Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 08.11.1980, Qupperneq 11

Dagblaðið - 08.11.1980, Qupperneq 11
Kjallarinn DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980. GuðmundurG. Þórarirfsson gnæft vald þessara aðila og gera það stundum. Stjórnmálamenn sem kosnir eru af þjóðinni allri í almennum kosningum geta oft ekki stjórnað vegna lítilla hagsmunahópa sem hafa fáein hundruð manna á bak við sig. En máliðer flóknara. ■ Stjómarandstaða á íslandi hefur lengi verið óábyrg. Stjórnarandstaðan hefur oftast reynt að ota hagsmunahópum gegn ríkjandi rikisstjórn. Dæmigerð er frammistaða Morgunblaðsins nú. Blaðið er allt útbíað i kröfupólitík og birtir hvert viðtalið við verkalýðsforingja á fætur öðru. Verkalýðsforingjarnir sem flestir eiga mikið undir lýðhylli á komandi alþýðusambandsþingi eru síðan látnir vitna um að þeir muni beita sér af alefli gegn breytingum ríkisstjórnar á nokkru er að þeirra samtökum lýtur. Við búum við yfir 50% verðbólgu núna. Þjóðartekjur fara minnkandi á mann á þessu ári og líklega lika næsta. Viðskiptakjör þjóðarinnay versnuðu um 10% á síðasta ári og um 6% i viðbót á þessu. Gifurleg óvissa ríkir i efnahags- málum landanna i kringum okkur, óvissa sem óhjákvæmilega hefur áhrif á afkomu okkar. Atvinnuleysi eykst hjá löndunum i kringumokkur, hagvöxtur minnkar, viðskiptahalli eykst og það dregur úr millirikjavið- skiptum. Á sama tíma standa íslendingar al- mennt frammi fyrir því að fá 20— 22% hækkun launa sinna, þ.e. grunnkaupshækkun og verðbætur. Að baki þessari hækkun er engin verðmætaaukning. Margt bendir til að þessar launahækkanir fari beint út í verðlagið og verðbólga muni enn magnast. Útreikningar benda til að verð- bólga á næsta ári geti komizl í 70— 80% ef ekkert er að gert. Menn skamma stjórnmálamenn fyrir að ekkert sé að gert. Á sama tíma lýsir hver forystu- maður hagsmunasamtaka á fætur öðrum yfir að hann muni berjast af alefli gegn því að nokkuð sé snert á því er lýtur að hans samtökum. Á sama tíma keppist stjórnarand- staðan við að reyna að tryggja að ríkisstjórninni verði ekki kleift að grípa til aðgerða. Þó vita allir að óbreytt þróun er þjóðinni óbærileg og mun leggja í rúst iífskjör þeirra sem minnst hafa. Verkalýðsforingjarnir hafa meiri metnað fyrir hönd umbjóðenda sinna en umbjóðendunum er fyrir beztu. Hvað á svo ríkisstjórnin að gera? Enginn getur borið ábyrgð á stöðu sem hann hefur ekki vald til að breyta. Ég held að nauðsynlegt sé að hefja umræðu í þjóðfélagi okkar um það hver ræður i raun gangi mála. Hver hefur vald og hver ber ábyrgð. Gott' og vel. Við skulum segja að stjórnmálamennirnir beri ábyrgðina. En þá verðum við að láta þá hafa vald til þess að gera það sem þeir telja þjóðinni fyrir beztu. Eðli lýðræðisins er síðan að þeir standi reikningsskap gerða sinna í næstu kosningum. Skipað gæti ég, væri mér hlýtt. Ella skulum við gera okkur grein fyrir hverjir hafa valdið í reynd og bera þá ábyrgðina í reynd. Ættu þeir sem slíkt vald hafa þá ekki að vera kosnir af þjóðinni í heild en ekki af fámennum þröngum hópum? GuðmundurG. Þórarinsson alþingismaður. Árið 1976 var áædað að fiskveiðar sovézka fiskiskipaflotans hefðu aukizt um nærri þriðjung árið 1980. Raunin hefur orðið sú að aflinn hefúr staðiö í stað. Áframhaldandi matvælahörmungar —þriggja ára uppskerubrestur á korni mun leiða til sívaxandi kjötskorts Biðraðirnar lengjast við kjötbúð- irnar og