Dagblaðið - 08.11.1980, Side 13

Dagblaðið - 08.11.1980, Side 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980. 13 N ssins unum í dag voru aðeins um 2700 „báta- fólk” hinir voru víetnamskir flótta- menn sem komið höfðu úr búðum í Thailandi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem slíkar búðir eru á Galang eyju. í lok heims- styrjaldarinnar voru þarna búðir fyrir japanska stríðsfanga og voru þarna um 112 þúsund stríðsfangar í eitt ár í lok styrjaldarinnar. Þá var reist á eyjunni sögunarmylla sem enn er í gangi. Þetta var mjög skemmtileg og lærdómsrík reynsla sem maður öðlaðist i þessu starfi og samskipti við Indó- nesíumenn, bæði frá indónesíska Rauða krossinum og stjórnvöld, voru hin beztu. Þarna i búðunum var stór hópur sjálfboðaliða frá Rauða krossin- um sem sá um skráningu, bréfasend- ingar og margt fleira. Einnig var þarna um að ræða samvinnu við fólk frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóð- anna og fulltrúa frá hinum ýmsu hjálparstofnunum sem þarna voru við störf.” Yfirstjórnandi alls starfs Rauða krossins Síðari hluta starfstímans tók Magnús jafnframt við störfum yfirstjórnanda alls starfs Rauða krossins á þessu land- svæði af dönskum manni sem setið hafði í Djakarta. Síðustu dagana var Magnús síðan i Djakarta til að ganga frá ýmsum málum áður en hann hélt til Singapore til fundar við konu sína eins og sagt var frá í blaðinu í fyrradag. Þessi yfirlitsmynd sýnir flóttamannabúðirnar é Galang. Ljósm. Magnús Hallgrímsson. SINGAPORE BATAMIT) $ .^^Tnflpinan9 GALANG INDONESIA Götumynd fró fIsklmannaþorpi ó eyjunni Bintan. Eins og sjá má aru húsakynnl þaríendra akki upp á marga fiska og sagja má afl flóttafóNcið hafi búið við batri aðstsaður an innfaaddir. Auk starfs- ins ( flóttamannabúðunum vaitti Rauði krosskin fóikinu á eyjunum margvfsiaga aöstoð baeði ( forml laeknishjáipar og á anrtan hátt. / Alþýöuleikhúsið: KÓNGSDÓTTIRIN SEM KUNNIEKKI AÐTALA eftir Christma Andersson Þýöandi, leikstjóri: Þórunn Siguröardóttir Leikmynd, brúður og búningar: Guðrún Aufl- unsdóttir Það eru geðsleg leikrit handa litl- um börnum sem fundist hafa í Finn- landi, eftir Christinu Andersson, og nú eru leikin hvert af öðru í Reykja- vík: Hlynur og svanurinn sem Leik- félag Reykjavíkur sýnir í skólum og Kóngsdóttirin sem kunni ekki að tala og Alþýðuleikhúsið frumsýndi í Lindarbæ á sunnudag. Kóngsdótturinni er nánar lýst svo að það sé „leikrit með fjórum leikur- um, brúðum, dreka og dúskum, fyrir heyrandi og heyrnarlausa”. Og það er að vísu alveg rétt lýsing: leikurinn er að verulegu leyti þögull, fer fram með látbragði, bendingum og hreinu og beinu merkjamáli. Þessi leikmáti er engin formsgrilla heldur stafar með eðlilegu móti af efni leiksins sem lýsir því hvernig fundið er mál handa daufdumbu barni. Málið er efnað úr söng steinsins, þögn vindsins, hreyf- ingu líkamans og sótt i greipar dreka. Eins og líka er ljóst af Hlyni og svan- inum fær Christina Andersson skáld- legar hugmyndir til leikja sinna. Og hún fer með þá af næmleik og nær- gætni við áhorfendur sína, leikir hennar eru með sinu einfalda móti •.hreinn og tær skáldskapur. Kóngsdóttirin í leiknum kann ekki að tala. Og kóngur faðir hennar lætur eins og vera berboð ganga út um ríki sitt að hver sem gefi dóttur sinni mál skuli hreppa hana sjálfa að launum. Vilfreð unga hetja vinnur kóngsdóttur og rikið eins og vera ber i ævintýri. En umfram allt er það ljóst að með málinu hefur kóngsdótt- ir eignast sjálfa sig. Þarna var hnytti- lega farið með hefðbundin sögulok ævintýris. Alþýðuleikhúsið fer smekklega og notalega með leikinn við leiðsögn Þórunnar Sigurðardóttur. Leikmynd og sér í lagi brúður og grey drekinn grimmi og vondi, verk Guðrúnar Auðunsdóttur, fannst mér alveg bráðvel af hendi leyst. Fyrir full- orðinna smekk kann leikurinn að þykja ivið hægfara, ívið langdreginn, frásögnin í allra skilmerkilegasta lagi. En ekki sá ég betur en börnin í saln- um nytu hennar ríkulega, einkum sjálfsagt hin yngslu, kannski beinlínis af því hvað hún er Ijós og auðnumin. Það eitt að efna sér i lagi til leiksýn- ingar við hæfi heyrnarskertra og heyrnarlausra barna hygg ég að sé þakkar og æru vert. En líka er verl að taka skýrt fram að börn sem einskis hafa misst njóta leiksins ekki síður. í hlutverkunum eru Sólveig Hall- dórsdóttir: kóngsdóttirin, Anna Einarsdóttir og Helga Thorberg: Vil- freð og Alfreð, dálítið slysfengir kappar, og Ragnheiður E. Arnar- dóttir sem er sögukona, tré og sitt- hvað fleira, ný leikkona að ég held, og kemur fjarska vel fyrir í sýning- unni. (Jr „Kóngsdótturinni sem kunni ekki að tala” I meðförum Alþýðuleikhússins, — f.v. Anna S. Einarsdóttir, Sólveig Halldórsdóttir, Helga Thorberg. Hérna eru jarðskjálftar, fellibyljir og vetrarveflur allt í einul

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.