfmur Pálsson. Hönnun: HHmar Karisson. Blaflamenn: Anna Bjamason, Atii Rúnar Haddórsson, Atli Steinarsson, Asgeir Tómasson, Bragi Sig- urfleson, Dóra Stefánsdóttir, Elín Albertsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson, Inga Huld Hákonardóttir, ólafur Geksson, Slgurflur Sverrisson. Ljósmyndir: BjamleHur BjamleHsson, Einar ólason, Ragnar Th. Slgurfleson, Slgurflur Þorri Sigurflsson og Sveinn Þormóðsson. Skrifstofustjóri: Ólafur EyjóHsson. Gjaldkeri: Þráinn ÞorieHsson. Auglýsingastjóri: Már E.M. Halidórs- son. DreHingarstjórí: Valgerflur H. Sveinsdóttir. RKstjóm: Slflumúla 12. AfgreiAsia, áskriftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þverhohi 11. Aflalslmi blafleins er 27022 (10 Ifnur). Setnlng og umbrot: Dagbtaflifl hf., Slflumúla 12. Mynda- og plötugerfl: Hilmir hf., SIAumúla 12. Prentun Arvakur hf., Skeffunni 10. Askriftarverfl á mánufli kr. 5.600. Verfl f lausasöki 300 kr. eintakifl. Hertað eggjabændum Landbúnaðarforystan reynir nú á /j mörgum vígstöðvum að knýja eggja- framleiðendur inn i ,,kerfið” og stöðva frelsi ísölu eggja. Reynt er að fá eggjaframleiðendur til að samþykkja dreifingarmiðstöð, sem yrði upphaf að eggjasölueinokun. Stefnt er að því, að Osta- og smjörsalan taki við dreifingunni. Slíkar tilraunir einokunarsinna hafa staðið árum saman. Nú gera þeir sér meiri vonir en fyrr um, að eggja framleiðendur dragist inn i einokunarkerfið, kannski ekki í einu vetfangi en í áföngum. Landbúnaðarforystan beitir öðrum aðferðum í þessu skyni, eins konar fjárkúgun. Sem kunnugt er var í sumar tekið upp á vegum Pálma Jónssonar landbúnaðarráðherra það kerfi, að eggjaframleiðendur framvísuðu fóðurkortum til að losna við að greiða að fullu hækkaðan fóðurskatt. Fóðurkortin miðuðust við, að eggjabændur legðu fram gögn um fóðurkaup sín í fyrra, og var undanþág- an frá fullu fóðurgjaldi við þau kaup miðuð. Þetta kerfi nýtir landbúnaðarforystan sér nú á þann veg, að hún setur frekari skilyrði fyrir afhendingu fóðurkorta. Eggjabændur eiga nú að greiða sjóðagjöld til bún- aðarkerfisins, eigi þeir að fá kortin. Þetta eru gjöld til Stofnlánasjóðs landbúnaðarins og Búnaðarmálasjóðs. Hingað til hafa eggjabændur yfirleitt komizt hjá að greiða þessi gjöld. Allt bendir til, að lög um sjóðina, svo sem um Stofnlánadeild, hafi verið miðuð við hefð- bundnu búgreinarnar eingöngu. Bændur með aukabúgreinar, svokallaðar, munu ekki skyldaðir til að greiða gjöldin, samkvæmt anda þessara laga. Búnaðarforystan, sem er skipuð fulltrúum hinna „hefðbundnu” greina, reynir að setja alla framleiðsl- una undir einn hatt. Takmarkið er alger einokun á eggjasölu. Eggjaverðið hefur þegar hækkað mikið vegna til- komu fóðurskattsins. Verðið var 12—1500 krónur fyrir skattinn en er nú nær 2200 krónur kílóið. Einokun mundi keyra verðið enn upp. Eggjaverðið hefur undanfarin ár hækkað minna en verðbólgunni nemur. Einokunarsinnar freista eggjabænda með fyrir- heitum um, að með einokun megi hækka verðið til neytenda til mikilla muna. Þá hyrfi aðhald hins frjálsa markaðar. Einokunarmenn hyggjast útrýma frelsinu í eggjasöl- unni, takmarka framboðið og keyra upp verðið. Einokun yrði eggjaframleiðendum lítill hagur, þegar