óþolinmæði fólks í Sovét- ríkjunum eykst þessar vikurnar. Komið er að lokum annars ársins í röð þar sem landbúnaðaruppskeran hefur brugðizt. Fregnirnar um að kornuppskeran í ár yrði litlu betri en í fyrra voru lagðar fyrir fund æðsta ráðsins á lítt áberandi hátt. Gripið var til tölfræðinnar og samanburður gerður á tveim síðustu fimm ára áætl- unum. Svo vel voru þessar fregnir faldar að venjuleg manneskja hefði þurft að hafa við höndina hagtöluár- bók og reiknivél til að finna sannleik- ann i talnaflóðinu. Hvort tveggja er erfitt að fáí Sovétríkjunum. Staðreyndirnar tala þó sínu máli. Sá sem var að verzla við Gorkystræti í Moskvu í vikunni þurfti ekki annað en að virða fyrir sér þriggja klukku- stunda biðraðirnar sem hann varð að fara í til að geta keypt sér eitthvert kjötmeti eins og pylsur tii að vita sannleikann. Svo virðist sem skortur á landbún- aðarafurðum í sovézkum borgum fari vaxandi og leiðtogar kommún- istaflokksins hafa viðurkennt að ekki megi vænta neinna verulegra bóta í þeim efnum á næstunni. Hvað varðar matvælaúrval þá njóta nokkrar stórborganna eins og Moskva og Leningrad forréttinda. Tekjur almennings þar eru lika vel yfir sovézkt meðallag. Nú er svo komið að jafnvel hinni hefðbundnu rússnesku þolinmæði virðist brugðið. Moskvubúar kvarta nú yfir matarskortinum á svo hrein- skilinn hátt að slíkt hefði ekki verið hugsanlegt á fyrri hluta áttunda ára- tugarins. Sovézkur embættismaður, sem dvalizt hefur í nokkur ár á Vesturlöndum, lét eftirfarandi orð falla við erlendan mann í Moskvu: ,,Ég er hættur að fara inn i verzlanir hérna lengur, það er svo niðurdrep- andi.” Húsmæður í úthverfum Moskvu kvarta nú yfir siendurteknum skorti á sykurvörum og makkarónum, sem hingað til hafa yfirleitt verið til í verzlunum. Húsmæðurnar í mið- borginni kvarta hins vegar yfir alls konar utanborgarfólki sem þyrpist í hundruða þúsunda tali i verzlanirnar og í leit að matvörum. Þetta fólk snýr siðan aftur til sins heima með hlaðna sekki og bakpoka fulla af niður- soðinni mjólk og sardínum, jafnvel brauði. Sannarlega erftður innkaupa- máti þegar haft er í huga að með birgðirnar verður oftast að ferðast langa leið í járnbrautarlestum. í stórum hlutum Sovétríkjanna eru þó engar biðraðir við ríkisverzl- anirnar með fólki sem ætlar að reyna að krækja sér í kjötbita. Ástæðan er sú að verzlanirnar selja ekki kjöt af neinu tagi. Nýmjólk og aðrar mjólkurafurðir eins og smjör eru jafnfáséðar vörur víða um Sovétrík- in. Þar sem slíkt er að fá er það skammtað. Ferðamaður sem var nýlega á leið um borgina Irkutsk í Síberíu sá þar skilti sem á stóð að kjöt væri aðeins selt til sykursýkissjúklinga. Kona frá Moskvu sem ferðaðist um Azerbaijan snemma á liðnu sumri sá þar auglýst í einni iðnaðarborginni að kjöt fengist aðeins út á sérstaka skömmtunar- miða. Hagtölur segja í raun alveg sömu söguna. Fyrir nærri fimm árum lof- aði Kosygin fyrrverandi forsætisráð- herra því á tuttugasta og fimmta þingi kommúnistaflokksins að kjöt- og mjólkurframleiðsla mundi aukast um 20% til 22% fyrir árið 1980. Staðreyndin mun vera sú að aukning- in mun vera tæplega 3%. Kemur þetta til af tveggja eða þriggja ára stöðnun í landbúnaðarframleiðslu sem ekki eykst, síður en svo, i ár. Hugsanlegt er talið að nokkuri framboð á kjöti verði i vetur en á næsta ári þykir hins vegar líklegt að framboð á kjöti og mjólkurvörum muni enn minnka svo jafnvel verður um verulegan skort að ræða. Níu fyrstu mánuði þessa árs varð kjötframleiðslan 3,5% minni en á sama tíma árið áður. Þá var fram- leiðslan engan veginn neitt hærri en árið 1978. Á sama tima hefur ibúum Sovétríkjanna fjölgað. í borgunum hefur aukningin orðið um 9% á liðnum fimm árum. Borgarbúar verða alfarið að treysta á malvörur úr verzlununum. Því er þó ekki svo illa farið með sveitafólkið. Nokkurn veginn sömu sögu er að segja af öðrum matvælategundum. Fiskur er mikilvæg eggjahvítufæða í Sovétríkjunum. Fiskveiðar hafa staðið i stað síðan 1976 en gert hafði verið ráð fyrir að þær ykjust um 30%. Afleiðingin af þessu er sú að þó svo enginn sé hungraður í Sovétríkjunum þá verður fólk enn að borða aðallega mjög kolvetnainnihaldsríkan mat eins og brauð, sykur, kartöflur og þess háttar. Framboð er enn of litið á kjöti, mjólk, ávöxtum og grænmeti. Ávextir og grænmeti eru aðeins til í nægu magni í suðurhluta Sovétríkj- anna. Þar fara þúsundir tonna til spillis vegna skorts á flutningatækj- um, réttri meðhöndlun eða hæfu geymsluhúsnæði. Á meðan er skortur á ávöxtum og grænmeti í hinum norðlægari stórborgum. Samkvæmt haglölum er kjötneyzla í Sovétríkjunum 57 kilógrömm ááriá hvern íbúa. Þessi lala inniheldur þó mikið af fitu og beinum. Sovézkir næringarfræðingar segja að æskileg kjötneyzla sé 80 kílógrömm á ári á ibúa. Þó að fregnir berist stundum af , biðröðum eftir brauði á afskekktum stöðum þá er brauð ein af fáum mat- vörutegundum sem yfirleitt má fá án þess að lenda i biðröð. í sjálfu sér má segja að þetta sé góður árangur hjá þjóð sem þekkt hefur hungursneyð bæði af manna völdum og af náltúr- unnar völdum nokkrum sinnum á þessari öld. Nokkrar framfarir hafa vissulega orðið á framleiðslu kjöts og mjólkur- vara sérstaklega á árunum 1965 til 1975. Ekki hefur þó tekizt að halda í við aukna eftirspurn. Vandamálið er ekki aðeins að ná nægilegum árangri í landbúnaðinum. Vandinn liggur lika i erfiðleikum í að ná samræmi á milli framboðs og eflirspurnar á markaðnum. Verðlag hefur verið hið sama í rúblum talið síðan snemma á sjöunda áratugnum. Tvær rúblur fyrir kílóið af nautakjöti, nokkuð minna fyrir svínakjöt en kjúklingar eru nokkru dýrari. Kaupmátturinn í rúblum tal- inn hefur aukizt að meðaltali um 3% á ári á þessum tíma og hefur valdið auknum kaupmætti. Vegna skorts á ýmsum aðlaðandi neyzluvörum hefur þessi aukni kaupmáttur mjög koniið út i aukinni eftirspurn eftir kjöti. Á hinum opna bændamarkaði í Moskvu selst kjötkilóið á allt að átla rúblur og aldrei minna en finim rúbl- ur. Þrátt fyrir stöðugt opinbert .verð á kjöti hafa greiðslur til bænda hækk- að á tímabilinu. Þetta hefur valdið sí- auknum niðurgreiðslum á kjötinu. Á liðnum áruni hafa orðið miklar hækkanir á ýmiss konar innfiuttum lúxusvörum. Hins vegar virðisl svo sem sovézk stjórnvöld ætli enn um sinn að halda dauðahaldi í goðsögn- ina um stöðugt verðlag á brýnustu lífsnauðsynjum. Sovézkum ráðamönnum er nefni- lega vel Ijóst að hækkun á matvöru- verði var ein af meginorsökunum fyrir því að til óróans og verkfallanna kom í Póllandi i sumar og í haust. Sjálfir þurfa sovézkir ráðamenn ekki að hafa áhyggjur af biðröðum fyrir sjálfa sig og fjölskyldur sínar. Fyrir þá eru sérstakar búðir sem selja úrvals kjöt og aðrar vörur. Síðan fara gæði sérbúðanna eftir þvi hve menn eru háttsettir i ríkiskerfinu eða flokknum.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.