til lengdar léti. Það eru talsmenn hefðbundnu greinanna, sem stýra forystu landbúnaðarkerfisins. Þeir telja framleiðslu eggja vera í samkeppni við framleiðslu sauðfjár- og mjólkurafurða og vilja því gera hlut eggjabænda sem minnstan. í bæði skiptin, sem eggjasölusamlag hefur verið reynt, hafa þau haft slæmar afleiðingar, fyrir framleið- endur sem neytendur. Eggin hækkuðu í verði, birgðir söfnuðust upp og eldri, skemmdum, eggjum var ýtt út á markaðinn. Viturlegast er fyrir eggjabændur að bægja frá sér þeim kaleik, sem forysta landbúnaðarkerfisins réttir þeim. r r \ Það er ekki bara að verðbólgan hafi slæm áhrif á efnahagslíf þjóðar- innar á fjölmörgum sviðum. Verð- bólgan hefur líka slæm áhrif á stjórn iandsins á fjölmörgum sviðum. Orka stjórnmálamanna fer i að reyna að upphugsa leiðir í baráttunni gegn verðbólgunni og limi þeirra fer að miklu leyti i karp um verðbólguna. Hagfræðingar hafa sett fram ntargar fræðikenningar um orsakir og eðli verðbólgu. Því miður greinir hagfræðinga mjög á. Það sem sumir lelja frumorsök og hreyfiafl verð- bólgunnar telja aðrir jafnvel áhrifa- litla afleiðingu. Algengt er að telja verðbólgu afleiðingu af eftirspurnarþenslu þó eins og áður segir geti verið um aðrar skýringar að ræða. Hér á landi höfum við búið við mikla verðbólgu á ákveðnum tímum, þó eftirspurn hafi ekki verið (il baga. Þá hafa menn búið til orðið „vél- gengisverðbólga”. Það er verðbólga sem lifir sínu eigin lífi án tillits til efna- hagsstærða þjóðlífsins en á rætur sínar i reglugerðum og lögum, sem kveða á um að sérhver hagsmuna- hópur þjóðfélagsins skuli fá bætta skerðingu sem kann að koma fram á kjörum hans af ýmsum orsökum. Verðlag hækkar af einhverjum or- sökum. Afleiðingin er sú að laun hækka, búvöruverð hækkar og fisk- verð hækkar. Þetta veldur þvi að verð vöru og þjónustu hækkar sem á ný veldur hækkun á launum, búvöru- verði og fiskverði og þannig koll af kolli. Við gætum kallað þetta „reglu- gerðarverðbólgu ”. Hjólið snýst hraðar og hraðar. Ein verðhækkun leiðir aðra af sér og erfitt getur stundum verið að greina hvað er orsök og hvað er afleiðing. Kerfið er sjálfvirkt og lifir sínu eigin lífi. Við lifum í „automat”. Sjálfvirkni í svonefndum Ólafslögum er kveðið á um að reikna skuli verð- bætur á laun á 3ja mánaða fresti. Verðbætur skal reikna samkv. framfærsluvísitölu, þó að frádregn- um ákveðnum liðum, svo sem verði á áfengi og tóbaki, launalið bónda og taka skal tillit til breytinga á viðskiptakjörum að 30%. Ákvæðunum um viðskiptakjör er ætlað að koma launþegum til góða ef viðskiptakjör batna en lækka verð- bætur ef viðskiptakjör versna. Nú hafa mál skipazt þannig á undanförnum árum að viðskiptakjör íslendinga hafa farið versnandi vegna gífurlegra olíuhækkana og hækkandi innflutningsverðlags meðan verðlag útflutningsvara okkar hefur lítið hækkað eða staðið í stað. Viðskiptakjör íslendinga versnuðu um 10% á síðasta ári og eru talin munu versna um nálægt 6% í viðbót á þessu ári. Skv. lögum fá þó laun- þegar 70% þessara erlendu hækkana bættar í launum sínum. Auðvitað hlýtur þetta að kalla fram spurninguna um hvort íslend- ingar geti varið lífskjör sín með lögum óháð utanaðkomandi áföllum og óháð helztu efnahagsstærðum. Ef svo er væri galdurinn leystur. Því miður er málið ekki svona einfalt. í lögum um Framleiðsluráð land- búnaðarins er kveðið á um sexmannai- nefnd sem kemur sér saman um hækkanir á búvöru. Ef ég man réll getur rikisstjórn ekki breytt ákvörðun sexmannanefndar ef álit hennar er samhljóða. Heimilt er i lögum að breyta bú- vöruverði ársfjórðungslega. Þá er tekið tillit til almennra launahækk- ana, rekstrarkostnaðar búsins, vinnslu- ogdreifingarkostnaðar. f lögum um Verðlagsráð sjávarút- vegsins er kveðið á um að verðlagsráð ákveði fiskverð og þar með laun sjó- manna og hlut útgerðar. Sú venja hefur skapazt með svo- nefnt almennt fiskverð að ákveða það þrisvar á ári. Reyndin hefur orðið sú að undan- förnu að við fiskverðsákvörðun er tekið mið af síðustu launahækkun þó fiskverð hafi að undanförnu hækkað nokkru minna en laun i landi, enda vinna sjómenn ekki á timavinnutaxta heldur eru laun þeirra háð veiði- magni. Fiskverðsákvarðanir hafa farið fram 1. jan., I. júni og 1. okt. ár hvert en verðbætur á laun og hækkun búvöruverðs 1. marz, 1. júní, 1. sept. og 1. des. ár hvert. Aðrar innlendar verðákvarðanir, s.s. verð á vöru og þjónustu, hafa að mestu fylgt tímasetningu á verð- bótum launa og erlendar hækkanir koma yfirleitt nær strax inn i verðlag. Þannig eru verðhækkanir i gletti- lega föstum skorðum. Þær fara fram á ákveðnum tímum og hækkun á einu sviði kemur fram á öllum hinum innan ákveðins tínia. Hækki einhvers staðar reyna allir hags- munahópar að gæta þess að þeir fái hækkun sem bætir þeim fyrri hækkunina upp. Allt er þetta eðlilegl. En hvernig á að stoppa hjólið? í flestum tilvikum er kveðið á í lögum um hversu þessar hækkunar- ákvarðanir skulu teknar og hvenær. Það er allra hagur að hægja á hjólinu. En hvar á að byrja og hvernig á að gæta þess að hraða- minnkunin komi jafnt niður á öllum? Ýmsar veigamestu ákvarðanir þjóðfélagsins eru bundnar við þessar verðákvarðanir, s.s. kjarasamningar sem falla úr gildi ef gripið er í hjólið. Hlutverk stjórnmálamanna Almenningur telur gjarnan að ríkisstjórn og alþingismenn séu ábyrgir fyrir þróun verðlagsmála. Stjórnmálamenn eru sakaðir um dugleysi i baráltunni við verðbólg- una. Þá vaknar sú spurning hvört stjórnmálamenn hafi vald til þess að stöðva verðbólguna. Það hefur oft gerzt að stjórnmálamenn hafa beitt löggjafarvaldinu til þess að hægja á hjólinu. Oft hefur það lika gerzt að fjölmenn hagsmunasamtök hafa nær lamað atvinnulífið með verkföllum i mótmælaskyni. Ákvarðanir og að- gerðir stjórnmálamanna eru þannig gerðar að engu. Menn virðast vilja hafa stjórn- málamennina til þess að kenna þeim um hversu illa gengur, láta þá bera ábyrgðina, en fyrir alla muni mega þeir í engu neinu breyta. Stjórnarskrá okkar gerir aðeins ráð fyrir þeirri valdskiptingu í þjóðfélag- inu að um sé að ræða löggjafarvald, framkvæmdavald og dómsvald. En við búum við vald ýmissa hags- munahópa sem geta hæglega yfir- ^ „Stjórnmálamenn sem kosnir eru af þjóð- inni allri í almennum kosningum geta oft ekki stjórnað vegna lítilla hagsmunahópa sem hafa fáein hundruð manna á bak við sig.” V

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.